Tíminn - 22.08.1964, Page 1
24 SÍÐUR
189. tbl. — Laugardagur 22. ágúst 1964. — 48. árg.
bilaleiga
magnúsar
skipholl 21
SNJÓKOMA FRÁ VESTFJÖRÐUM TIL AUSTFJARÐA
Keiðar að lokast
FÁ EKKERT
EF SANNAN
IR SKORTIR
KJ-Eeykjavík, 21. ágúst.
Frá því dómur féll í vet-
ur í Hæstarétti um skaða-
bótaskyldu tryggingafélag-
anna vegna brotinna fram-
rúðna í bíhim vegna stein-
kasts frá öðrum bíl, hefur
verið stöðugur straumur bif
reiðaeigenda til trygginga-
félaganna vegna slíkra
tjóna.
Blaðið hafði í dag tal af
nokkrum starfsmönnum
tryggingafélaganna, sem
hafa með þessi mál að gera.
Allir voru þeir á einu máli
um að hér væru á ferðinni
vandræðamál, sem bæði
væru erfið viðureignar og
leiðinleg. í flestum tilfell-
unum veit sá er veldur ekki
um tjónið, fyrr en trygg-
ingafélagið tilkynnir hon-
um það. Ef þeir hinir sömu
eiga rétt á fullum bónus, er
oft erfitt að eiga við mál-
in, því menn vilja halda
bónusum í lengstu lög. Nú
er það svo að ekki fá 'nærri
allir bætt tjón, sem þeir
hafa orðið fyrir, vegna sann
anaskorts. Eiginkona aðila
er t.d. ekki tekin sem full-
gilt vitni, því í langflestum
tilfellum eru eiginkonurnar
Framhald á 11.
FB-Reykjavík, 21. ágúst.
í nótt og dag hefur snjóað viSast um vestan-, norSanvert og austanvert landiS og nokkr-
ir fjallvegir eru orSnir ófærir eða þungfærir. Um hádegi í dag var mokhríS á Akureyri,
og þar gátu menn leikiS sér að því að skafa snjó af framrúSum bifreiða sinna og kastast á
snjóboltum, en snjóinn tók fljótt upp aftur. Veðurstofan spáir áframhaldandi norðanátt og
vafalaust verði hret á fjöllum, eða að minnsta kosti slydda, en tæplega snjói mikið í byggð.
Samkvæmt upplýsingum ED á
Akureyri, um ástand vega á Norð-
urlandi, er Vaðlaheiði þungfær,
og er þar verið að hreinsa veg-
inn. Húsavíkurrútan, sem kom til
Akureyrar í morgun, varð að setja
upp keðjur í Dalsmynni, því þar
var töluverður snjór og allsleipt.
Ekki er snjókorn á Öxnadalsheiði,
en frá Silfrastöðum og niður, er
snjóföl og krap á veginum.
Snjóföl og slabb er á Vatns-
skarði og í Langadal, en Holta-
vörðuheiði fær öllum bílum á
keðjum. Möðrudalsöræfi hafa ver-
ið þungfær í dag stórum bílum og
ófær litlum. en þar eru staddir
heflar og eiga að hreinsa veginn
þegar stillist veður. Á Tjörnes-
vegi er snjóföl og snjór á Hálsa-
vegi. Á Akureyri snjóaði mikið í
morgun en upp úr hádeginu stytti
upp, og hefur snjólínan nú hækk-
að aftur. Inn á skrifstofu Dags á
Akureyri kom fannbarinn maður
um hádegisbilið, og er það sann-
arlega óvenjulegt á þessum tíma
árs.
Siglufjarðarskarð er nú alófært
og einn bíll er fastur í skarðinu.
Ýta og trukkur lögðu upp í skarð-
ið í morgun, og var ætlunin að
ryðja það, en ákveðið að gera það
ekki, þar til síðar. Tvívegis hefur
skarðið verið rutt síðustu dagana,
og eru ruðningar nú orðnir í axl-
arhæð. í morgun var hvítt niður
að sjó á Siglufirði, en þar hefur
snjóinn tekið upja aftur. . .-ngið
hefur á með hryðjum í dag, en
létt til og sólin jafnvel skinið á
milli.
Á Ólafsfirði var ökladjúpur
snjór í morgun, en þar er mesti
snjórinn horfinn. Þung færð var
yfir Lágheiðina í morgun, þegar
stór trukkur fór þar um, og ekki
vitað til að bílar hafi farið þar
í dag.
Hvassviðrið og snjókoman byrj-
uðu á Vestfjörðunum í morgun,
og þar er Breiðadalsheiði algjör-
lega teppt. Jarðýta fór með bfl
þar yfir, en svo lokaðist heiðin
alveg. Nú virðist vera að birta upp
á fsafirði og kólna. Þorskafjarðar-
heiði mun vera þungfær.
Færð er góð yfir Fjarðarheiði,
en snjórinn náði svo að segja
niðtir í byggð á Seyðisfirði i morg-
un. Erfitt var að aka um Fagra-
dal í morgun, aðallega vegna snjó-
komu, en sjóinn festi ekki á veg-
inum. Leiðin yfir Oddsskarð var
einnig fær í dag.
Þannig var umhorfs á heiðum norð-
aniands i gær.
Mestu bardagar til þessa í Suður-Vietnam
Stjórnarherinn í stór-
sókn gegn skæruliðum
A myndinni sjást HU-lb þyrlur fljúga áleiðis til vígstöðvanna kringun- Sáigon j S-Vietnam, þar sem einir mestu bardagar til þessa urðu í ga?r
milli stjórnarherjanna og skæruliða kommúnista. Þessir herþyrluflutn ingar eru hinir mestu, sem sögur fara af.
NTB-Saígon, 21. ágúst.
116 hermenn úr liði stjóniarinn
ar í S-Vietnam og fjórir Banda-
ríkjamenn féllu í gær í einuni
mestu bardögum, sem orðið hafa
til þessa við skæruliða kommún-
ista í Vielnam. Yfir 60 hermenn
særðust og 9 er saknað.
Samtímis var tilkynnt í Saígon,
að 400 stúdentar hefðu í dag farið
í mótmælagöngu til bústaðar hins
nýkjörna forseta, Khanh, með orð
sendingu, þar sem m. a segir:
Hernaðareinræði er verra en
stjóm Diems. Rétt eftir fóru svo
hundruð stúdenta í hópum um
göturnar og máluðu slagorð á
bíla, húsveggi og trjástofna.
Hinir hörðu bardagar í gær
hófust eftir að hersveítii stjórn
arinnar réðust inn í víglínu komm
únista um 70 km suð-vestur af
Saigon. Segir í bandarískum heim
ildum, að um 200 skæruliðar hafi
fallið og fjöldi særzt. Eru þetta
einir mestu bardagar, sem orðið
hafa í Víetnam milli hersveita
stjórnarinnar og skæruliða Viet-
cong.
Framhal/1 6 Ktc n