Tíminn - 24.12.1956, Síða 13

Tíminn - 24.12.1956, Síða 13
★ JDLABLAÐ TÍMAN5 19 56 * 13 Bók, sem olli tímamótum í lífi mínu Allar bæjiurnar í bókasafni afa míns voru bundnar í svart skinn og efni, sem minnti á svartan marmara. Kin mörgu bindi, mis- munandi að stærö og lögun, voru hvorki lokkandi né girnileg í mín- um augum, og var ég þó þegar, tíu vetra gömul, hinn mesti bókaorm- ur. En á heimili afa míns voru ýmsir felustaðir, sem virtust bein- línis til þess kjörnir aö liggja þar í leyni með skemmtilega bók, ótrufl- aður af fullorðna fólkinu, hvort heldur á heitum sumaardögum eða fögrum sumarkvöldum, þegar loft- ið angaði af nýslegnu heyi og nota- legan kúaþefinn lagði að vitum manns og engispretturnar suðuðu í grasinu. Ákjósanlegust var gamla hlaðan og lystihúsið í garðinum og grasflötin, þar sem kvenfólkið á heimilinu var vant að bleikja lín fyrr á dögum, áður en óðalssetrið .Vollan var gert að vinnuheimili ! fyrir umrenninga og lauslátar | stúlkur frá Þrándheimi undir forstöðu afa míns, sem var maður guðrækinn. — Þótt ekki væri á- í rennilegt ákvað ég þó að leita fanga í safninu hans. Þar urðu fyrst fyrir mér nokkur bintíi með | predikunum, hver árgangurinn eít- f ír annan af Trúboðstíðindunum og nokkur smásagnasöfn með greini- legum umvöndunar- og predikun- j. artón. — Mér þætti gaman að vita, hvort þessi hérna er frekar við þitt hæfi, Sigríður, — sagði herra Mörk, skrifari afa míns og dró litla bók fram úr skjalahrúgu á borðinu. Hún var í svartri kápu eins og allar hinar og engu girnilegri, virtist mér. Ég mun víst hafa orðið hálf- kindarleg á svipinn, er ég leit á titilblaðið og sá, að þar stóð Njáls saga, því að herra Mörk hló að mér og sagði: — Þér er bezt að lesa bók- ina þá arna, telpa mín, og svo skul- um við sjá, hvort þú berð nokkurt skyn á það, sem í henni er. — Slíka áskorun gat ég auðvitað ekki staðizt, þótt Njála virtist óneit- anlega nokkuð hörð undir tönn i fyrstu. En sú tilfinning hvarf fyrr en varði. Ég hafði falið mig með bókina í skógarkjarri handan við húsflötina, og von bráðar var ég svo niðursokkin í frásögnina um gamla ísland, að ég gleymdi því, að einmitt í dag átti að hirða heyið og amma min ætlaði inn í ’oæinn til að verzla og fara í heimsóknir. Ég átti mér þá eina ösk að mega vera þama i friði og óáreitt með þessa bók, sem hafði lokið upp fyrir mér nýjum heimi og undur- samlegum. — Ég var komin þar í frásögninni, sem Njálssynir gera óvinum sínum fyrirsát við Markar- íljót. Skarphéðinn rennir sér fót- skriðu eftir ísnum. Skildi er kastað að honum, svo að honum skuli verða fótaskortur. Hann stekkur yfir og lýstur öxinni í höfuð fjand- manni sinum, þeim er næstur Btendur og rennur áfram sem fugl fiygi. Ég hafði sleppt írá mér bókinni Grein eftir Sigrid Undset ■ as ■ s Grein þessa skrifaði Sigr- j ia Undset í Anyeriku, þar fj sem kún dvaldist á síríds- U árunum og er hún eln í jj flokki margra greina 07 m fyrirlestra, cr hún samdi á m jj þessum árum i þeim til- jj gangi að kynna norskar jj og norrænar bókmenntir gj meðal Bandarikjamanna. í jj œvisögu Sigrid Undset ger- § jg ir A. H. Winsnes þessa ~ §§ grein að sérstöku umræðu- 1 efni. Telur hann, eins og ft? hún hefur einnig sjálf gert, p að kynni Sigr. Undset af íslenzkum fornhókmenni- ■ um hafi haft grundvallar- þýðingu fyrir hana sem ■ skáld. Er þvi ekki ófróðlegt :■■ fyrir islenzka lesendur að |j kynnast viðhorfi hennar til j fornsagnanna. og grúfði andlitið ofan í grasið. Atburöirnir stóðu mér fyrir hug- skotssjónum, skýrir, Ijós’ifandi. — Það olli kvöl. — Ég sá Skarphéðin, jarpan á hár, fölleitan og fagur- eygan, en munnijótan nokkuð. Óhlífinn var hann, til alls vís. íull- hugi og þó zr sem hiá honum kenni djúprar beiskju gagnvart örlögun- um. Hvernig gat tíu vetra stúlkubarn skilið þá snilldarmynd, sem hinn forni sagnaritari dregur hér upp af