Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 44
FRÉTTIR 44 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ TÆPLEGA fjögur hundruð manns voru brautskráð frá Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti, Fjölbrauta- skólanum við Ármúla, Mennta- skólanum við Hamrahlíð og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ nú fyrir helgi. Á föstudag voru brautskráðir 45 stúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Margir nemendanna voru brautskráðir samkvæmt nýrri námskrá frá 1999 eftir þriggja og hálfs árs nám, flestir nemendur í svonefndum HG-hópi sem starfað hefur undir kjörorðunum Hópur – Hraði – Gæði. HG-hópurinn er þjónusta við sterka nemendur og úr hópnum komu tveir dúxar skólans, Bryndís Ósk Jónsdóttir, stúdent af fé- lagsfræðabraut og viðskiptabraut, og Steinunn Lilja Emilsdóttir, stúd- ent af félagsfræðabraut. Báðar luku þær námi með frábærum ár- angri með einkunnina 10 í meiri- hluta námsáfanganna. Harald Gunnar Halldórsson, stúdent af náttúrufræðibraut, lauk flestum námseiningum, alls 173, 33 einingum umfram lágmark sem krafist er til stúdentsprófs. Á meðal gesta voru 20 ára stúdentar sem færðu skólanum ræðupúlt að gjöf. Dúxarnir tveir, Bryndís Ósk og Steinunn Lilja, hlutu verðlaun í fjöl- mörgum námsgreinum en aðrir sem hlutu verðlaun voru Ásgeir Runólfsson, Bryndís Stefánsdóttir, Gunnar Ingi Jóhannssson, Gyða Ingólfsdóttir, Harald Gunnar Hall- dórsson, Helena Eufemia Snorra- dóttir, Magnús Óskarsson, Ósk Auðunsdóttir, Sara Blandon, Þor- gerður María Halldórsdóttir og Ösp Ásgeirsdóttir. 88 stúdentar hjá MH 88 stúdentar, 60 konur og 28 karlar, voru brautskráðir frá Menntaskólanum við Hamrahlíð á föstudag. Dúx var Tinna Finn- bogadóttir, stúdent af eðl- isfræðibraut, með 9,7 í með- aleinkunn. Einn annar stúdent, Þórkatla Hauksdóttir af eðl- isfræðibraut, náði ágætiseinkunn. Hrefna Ingadóttir lauk flestum ein- ingum en hún lauk stúdentsprófi af þremur brautum samtímis; eðl- isfræðibraut, náttúrufræðibraut og listdansbraut. Eftirtaldir stúdentar hlutu verð- laun fyrir mjög góðan náms- árangur í einstökum greinum: Auð- ur Emilsdóttir (íslenska), Einar Erlensdsson (saga), Díana Rós Ri- vera (sænska), Jens Guðjónsson (stærðfræði), Tinna Eysteinsdóttir (líffræði) og Tinna Finnbogadóttir (eðlisfræði og stærðfræði). Tímamót hjá FÁ Í gær útskrifuðust 92 nemendur frá Fjölbrautaskólanum við Ár- múla, fimm lyfjatæknar, fjórir nuddarar, sjö sjúkraliðar, þrettán úr framhaldsnámi sjúkraliða, og 63 stúdentar. Af félagsfræðabraut út- skrifuðust 32 stúdentar, einn af hagfræðibraut, þrír af íþrótta- braut, 10 af málabraut, 11 af nátt- úrufræðibraut og sex af upplýsinga og tölvubraut. Útskrift markaði ákveðin tímamót vegna þess að þetta var fyrsta útskrift í fram- haldsnámi sjúkraliða. Guðný Rut Þorfinnsdóttir var dúx skólans, en aðrir sem fengu viðurkenningu fyrir góðan náms- árangur og félagsstörf voru Árni Friðberg Helgason, Elín Inga Han- sen Stígsdóttir, Erna Sif Jónsdóttir, Eygló Traustadóttir, Finnbogi Ósk- ar Ólafsson, Guðlaug Margrét Steinsdóttir, Helga Sólveig Að- alsteinsdóttir, Ingibjörg Vilhjálms- dóttir, Íris Jensdóttir, Jóhanna Pálsdóttir, Jóna Björg Eðvarð- sdóttir, Karl Óskar Kristbjarn- arson, Kristín Linda Ólafsdóttir, Kristján Theódór Friðriksson, Mar- grét Ó. Stefánsdóttir, Ólafur Páll Vignisson og Sigrún Elva Guð- mundsdóttir. 