Skólavarðan - 01.09.2012, Blaðsíða 9

Skólavarðan - 01.09.2012, Blaðsíða 9
9 Skólavarðan 1. tbl. 2012 Dæmi um hæfniviðmið, tekin hér og þar úr drögum að köflum um námssvið sem eru nú til umsagnar: Við lok 4. bekkjar getur nemandi: Við lok 7. bekkjar getur nemandi: Við lok 10. bekkjar getur nemandi: Náttúru- greinar gefið skýrslu um algengustu lífverur í nánasta umhverfi gefið dæmi um aðlögun lífvera að íslensku veðurfari og búsvæðum lýst með dæmum sér- stöðu íslenskra lífvera og aðlögun þeirra að umhverfinu Tónmennt greint púls og hryn og túlkað í hreyfingu, samspili og söng greint,útskýrt og spilað púls og einföld hryn- mynstur sem undirspil við söng eða í samspili tekið þátt í tónsköpun af einhverju tagi, s.s. kórsöng eða samspili sjálfum sér og öðrum til ánægju Önnur breyting er að mat við lok grunnskóla á að setja fram á fjögurra stiga matskvarða með bókstöfunum A, B, C og D. KVARÐI NÁMSSVIÐ LYKILHÆFNI A Framúrskarandi hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfnivið- miðum námsgreinar eða námssviðs Framúrskarandi hæfni með hlið- sjón af viðmiðum um lykilhæfni B Góð hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs Góð hæfni með hliðsjón af viðmiðum um lykilhæfni C Sæmileg hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfnivið-miðum námsgreinar eða námssviðs Sæmileg hæfni með hliðsjón af viðmiðum um lykilhæfni D Hæfni og frammistöðu í námi ábótavant með hliðsjón af hæfnivið- miðum námsgreinar eða námssviðs Hæfni með hliðsjón af viðmiðum um lykilhæfni ábótavant Þennan kvarða á að nota við brautskráningu úr grunnskóla en að öðru leyti ákveða skólar hvernig þeir haga námsmati og einkunnagjöf eða vitnisburði. Í námskránni eru matsviðmið fyrir kvarðann sett bæði fyrir námssvið og lykilhæfni og lýsa matsviðmiðin því að hve miklu leyti nemandi hefur tök á viðkomandi hæfni. Dæmi um matsviðmið fyrir 10. bekk: Nemandi getur: A B C D Náttúru- greinar á skýran hátt útskýrt í máli og myndum tengsl manns og náttúru og útskýrt á sannfærandi hátt að framtíðin byggist á gagnkvæmri ábyrgð og virðingu mannsins í samspilinu við jörðina útskýrt í máli og myndum tengsl manns og náttúru og að framtíðin byggist á gagnkvæmri ábyrgð og virðingu mannsins í sam- spilinu við jörðina nefnt dæmi í máli og/eða myndum um tengsl manns og náttúru Fyrir nemendur sem ekki ná C skráir kennari þá hæfni sem nemandi býr yfir, hér er ekki staðlað matsviðmið Tónmennt af öryggi tekið þátt í tónlistarflutningi, einn eða með öðrum, túlkað tilfinningar og blæbrigði af listfengi og næmi á persónulegan hátt og /eða út frá menningarlegu og sögulegu samhengi tekið þátt í tónlistarflutningi, einn eða með öðrum, túlkað tilfinningar og blæbrigði á persónulegan hátt og /eða út frá menningarlegu og sögulegu samhengi að einhverju marki tekið þátt í tónlistar- flutningi, einn eða með öðrum, túlkað tilfinningar og blæ- brigði samkvæmt leiðbeiningum og út frá menningarlegu og sögulegu samhengi Matsviðmið B eru byggð á hæfniviðmiðum fyrir 10. bekk og fram- setning þeirra þannig að gera má ráð fyrir að þorri nemenda nái þeirri hæfni sem þar er tilgreind. Hæfni sem lýst er með matsviðmiði A er framúrskarandi hæfni sem er sambærileg og hæfni við lok fyrsta hæfniþreps framhaldsskóla. Matsviðmið C lýsir því að standast ekki fyllilega þær kröfur sem gerðar eru í B viðmiðum. Ekki eru sett viðmið fyrir D því gera má ráð fyrir að sá vitnisburður sé notaður í þeim tilvikum þegar nemandi uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru í C viðmiðum og skóli geri þá sérstaka grein fyrir vitnisburði viðkomandi nemanda. Í Aðalnámskrá grunnskóla 2011, almennum hluta er gerð grein fyrir námsmati, markmiðum þess og tilgangi í sérstökum kafla. Megináherslur sem hafa verið nokkuð óbreyttar lengi, eru að lögð er áhersla á að námsmat sé hluti af námi og kennslu og nýta eigi stöðumat til að skipuleggja framhald náms og kennslu. Áhersla er á fjölbreyttar matsaðferðir og þær eiga að hæfa markmiðum náms. Hvatt er til að nýta formlegt og óformlegt mat og ekki eigi eingöngu að meta þekkingu heldur einnig t.d. framfarir og leikni. Í umfjöllun um námsmat hefur einnig verið talað um mikilvægi sjálfsmats nemenda og þátttöku þeirra í námsmati síðan 1989. Segja má að um áherslubreytingu sé að ræða nú varðandi ákveðna þætti þar sem lögð er aukin áhersla á leiðsagnargildi námsmats og þátttöku nemenda, en það er í samræmi við anda nýrrar aðalnámskrár. Einnig er mat á hæfni og framförum í stað markmiða áherslubreyting. Nemandinn og hæfni hans er í forgrunni og námskráin setur fram vegvísa um þá hæfni sem stefnt er að. Þátttaka nemenda er mikilvæg í námsmati og þeim eiga að vera ljós viðmið um hæfni. Matsviðmiðum við lok grunnskóla er lýst á kvarða og bókstafirnir A, B, C og D eru notaðir til að einkenna að hve miklu leyti hæfninni er náð. Við brautskráningu nemenda úr 10. bekk verður ný tilhögun námsmats notuð í fyrsta sinn vorið 2015. Hugtakið hæfni er nýtt í Aðalnámskrá grunnskóla en hefur verið notað undanfarin ár á háskólastigi og er einnig í fram- haldsskólum. Hæfni í aðalnámskránni stendur fyrir það hvernig einstaklingur notar þekkingu sína og leikni, hvað hann gerir með það sem hann veit og getur. Hæfni er náskyld markmiðum sem hafa verið leiðarljós í aðalnámskrá frá 1999. Meginmunurinn er að hæfni er alltaf nemendamiðuð og hæfniviðmið eru orðuð þannig að þau vísa til þess sem nemandi á að geta gert. Ein breyting í aðalnámskrá er að nú eru sett hæfniviðmið fyrir 4., 7. og 10. bekk sem lýsa þeirri hæfni sem stefnt er að. Í erlendum tungumálum eru hæfniviðmið sett fyrir 1., 2. og 3. stig. Stigin lýsa hæfni sem nemandi stefnir að eftir fyrsta, annan og þriðja hluta námstímans. Námsmat í nýrri aðalnámskrá grunnskóla Í stuttu máli: RáÐstEfnuR

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.