Skólavarðan - 01.09.2012, Blaðsíða 21

Skólavarðan - 01.09.2012, Blaðsíða 21
21 Skólavarðan 1. tbl. 2012 Láttu okkur vita! sigridur@ki.is Varstu að skipta um netfang? Eplið er á vefnum Eplið, rafrænt fréttabréf KÍ, er á vefnum. Lestu Eplið á www.ki.is sKóLAstARf íhlutun og forvarnir miklu máli. Vandamál sem barn eða ungmenni glímir við í grunnskóla verða alvarlegri ef ekki er brugðist við strax í upphafi . Mikilvægt er að tryggja jöfnuð allra barna, sérstaklega innan skólakerfi sins. Skólar geta hæglega hvatt til umburðarlyndis, unnið bug á togstreitu milli hópa og hjálpað börnum að aðlagast umhverfi sínu. Nýtt hlutverk skólafélagsráðgjafa á 21. öld er að vera sérfræðingar í fjölbreytileika og ólíkum lífsstíl. Lykilatriði í því er að hjálpa öðrum að þróa með sér skilning og færni til að eiga í uppbyggilegum og góðum samskiptum. Viðhorf skóla og kennara er stundum að líta á vandamál nemenda sem einstaklingsbundin fremur en að viðurkenna að orsakir vandamála kunna að liggja innan skólans eða í samfélaginu. Í slíkum tilfellum er skólafélagsráðgjafi nn talsmaður og málsvari nemandans og beitir sér, rökræðir og semur fyrir hönd hans. Huga þarf sérstaklega að nemendum sem eiga á hættu að ljúka aldrei námi. Brottfall úr námi getur haft gríðarleg áhrif á framtíð barna, jafnvel þannig að þau eiga síðar meir erfi tt með að taka fullan þátt í samfélaginu. Hætt er við að börn sem þroskast ekki í námi og/ eða félagslega verði háð kerfi nu eða föst í því. Skólinn er því kjörinn vettvangur fyrir félagsráðgjafa til að vinna að markmiðum sínum um að styðja við persónulegan þroska og bæta lífsgæði allra. Af hverju skólafélagsráðgjöf? Augljóst er að það er heppilegra fyrir einstaklinginn og margfalt kostnaðarminna fyrir þjóðfélagið að koma í veg fyrir að ungum nemanda mistakist í námi eða félagslega. Betra er að greiða úr smávægilegum vandamálum strax og þau koma upp en að draga það árum saman að takast á við vandann, jafnvel þar til hann hefur magnast og valdið margföldum skaða fyrir einstaklinginn. Menntun er lykillinn að forvörnum og lausn á félagslegum vanda. Leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn Kolbrún Baldursdóttir K o lb r ú n B a ld u r s d ó t tir EKKI MEIR EK K I M EIR Bók um eineltismál B ó k u m e in e ltis m á l Bókin EKKI MEIR er leiðarvísir ásamt því að vera verkfæri til að nota í fyrirbyggjandi vinnu gegn einelti eða grípa til í úrvinnslu mála. Hún hefur að geyma ráðgjöf fyrir skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn. Í bókinni er umfjöllun um hinar mörgu tegundir forvarna og tengsl þeirra við uppbyggingu jákvæðs starfsanda í skóla- og frístundaumhv rfi u. Jákvæð r staðarbragur og almenn vellíðan kennara, leiðbeinenda íþrótta- og æskulýðsfélaganna og annars starfsfólks skilar sér til barnanna og foreldra þeirra eftir ýmsum leiðum. Bókin er ekki eingöngu hugsuð fyrir fullorðna. Í henni eru einnig leiðbeiningar til barn um hvað einkennir jákvæða samskiptahætti ásamt skilaboðum til þeirra barna sem eru annars vegar þolendur eineltis og hins vegar gerendur eineltis. Hægt er að miðla ef i bókarinnar til barna með ýmsum hætti. Ein leiðin er að lesa úr bókinni fyrir barnið sitt eða bekkinn/ hópinn. Kolbrún Baldursdóttir hefur sem sálfræðingur komið að málefnum barna og unglinga með fjöl- breyttum hætti svo sem með fræðslu, ráðgjöf og meðferð. Hún hefur jafnframt reynslu af kennslu á öllum skólastigum. Lengst af hefur Kolbrún verið sálfræðingur barnaverndarmála og skólasálfræðingur. Hún hefur rekið eigin sálfræðistofu frá 1992. Leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn EKKI MEIR Bók um eineltismál strikamerki Skólar geta hæglega hvatt til umburðarlyndis, unnið bug á togstreitu milli hópa og hjálpað börnum að aðlagast umhverfi sínu. Nýtt hlutverk skólafélagsráðgjafa á 21. öld er að vera sérfræðingar í fjölbreytileika og ólíkum lífsstíl.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.