Tíminn - 24.12.1956, Page 27
* JÓXABLAfí TÍMANS 1956 ★
27
Stál í stöngum, Stálvír, Log- og rafsuðuvír, Eir og Kopar í stöngum og plötum, Eirpípur, Tin, Hvítnálmur,
Vélareimar, Reimar í flutningsbönd. Gúmmíslöngur, Ventlar og Kranar fyrir gufu, olíu, vatn o. fl.
ERG VÉLAVERZLUN H.F
Vesturgötu 3 Reykjavík
í
i
unnara síns og halda jafnan hátíð-
legan afmælisdag hans, 11. nóvem-
ber, með kaffidrykkju, upplestri og
síðan dansi og söng fram eftir
nóttu.
Áður hefir verið aö því vikið, að
í Grímsey er mikil og sérstæð nátt-
úrufegurð. Á góðviðrisdögum sést
vel til lands. Tindar hinna norð-
lenzku fjalla rísa upp af haffletin-
um við sjóndeildarhring í fjarska.
Þegar skyggni er bezt má sjá alla
leið vestur til Strandafjalla og
austur til Langaness. Fjöllin rísa
þar ein við sjóndeildarhring og
vatnar yfir láglendi og fjarðar-
mynni.
Sumarkvöldin eru fögur í Gríms-
ey, þegar sól er sigin að hafsbrún
og dvelur þar. Sól fer þar ekki af
lofti um sumarsólstöður.
Vorkvöldin við miðnætursólar-
glóð í Grímsey, munu flestum verða
ógleymanleg, sem þeim hafa
kynnst. Sléttur sjórinn verður að
samfelldri geislaglóð eins langt og
sést til íshafsins í norðri og rauðir
tindar fjalla blika í skini kvöld-
sólar á meginlandinu. Á slíkum
vorkvöldum gleyma Grímseyingar
köldum vetrarmyrkrum, með stór-
hríðum, stormi og -særoki. — gþ.
ÍE3SR9I86PS50&S'3