Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2012, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 18.04.2012, Blaðsíða 1
vf.is Metan er innlendur og umhverfisvænn orkugjafi sem er helmingi ódýrari en bensín. Nýttu þér kosti metans með Volkswagen. K. Steinarsson – Njarðarbraut 13 420 5000 - heklakef@heklakef.is Das Auto. TM Opið allan sólarhringinn Fitjum NÝTT Morgunverðar-matseðill Aðeins í boði áSubway Fitjum 14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011 Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is 989kr/stk. Tilboðsverð! 339kr/stk. Tilboðsverð! Easy ÞvoTTaEfni aloE vEra 2.7 kg Easy MýkingarEfni 2 l | www.flytjandi.is | sími 525 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Víkurfréttir ehf. Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan- úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2. Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0 fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB Æsispennandi körfuknattleikir - sjá nánar á bls. 23 Víkurfréttir Grundarvegur 23, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 M I Ð V I K U d A G U R I n n 1 8 . A P R Í L 2 0 1 2 • 1 6 . t ö L U b L A Ð • 3 3 . á R G A n G U R HÁGÆÐASTEYPA FRÁ BORG – TIL AFHENDINGAR STRAX! (FRAMLEITT SAMKVÆMT STÖÐLUM ÍST EN 206-1, ÍST EN 197-1, ÍST EN 12620) Kaplahrauni 9b - 220 Hafnarrði - Sími: 414 7777 Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ s. 420 5000 - Fax: 421 5946 ER KOMINN TÍMI Á NÝ DEKK? 30 ÁRA AFMÆLISTILBOÐ Á SUMARDEKKJUM GLÆSILEGUR STAÐUR AÐ HAFNARGÖTU 12 STÓR (12”) 1200 LÍTILL (6”) 790 HÁDEGISTILBOÐ (ALLA DAGA FRÁ 10:00 - 14:00 www. hlollabatar.is - s. 421 8000 Fréttir úr samfélagi frumkvöðla, fræða og atvinnulífs • apríl 2012 Þórdís Þórhallsdóttir er verkefnastjóri Opna dagsins á Ásbrú sem haldinn verður sumardaginn fyrsta, fimmtu- daginn 19. apríl kl. 13-16. Hún segir undirbúninginn fyrir hátíðina hafa verið smá strembinn en mjög skemmtilegan. „Við erum búin að undirbúa þetta gamla góða ameríska karni- val hér í kvikmyndaverinu á Ásbrú annars vegar og hins vegar fræðilega og rólegheita stemmningu í Keili. Þar ætlar NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna m.a. að vera með fyrirlestur, Klassart mun spila, boðið verður upp á námskynningar og gestir geta tekið próf hjá einkaþjálfurum,“ segir Þórdís við Ásbrúarblaðið. Það verða ekki alveg sömu rólegheitin í kvikmyndaverinu. „Þar verður stuð og fjör fyrir krakka á öllum aldri og amerískt karnival eins og það gerist best. Pollapönk mun spila og BRYN Ballett Akademían hér á Ásbrú mun vera með sýningar. Þá mun fimleikadeild Keflavíkur vera með klappstýruatriði og jafnvel eitthvað fleira óvænt.,“ segir Þórdís. Gamla góða karnival-bása stemmningin eins og var á karnivali Varnarliðsins hér áður verður ríkjandi með draugahúsi í umsjón unglinga úr Reykjanesbæ, leiktækjum, leikja- og sölubásum, og kynningarbásum flottra fyrirtækja og listamanna hér á Ásbrú. „Þetta verður alveg svakalega flott. Við ætlum að leggja áherslu á fyrirtækin hér á Ásbrú og listamenn. Þá verða félagasamtök úr Reykjanesbæ áberandi. Við buðum þeim að taka þátt í opna deginum með okkur með að setja upp bása með ýmis konar leikjum og þrautum ásamt söluvarningi sem verður seldur á vægu verði“. Þórdís hvetur fólk til að mæta tímanlega. Pollapönk byrjar að spila kl. 13 í kvikmyndaverinu og NASA byrjar fyrirlestur sinn á sama tíma í Keili. Ókeypis verður í hoppukastala og andlits- málningu. Hundaeigendur eru minntir á að hundar eru ekki leyfðir á svæðinu og því vinsamleg tilmæli að skilja hundana sína eftir heima. Gagnaver Verne Global var formlega opnað þann 8. febrúar sl. að Ásbrú í Reykjanesbæ í byggingum sem áður hýstu vöruhús Varnarliðsins. Frá því Verne Global keypti eignir af Þró- unarfélagi Keflavíkurflugvallar hefur verið markvisst unnið að uppbyggingu á alþjóð- legu gagnaveri sem selur þjónustu sína til stórra fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu. Áform Verne ganga út á markvissa stækkun og að árið 2017 verði gagnaverið fullbúið í fjórum byggingum. Þegar rekstur verði kominn á fullan skrið sé reiknað með að 100 störf skapist hjá fyrirtækinu. Með tilkomu gagnaversins skapist jafnframt ýmis tækifæri fyrir fyrirtæki sem nýti sér þjónustu gagnavera að staðsetja sig nálægt gagnaverinu á Ásbrú. Allar tengingar séu með besta móti bæði með tilliti til rafmagns og gagnatenginga. Tilkoma alþjóðlegs gagnaversiðnaðar á Ís- landi er í fullu samræmi við hina nýju heild- stæðu orkustefnu sem unnið hefur verið að á Íslandi undanfarin ár og var nýlega lögð fram til kynningar á Alþingi. Einnig fellur slíkur iðnaður vel að þeirri stefnumótun sem unnið er að varðandi beina erlenda fjárfestingu á Íslandi. Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því að kynna Ísland sem áhugaverðan kost fyrir alþjóðleg gagnaver. „Alveg frá þeim tíma sem við byrjuðum að ræða við Verne Global, þá höfum við litið á þessa fjárfestingu sem gríðarlega mikilvæga í mörgu tilliti,“ segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Kefla- víkurflugvallar við Ásbrúarblaðið. „Í fyrsta lagi er það sem lítur að fram- kvæmdum og uppbyggingu. Þar skapast störf og töluverð umsvif hér á svæðinu. Í tengslum við uppbygginguna eru verktakar að starfa hér. Þeir þurfa mat fyrir starfs- menn, kaupa aðföng hér, eldsneyti á bíla og tæki. Nú eru komnir starfsmenn við gang- averið sjálft og þeir eru byrjaðir að versla á svæðinu. Þetta hefur bein áhrif á starfsemi fyrirtækja niðri í bæ og starfsmenn þeirra. Varðandi framtíðina þá er gríðarlega mikil- vægur sá rekstur sem fyrirtækið færir inn á svæðið og þau störf sem mögulega skapast. Það eru aðilar í eftirliti á búnaði, í upp- setningu og rekstri á gagnaverinu. Þetta mun skapa fjölmörg, hávirðisstörf. Það skapast einnig fullt af tækifærum í ýmsu sem tengist gagnaverinu og hjá að- ilum sem á einhvern hátt vilja nýta sér þjón- ustu þeirra og þurfa að vera staðsettir ná- lægt gagnaverinu. Aðilar sem eru í þungri gagnakeyrslu vilja oft vera staðsettin nálægt gagnaverum því þeim munar um þennan litla tíma sem tekur annars að afrita gögn yfir sæstrengi á milli landa. Annar punktur sem er ekki síður mikil- vægur er að með því að landa svona stórri erlendri fjárfestingu inn á svæðið þá erum við líka búin að sanna verkefnið hér á Ásbrú gagnvart öðrum fjárfestum. Það er gríðarlega mikill gæðastimpill að geta sýnt erlendum fjárfestum fyrirtæki af þessari stærðargráðu sem er búið að velja Ásbrú sem stað til að fjárfesta. Þetta segir öðrum fjárfestum að þetta svæði sé líklegast mjög heppilegur fjárfestingakostur út frá aðgengi að orku, landrými, sveigjanleika varðandi uppbyggingu og þjónustu við uppbyggingu. Það sem skiptir gagnaver kannski mestu máli er öryggi og við vitum að bæði Verne Global og eitt stærsta upplýsingafyrirtæki heims, sem er á S&P100 listanum, hafa látið gera ítarlegt áhættumat á Ásbrú sem skil- uðu hæstu einkunn. Út frá markaðssetningu á Ásbrú, þá er mjög mikilvægt að geta bent á Verne Global og ástæður þess að það verkefni var byggt upp hér en ekki annarsstaðar. Hjá Verne ríkir mikil bjartsýni. Starfsemi fyrsta áfanga er farin af stað og félagið þegar farið að huga að frekari uppbyggingu í því húsnæði sem er til staðar og einnig er verið að huga að nýbyggingum á svæðinu. Verne Global er á fullu afli í þessu verkefni og tónninn er mjög góður,“ segir Kjartan Þór í samtali við blaðið. Fjárfesting Verne Global gríðarlega mikilvæg Karnivalstemmning á opnum degi á Ásbrú - sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl, kl. 13-16 Keilir er sKemmtileGt æVintýri Um seX milljarðar í Ásbrú þriðji salUr bryn ballett í notKUn síða 3 síða 6 síða 8 Blaðauki uM ÁsBrú fylgir VíkurfréttuM Ár Njarðvíkur! - Allt um fyrsta Íslandsmeistaratitil Njarðvíkurstúlkna í miðopnu Víkurfrétta í dag. Eitt af leiðandi fiskeldis-fyrirtækjum heims er að hefja framkvæmdir við byggingu fiskeldisstöðvar við Reykjanesvirkjun. Fyrsta hraunhellan var tekin af bygg- ingarsvæðinu í gærdag. Í ágúst 2011 gerðu Stolt Sea Farm (SSF) og HS Orka hf samning um leigu á lóð HS Orku við Reykjanesvirkjun sem og kaup á volgum sjó, rafmagni og grunnvatni frá virkjuninni. Framkvæmdir við uppbygg- ingu fiskeldisins munu hefjast í næstu viku. Fiskeldið verður stærsta fisk- eldi í heimi fyrir Senegal flúru (Solea senegalensis). SSF mun reisa háþróað fiskeldi á um- ræddri lóð. Samkvæmt samn- ingi fyrirtækjanna, mun HS Orka útvega eldinu rafmagn og heitan hreinan sjó, sem nú rennur ónýttur til sjávar frá virkjuninni. Fyrirkomulag þetta sameinar sérstaklega vel markmið fyrirtækjanna er lúta að umhverfisvænni starfs- semi. Fiskeldisstöðvar SSF eru viðurkenndar fyrir að vera umhverfisvænar og fyrir góða vistvæna orkunýtingu. HS Orka framleiðir rafafl með því að nota íslenskar auðlindir á skynsaman og umhverfisvænan hátt. - Sjá nánar á vf.is Senegal flúra á reykjanesi - framkvæmdir hefjast í næstu viku VF -l jó sm yn d: E yþ ó r sæ m un d ss o n

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað: 16. tölublað (18.04.2012)
https://timarit.is/issue/380485

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

16. tölublað (18.04.2012)

Aðgerðir: