Fréttablaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 05.02.2009, Blaðsíða 42
26 5. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR KARL SIGURBJÖRNSSON, BISKUP ÍSLANDS, ER 62 ÁRA Í DAG. „Egg er viðkvæmt og brot- hætt. Eins og lífið. Boð- skapur páskanna er krafa um lotningu fyrir lífinu! Við sköpum ekki líf. Við getum ekki skapað eitt einasta lóuegg. En við eigum auð- velt með að brjóta það!“ Áður en Karl Sigurbjörnsson varð biskup þjónaði hann sem sóknarprestur í Hallgríms- sókn í Reykjavík. „Fyrirtækið var stofnað árið 1919 af föður mínum, Otto B. Arnar, og var hann þá aðeins 24 ára,“ segir Birgir Arnar, framkvæmdastjóri Otto B. Arnar ehf. en fyrirtækið fagn- ar í dag 90 ára afmæli. „Pabbi hóf starfsferil sinn hjá Landsímanum árið 1914 og þar kynntist hann símtækninni,“ segir Birgir. „Árið 1915 stofnaði hann Félag íslenskra símamanna sem var fyrsta hagsmunafélag opinberra starfsmanna og er hið elsta sinn- ar tegundar í dag. Árið 1919 fékk hann verslunarleyfi og stofnaði sitt eigið fyrirtæki en fljótlega upp úr þessu má finna auglýsingar frá honum í blöðum.“ Otto auglýsti fyrst Corona-ritvélar en þegar hann hóf verslunarrekstur flutti hann inn talsíma og ritvélar. „Hann var mikill frumkvöðull en á þessum tíma var hann búinn að sigla bæði til Bandaríkjanna og Evrópu og kynna sér tæknina í Bandaríkjunum. Hann opnaði fyrstu útvarps- stöðina á Íslandi árið 1926 og var framsýnn maður og heimsborgari sem talaði mörg tungumál reiprennandi,“ segir Birgir áhugasamur og nefnir að faðir hans hafi verið sjálfmenntaður eftir barnaskóla. „Hann var beðinn um að koma aftur inn í Símann til að sinna þar störfum síma- verkfræðings, eftir að hann stofnaði fyrirtækið, en þá var enginn í starfanum. Þótt hann væri ekki menntaður verk- fræðingur né með nein háskólapróf var hann settur sem símaverkfræðingur.“ Mikið var skrifað um Otto bæði í Morgunblaðið og Ísa- fold á sínum tíma en auk þess skrifaði Otto sjálfur marg- ar greinar í dagblöð og tímarit um efni eins og siglinga- tækni og fjarskipti. Skrifstofuvélar og annar tækni- og rafeindabúnaður hafa ávallt verið aðalinnflutningsgrein- ar fyrirtækisins og eru enn. Tvö elstu umboð þess eru Datacard, sem er afleiða af Addressograph-fyrirtækinu, og Pitney Bowes sem eru frímerkjavélar. Núna eru Data- card-vélar notaðar við útgáfu allra greiðslukorta á Íslandi og lengi vel voru frímerkjavélarnar þær einu sem seldust hérlendis. „Í dag erum við með fjölda annarra umboða og eru helstu söluvörurnar stimpilklukkur og tímaskráning- arkerfi, skjalatætarar, innbindivélar, plöstunarvélar, um- slagaísetningarvélar og pappírsbrotavélar. Auk þess höfum við undanfarin 20 ár verið leiðandi í innflutningi á Visa og Mastercard bankakortum,“ segir Birgir. Þrátt fyrir kreppu horfir Birgir bjartsýnn fram á veg- inn. „Fyrirtækið hefur alltaf verið í eigu fjölskyldunnar og verður væntanlega áfram,“ segir hann og brosir. hrefna@frettabladid.is OTTO B. ARNAR EHF.: ER 90 ÁRA Farsælt starf FRAMSÝNN FRUMKVÖÐULL Birgir fer fögrum orðum um föður sinn, Otto B. Arnar, sem stofnaði fjölskyldufyrirtækið fyrir 90 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA timamot@frettabladid.is Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Magnús St. Magnússon pípulagningameistari í Hafnarfirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 30. janúar, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 6. febrúar kl. 13.00. Guðrún E. Guðmundsdóttir Sigríður Harðardóttir Margrét Magnúsdóttir Sigríður Magnúsdóttir Einar Gylfason Guðmundur Magnússon Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Kristinn Finnbogason vélstjóri, Álfhólsvegi 151, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítala Landakoti föstudaginn 30. janúar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 6. febrúar klukkan 13.00. Erlendur Magnússon Steinunn Hlín Guðbjartsdóttir Kristín Magnúsdóttir Lárus Pálmi Magnússon Sonja Lampa barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær systir okkar, Guðríður Sveinsdóttir Kleppsvegi 120, Reykjavík, áður Hábæ í Vogum, lést þriðjudaginn 27. janúar. Útför hennar verður gerð frá Kálfatjarnarkirkju í dag, fimmtudaginn 5. febrúar kl. 14.00. Systkini hinnar látnu. