Tíminn - 22.08.1964, Qupperneq 2
Föstudagur 21. ágúst.
NTB-Washington. — Johnson,
Bandaríkjaforseti sagði í ræðu
í dag, að Bandaríkin stæðu nú
andspænis baráttu milli tveggja
afla í heiminum, annars vegar
fyrir frelsi, hins vegar einræði.
Þessí barátta mun krefjast
meira af þeim mönnum, sem
berjast fyrir frelsinu, næstu
20 árin heldur en nokkurn tíma
íyrr í sögu Bandaríkjanna,
Bagði forsetinn.
NTB-Lundúnum. — Brezka
stjórnin hefur samþykkt til-
lögu forsætisráðherra Möltu,
dr. Borg Olívier, um að eyjan
Ukaw hljóti sjálfstæði hinn 11.
september n. k.
NTB-Algeirsborg. 12 andbylt-
íngarsinnar stóðu fyrir rétti í
dag í Algeirsborg sakaðir um
endurteknar aðfarir að opinber
um skrifstofum og varnarstöðv-
um.
NTB-Washington. í tilkynn-
ingu frá geimrannsóknastöð-
inni á Kennedyhöfða segir, að
einhvern næstu daga muni
takast að koma gervitunglínu
Syncom 3. á réttan stað úti í
geimnum, þar sem það muni
halda sig framvegis.
NTB-Kualalumpur. — Öryggis
sveitir Malaysíu felldu í dag
tvo indónesíska skæruliða og
særðu marga í bardaga í Pont
ian-héraðnu á suðvestur-hluta
Malaya.
NTB-New York. Búizt er við,
að Robert Kennedy, dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna
muni lýsa því yfir á sunnudag,
að hann muni bjóða sig fram
til öldungadeildarinnar fyrir
New York-ríki í kosningunum
í haust. Wagner, borgarstjóri,
sem er einn mesti áhrifamaður
demókrata í fylkinu lýsti yfír
stuðningi sínum við framboð
Kennedys, seint í kvöld.
NTB-Washington. — Þann 1.
júlí næsta ár koma til fram-
kvæmda í Bandaríkjunum
ákvæði sem skylda vindlinga^
framleiðendur til að prenta að-
varanir á vindlíngapakka um,
að reykingar séu hættulegar
heilsu manna.
NTB-Washington. — Barry
Goldwater, öldungadeildarþing
maður og forsetaframbjóðandi
republikana sagði í dag, að
hann vildi að tryggingakerfið
í landinu yrði styrkt og sagðist
mundu greiða atkvæði með því
að tryggihgabætur hækkuðu
um 5%.
NTB-Kaupmannahöfn. — Fyrr
verandi sendiherra Bandaríkja-
anna í S-Vietnam, Henry Cab-
ot Lodge, kom í dag til Kaup-
mannahafnar í þriggja daga
heimsókn, og mun hann nota
tímann til að gera dönsku
stjórninni grein fyrir afstöðu
bandarísku stjórnarinnar til
deilunnar í S-Vietnam.
NTB-Prag. — Sagt var í Prag
í dag, að heimsókn Krústjoffs,
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna í Tékkóslóvakíu myndi
sennilega standa dagana 27.
ágúst til 3. september.
Kýpurstjérn semur áætlun um
mut væluflutningu til Tyrkju
- en Sameinuðu þjóðirnar fallast ekki á hana
NTB-Nicosíu, 21. ágúst.
Kýpurstjórn skýrði talsmönnum
S.þ. og Alþjóðarauðakrossins frá
því í dag, að hún hefði látið gera
áætlun um að leyfa strangt tak-
markaða matvæiaflutninga til
tyrkneskumælandi manna á IC*-
um fjórum landssvæðum þeirra
á eyn-ni.
Slðar í dag var haft eftir áreið-
anlegum heimildum, að S.þ. gætu
engan veginn fallizt á þessa á-
ætlun Kýpurstjórnar.
Þá sagði talsmaður S.þ. í dag, að
stjórn Kýpur liefði boðizt til að
veita Tyrkjum óheft ferðafrelsi
um alla vegi til og frá Nicosíu,
sem stjórnin hefur eftirlit með,
ef Tyrkir veita grískum mömnum
samt konar fetðaleyfi um þá vegi,
sem eru undir tyrkneskri stjórn.
Það var Makarios, forseti Kýp-
ur, sem lýsti þessu yfir. Sagði
hann, að með skilyrði stjórnarinn-
ar, hefði hún sérstaklega í huga
hinn mikilvæga veg milli Nicosíu
og Kyrenia, sem að mestu leyti
er undir eftirliti tyrkneskumæl-
andi manna.
Talsmaður S.þ. sagði, að Maka-
rios hefði lagt fram tillögur sínar
á fundi með Galo Plaza, sérlegum
fulltrúa U Thants á Kýpur og K.S.
Thimayya, yfirmanni gæzluliða
S.þ. á eynni. Á fundi þessum var
einnig rætt um leiðir til að draga
úr fjárhagslegum höftum gagn-
vdrt tyrkneskumælandi mönnum
á Kýpur.
Makarios sagði m. a., að ef
haldið yrði áfram að hefta frjálsa
umferð um vegi, sem liggja til og
frá Nicosíu, myndi Btjórnin biðja
Rauða-krossinn og S.þ. að gefa
upplýsingar um þær nauðsynjar,
sem nauðsynlegar væru fyrir
tyrkneska íbúa til þess að koma
í veg fyrir að þeir liðu skort.
Sagði hann, að stjórnin myndi
leyfa flutning lífsnauðsynja til
tyrkneskumælandi borgarbúa, en
jafnframt halda áfram ströngu eft
irliti með, að hemaðarvarningur
væri ekki fluttur ínn í borgina.
Nokkru síðar var tilkynnt, að
stjórnin hefði formlega skýrt full
trúum S.þ. og Rauða-krossins frá
áætlunum sínum um þessa mat-
vælaflutninga. Hefði stjórnin lát-
ið semja yfirlit um það, hve marg
ar kaloríur væru nauðsynlegar
konum, börnum og karlmönnum
á ýmsu aldursskeiði, á degi hverj
um til að lifa þolanlega, og yrðu
matvælasendingar byggðar á þess
um útreikningum.
Segir ennfremur í tilkynningu
stjórnarinnar, að þessar áætlanir
nái til tyrkneska borgarhlutans í
Nicosíu og þorpanna Lefka, Kokk
ina og Limnits á norð-vesturhluta
eyjarinnar.
MESTI SIGUR GEGN UPP-
REISNARMONNUMIKONGÖ
dagar hafa staðið yfir við upp- Bukavu er höfuðborg Kivu-hér-
reisnarmenn. aðs og fimmta stærsta borg Kongó.
HúsmæðraoHof
á Hallormsstað
NTB-Leopoldville, 21. ágúst.
Hersveitir úr þjó'ðfrelsisher
Kongó náðu í dag að fullu á sitt
vald borginni Bukavu í Kivu-hér-
aði í Austur-Kongó, eftir hörku
bardaga, sem kostaði 300 man-ns
lífið, þar af sjö Evrópumenn.
Fylgir nú stjórnarherinn flótta
uppreis'narmanna eftir.
Síðustu fréttir, sem bárust til
Leopoldville herma, að allir upp-
reisnarmenn hafi nú verið hraktir
frá borginni og hafi þeir flúið
marga kílómetra frá henni.
Segja fréttamenn í Leopoldville,
að stjórnin álíti þennan sigur
þann mikilvægasta, sem unnizt
hafi þá fjóra mánuði, sem bar-
HF—Reykjavík, 21. ágúst.
Dagana 22.—28. ágúst verður í
i annað skipti í s'umar lialdið hús-
mæðraorlof á Hallormsstað á veg
um Sambands austfirzkra kvenna
Fyrra orlofið var haldið í júní-
mánuði og var fullskipað. For-
maður orlofsnefndar félagsins er
Guðrún Sigurjónsdóttir á Neskaup
stað.
Aðalfundur sambandsins var
haldinn á Fáskrúðsfirði dagana
31. maí og 1. júní í ár. Mættu þar
margir fulltrúar, en fundarstjóri
var Nanna Þórðardóttir, Fáskrúðs
firði. Tvö ný mál voru tekin til
umræðu á aðalfundinum, stofnun
elliheimilis á Austurlandi og stofn
un sumarbúða fyrir unglinga á
Austurlandi. Fundurinn ræddi
þessi tnál af miklum áhuga og
hétu konur þeim stuðningi sínum.
Það er Bændafélag Fljótsdals-
héraðs, sem beitir sér fyrir stofn
Framhalö á bls. 11
ÚPIN VÖKTU
r r
OPNAR SÍNA
6. SÝNINGU
HF—Reykjavík, 21. ágúst
Á laugardaginn opnar Sveinn
Björnsson, listmálari, sína sjöttu
málverkasýningu í Reykjavík.
Sveinn er Reykvíkingum því þegar
kunnur, en þar að auki hefur
hann haldið sýningar víðs vegar
um landið. Tíminn hafði í dag
smárabb við Svein i tilefni af
opnun sýningarinnar.
— Hvað verða margar myndir
á þesari sýningu, Sveinn?