154 lokaprófsskírteini hjá FB 154 lokaprófsskírteini voru af- hent í Fjölbrautaskólanum í Breið- holti á föstudag, þar af 69 skírteini á starfsnámsbrautum en 85 nem- endur luku stúdentsprófi frá skól- anum. 12 nemendur luku sjúkralið- anámi, átta snyrtifræðinámi, 17 luku burtfararprófi af húsasmiða- braut og 10 af rafvirkjabraut. Málfríður Sjöfn Hilmarsdóttir náði bestum árangri í sjúkralið- anámi, Helgi Ólafsson á húsasmiða- braut, Ketill Þór Sverrisson á raf- virkjabraut og Unnur Valgeirsdóttir á félagsfræðibraut kvöldskóla á stúdentsprófi. Tæplega 400 brautskráðir frá fjórum skólum Morgunblaðið/Kristinn 45 nemendur brautskráðust frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ á föstudag. FENGU Björn Bjarnason og Megas sér í pípu saman? Af hverju er Guðni Ágústsson svona undarlegur? Geta Jakob Frí- mann og Smári Geirsson ein- hvern tíma orðið vinir? Á Þráinn Bertelsson skilið að fá heiðurs- laun listamanna? Veit Davíð Oddsson alltaf betur en aðrir? Eigum við að selja Óla Palla og Gest Einar? Af hverju er Krist- ján Ragnarsson svona gráðugur? Er Hannes Hólmsteinn ekki al- gjört ídjót? Á Össur Skarphéð- insson við hegðunarvandamál að stríða? Hvar finnur Ómar Ragn- arsson allt þetta tannlausa fólk? Af hverju er ólöglegt að segja satt? Þessum spurningum og mörg- um fleirum svarar Karl Th. Birg- isson, blaðamaður og nýráðinn framkvæmdastjóri Samfylkingar- innar, í úrvali greina og pistla, sem hann hefur ritað á nýliðnum árum og eru nú að koma út í bók- arformi. Titill bókarinnar er: Orð í eyra og undirtitillinn er: óum- beðnar upplýsingar. Á bókar- kápu segir að Karl sé löngu orð- inn kunnur sem einn beittasti pistlahöfundur og þjóðfélagsrýn- ir samtímans og að umfjöllunar- efni Karls séu jafnmörg og þau eru ólík. Í stuttu samtali við Morgun- blaðið, sagði Karl að pistlarnir og greinarnar 65, sem í bókinni er að finna, væri aðeins um fjórð- ungur af því efni, sem hann hefði skrifað á undanförnum þremur árum. Í bókinni væri því sérvalið efni, eins konar „greatest hits“ af því sem frá honum hafi komið, það sem honum finnst að muni geti lifað hvað best. „Greinarnar hafa birst í landsmála- blaðinu Austurlandi og pistlarnir í frétta- skýringaþættinum Speglinum á Ríkisút- varpinu. Elsta efnið í bókinni er þriggja ára gamalt og það yngsta er frá því í vor þegar ég hætti á Speglinum. Ég hafði sagt þar upp störfum vegna þess að ég var að taka að mér annað verkefni, en Útvarps- ráð sá þá að það væri síðasti sjens fyrir það í stöðunni að reka mig sem úr varð. Búið var að reyna það lengi, skulum við segja.“ Þegar Karl er spurður hver sé tilurð þess að birta greinar og pistla í bókarformi, svarar hann því til að persónulega finnist hon- um of lítið gefið út af svona efni. „Þjóðfélagsumræðan ber svo sterkan keim af því hvað fólk er fljótt að gleyma og fréttir dags- ins í dag verða mjög fljótt gamlar fréttir. Þetta er því tilraun til þess að hjálpa okkur að muna. Þetta eru fréttatengdir pistlar, sem spretta af viðburðum dags- ins. Reynt er að draga fram í þeim almennan lærdóm og ég vænti þess að þeir standist tím- ans tönn. Ég vona sömuleiðis að bókin geti höfðað til þeirra, sem hafa almennan áhuga á þjóðmál- um. Tilviljun ein ræður því að bókin skuli koma út á kosninga- vetri þó hún sé á hinn bóginn til- valin lesning á kosningavetri, eins og segir á bók- arkápu. Eðli málsins samkvæmt, skrifa pistlahöfundar gjarnan meira um stjórnvöld heldur en stjórnarandstöðu. Ég skrifa um per- sónur, sem gefa til- efni, en forðast að skrifa um fólk eftir dilkum.