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Georg Jónsson blikksmíðameistari, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 30. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Jóel H. Georgsson Eygló F. Guðmundsdóttir Eyjólfur Georgsson Guðm. Birgir Georgsson Dong Qing Guan Helga U. Georgsdóttir Hafsteinn Vilhelmsson Edda J. Georgsdóttir Albert Pálsson afabörn og langafabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Dagbjartur Jónsson Álakvísl 106, 110 Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi, mánudaginn 2. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Ingibjörg Auður Ingvarsdóttir Dagrún Dagbjartsdóttir Halldór Jónsson Viktoría Dagbjartsdóttir Júlíus Þór Júlíusson Inga Hanna Dagbjartsdóttir Jónas J. Hallsson Þóra Jóna Dagbjartsdóttir Hlynur Hjörleifsson Dagbjartur Vigfús Dagbjartsson Ellen Árný Barnes Jeffrey Barnes barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langlangamma, Hulda Stefánsdóttir lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar laugardaginn 31. janúar. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 7. febrúar kl. 14.00. Hrafnhildur Stefánsdóttir Birgir Björnsson Álfhildur Stefánsdóttir Marteinn Haraldsson Stefán Páll Stefánsson Ingibjörg Oddsdóttir Guðrún Stefánsdóttir Theodór Júlíusson Hilmar Jón Stefánsson Sigríður Þórarinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Helgu Guðrúnar Sigurðardóttur Dvalarheimilinu Hlíð, áður til heimilis í Stafholti 14, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Víðihlíðar, Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Þórður Snæbjörnsson Snæbjörn Þórðarson Liv Gunnhildur Stefánsdóttir Helga Kristrún Þórðardóttir Karl Jónsson Haukur Þórðarson Kristbjörg Jónsdóttir Örn Þórðarson Ingibjörg Eyjólfsdóttir Hrafn Þórðarson Ragnheiður Sveinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts föður okkar og tengdaföður, Helga Hálfdanarsonar, Máshólum 19, Reykjavík. Hálfdan Helgason Erla Benediktsdóttir Ingibjörg Helgadóttir Árni Björnsson Sigurður Helgason Kristín Magnúsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðbjörg Einarsdóttir frá Drangsnesi, áður til heimilis að Hvassaleiti 58, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 2. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Halldóra Hallfreðsdóttir Gunnar Guðmundsson Hanna Hallfreðsdóttir Hjálmar Haraldsson Einar Hallfreðsson Margrét Ingólfsdóttir Bjarni Hallfreðsson Gerður Þórðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við fráfall, móður okkar, tengdamóður og ömmu, Önnu Ástu Georgsdóttur Laugarnesvegi 89, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunar- heimilinu Sóltúni, fyrir alla umönnun og hlýhug. Halldór Steinþórsson Bryndís Kristjánsdóttir Steinþór Steinþórsson Sigríður Erna Valgeirsdóttir Georg Steinþórsson Susan P. Dunning Margrét Steinþórsdóttir Kristinn Klemenzson Okkar elskaði eiginmaður, faðir, tengda- faðir og afi, Óttar Bjarkan Bjarnason bakarameistari, lést laugardaginn 31. janúar á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Útförin fer fram frá Hjallakirkju föstudaginn 6. febrúar kl. 15.00. Guðrún Ásgerður Sölvadóttir Róbert Óttarsson Selma Barðdal Reynisdóttir Rebekka Óttarsdóttir Ögmundur Arnarson Þuríður Óttarsdóttir Eygló Þóra Óttarsdóttir Heimir Sverrisson Pálmi Bjarni Óttarsson og afabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.