Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988 Rúm 60% á móti hundahaldi í skoðanakönnun: Nýjar reglur um bann við hundahaldi fyrir áramót seg-ir Davíð Oddsson borgarsfcjóri SAMKVÆMT niðurstöðum skoðanakönnunar borgarinuar um hundahald hafnar meirihluti borg’arbúa því í núverandi mynd. Kjörsókn í könnunini var dræm, aðeins 12,8% greiddu at- kvæði eða 8.770 af 68.525 sem voru á kjörskrá. Atkvæði féllu þannig að já sögðu 3.459 eða 39,4%. Nei sögðu 5.279 eða 60,2%. Auðir seðlar voru 14 og ógildir 23. Málið mun verða tekið til umræðu á borgarráðsfundi í dag. Davíð Oddsson borgarstjóri seg- ir að málið verði kynnt og rætt í borgarráði og borgarstjórn. Hann segir að þrátt fyrir litla þátttöku í kosningunni verði að taka tillit til niðurstöðu hennar og þar með banna hundahald í borginni. Þeir sem eiga hunda fyrir og hafa skráð þá með iögformlegum hætti munu samt áfram fá að halda þeim á heimilum sínum svo lengi sem dýr- in eru á lífí. Davíð segir að það taki nokkurn tíma að breyta reglugerðinni um Svar frá Banda- ríkjamönnum í dag? ENGIN viðbrögð hafa enn borist við mótmælum sem Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráð- herra, hefúr komið á framfæri við bandarisk stjórnvöld vegna meintra afskipta Bandaríkja- manna á sölu islensks hvalkjöts til Japans. Talsmaður banda- riska utanríkisráðuneytisins vildi ekkert um málið segja ann- að en að ráðuneytinu hefðu bor- ist mótmælin og viðbragða við þeim væri hugsanlega að vænta i dag. Utanríkisráðherra kom mót- mælunum á framfæri við, Ridgeway aðstoðarutanríkisráð- herra Bandarílcjanna og Nicholas Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna á Wörner í heimsókn Aðalframkvæmdastjóri Atl- antshafsbandalagsins, Manfred Wömer, kemur ásamt fylgdarliði í tveggja daga opinbera heim- sókn til Islands á morgun í boði utanríkisráðherra. Auk þess að eiga viðræður við utanríkisráðherra mun aðalfram- kvæmdastjórinn ganga á fund for- seta íslands og hitta að máli forsæt- isráðherra. Einnig heimsækir Mar - í red Wömt • Keflavíkurflugvöll. íslandi. Síðdegis í gær höfðu engin svör borist Jóni Baldvini og upplýs- ingafulltrúi bandaríska sendiráðs- ins sagðist ekki vita hvort eða hvenær sendiherrann myndi ganga á fund utanríkisráðherra. hundahald í borginni. Tvær um- ræður þurfi í borgarstjórn og síðan þurfí staðfestingu dómsmálaráðu- neytisins. Hann á þó von á að tak- ist að afgreiða það fyrir áramótin. Guðrún Guðjohnsen formaður Hundaræktarfélagsins segir að hún geti ekki túlkað niðurstöður kosningarinnar á neikvæðan hátt. Úrslitin hafi ekki komið henni á óvart þar sem vitað var að hópur hundaeigenda er lítill og jafnframt er til staðar lítill hópur harðra andstæðinga hundahalds. Þessir tveir hópar hafi svo íjölmennt í kosningamar. „Hin litia kosninga- þátttaka sýnir að stórum meiri- hluta borgarbúa finnst hundahald ekki athugavert," segir Guðrún. Hvað framhaldið varðar segir Guðrún að gera verði betur í að herða reglur um hundahald en ekki megi til þess koma að það verði bannað. Þá kæmi upp sami vítahringur og var fyrir 4 árum. Félagið hafi til staðar fjölda af til- lögum um hvemig bæta megi ástandið og þá sérstaklega eftirlit með hundahaldi. 1 mmm , Morgunblaðið/Bjami Starfsmaður ríkisprentsmiðjunnar Gutenberg vinnur við prentun fjárlagafrumvarpsins í gær. Fjárlagafrumvarp- ið lagt fram í dag Fjárlagafrumvarpið verður lagt fram á Alþingi i dag. Þá verður væntanlega einnig lagt fram frumvarp til lánsljárlaga, en frá því frumvarpi verður endanlega gengið á fúndi ríkis- stjórnarinnar í dag. Stefnt var að því að leggja fjár- lagafrumvarpið fram í gær, en það tókst ekki. Prentun frum- varpsins lauk ekki fyrr en í nótt. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra: Varaflugvöllur á vegum NATO yrði ekki hemaðarmannvirki JÓN Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, segir að þótt varaflugvöllur fyrir stórar flug- vélar yrði kostaður af Mann- virkjasjóði Atlantshafsbanda- lagsins að einhverju leyti yrði ekki um hernaðarmannvirki að ræða. Jón Baldvin segir að enn eigi eftir að ræða það til hlítar hvort NATO taki þátt í gerð flugvailarins, þrátt fyrir að sam- gönguráðherra hafi dregið fúll- trúa sína út úr nefnd sem ræða átti gerð varaflugvallar við Bandaríkjamenn. Þá segir ráð- herra að áfiram verði unnið við þær framkvæmdir í þágu land- varna, sem þegar hefúr verið samið um, þrátt fyrir ákvæði í stjórnarsáttmála um að ekki verði ráðist í nýjar meiriháttar framkvæmdir á vegum varnar- liðsins og að samskipti við það verði endurskipulögð. „Það er staðreynd að því er varð- ar millilandavélar íslensku flugfé- laganna að þær hafa engan vara- flugvöll hér á landi. Þær verða því að flytja eldsneyti sem nægir þeim til að komast til Skotlands, sem er næsta land með nægilega stóran varaflugvöll fyrir þær. Þetta er auðvitað óviðunandi flugöryggi," sagði utanríkisráðherra í svari við fyrirspurn á fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs á laugardag. Jón Baldvin sagðist fyrst og fremst leggja áherslu á það að það væri áhugi af hálfu Atlantshafs- bandalagsins á að slíkur varaflug- völlur yrði gerður. „Það er áhugi og fordæmi fyrir því að Mann- virkjasjóður NATO taki þátt í kostnaðinum við slíkan völl. Marg- ir hafa lýst sig andvíga því og tal- ið að þetta ætti að verða algerlega íslenskt mannvirki, kostað af íslensku fé. Við erum hér að tala um flugvöll, sem gæti kostað 9-10 milljarða íslenskra króna,“ sagði ráðherra. „Ég vil láta það koma fram að jafnvel þótt um væri að ræða flugvöll, sem væri að hluta til kostaður af Mannvirkjasjóði NATO, þyrfti hann ekki að full- nægja öðrum skilyrðum en þeim að brautarlengd væri 3 kílómetrar, að stæði væru fyrir ákveðna stærð Átök um ritstjórastóla á Þjóðvilja Fundi í útgáfufélag’i frestað að beiðni formanns Alþýðubandalagsins STJÓRNARFUNDI í Útgáfúfélagi Þjóðviljans var frestað í gær, að ósk Ólafs Ragnars Grimssonar formanns Alþýðubandalagsins en á útgáfúfélagsfúndinum átti m.a. að taka ákvörðun um hvort ráðningarsamningur við Mörð Arnason, einn þriggja ritstjóra blaðsins, yrði endurnýjaður. Óttar Proppé hafði áður sagt upp störfúm sem ritstjóri Þjóðviljans en hann hefúr gegnt því starfi frá 1. desember sl. eins og Mörður. Rætt hefúr verið um að Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur verði ráðin ritstjóri blaðs- ins i stað Óttars. Óttar Proppé og Mörður Áma- son voru ráðnir ritstjórar Þjóðvilj- ans. í desember sl. til eins árs. Mörður var stuðningsmaður Ólafs Ragnars Grímssonar við form- annskjör í flokknum skömmu áður og var ráðinn ritstjóri m.a. með það í huga. Óttar Proppé var frek- ar talinn fulltrúi þeirrar fylkingar innan flokksins sem fylgdi Sva- vari Gestssyni fráfarandi form- anni að málum og studdi Sigríði Stefánsdóttur við formannskjörið. Fyrir hefur legið í nokkrar vik- ur að Óttar vildi ekki endumýja sinn ráðningarsamning. Mörður hefur hins vegar óskað eftir end- urráðningu, og í bréfí, sem Mörð- ur sendi stjóm útgáfufélagins fyr- ir skömmu, sagði hann að ef svar við ósk um endurráðningu hefði ekki borist fyrir 1. nóvember liti hann svo á að