Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 20

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 20
20 JOLABLAÐ GLEÐILEG JÓL! Smjörlíkisgerðin Ásgarður h.f. GLEÐILEG JOL! Bræðurnir Ormsson. (Eiríkur Ormsson.) GLEÐILEGRA JÓLA óskum við öllum viðskiptavinum okkar. K. Einarsson & Björnsson. GLEÐILEG JÓL! Guðmundur Gunnlaugsson, Njálsgötu 65. Gleðileg jól! Skipaútgerð ríkisins. daga hafði hann haft búð, en þegar konan stökk á brott frá honum, hætti hann að hugsa um búðarholuna og að lokum var svo komið, að búðinni varð að loka. Þá hafði hann náð sér í þenn- an hund. Hann hafði alltaf kall- að Soldán, litla kærastan sinn. — Jú, það var vel hægt að skilja það, hvers vegna konan varð að fara frá honum. Eld- húsið, sem samtalið fór fram í, var eins og býflugnabúr, fult af býflugum — mennirnir höfðu nóg að gera. Pétur hafði læst sig inni í litlu íbúðinni sinni, hann vissi ekki neitt um allt kjaftæðið. En allt í einu hrökk hann við og spratt á fætur. Úti í garðin- um stóð Soldán urrandi fyrir framan smástrák. Drengurinn hélt hughraustur á spýtu í hendinni og varði af mikilli hreysti þriggja ára gamla syst- ur sína, sem stóð kjökrandi að baki honum. Pétur kom á harða hlaupum til mikillar undrunar fyrir alla, og rak hundinn burtu. Hann spurði alls ekki, hvers vegna að Soldán hefði slitið festina sína. Hann hafði gripið í hnakkadramb hunds- ins og nú dró hann skepnuna á eftir sér yfir garðinn. Bak við hann skrækti kvenfólkið, en börnin hafði ekki sakað. Litla stúlkan hafði gengið fram hjá Soldáni, en af því að hann var dálítið æstur eftir ferðalagið um morguninn, og ef til vill hafði rauði kjóllinn hennar átt sinn þátt í því, sem gerðist. Hann hafði stokkið upp svo að festin slitnaði, en svo vitur var Soldán, að barnið hafði hann alls ekki bitið. Hugrökkustu börnin voru á gægjum, og svo sögðu þau mömmum sínum, að nú væri Pétur að refsa Soldáni öðru sinni þennan dag. Einnig í þetta sinn heyrðist ekki neitt í skepnunni, hún kraup eins og áður að fótum herra síns og sleikti stígvélatær hans um leið og höggin dundu á skrokkn um. Og þegar Pétur var búinn að þessu, stóð hann um stund og horfði í brún augu hundsins — en kraup svo til hans og tók hann í fang sér. Svo kom Pétur og gekk aftur yfir garðinn. Allir sneru við honum baki. Nokkrir minntust á lögregluna. Og mamma litlu stúlkunnar fór að gráta og bar hana inn í húsið. Nú ætlaði hún að flytja! Fyrst að börnin hennar gátu ekki fengið að vera í friði, þá, g|at hún ekki átt lengur heima í þessu húsi. Og frú Nielsen sendi fyrsta strák- Inn, sem hún gat náð í niður í kjallara eftir manninum sín- um. Hún varð einnig í dag of sein með miðdegismatinn. Niel- sen kom eins og fjandinn sjálf- ur væri á hælunum á honum og fór beint upp til Péturs. — Hann hringdi dyrabjöllunni, en enginn svaraði. Hann barði þá lauslega á hurðina og gekk beint inn. Pétur sat við borðið sitt, sem var með vaxdúk og á því fyrir framan hann lá reykt síld í pappír og smjörlíkisögn í bolla, nokkrar brauðsneiðar og kaffikanna. En Pétur var ekki að borða. Hann sat bara á- lútur og horfði á matinn sinn. Nielsen varð strax dálítið feim- inn, þegar hann sá hann. Var Pétur ekki með fullu viti? Nielsen ræskti sig og óskaði þess innilega, að hann hefði ekki gleymt pípunni sinni. ;—; Hann var svo sem ekki afskap- lega hugrakkur. Svo fekk hann sér sæti á stólbrík. .,U-humm, nú verðum við víst að tala dálítið saman“. ,,Er það ekki alger óþarfi?“ Pétur leit upp dálítið snöggleg- ar en hann var vanur. „Hvergi fáum við að vera í friði. Ég er sviftur öllu, sem mér þykir vænt um. Nú verðum við að flytja og á morgun, þegar við loksins höfum fengið einhvers staðar annars staðar inni verð- um við aftur að flytja. Hvers lags líf heldurðu að þetta sé?“ „Getir þú fargað hundinum, þá myndirðu fá frið.“ Ni- elsen gekk ekkert illt til með þessari góðu ráðleggingu. „Á ég þá ekki að fá að hafa hundinn heldur í friði núna? Snáfaðu héðan út og það undir eins.“ Pétur stóð snögglega á fætur og Nielsen flýtti sér jafn mikið. Þetta var sannarlega erf- iður maður. „Já, en ég var bara að ráð- leggja þér heilt, Pétur, og ef þú vilt ekki þýðast það, þá lítur út fyrir að þú verðir að flytja héð- an. Ég get að minnsta kosti ekki séð aðra lausn út úr þess- um vanda. Ég segi þetta bara af því að mér er ekkert illa við þig, Pétur.-‘ Nielsen færði sig aftur á bak að dyrunum. Hann var annars svo sem ekki neitt hræddur við það að Pétur færi að berja á honum, en þó var eitthvað í augunum á Pétri, sem Nielsen geðjaðist ekki að. Og Pétur gerði ekki neitt á hluta hans. Hann gekk fram hjá honum og niður í garðinn. Þar settist hann á bekk og horfði þunglyndislega fram fyrir sig. Soldán hafði fylgt á eftir hon-

x

Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/53

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.