Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 35
AÐDÁENDUR ísaldarstúlkunnar
Aylu hafa eflaust verið orðnir lang-
eygir eftir framhaldi bókarinnar
Seiður sléttunnar, sem kom út árið
1990 og sumir eflaust búnir að af-
skrifa hana. En hér er hún mætt til
leiks 12 árum síðar og í hennar heimi
hafa einungis liðið nokkrir dagar síð-
an síðast. Hún og glæsimennið Jond-
alar eru loksins komin heim til þjóð-
ar hans, hún ólétt og brúðkaup fyrir
dyrum.
Fyrsta bók Auel, Þjóð bjarnarins
mikla, vakti óskipta athygli og að-
dáun á sínum tíma enda umfjöllunar-
efnið nýstárlegt og sagan spennandi.
Síðan hafa bækurnar sífellt verið að
dala og í Hellaþjóðinni er svo komið
að nánast þriðjungur bókarinnar
innniheldur upprifjanir úr fyrri bók-
um. Fóðrað með því að þau Jondalar
og Ayla þurfi auðvitað að segja fólk-
inu hans frá því sem á daga þeirra
hefur drifið á ferðalaginu. Á milli
upprifjananna eru svo hinar vel-
þekktu lýsingar á umhverfi, innan-
stokksmunum, helgisiðum, lækn-
ingajurtum og ástalífi þeirra
hjónaleysa. Kryddað með veiðiferð-
um, veisluhöldum og óprúttnum
óvinum, sem hafa horn í síðu Aylu,
en eru ótrúlega litlausir og lítið ógn-
andi miðað við þá óvini sem hún hef-
ur tekist á við í fyrri bókunum.
Ayla er auðvitað sem fyrr greind-
ust, fallegust og best innrætt allra og
nánast allar uppfinningar mann-
kynsins á þessum tíma eiga upptök
sín í frjóum huga hennar. Og aldeilis
með ólíkindum hversu vestræn og
nútímaleg hún er í hugsun og sið-
ferði. Vekur þá spurningu í huga les-
andans hvort kristnin hafi verið
þekkt fyrir 35.000 árum og það sé
tóm vitleysa að telja hana aðeins
2.000 ára gamla. Reyndar tekur höf-
undur fram í eftirmála að hún hafi
hagrætt ýmsu með hagsmuni sög-
unnar að leiðarljósi og fornleifafræð-
ingar myndu tæpast skrifa undir þá
mynd sem hún dregur upp af lifn-
aðarháttum og hugsunarhætti Cro
Magnon-manna. Spurning hvaða til-
gangi það þjónar þá að staðsetja sög-
una svo nákvæmlega bæði í tíma og
rúmi.
Auðvitað er sagan fyrst og fremst
fantasía og ævintýri en ekki sagn-
fræði og gengur ágætlega upp sem
slík. Spennan er þó fyrirferðarlítil í
þessari bók og samfara- og innan-
stokkslýsingar fyrirferðarmeiri en
nokkru sinni fyrr. Svo fyrirferðar-
miklar að kannski mætti flokka bók-
ina undir það sem Svíar kalla „tants-
nusk“ og útleggst sem dónaskapur
fyrir eldri konur. Og á eflaust rétt á
sér sem slíkt. En ansi er hætt við að
aðdáendum Aylu finnist þeir fá lítið
fyrir sinn snúð.
Þýðing Helga Más Barðasonar er
prýðilega af hendi leyst, rennur vel
og átakalaust en stílsnilld er ekki
sterkasta hlið Auel. Og frásagnar-
gleðin sem einkenndi Þjóð bjarnar-
ins mikla er víðsfjarri.
BÆKUR
Þýdd skáldsaga
eftir Jean M. Auel í þýðingu Helga Más
Barðasonar, 660 bls.Vaka-Helgafell
2002
HELLAÞJÓÐIN
Ást og innan-
stokksmunir á ísöld
Friðrika Benónýs
„ÁHUGI fyrir þjóðsögum og rýni í
þær hefur farið vaxandi á und-
anförnum árum,“ segir Haraldur
Bessason sem ásamt Baldri Haf-
stað er ritstjóri bókarinnar Úr
manna minnum, safni 28 greina
um íslenskar þjóðsögur eftir jafn-
marga höfunda.
„Á þessu ári eru 150 ár liðin frá
því fyrsta safn íslenskra þjóð-
sagna, Íslensk ævintýri kom út.
