Tíminn - 03.07.1964, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR, 2. júlí
NTB-Stokkhólmi. — Búizt er
við, að á morgun verði kvcðinn
upp endanlegur dómur í máli
Dick Helander, biskups, einu
frægasta sakamáli í sögu Sví-
þjóðar. Eins og kunnugt er, var
málið tekið upp að nýju í fyrra,
en áður hafði Helander verið
dæmdur sekur.
NTB-New York. — Samkvæmt
skýrslum S.þ., sem birtar voru í
kvöld, hefur fjárhagsaðstoð til
' þróunarlandanna, árið 1960—
, 1962 numið alls 19 milljörðum
dollara og hafa Bandarikja-
menn og Frakkar lagt þar lang-
mest að mörkum.
NTB-Damaskus. — f dag var
skipzt á skotum víða meðfram
landamærum Sýrlands og fsra-
els og féllu a.m.k. fimm fsraels-
menn. Kennir hvor aðíli hinum
um að hafa byrjað skothrfffina.
NTB-Nýju Delhi.- — Shastri,
Ihinn nýkjörni forsætisráðherra
Indlands, lýsti yfir í dag, að
eamkvæmt læknisráði myndi
Ihann efcki fara til Lundúna á
fund forsætisráðherra brezku
eamveldislandanna.
NTB-New York. — Haft er eft-
ir áreiðanlegum heimildum í
Ihöfuðstöðvum S.þ. í dag, að
Spyros Kyprianou, utanríkis-
ráðherra Kýpur, muni fara til
Genfar á laugardag og eiga þar
viðræður við Sakari Tuomioja,
sendiherra, en fara að því búnu
til Lundúna, til að sitja ráðu-
etefnu forsætisráðherra brezku
samveldislandanna.
NTB-París. — Flugvallarstarfs-
fólk á hinum borgaralegu flug-
völlum í París, sem verið hefur
í verkfalli síðustu 9 sólar
hringa, fékk í dag skipun frá
stéttarfélagi sínu um að hefja
vinnu á nýjan leik.
Verkfall þetta hefur valdið
miklum eríiðleikum og dregið
úr flugumferð um Parísarflug-
vellina.
NTB-Lima. — Skæð farsótt
hefur orðið 50 börnum að bana
í Pallasca-hérðinu i Perú, en
vitað er um 430 hættuleg sjúk-
dómstilfclli .
NTB-Bagdad. — Utanríksráð-
herra íraks skýrði frá því í út-
varpsræðn í dag, að komizt
hefði upp um „samsæri til að
steypa stjórn Abdel Salam Ar-
efs, og hefðu heimsvaldasinnar
verið þar að verki. Sagði hann,
að samt yrði ekki tekið neinum
vettlingatökum á samsæris-
mönnunum.
NTB-Manila. — Síðustu fréttir
lierma, að 107 manns hafi
beðið bana í hinum mikla felli-
byl, sem gekk yfir Filippseyjar
fyrr í vikunn'i, en- fjölda manns
er enn saknað.
NTB-Washington. — Maxwell
Taylor, hershöíðingi, sagði
formlega af sér stöðu yfir-
manns herráðs Bandaríkjanna,
í dag, en hann hefur eins og
kunnugt er, verið skipaður
sendiherra Bandaríkjanna í S-
Vietnam, i stað Cabot Lodge.
Nýtt útibú
f dag, miðvikudaginn 24
júní, opnaði Kaupfélag Eyfirð
inga, 10. útibú sitt í Akureyrar
bæ. Er það á Suður-brekkunni
stendur á horni Hrafnagils
strætis og Byggðavegarf og er
númer 98 við hina síðarnefndu
götu.
Húsið er ein hæð og kjallari,
240 m2 hvor hæð. Verzlunin er
kjörbúð og er sjálf búðin
150 m2.
Teikningar allar gerði Teikni
stofa S.Í.S., en yfirumsjón með
byggingunni hafði Haukur
Árnason, byggingafræðingur,
fyrir hönd Haga h/f. Hita- og
kælilögn annaðist vélaverkstæð
ið Oddi h/f og Blikksmiðjan,
en hreinlætis og rafmagnslagn-
ir önnuðust viðkomandi deildir
K.E.A. Innréttingar, sem ekki
komu tilbúnar erlendis frá,
voru smíðaðar á Húsgagna-
vinnustofu' Ólafs Ágústssonar,
sem og sá um upsetnngu þeirra.
Málningu alla annaðist Jón A.
Jónsson, málaramestari, og
menn hans.
Verzlunin er búin öllum ný-
tízku tækjum og áhöldum, svo
sem Levin-kæliskápum og kjöt-
afgreiðsluborðum, Hugin-mjólk-
urafgreiðslutækjum o. fl.
