Skólavarðan - 01.09.2012, Blaðsíða 32

Skólavarðan - 01.09.2012, Blaðsíða 32
32 Skólavarðan 1. tbl. 2012 Í þessari grein sem birt er í tveimur hlutum í september- og nóvembertölublöðum Skólavörðunnar er leitast við að gefa upplýsingar um álag í starfsumhverfi félagsmanna KÍ í framhaldsskólum og breytingar á þessum álagsbreytum frá 2008 til 2012. Greinilegt er að bæði starfsánægja og líðan félagsmanna hefur versnað á milli samanburðartímabila. Stóraukið starfsálag í framhaldsskólum landsins! Guðrún Ragnarsdóttir framhaldsskólakennari og lýðheilsu- fræðingur rannsakaði líðan og starfsumhverfi félagsmanna Kennarasambands Íslands (KÍ) í framhaldsskólum árin 2008, 2010 og 2012. Hér er um einstæða samanburðarrannsókn að ræða meðal íslenskra kennara og niðurstöðurnar vitna því miður með ótvíræðum hætti um versnandi vinnuaðstæður og líðan milli ára. Til hvers? Öllum rannsóknunum er ætlað að varpa ljósi á það sem betur má fara í starfsumhverfi félagsmanna KÍ í framhaldsskólum með það að markmiði að stuðla að umbótum á starfsumhverfi þeirra, bæta líðan félagsmanna og auka starfsánægju þeirra. Tilgangur rannsóknarinnar 2008 var að kanna líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara almennt. Árið 2010 var tilgangurinn að kanna breytingar frá fyrri rannsókn, meðal annars vegna breytts efnahagsástands og nýrra framhaldsskólalaga. Árið 2012 var tilgangurinn að afla upplýsinga um breytingar frá fyrri rannsóknum auk þess að kanna viðhorf félagsmanna til starfsumhverfis, núverandi vinnutilhögunar og fyrirhugaðra breytinga á vinnutímaskilgreiningum og þörf félags- manna fyrir símenntun og starfsþróun. Alls tóku 901 (87%) framhaldsskólakennari þátt árið 2008, 892 (63%) árið 2010 og 1156 (63%) árið 2012. Allar samanburðartölur miðast við framhaldsskólakennara þar sem aðrir félagsmenn KÍ í framhaldsskólum tóku ekki þátt í fyrri rannsóknum. Aðferðafræði rannsóknarinnar er hægt að finna á vef KÍ, slóðin er ff.ki. is/?PageID=3267 Langur vinnudagur og ógreidd yfirvinna Félagsmenn KÍ vinna almennt langan vinnudag og fá ekki greidda yfirvinnu í samræmi við lengd hans. Vinnudagurinn er lengstur hjá stjórnendum og stystur hjá náms- og starfsráðgjöfum. Vinnudagur framhaldsskólakennara í 100% starfi hefur lengst verulega frá efnahagshruni og munurinn er verulegur á milli kennarahópa, bóknámskennarar vinna lengri vinnudag en aðrir kennarahópar. Sú þróun sem átt hefur sér stað frá 2008, að framhaldsskólakennarar vinni æ lengri vinnudag og fái sífellt færri yfirvinnutíma greidda umfram vinnustundir, rennir stoðum undir það að niðurskurði í fram- haldsskólum landsins er alls ekki lokið. Mikið hefur verið um það að fjölga nemendum í námshópum, einkum hjá bóknámskennurum, þar sem tækjafjöldi í verklegum greinum takmarkar þann fjölda nemenda sem geta stundað nám í viðkomandi grein. Rannsóknargögn sýna glögglega að niðurskurðurinn er fyrst núna farinn að hafa veruleg áhrif á félagsmenn því álagsbreytur hafa tekið stökkbreytingum frá árunum 2010-2012. Vel rúmlega sex af hverjum tíu náms- og starfsráðgjöfum og stjórnendum í framhaldsskólum landsins finnst vinnuálag vera ójafnt og verkefni hlaðast upp samanborið við rúmlega helming fram- haldsskólakennara. Munur á vinnuálagi er jafnframt mikill á milli kennarahópa. Rúmlega sex af hverjum tíu bóknámskennurum finna fyrir ójöfnu vinnuálagi og því að verkefni hlaðist upp samanborið við einn af hverjum þremur verknámskennurum. RAnnsóKnIR Fyrri hluti Guðrún Ragnarsdóttir. Texti: Guðrún Ragnarsdóttir Myndir: JS

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.