Með útgáfu greinasafnsins nú
minnumst við frumkvöðlanna
tveggja á sviði þjóðsagnasöfnunar
á Íslandi, Magnúsar Grímssonar og
Jóns Árnasonar,“ segir Haraldur.
Haraldur er fyrrverandi rektor
Háskólans á Akureyri og Baldur
Hafstað er prófessor við Kenn-
araháskóla Íslands.
„Bókin er samvinnuverkefni á
milli þessara tveggja skóla og gef-
in út af Heimskringlu, háskóla-
forlagi Máls og menningar,“ segir
Baldur.
Þeir Haraldur og Baldur gáfu út
fyrir þremur árum annað greina-
safn sem bar nafnið Heiðin minni
og fjallaði um goðsögur. „Hug-
myndin kviknaði fljótlega að því
að gefa út viðlíka greinasafn um
íslensku þjóðsögurnar enda eru
goðsögur og þjóðsögur um margt
skyldar. Meginmunur þeirra er þó
sá að þjóðsögurnar eru bundnar
við ákveðin svæði, landfræðileg og
menningarleg en goðsögurnar eru
landamæralausari,“ segir Har-
aldur.
„Þjóðsögur eru einnig alltaf að
verða til og þessi bók sýnir það að
vort þjóðlíf í dag er ótæmandi upp-
spretta þjóðsagna. Ungir fræði-
menn nálgast einmitt þjóðsög-
urnar frá þessu
sjónarhorni í greinum
sínum. Þá er líka
fjallað um það hvern-
ig skáldin okkar hafa
nýtt sér þjóðsög-
urnar. Þær hafa alltaf
verið skáldunum lif-
andi uppspretta sköp-
unar frá upphafi til
vorra daga,“ segir
Haraldur.
„Við gerum okkur
vonir um að bókin
muni höfða til talsvert
breiðs hóps lesenda.
Hún mun vafalaust
nýtast vel við kennslu
í háskólum en einnig sjáum við fyr-
ir okkur að leiðsögumenn og aðrir
þeir sem starfa við kynningu og
landinu og menningu þess geti haft
gagn af henni; sömuleiðis erlendir
fræðimenn þar sem hverri grein
fylgir ítarlegt ágrip á ensku,“ seg-
ir Baldur.
„Þetta er ekki líkleg metsölubók
en við vonumst til að hún standi
fyrir sínu um nokkra hríð og ætti
ekki að úreldast alveg á næst-
unni,“ segir Haraldur.
Haraldur Bessason Baldur Hafstað
Þjóðsögur frá 28 hliðum
Líf með litum –
Saga málara-
iðnar á Íslandi
hefur Kristján
Guðlaugsson,
málarameistari
tekið saman.
Bókin er í rit-
röðini Safn til iðn-
sögu Íslendinga
XV bindi. Ritstjóri: Ásgeir Ásgeirsson
„Málaraiðn er ævafornt handverk,
þekkt frá forsögulegum tíma. Fáar
iðngreinar eru jafntengdar list-
greinum og málaraiðn og fáar iðn-
greinar endurspegla jafnvel tíð-
aranda og smekk á hverjum tíma.
Málarahandverk er í eðli sínu hvað
forgengilegast allra afurða iðn-
aðarmanna. Málning þarfnast reglu-
bundinnar endurnýjunar og við end-
urmálun er oft gerbreytt um efnivið
og aðferðir, liti og áferð. Sjást því
óvíða merki eldra handverks, ekki
síst í löndum eins og Íslandi þar
sem byggingarlist er einkum afurð
nútíma. Efni og aðferðir við málun
hafa tekið stórfelldum breytingum á
síðustu áratugum. Fá merki sjást nú
um eldri aðferðir og vinnubrögð við
málun. Það er því einkar brýnt að
halda til haga og forða frá glatkistu
vitnsekju um frumherja og eldri að-
ferðir,“ segir í fréttatilkynningu. Þá
er ítarlega fjallað um sígild áhöld,
efni og aðferðir sem fylgt hafa mál-
araiðninni fram til nútíma.
Útgefandi: Hið íslenska bók-
menntafélag. Bókin er 376 bls.
Verð: 6.800 kr.
Fræði
Reykjavík
Skeifunni 17
108 Reykjavík
AcoTæknival Sími 550 4000
www.atv.is AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111