Tíminn - 22.08.1964, Blaðsíða 19

Tíminn - 22.08.1964, Blaðsíða 19
Eftir Skógarhóla-hestamótið 1962 hrípaði ég grein og sendi til birtingar, en greinin kom ekki og við eftirgrennslan löngu síð- ar fékkst það svar, að hún fengi þar ekki inni. Nú, er tvö fyrstu hrossin á fjórðungsmótinu við Húnaver, brúna hryssan frá Akur- eyri og brúni hesturinn úr Svarf- aðardal, eru ákveðið af Kolku- óskyni, leita ég uppi greinina og bið nú Tímann fyrir hana. Grein- ina, sem er söguleg lýsing þess, hvað rétt og hávaðalaus afstaða getur afrekað á nokkrum áratug- nm en allt annað öfugt, nefndi ég: „Hestaræktin í gær, hugleið- ingar um hana í dag — og hest- inn minn,“ — og læt ég hana halda því nafni. Dalamenn á gæðingum sínum á hestamannamóti á Skógarhólum. fara til Þingvalla og hvarvetna hljóta óskipta áðdáun almennings. Verið hjá Austur-Skagfirðingum til sölu og sýnis með staðsetningu þar fyrir augum. Alls konar menn hafa falað hestinn. Svipurinn og geðprýðin sama og áður. Glæsi- leikinn, fjörið og gangrýmið al- veg með yfirburðum. En hvernig á því stendur, að Hrossaræktar- sambandið má ekki kaupa hest- in til staðsetningar á þessu svæði eða leggja fé til kaupanna, það er torráðin gáta. Ég legg á og ríð um túnið og viðstöddum verður að orði: „Þeir hafa verið fallegir og fjölhæfir þessir fjórir, sem teknir voru framyfir hann á Þingvöllum. Ég held það geti ekki verið hestamenn, sem sjá skapvonzku í þessum svip.“ Eitt kvöldið birtist svo Páll í dyrunum, kemur nú beint að sunnan. „Það var með Brún“ — en að Skagfirðingum frágengn- sem voru Gunnar fyrir Hólabúið eða Blöndhlíðingar, — var Páll sá fyrsti. Var nú þarna boðið það hæsta verð og þau kjör, er áreið- anlega hafa ekki áður þekkzt hér- lendis. Hitt var mér ljóst, að ef Sigurmon Hartmansson, Kolkuósi: Hestaræktin í gær • rnn hana í dag - og Sumarið 1921 var sá, er þetta ritar, á hrossasýningu við Garðs- brekkur í Skagafirði. Var þá ung- ur að árum, til aðstoðar föður mínum, er þar var með hross til sýningar. Theodór ráðunautur var þá nýtekinn við hrossaræktarstörf um og mun þetta hafa verið með fyrstu sýningum hans hér um slóð ir. Þarna kom til sýningar brúnn, ungur hestur frá Svaðastöðum. Varð öllum starsýnt á hann því hesturinn var afburða glæsilegur. Frá Svaðastöðum höfðu þá, af og til, komið fagurbyggðir og fjölhæf ir reiðhestar mikið á þriðja manns aldur. Theodór vakti ákveðið athygli manna á hestinum, svo sem ég tel vera beri, lýsti og útskýrði reiðhestsbyggingu hans, hinn fjað urmagnaða, sívala bol, gangrým- ið, fríðleikann, reisnina og glæsi- braginn. Eftir að hafa marggeng- ið kringum hestinn og athugað, snýr hann sér að föður mínum og segir: „Þú færð ekki betri verðlaun fj'rir Nönnu þína, (Það var af- burða fönguleg reiðhryssa er hann sýndi þar og Theodór dáði mjög og vissi, að amma hennar var sérstaklega valin af Svaða- staðastofni fyrir mannsaldri) en að fá að leiða þau saman hérna. Held bara, að ég hafi aldr- ei séð fallegri hest.“ Þetta var gert og árið 1922 fæddist Hörður 1 Kolkuósi, er varð kynbóta- og reiðhestur föður míns yfir 20 ár. Áreiðanlega sá Theodór rétt, eng- in önnur verðlaun, í hverju sem verið hefðu, gátu reynzt betri. Það féll í minn hlut að eignast og varðveita þetta kyn, sem hefur árlega fætt af sér fríða og fjöl- hæfa reiðhesta. Þá er það 1959, við vönun tvæ- vetlinga, að eins brúns fola var vant, er gekk með nágrannastóði og er síðar skyldi handsama hann, voru viðstaddir samdóma um, að þann fola mætti ekki vana. Ákvað ég þá strax, að fela hann, er til kæmi, Páli Sigurðssyni, til varð- veizlu og tamningar, en hann var þá kominn í Skagafjörð á ný, því engum raunverulegri hestamanni hef ég kynnzt, atlæti hans, eldi og aðhlynning öll alveg með ágæt um. Ekki hafði Brúnn lengi verið í hesthúsi Páls er glöggir menn fóru