Mun útibú þetta, sem er 9.
kjörbúð Nýlenduvörudeildar
K.E.A. á Akureyri, mjög auð-
velda verzlun fyrir hina vax-
andi byggð á Suður-Brekkunní,
en auk alls kyns matvæla,
munu þar einnig fást nokkrar
búsáhaldavörur og ýmis smá
varningur.
Kjörbúðarstjóri er Jens ól-
afsson, sem verið hefur starfs-
maður í Kjörbúðinni í Brekku-
götu 1.
J
UMRÆDURNAR LANGAR UM BREYI-
INGAR A SKIPAN 60RGARSTJÚRNAR
EJ-Reylcjavík, 2, júní. I fulltrúum í 21, og að fjöJgað yrði
Tillögur fulltrúa Framsóknar- um tvo menn í borgarráði, voru
flokksin^ um, að fjölgað skyldi í felldar á fundi borgarstjórnar í
borgarstjórn Reykjavíkur úr 15 I kvöld, eftir langar umræður um
Ólga í Alsír
NTB—Algeirsborg, 2. júlí.
Þjóðfrelsisherinn í Alsír hafði.
í dag öll völd í sínum liöndum
á hersvæðunum Biskra og Bou-
Sadaa í Auresfjallgarðinum, en
þar var óttazt í gær, að til tíðinda
drægi, vegna brottrekstrar Moham
med Chaabini, sem verið hefur
yfirmaður alls 4. hersvæðisins. j
Fer nú fram allsherjarendurskipu
lagning á herfsvæðinu og hefur
Ben Bella skipað Amer Mellah,
major, yfirmanm þess.
í gærdag vék Ben Bella, forsæt
isráðherra, Chaabini, ofursta, úr
starfi og sakaði hann um undir
búning til að steypa stjórn lands-
ins, en fyrr um daginn hafði Chaa
bini skipað hermönnum herfylkis
síns að afvopna lögreglumenn í
Biskra og Bou Sadaa.
Þar sem óttazt var, að fylgis-
menn Chaabini myndu ganga
lengra, voru hersveitir frá stjórn
inni sendar þegar í stað til fyrr-
nefndra hersvæða og hafa þær nú
öll völd í sínum höndum, enda
voru fylgismenn Chaabini þegar
horfnir á braut, er stjórnarherinn
Framhald á 11. síðu.
stjórn Reykjavíkurborgar og fund
arsköp borgarstjórnar. Fulltrúar
Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flökksins fluttu samskonar til-
lögu. Aftur á móti var samþykkt
að kjósa stjórnarnefndir fyrir
fjögur borgarfyrirtæki og jafn-
framt að fela sjö manna nefnd að
athuga, hvort rétt þyki að gera
breytingar á stjórn Reykjavikur-
borgar, en sú tillaga var upphaf-
lega flutt af Óskari Hallgríms-
6yni.
Samþykkt um stjórn Reykja-
víkurborgar og fundarsköp borg
arstjórnar var tll annarrar um-
ræðu í borgarstjórn í dag. Kom
hún frá borgarráði ásamt mörgum
breytingartillögum, sem sam-
komulag náðist um í borgarráði,
en einnig lágu fyrir tillögur frá
Framsóknarflokknum, Alþýðu-
bandalaginu og Alþýðuflokknum,
sem ekki voru samþykktar í
borgarráði.
Fulltrúar Fratnsóknarflokksins,
Einar Ágústsson og Kristján Bene
diktsson, lögðu til, að tala fulltrúa
í borgarstjórn yrði aukin úr 15
í 21. Einar Ágústsson fylgdi tillög
Nýhöggmyndí Tjarnargarðinn
HF-Reykjavík, 2. júlí.
Upp úr helginni verður
myndastytta sett upp í borginni.
ný Á heimleið, eftir Gunnfríði Jóns-
Hafnarframkvæmdir
hafnar í Bolungarvík
Krjúl — Bolungavík, 2. júlí.
Hafnarframkvæmdir hófust hér
á mánudaginn með því að dýpk-
unarskipið Grettir tók til starfa.
Iíom Grettir hingað á laugardag-
inn. Fyrsta daginn var unnið að
því að Ieggja út akkerum og koma
fyrir festingum frá skipinu. Upp
gröftur hófst síðan daginn eftir.
Þetta verk, sem nú er að hefj-
ast er síðasti áfanginn við gamla
hafnargarðinn, og verður þá lokið
við að breikka og styrkja hann með
öflugu stálþili hafnarmeginn, og
fyrir enda hans. Stálþilið, sem
fara á í þennan lokaáfanga mun
koma hingað á staðinn með Mána-
fossi 10. júlí. Til þessara fram-
kvæmda eru áætlaðar 3y2 til
fjórar milljónir króna.
