Morgunblaðið - 04.02.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
55
Bankarán eru
daglegt brauð
Það er mikið álag á bankastarfs-
mönnum Ástralíu. Vart rennur sá
dagur upp að það komi ekki hettu-
klæddur maður vopnaður byssu og
miði á gjaldkera í banka. Og það
jafnvel oft sama daginn. Enginn
bankamaður er óhultur því þar eru
flestir starfsmenn gjaldkerar ásamt
öðru.
Kreditkortanotkun
Ef íslendingar halda að þeir eigi
met í notkun kreditkorta ættu þeir
að koma hingað. Ástralir eiga víst
metið í plastpeninganotkun. Hér
hafa margar verslanir slík kort og
eru iðnar við að bjóða þau án þess
að kynna sér að neinu leyti fjár-
hagsstöðu eða getu viðkomandi
einstaklings til að borga. Og kerfið
er þannig að ekki þarf endilega að
greiða allan reikninginn við lok
greiðsluttmabils. Þú getur greitt inn
á pg greiðir svo vexti af afgangn-
um. Margir hafa með þessu skapað
sér skuldahala sem mun endast
þeim út ævina. Eitt sinn er ég var
í búð að skoða vöru og sagðist
myndu koma seinna þegar ég ætti
peninga var mér boðið kreditkort.
Það var ekki einu sinni spurt hvað
ég gerði, en ég hafði engan áhuga
á kortinu. Þessi stóru nöfn eins og
John Martins og David Jones ná
með þessu móti taki á stórum hópi
fólks.
Ástralir eru sagðir skulda tvo og
hálfan milljarð dollara vegna notk-
unar korta. Eða tvö þúsund dollara
á mann.
Áramótaskrif blaðsins „The
Advertíser“
En lítum aðeins á áramótaskrif
blaðsins „The Advertiser": Land
okkar er örlátt og gjafmilt og lofts-
lagið gott. En þjóðin er gráðug að
auki. Kröfur okkar eru meiri en
möguleikamir að uppfylla þær. Við
höfum ekki sömu hæfileika til að
láta enda ná saman á sama hátt
og forfeður okkar. Sjálfstraust okk-
ar hefur minnkað og við höfum
tilhneigingu til að láta eftir okkur
að vera löt í sólinni að vilja fá hluti
án þess að vinna fyrir þeim. Aukn-
ingin á því að báðir aðilar vinni
utan heimilis er að hluta afleiðing
af því, en að hluta afleiðing eftia-
hagsástandsins. Þegar við getum
ekki brúað þetta bil getur útkoman
orðið ljót og eyðilagt fjölskyldulífið.
Það getur svo leitt af sér slæmt
þjóðfélagsástand. Fátækt, atvinnu-
leysi og ofbeldi. Það er sama þó
að við viljum horfa í aðra átt, þess-
ar ástæður verða alltaf fyrir hendi.
Þær munu ekki hverfa á meðan við
höldum áfram þeim eigingjama leik
að eyða um eftii fram.
Svo mörg voru þau orð. Mann-
kynið virðist alls staðar samt við
sig í þessum efnum.
fHiorjgfw-
í Kaupmannahöfn
F/EST
Í BLADASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Christopher Lambert fer með aðalhlutverkið í myndinni Sikileyingur-
inn sem Bíóborgin hefur hafið sýningar á.
Sikileyingurinn
BÍÓBORGIN hefur hafið sýning-
ar á myndinni Sikileyingurinn
sem gerð er af leikstjóranum
Michael Cimino. Hann gerði m.a.
myndirnar „Deer Hunter“ og
„Year of the Dragon“. Með aðal-
hlutverk í myndinni fer Christ-
opher Lambert.
Myndin er byggð á sögu eftir
Mario Puzo („The Godfather") og
hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sikileyingurinn var ein af metsölu-
bókunum vestan hafs þegar hún
kom þar út, en myndin þykir fylgja
bókinni mjög vel eftir.
I fréttatilkynningu segir m.a. um
efni myndarinnar: „Oldum saman
hefur Sikiley verið stjómað af
bandalagi stjómmálaflokka, kaþ-
ólsku kirkjunnar og Mafíunnar, svo
að umbótasinnuð öfl hafa alltaf átt
erfítt uppdráttar og forvígismenn
þeirra hafa oft verið drepnir, ef
þeir létu ekki af mótþróa við þetta
spillta kúgunarafl. Eftir síðari
heimsstyijöld kemur nýr maður
fram á sjónarsviðið og gerir kröfu
um jarðnæði fyrir leiguliða og
vinnufólk á stóijörðum, þar sem
stór flæmi vora oft í órækt af því
að stórbændumir töldu sig ekki
hafa hag af að nytja slíkt land,
Salvatore Giuliano, en svo hét
þessi maður, gat sér fyrst orð fyrir
djarfleg rán, því hann lét ráns-
fenginn renna til styrktar fátækum.
Tschnics • SONY • DENON »Panasonic • cgSAMSUNG
10- 40 % afí sláttur
Hljómtækjasamstæður frá kr. 11.600,-
Magnarar (Sony) frá kr. 9.950,- • Geislaspilari (Technics) 14.700,-
Kassettutæki (Denon) frá kr. 12.700,-Plötuspilarar (Panasonic) frá kr. 4.810,-
Útvarpstæki (Sony) frá kr. 7.500,- • Hátalarar (Sony) frá kr. 8.800,-
Vídeómyndavélar VHS-C frá kr. 81.700,- • Myndbandstæki VHS 24.900,-
Sjónvarpstæki frá kr. 17.600,- • Ferðaútvarp m/kassettu frá kr. 3.800,-
VHS spólur 3ja tíma frá kr. 380,- • Kassettur 60 mín. 3 stk. frá kr. 295,-
Heyrnartól frá kr. 850,- • Vasadiskó-útvarp frá kr. 1.980,- • og margt fleira.
Góð greiðslukjör.
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SÍMI 27133