að veita honum athygli og vildu nú þegar fjölmargir eignast hann. En með því að svo hafði með okkúr Páli talazt, að hann færði hestinn á Þingvöll 1962, varð ekkert úr viðskiptum. Al- mannarómur hér var að failegri hestur sæist hvergi og vottorð Páls og hins landskunna tamn inga- og hestamanns, Einars Hösk uldssonar var, að reiðhestshæfi- leikar hans væru með yfirburðum. Er líða tók að landsmótinu fékk ég pata af því, að Páll og Brúnn yrðu ekki hátt skrifaðir þar. Sambandshestar færu nú suð ur og þyrftu að ná fyrstu sætum. Ég trúði þessu varla og svo skrapp ég suður svona til að heyra og sjá. Á mótinu var ákaflegt fjöl- menni en um það hefur verið skrifað og dómar birtir og sleppi ég þeim. En mig langa að vekja athygli á því, sem ég heyrði og sá í hesthúsinu, — og svona smá punktum síðan. Þar áttu að vera saman komnir nær 40 beztu stóð- hestar landsins. Stöðugur straum- ur fólks var þar út og inn, allir að skoða hestana, þúsundir hafa áreiðanlega lagt sinn dóm þar á og fjölmargir sögðu ákveðið við bás Harðar frá Kolkuósi: „Þama er fallegasti hesturinn,“, eða „Þetta er fallegasti hesturinn í húsinu“. Það var suddi úti svo ég kom þarna oft inn og hejrrði á tal manna. Eitt sinn stóðu við básinn tvær prúðbúnar/ konur. „En hvað þetta er fallegur hest- ur“, sagði önnur, „skrokkurinn alveg hrafnsvartur og svona spegil gljáandi". „Já, þetta er eins og dýrindis pels“, sagði hin. Þarna kom vottorð til Páls fyrir hirðing- una. Kunnur Reykvíkíngur, áður skagfirzkur hestamaður, var þarna við básana að bera þá saman Hörð og jarpa, skagfirzka sambands- hestinn, er dæmdur var honum fremri þá um morguninn: „Ég hélt, að þetta væri nú bara ekki hægt. Það á hér við, sem hinn mæti hestamaður, Þórður heitinn á Lóni, sagði einhverntíma: „Hér þarf engin vottorð, hesturinn svarar fyrir sig sjálfur“. Þá kom ég í húsið er frekar ungur maður stóð hjá Herði og skoðaði hann. Ég hvarf frá í bili en er ég kom aftur eftir nokkra stund, stóð maðurinn þarna enn, studdi hendi á makka hestsins og horfði á hausinn. Ég spurði mann inn hvort hann þekkti þennan hest. „Nei, ég þekki hann ekkert, ég er úr Reykjavík, en ég hefi átt fallega hesta og séð fjölda af fallegum hestum en ég held ég hafi aldrei séð svona fallegan hest“. Þessa setningu hafði Theo- dór heitinn yfir fyrir 40 árum, við athugun á Sörla frá Svaða- stöðum, þann, er hann hafði milli- göngu með að útvega Fljótsdæl- ingum fyrir feikna verð 1924 og sömu orð hafði þessi athuguli hestamaður á Þingvöllum við um sonar-dóttur-dóttur-son hans. Er ekki þarna að vænta kjm- festu, sem ekki svíkur? En hvernig fer nú um þennan hest? Ætli það eigi fyrir honum að liggja að þvælast byggð úr byggð og þynnast út í óskyldum stofnum eða verða hreinlega reið- hestur einhvers kaupstaðahesta- manns? Er nú nokkur Theodór að varða honum veginn? Eða geta þau öfl verið ráðandi um hestaræktina er að honum vilji bera huliðshjálm? Þegar fyrri Brúnn var seldur datt engum hér í hug, svo ég vissi, að bindast samtökum um að kaupa hann, enda þá ekkert hrossaræktarfélag þá til hér austan Vatna og því síður samband félaga með marga hesta. En austur á Héraði var starfandi margra ára gamalt fé- lag. Var hann þó dáður ósleitilega af ráðamönnum hrossaræktarinn- ar. En nú, þegar þessi Brúnn er kominn undan mælikeri Þingvalla dómnefndarinnar, bindast nokkr- ir bændur í samfelldu byggðarlagi strax samtökum og vilja kaupa hestinn til eigin nota og staðsetja hann á því svæði, sem hann er sprottinn úr. Hvergi á landinu er möguleiki á slíkum mótparti og hér austan Vatna í Skagafirði og þeir hika ekki við að bjóða hæsta verð, er þekkist. Bjóða fram eigið hugleiðingar hestinn minn fé á móti styrknum, en hann fæst bara ekki. Einn horfir á styrkinn, annar ekki, eins og gengur. Er þessi kaupmál voru eitt sinn