ráðningarsamning- ur sinn endumýjaðist sjálfkrafa. Úlfar Þormóðsson formaður Útgáfufélags Þjóðviljans, sagði við Morgunblaðið, að engar tillög- ur hefðu verið komnar fram í út- gáfústjóminni varðandi ritstjóra- mál Þjóðviljans. Hins vegar hefði Merði Ámasyni verið gerð grein fyrir því hver staða málsins virtist vera. Úlfar vildi ekki tjá sig frek- ar um þetta, en samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins hefur hann talað fyrir því að ráðningar- samningur Marðar yrði ekki end- umýjaður og haft stuðning innan útgáfufélagsstjómarinnar, þótt hann hafi ekki verið einróma. Stjóm útgáfúfélagsins ætlaði að fjalla um málið á fundi í gær en Olafur Ragnar Grímsson ósk- aði eftir fundi með stjóm útgáfu- félagsins I gærdag. Á fundinum var meðal annars kynnt samþykkt starfsmanna Þjóðviljans þar sem lýst var yfir stuðningi við Mörð Ámason og óskað eftir því að hann yrði endurráðinn sem rit- stjóri. Að fundinum loknum sendi Mörður stjóm félagsins annað bréf, að tilmælum Ólafs Ragnars, þar sem hann sagðist geta sætt sig við að svar við ósk um ráðn- ingu bærist ekki fyrr en í næstu viku og var stjómarfundi í útgáfu- félaginu frestaðtil 10. nóvember. Úlfar Þormóðsson sagði við Morgunblaðið að formaður flokks- ins ætti næsta leik í stöðunni en vildi ekki tjá sig frekar um málið. Aðspurður um þann leik, sagði Ólafíir Ragnar Grímsson við Morgunblaðið að hann hefði ekki haft mikinn tíma til að huga að því vegna anna, en sagði að ákvörðun yrði tekin á næstu dög- Úlfar sagði aðspurður að marg- ir blaðstjómarmenn hefðu nefnt Silju Aðalsteinsdóttur sem hugs- anlegan ritstjóra Þjóðviljans. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er talið líklegt að ef Mörður verður ekki endurráðinn og Silja Aðalsteinsdóttir verður ritstjóri við hlið Árna Bergmanns sem fyrir er, verði þriðji ritstjórinn ráðinn strax eftir áramót til að móta pólitísk skrif blaðsins. af þotum, að öryggisbúnaður væri í lagi og loks að eldsneytisgeymar væm fyrir hendi með nægilegu magni og öryggi. Undir öllum kringumstæðum þyrfti þessi vara- flugvöllur að uppfylla þessi skil- yrði. Að Öðm leyti er munurinn enginn nema á styijaldartímum ef til kæmi. Völlurinn yrði ekki hern- aðarmannvirki nema hvað hann yrði notaður í þágu varna landsins ef til átaka kæmi. Þarna yrði ekk- ert varalið, engir hermenn og völl- urinn yrði mannaður og rekinn af fslendingum," sagði utanríkisráð- herra. Ekki áhyggjur af því að varnarsamstarfið skaðist Utanríkisráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að vamarsam- starf Islands og Bandaríkjanna skaðist þótt skorist hafí í odda með þjóðunum végna tilraunar Banda- ríkjamanna að beita íslendinga við- skiptaþvingunum í gegnum Japani. „Við munum ekki una því að vera hafðir að ginningarfíflum í viðræðum milli réttkjörinna stjóm- valda landa. Allra síst áttum við von á þessari tvöfeldni frá vinum okkar. Það fer ekkert á milli mála að við lítum á Bandaríkin sem vina- þjóð og höfum ekki ástæðu til ann- ars. Samstarfið við Bandaríkin hef- ur alla tíð verið mjög gott,“ sagði utanríkisráðherra. Hann rifjaði upp að það hefðu verið Bandaríkin sem urðu fyrst til þess að veita viðurkenningu hinu unga íslenska lýðveldi og í kjölfarið á þeirri viðurkenningu hefðu önnur ríki gert slíkt hið sama. „Þetta mál hefur valdið okkur vonbrigðum en ég leyfi mér að vona að þetta sem gerst hefur hafí stafað af misskiln- ingi og að fyrir það verði bætt hið fyrsta," sagði Jón Baldvin Hanni- balsson. Sjá ennfremur á miðopnu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.