Tíminn - 23.12.1942, Blaðsíða 27
Samvinnumenn vilja samkeppni í vevzlun
Eo samkeppnin á að tryggja lágt vöruverð
KKO.\ hefst handa um nýja afgreiðslutilhögnn, scm dregur úr dreifingarkostnaði
Njálfsliipti
Samkeppni milli verzlana er æskileg. Verzlanirnar keppa
um að gera kostnað sinn sem minnstan f hlutfalli við söluna.
Það á svo að koma neytendum til góða í lægra vöruverði. Þó
fær slík samkeppni fyrst fullt gildi, þegar hún fer fram milli
einkaverzlana annars vegar og samvinnuverzlunar neytenda
hins vegar. Þá fyrst er tryggt, að sparnaðurinn renni í pyngju
neytendanna. Séu einkafyrirtæki ein um verzlunina, sýnir
reynslan, að þau freistast til að gera með sér verðsamtök. —
KRON hefir haft forustu um viðleitni í þá átt að lækka dreif-
ingarkostnaðinn, t. d. með því að koma á pöntunarfyrirkomulag-
inu, bæta sölubúðirnar þannig, að vinnuafl sparist, og nota ýmis
konar áhöld, sem bæði spara vinnu og draga úr vörurýrnun. Nú
síðast hefir KRON opnað nýja búð í tilraunaskyni, þar sem
ætlast er til, að viðskiptamenrtirnir afgreiði sig að mestu leyti
sjálfir. Er þá ætlað að spara talsvert mikið launagreiðslur og
lækka þannig dreifingarkostnaðinn. Slíkar búðir eru nú orðnar
algengar í Bandaríkjunum, þar sem samkeppni er mjög hörð.
KRON vill nú æskja samvinnu neytenda í þessu efni, þannig, að
þeir taki nýjungunni vel. Neytendum er hér með gerður kostur
á að efla eigin hag, með því að í sjálfskiptibúðinni eiga þeir
aldrei að þurfa að bíða eftir afgreiðslu, og allur sparnaður af
þessum nýtízku afgreiðsluháttum rennur til þeirra sjálfra.