rædd á Vatnsleysu af nokkrum þessara manna, hjá hin um búfjármenntaða og glögga hestamanni, Hólmjárn Jósefssyni, varð honum að orði: „Við kaup- um bara hestinn, hvað sem hann kostar, látum þá eiga sinn styrk, ef þeir finna sig í að halda hon- um. Stóðhestur sem þessi er, mér vitanlega, enginn annar til í land- inu. Það væru hrópleg mistök að tapa honum hér af svæðinu fyrst okkur býðst forkaupsréttur á hon um, yfirburðir hans eru svo mikl- ir“. En samtök gliðna. Sambandið ræður og þó er eins og bændur séu ekkert hrifnir af sambands- hestunum. Vafalaust eru þeir þó góðir, einhverjir. Um glæsileik þeirra og hæfni segi ég ekki neitt, en hefi varla trú s að þeir, (fram- leiðendurnir sjálfir), rykju til og byðu fram eigið fé til kaupa á einhverjum þeirra, ef til sölu byð- ist og. það þó að verðinu væri stillt í hóf. Nei, hér er eitthvað öðru vísi en ætti að vera. Er ég hræddur utn að þeir góðu menn, er þarna ráða, fyllist um of hrifningu af eigin hestum, taki ekki nægilegt tillit til framleið- endanna sjálfra og fari sem karl- inum, er nefndi öll sín reiðhross Vakra Skjóna. — „þó að meri það sé brún“. Milli þessara hérumræddu sýn- inga er langur tími og aðstaða öll hin ólíkasta, sem vonlegt er. Theodór leiddi fram afburða hest- inn og lýsti honum ýtarlega og því í byggingu hans, sem eftir- sóknarverðast er, og það svo ræki lega, að enn er það mér glöggt fyrir hugskotssjónum. Þessu má ekki sleppa, sérstaklega vegna yngri mannanna. Fegursta unga gripinn þarf sérstaklega að sýna hverju sinni og útskýra yfirburði hans, því það á við jafnt um skepnuna sem manninn að glæsi- leikinn, fegurðin, er mestur á bezta skeiðinu. Nú var Hörður kominn heim aftur, búinn að vera í skóla í Varmahlíð, Hólum og Blönduósi, svo skyldi ráðast með þá báða, Pál og Brún, að þeir hyrfu suður, þá væri það óbætanlegt tjón fyrir alla hrossarækt og hestamennsku í Skagafirði. En þar syðra mjmdu þeir sóma sér saman prýðilega. Síðast sit ég á Brún í. glansandi veðri á leið til Hóla með hann til afhendingar. Hefi reynt, að á betri reiðhest verður ekki kosið. Léttur í taumum, hlýðinn og auð- sveipur en þó svo ákveðinn, að fara mundi á allt, sem honum væri beint að. Er í Hólahlað kem- ur eru þar menn við vinnu. Fyrst- ur gengur að hestinum Hróbjart- ur smíðameistari Jónasson og seg- ir: „Ákaflega er þetta stórglæsi- legur hestur.“ — Eg sá það langt úti á vegi, að þetta gat ekki verið annar hestur en Brúnn. Ég varð yfir mig hrifinn af þessum hesti er ég sá hann á Þingvöllum í sum- ar,“ sagði Sigurður Haraldsson, ráðsmaður. Alls staðar voru dóm- ar hestamanna á einn veg. Við hrossaræktarráðunautinn vil ég segja þetta: Ég fann það á þér, er þú sem snöggvast komst til mín, að þú varst hrifinn af Brún og reiðhestshæfileikum hans, enda munt þú glöggur hesta maður. En þú slepptir tækifærinu á Þingvöllum að sýna hann sér- staklega sem afburða vel byggð- an reiðhest og útskýra hvar hann ætti bezt við með ræktun fyrir augum og stuðla að staðsetningu hans þar. Ég er sannfærður um, að þessu tækifæri hefði Theodór heitinn ekki sleppt, því þarna fer afburðahestur af þeirri gerð. er allflestir íslenzkir hestamenn vilja hafa hesta sina. Það sanna almannadómar, hvar sem hann hefur komið. -fin ekkert sannar þó betur yfirburði hans en þetta síðasta: að þrátt fyrir það að þið á Þingvöllum létuð sem minnst á honum bera, að mér fannst, svo ekki sé meira sagt, skuli stanz- laus eftirspurn hafa verið eítir honum síðan. Búfjárræktarlögin eru snöggsoðin og þyrfti að bregða þeim yfir hlóðir aftur, ef það er satt, að heilum bvggðalög- um geti verið meinað að fá styrk til kaupa á afburða hestum, er Framh. á 23. síðu. T í M I N N, laugardaginn 22. ágúst 1964 — *• v > ’ X' ' V - v;*^;* 19 JC* «• «»* - T

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.