Tíminn - 24.12.1956, Síða 34
34
JDLABLAfí TIMAN5 1956
— Númer 95. Mittisvídd 110, til-
kynnir Kaj.
— Og að hún gæti skipt, ef þær
pössuðu ekki.
— Hahaha hehehe, hlær Kaj.
Júlla frænka verður að nota átta-
vita til að komast úr þeim. Raunir
föður hans fá ekki vitund á hann.
Þá er dyrabjöllunni hringt.
Fjölskyldan heyrir og þekkir
rödd Júllu frænku og fjölskyldu-
limirnir tvístrast í ailar áttir án
þess að ræða þennan fyrirburð.
Aðeins frúin vogar að horfast í
augu við hættuna og heldur til
móts við Júlíönu.
Forstjórinn á bágt þar sem hann
leynist í skrifstofu sinni. Ætlar
Júlla frænka virkilega að myrða
hann á þessu hátíðakvöldi? Eða
ætlar hún bara að tilkynna honum
að hann sé gerður arflaus og auð-
ur hennar renni til stofnunar fyrir
vanhirta kanarifugla eða í sjóð til
að efla siðferði og velsæmi með
stórkaupmönnum og forstjórum?
Tíminn líður. Hann heyrir radd-
ir konu sinnar og frænku, þær virð-
ast tala saman af mestu ró og
spekt. Loks verður biðin honum
óbærileg og hann læðist að dyr-
unum og gægist inn í stofuna til
þeirra. Nei, þarna eru engar æsing-
ar. Konan hans situr á tali við
Júllu frænku — og hún glottir. Svei
mér þá, konan hans glottir! Þá
heyrir hann skrækan kerlingar-
róm Júllu:
— Híhíhí, aldrei hefði mér dott-
ið í hug að hann Kalli gæti verið
svona sniðugur. Að vera að narrast
að mér afgamalli kerlingunni. Mér
fannst ég verða að koma til ykkar,
ég hlýt að skemmta mér vel hjá
ykkur!
Aaah! Forstjórinn hnígur niður í
hægindastól, þungu fargi er af
honum létt. Nú er honum óhætt að
fá sér vindil, jólavindil. Síðan
gengur hann virðulega til móts við
frænku sína og kyssir hana á gler-
hart kinnbeinið í kveðjuskyni.
Honum er borgið. Kvöldinu er
borgið. Og — hver veit? — kannski •
hefur hann loksins hlotið stóra
vinninginn.
Ferðamenn!
/ Mjólkurbar Mjólkursamsölunnar er
framreiddur heitur og kaldur matur.
Smurt brauð, skyr og rjómi allan daginn.
Allir ferðamenn eiga leið hjá Mjólkur-
barnum Laugaveg 162, er þeir koma
til Reykjavíkur.
Miólkursamsalan
Állt á sama stað
Sparið tíma, eldsneyti og peninga, notið
aðeins GHAMPION KERTI.
Það er sama hvaða bílategund þér eigið, það
borgar sig að nota ný CHAMPION-KERTI.
Öruggari ræsing, meira afl og allt að 10% eld-
neytissparnaður.
Það eru um 100.000.000 — hundrað
milljón CHA MPION-KER TI daglega í
notkun í heiminum.
GILL VILHJÁLMS
kerti
H.F.
Laugaveg 118 - Sími 81812
' ý- - -A'l Z '■
5!,!i!i!i(i!i!i!i!i!i!i!i!}!}!i!i!i!i!i!i!i!i!i!i!i(i!i!i!i!i!i!i!i!i55(i!}!i!i!i!i!i!i!i!i!i!i!,5!i!i!i!i!}!}!i!i!i!i!i!i!i!i!i!i!i!i!i!i!i^^