mannlegri sál, fullri mótsagna, merktri af ógæfu? En hjarta litlu stú'kunnar skalf, þar sem hún lá í angandi skógarrjóðrinu. Var það óljós grunur um þær tilíinningar, sem koma þroskuðum konum til að bindast misheppnuðum gáfumönn- um og taugabiluðum? Ég hafði jafnan verið mjög hænd að föður mínum, sem var fornleifafræðingur. Fyrir því var heimur hinna fornu sagna mér ekki með öliu framandi. Ég var kunnug sögu lands míns, enda vön að hiröa og annast um forn- menjasafn föður míns. Allt frá fyrstu bernskuárum hafoi ég farið höndum um ýmsa hluti og tæki, er tilheyrt höfðu fornum víking- um. Nú var mér sem ég sæi þessar keðjur og brjóstsylgjur glitrandi á barmi hinnar fögru, grimmlyndu Hallgerðar, sæi húsfreyju Njáls, trygga, en stórlynda bera þær. Og ryðfallin sverðin urðu hvöss og blikantíi á ný, roðin blóði, hjölt- in enn hlý eftir hönd Skarphéöins. Þegar sumarleyfið var á enda og við komum aftur heim frá Þránd- heimi, lét faðir minn mig stund- um lesa hátt fyrir sig úr hinum fornu sögum. Þetta var síðasti vet- urinn, sem hann liíði, og nú gat hann ekki lengur haft fótavist. i ' i'• : ■' Sigricl Undsct. Jafnvel daginn fyrir andlát sitt las ég fyrir hann — það var Hávarðs saga ísfirðings. Ef til vill var það einmitt þess vegna, að mér varð það fyrst löngu síðar ljóst, að Hávarðs saga er ekki í hópi hinna beztu íslendingasagna. En þótt ég væri að vísu þegar á unga aldri að vissu leyti undir það búin að geta lesið hinar fornu sagnir og notið þeirra, er ég sann- færð um, að einnig hér í Ameríku munu margir geta lesið þessar frá- sagnir frá hinni íslenzku miðöld sér til ánægju, jafnvel í ríkara mæli nú en nokkru sinni fyrr. Sú hugmynd, sem kann að fæla marg- an lesanda frá þeim, að þær fjalli aðeins um þjóðsagnir og þjóðtrú, þurran fróðleik, sem fræðimenn einir fái notið, sú hugmynd á ekki við rök að styðjast. Hinn róman- tíski skilningur á fornum bók- menntum og þjóðvísum var sá, að í þeim speglaðist þjóðarsálin, eins og það var kallað. Þörfin til að skapa, sem talin er meginhvöt skáldanna, átti samkvæmt þessu endur fyrir löngu að hafa gegnsýrt heilar þjóðir og þjóðflokka, áður en hún tók að greinast og varð sérgáfa vissra einstaklinga. Þýzkir fræðimenn, sem að vísu hafa unnið merkileg afrek á sviði norrænna málvísinda, tóku sér- stöku ástfóstri við þá kenningu, að í íslenzkum fornbókmenntum bift- ist'sál hins norræna kynstofns, sem þeir eru svo lítillátir að telja Þjóð- verja einnig tilheyra, þótt það sé raunar ekki rétt. Hinir germönsku ættflokkar, sem komu alla leið austan úr Mið-Asíu, voru ekki sama fólkið og byggði Norðurlönd. Sumir þessara ættflokka settust að í Mið- Evrópu og blönduðust keltneskum og slavneskum þjóðflokkur. Aðrir tóku sér bólfestu í strandhéruðun- um við Eystrasalt og norðanvert Atlantshafs. Þeir urðu sú grein norrænna manna, sem kunnir eru fyrir sæfarir og vikingu. í einum skilningi verður að telja hinar foi'nu sögur sannnorrænar: þ. e. ef vér teljum, að þær hafi hvergi getað skapazt nema í þjóð- félagi frjálsra manna, manna, sem báru órofa tryggð til óðala sinna þótt rýrir landkostir knýju þá jafn- framt til að leggja í víking og kaup- ferðir víðsvegar um Evrópu; það urðu raunar síöar pilaríms- og lærdómsferðir. En þessar sögur eru í rauninni hvorki germanskar, nor- rænar eða norskar. Hinar fornu bókmenntir íslendinga eru fyrst og fremst íslenzkar, sögurnar eru verk einstakra höfunda. Sumir þeirra voru ekki aðeins hámenntaðir menn, heldur jafnframt miklir listamenn, svo sem hinn frægasti meðal þeirra Snorri Sturluson. Aðr- ir bjuggu yfir snilligáfu frásagnar- innar. Þeir gátu gætt verk sín hrikalegri tign harmleiksins, beiskri kaldhæðni, eða þau taka hug vorn fanginn vegna stórfenglegra og heillandi persónulýsinga. Enn aðrir voru hins vegar aðeins miðlungs-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.