Þótt þessum áfanga verði náð,
er langt í land enn, þar til höfn
in, sem fyrirhuguð er verður full
gerð, því ,að enn er ófullgerður
hafnargarður, sem koma á á móti
þesum, sem áætlað er að ljúka á
þessu sumri. Sömuleiðs eru ýcnsar
aðrar framkvæmdir við hafnargerð
ina sem ekki eru hafnar enn, svo
sem heildardýpkun hafnarinnar o.
m. fl.
Við þennan lokaáfanga gamla
hafnargarðsins binda Bolvíkingar
og ekki hvað sízt bolvízkir sjó-
menn miklar vonir.
dóttur, myndhöggvara. Myndin,
sem er af stúlku á heimleið úr
skóla, verður sett upp í Tjarnar-
garðinum við veginn, sem liggur
f gegnum hann. Mynd þessi, sem
steypt er f kopar, er sú fyrsta,
sem sett er upp í Reykjavík eftir
Gunnfríði Jónsdóttur. Borgin á
samt aðra mynd eftir Gunnfríði,
Síidarstúlkurnar, og stendur hún
steypt í kopar í kaffistofu Borgar
stjómar. Er þess skemmzt að
minnast, að þrjár nýjar mynda-
styttur voru settar upp í borginni
fyrir 17. júní, og nú bætist ein
við, sem ásamt hinum þremur
stuðlar að fögru útliti borgarinn-
ar.
HLÍF SAMÞYKKTI
KB-Reykjavík, 2. júlí.
Verkamannafél. Hlíf í Hafnarf.
samþ. í gær nýja samninga við
atvinnurekendur og eru þeir í
meginífriðum hliðstæðir þeim
samningum, sem verkamannafé-
lagið Dagsbrún í Reykjavík gerði
við atvinnurekendur í fyrradag.
Gildistími Hlífarsamninganna er
frá 1. júlí 1964 til 5. júní 1965.
um Framsóknarmanna úr hlaði
og sagði, að svo sterk rök lægju
fyrir slíkri breytingu, að tæplega
þyrfti að rekja þau. Hefðu Reyk-
víkingar haft sömu fulltrúa í borg
Framhald á 11. síðu.
Fremur hagstætt veður var á
síldarmiðunum s. 1. sólarhring
Skipin voru að veiðum á sömu
slóðum og í gær þ.e. í Norðfjarðar-
og Héraðsflóadýpi, á Glettingane<
grunni Oig á Gerpisflaki. Alls til
kyn-ntu 100 skip um afla, samtals
79.150 mál og tunnur.
Björg NK 1000. Hvanney SF 60C
Sunnutindur SU 550. Þorv. Rögn
valdss. OF 550. Svanur ÍS 650
Sveinbjöm Jagobsson SH 900
Manni KE 850. Máni GK 650. Guð
bjartur Kristján ÍS 1000. Mumm:
ÍS 600. Blíðfari SH 700. Skarðsvíl
SH 850. Helga RE 1400. Stígand
OF 1050. Hilmir II KE 1000. Ingi
ber Ólafsson KE 800. Rán ÍS 600
Sigurbjörg KE 750. Haraldur AK
1100. Gullfaxi NK 1000. Stefár
Árnason SU 700. Víkingur II ÍS
350. Árni Magnússon GK 1400
Akraborg EA 600. Þorbjörn II GK
1000 Helga Björg HU 400. Sæfar!
BA550. Sólrún sS 300. Akurey RE
1600. Sigurpáll GK 700 Steingrírr
ur trölli GK 800. Björgúlfur E/
1300. Sig. Jónsson SU 1300. Þor
geir GK 600. Árni Geir KE 550
Runólfur SH 400. Skálaberg N5
600. Vörður ÞH 700. Sæfaxi AK
500 Gulltoppur KE 450. Hugrút
ÍS 1000. Bára KE 250. Birkir SIi
300. Páll Pálsson GK 600 Reyni!
AK 300. Guðfinnur KE 200. Loft
ur Baldvinsson EA 1200. Guðbjörí
OF 600. Vigri GK 1100. Draupnii
ÍS 600 Pétur Sigurðsson RE 800
Halldór Jónsson SH 1250. Ólafui
Friðbertsson ÍS 1350. Baldvin Þor
valdsson EA 600. Einar Hálfdání
ÍS 600 Dalaröst SU 800. Gullvei
NS 900. Faxaborg GK 1000 Við
ey RE' 550. Kópur KE 800. Sól
Framhald á bls. 11.
£
TÍ V T r y, föstudoflm, 3 júl’" 1964