— Þær verða 39 og eru unnar
undanfarin fiimm ár.
— Eru nokkrar stílbreytingar á
ferðinni hjá þér núna?
— Eg er farinn að mála stærri
myndir en ég hef nokkurn tíma
gert áður og flest eru þetta fanta
síur. Litbrigðin eru líka sterkari
en þau voru t.d. á síðasta ári.
Myndirnar eru málaðar með olíu
eða olíukrít.
— Er langt síðan þú byrjaðir
að fást við að mála, Sveinn?
— Það eru ein fimmtán ár síð
an. Þá var ég sjómaður, ég byrj
aði að mála á sjónum. Síðar fór
ég til Danmerkur og var þar í
eitt ár yið nám og þar á eftir hélt
ég til Ítalíu og skoðaði söfn.
— Starfarðu ekki eitthvað utan
við listina?
— Jú, ég er lögregluþjónn. Ein-
hvern veginn verð ég að vinna fyr
ir brauði með þrjú börn á fratn
færi. Annars fer geysilegur tími í
það að mála hjá mér, ég hef varla
tíma til að sinna lögregluþjóns-
stöðunni.
— Hefurðu sýnt erlendis,
Sveinn?
— Já, nokkrum sir.num í Dan-
mörku. Þrjú undanfarin ár hef ég
sýnt þar með fjórum dönskum
málurum, Per Henrik Friis, Hen-
rik Vagn Jensen, Niels Vagn
Jensen og Ib Thorup. Við höld-
um líklega áfram að sýna saman.
— Hvað verður sýningin opin
lengi?
— Hún verður opin í tíu daga,
frá og með laugardeginum að telja
Klukkan 10—12 fyrir hádegi, og
1—10 eftir hádegi. Á laugardaginn
verður opnað klukkan fjögur.
FOLKIÐ I
NÆSTU HUSUM
KJ—Reykjvík 21. ágúst
Stúlkuóp vakti íbúa í húsum
vestur við Ægissíðu og þar í kring
Er farið var að kanna mál þetta
■ nánar kom í ljós að brotizt hafði
verið inn í hús þarna, og ung
stúlka hafði verið beitt ofbeldi.
Er að var komið lá hún í forstof
unni illa útleikin. Ekki hefur enn
verið hægt að -annsaka mál þetta
til hlítar, þar setn aðeins annar
aðilinn hefur verið yfirheyrður.
Er það pilturinn sem var þaroa
að verki, og situr hann núna í
gæzluvarðhaldi. Stúlkan var mjög
miður sín eftir atburð þennan,
og Jiefur það tafið rannsóknina í
málinu. Enginn annar mun hafa
verið í íbúðinni begar þetta gerð
ist.
Síldarfréttir 19. og 20. ágúst 1964.
Óhagstætt veður var á síldar-
miðunum þessa tvo daga, og var
ekki vitað um afla neinna skipa.
Sfldarfréttir föstudaginn
21. ágúst 1964.
Veður fór batnandi á síldarmið-
unum í gær og héldu skipin al-
mennt á miðin. í morgun var
veður orðið óhagstætt, suðvestan
bræla, 4—5 vindstig.
Síldarleitinni var kunnugt um
afla eftirtalinna 3 skipa samtals
320 tunnur. Fengu skipin afla
þennan á Gerpisflaki, um 55 mílur
undan landi.
Kristbjörg VE 100 tunnur, Guð-
björg OF 100 tn., og Guðrún Jóns-
dóttir IS 120 tunnur.
Héraðsmót i
Strandasýslu
Héraðsmót Fram
sóknarmanna í
Strandasýslu
verthir haldið að
Sólvangi, laugar-
daginn 29. ágúst,
og hefst það kl.
20.30. Ræðn flyt-
ur Sigurvin Ein-
arsson, alþingis-
maður. Erlingur
Vigfússon, óperusöngvari, syngur
og Ieikari skemmtir. Hljómsveit
Jóhannesar Péturssonar leikur
fyrir dansi.
Sigurvin
Héraðsmót að Bif-
röst í Borgarfirði
Framsóknarmenn í Mýrasýslu
halda héraðsmót að Bifröst >
Borgarfirði sunnudaginn 30. ágúst
og hefst það kl. 2.30. Fjölbreytt
dagskrá. Nán-arauglýst síðar.
ÉG UNDIRRITAOUR skipf
hitakerfuio með eirrörum
Tflbúinn tii að bjarga yðui
nú þegar eða eftlr samkomu
lagi.
HILMAð JÓN LCTTHERSSON
pipuLmeistari sími '" 041
2
tÍMINN, laugardaqlnn 2L áaúst 1964