“ Bókina tileinkar Karl kettinum sín- um, Rómeo, sem varð vitni að öllum skriftunum og reka þurfti úr skrifborðs- stólnum áður en hafist var handa við smíði pistlanna, sem allir eru skrifaðir á Stöðvarfirði, þar sem Karl var búsettur í fimm ár eða þangað til fyrir ári að hann flutti til höfuðborgarinnar. Karl hefur frá því í september sl. starfað sem framkvæmdastjóri Samfylk- ingarinar. Ákvörðun um útgáfu bókarinn- ar var tekin í sumar. Útgefandi bókarinnar er auglýsingastofan Mátturinn og dýrðin, en þar starfaði Karl um nokkurra ára skeið. Auk þessarar bókar, er Karl höfundur Forsetabókarinn- ar, sem kom út fyrir sex árum síðan, og fjallaði um forsetakosn- ingarnar 1996 þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, gaf fyrst kost á sér og atti þá kappi við Pétur Hafstein, Guðrúnu Agnarsdóttur, Ástþór Magnús- son og Guðrúnu Pétursdóttur, sem dró reyndar framboð sitt til baka áður en að kosningunum kom. Fólk er alltof fljótt að gleyma fréttum dagsins Karl Th. Birgisson. ÞROTABÚ Genealogia Islandorum hefur fallið frá málsókn og afsalað sér öllum kröfum á hendur Íslenskri erfðagreiningu og Friðriki Skúla- syni ehf. vegna gerðar ættfræði- grunnsins Íslendingabókar, að því er fram kemur í sameiginlegri fréttatilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu og þrotabúi Genea- logia Islandorum. Í tilkynningunni segir ennfremur að Þorsteinn Jóns- son hafi fallið frá málsókn á hendur ÍE og Friðriki Skúlasyni ehf. vegna sama máls. Dómsmál vegna þessa var fellt niður við fyrirtöku í Héraðs- dómi Reykjavíkur. Þá kemur fram að áður hafi mála- lok þessi verið samþykkt á skipta- fundi Genealogia Islandorum. Á fundinum hafi jafnframt verið sam- þykkt kaup ÍE á ættfræðibókasafni og ýmsum öðrum ættfræðigögnum þrotabúsins, auk höfundar- og hug- verkaréttinda að öllum útgefnum ættfræðiritum Genealogia Islandor- um, Ættfræðistofu Þorsteins Jóns- sonar ehf. og Sögusteins ehf. (áður Byggðir og bú ehf.) og ekki hafði áð- ur verið ráðstafað með öðrum hætti. Kaupverðið var 10 milljónir króna. Bótakröfur yfir 600 milljónir Bótakröfur stefnenda námu ríf- lega sex hundruð milljónum króna og málið snerist um það að ÍE og Friðrik Skúlason ehf. voru sökuð um að hafa slegið inn í tölvu í ábataskyni lögverndaðar upplýsingar úr ætt- fræðiritum sem Þorsteinn og aðrir fræðimenn hefðu unnið upp úr frum- gögnum. Íslensk erfðagreining hef- ur á hinn bóginn haldið því fram að um staðreyndir sé að ræða sem ekki njóti verndar höfundarréttar. Mats- menn sem dómkvaddir voru að kröfu stefnenda höfðu fyrr á þessu ári komist að þeirri niðurstöðu að lýsing ÍE og Friðriks Skúlasonar ehf. á þróun og uppbyggingu gagnasafns- ins væri rétt. Genealogia fellur frá málsókn SALA á vörum um Netið er töluvert algengari meðal íslenskra fyrirtækja en fyrirtækja á öðrum Norðurlönd- um. Um 16% íslenskra fyrirtækja með tíu eða fleiri starfsmenn hafa selt vöru um Netið en á öðrum Norð- urlöndum var hlutfallið 8–11%. Þetta kemur fram í nýjum niðurstöðum könnunar sem birt er í skýrslu nor- ræna ráðherraráðsins og hagstofu Norðurlandanna um upplýsingasam- félagið. Samkvæmt könnuninni hefur sala á vörum um Netið, sem nær a.m.k. 1% af heildarveltu fyrirtækis, enn ekki náð að festa sig í sessi að neinu ráði hjá norrænum fyrirtækjum. Yfir 80% þeirrar sölu sem nú þeg- ar fer fram á Netinu á Íslandi, í Finnlandi, Danmörku og Noregi er til kaupenda á innanlandsmarkaði en í Svíþjóð fara 22% vörusölu um Netið til annarra landa. Mikill meirihluti varnings sem seldur er um netið á Íslandi er seldur til heimila eða um 65% en þessu er öfugt farið á öðrum Norðurlöndum þar sem meirihluti vörusölu um Net- ið (um 75–95%) er til fyrirtækja eða opinberra stofnana. 16% íslenskra fyrirtækja hafa selt vöru um Netið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.