Tíminn - 22.08.1964, Blaðsíða 5
/
ritstíór: hallur simonarson
Sigurvegarar Vals
ag Vestmannaeyja
Landsmótum yngri flokkanna í knattspyrnu er nú lokið,
nema í 2. flokki. í fyrrakvöld fór fram úrslitaleikur í 5. flokki
og áttust við Valur og Akranes. Svo fóru leikar, að Valur
sigraði með 2:0. Leikurinn var allan tímann hinn skemmti-
legasti — og sýndu þessir ungu knattspyrnumenn oft dágó'ð
tilþrif. Sá sem skoraði mörkin fyrir Val heitir Tryggvi
Tryggvason. Þess má geta, að Valur varð einnig Reykjavíkur
meistari í 5. aldursflokki.
Á síðunni í dag birtum við
myndir af yngstu meisturunum, 5.
flokki Vals, að ofan, og 4. flokki
Vestmannaeyinga, sem sigraði Val
í úrslitum með 5:2. Vestmanna^
eyja-piltarnir sýndu mikla yfir-
burði, skoruðu samtals 40 mörk í
mótinu, en fengu á sig aðeins 3.
Er þetta í fyrsta skipti, sem
Vestmannaeyingar verða íslands-
meistarar í knattspyrnu.
Valspiltarnir í 5. flokiki (á mynd
inni að ofan) eru, fremri röð frá
vinstri: Aron Björnsson, Vilhjálm
ur Kjartansson, Jón Gíslason, Þor
steinn Helgason, Sigurður Haralds
son, Guðmundur Jóhannesson,
Árni Geirsson. Aftari röð: Helgi
Benediktsson, Tryggvi Tryggva-
son, Hörður Hilmarsson, Ingi B.
Albertsson, Reynir Vignir, Gústaf
Nielsson, Einar Óskarsson, Berg-
ur Benediktsson, og þjálfarinn,
Róbert Jónsson.
Á neðri myndinni kotna svo
Vestmannaeyingarnir. f fremri
röð frá vinstri:
Óskar Vaitýsson, Kristján Sigur
geirsson, Hafsteinn Gúðfinnsson,
Ólafur Sigvinsson, Tómas Pálsson
Aftari röð: Þorvaldur Kristleifs-
son, Einar Friðþjófsson, Geir Sig
armr
urlásson, Gísli Sighvatsson, Ing-
ólfur Grétarsson, Friðfinnur Finn-
bogason, Georg Kristjánsson, Ósk
ar Ólafsson, Guðmundur Guðlaugs
son.
Suður - Afríka
útilokuð
Alþjóðaólympíusambandið kunn
gjörði á þriðjudag, að ákveðið
hefði verið að útiloka _ Suður-
Afríku frá þátttöku í Ólympíu-
leikunum í Tokíó, þar sem
ólympíunefnd landsins hefur ekki
viljað taka afstöðu í kynþátta-
vandamálinu í landinu.
Alls munu 94 þjóðir keppa í
Framhald á bls. 11.
39. landsleikur-
inn er á morgun
ísland og Finnland mæiast í þriðja sinn í landsleik á
morgun. Leikurinn heffsi kl. 16 á Laugardalsv.
Alf-Reykjavík.
Á morgun, sunnudag, leika íslendingar sinn 39. landsleik
í knattspyrnu og mæta þá Finnlandi. Leikurinn verður á
Laugardalsvellinum og hefst klukkan 16. Tvívegis áður hafa
íslendingar og Finnar mætzt í knaattspyrnu. í fyrra skiptið
á Melavellinum í Reykjavík 1948 — og unnu íslendingar þá
sinn fyrsta landsleikjasigur, 2:0. í annað skipti mættust fs-
land og Finnland í Helsinki 1956 og unnu Finnar þann leik
með 2:1.
í þeim 38 landsleikjum, sem fs-
land hefur leikið, höfum við oft-
ast beðið ósigur — 7 leikir hafa
unnizt, 2 orðið jafntefli, en 20
tapazt.
Um möguleika íslands í leikn-
um á morgun skal engu spáð.
Vitað er, að hið finnska lið er
nokkuð sterkt — og verður um
sama liðið að ræða og sigraði
Svía á dögunum með 1 : 0. Finnar
léku gegn Norðmönnum í fyrra-
kvöld í Þrándheimi og töpuðu
0 : 2. Eftir því að dæma á liðið
misjafna leiki.
Þótt landsleikjasaga íslands sé
ekki glæsileg, held ég að menn
þurfi ekki að vera með svartsýni
fyrir leikinn á morgun. í síð.asta
landsleik okkar, gegn Bermuda-
mönnum fyrr í mánuðinum, kom
í ljós, að framlína íslenzka liðs-
ins gat verið beitt, ef því var að
skipta, með Þórólf Beck og Ellert
sem aðalmenn. Þórólfur styrkti
liðið geysilega — og vonandi tekst
honum eins vel upp í leiknum á
morgun. Ég hygg, að möguleikar
okkar séu mest undir því komnir
að vörnin standi sig. í síðasta
leik brást vörnin að mestu leyti,
en nú hafa breytingar verið gerð
ar, sem væntanlega verða til þess
að styrkja hana.
Sem fyrr segir, hefst leikurinn
kl. 16 á morgun.
Valur vann í
kvennaflokkum
Valur og Fram mættust í úrslitaleik í meistaraflokki
kvenna í útihandknattleiksmótinu s.l. miðvikudagskvöld. —
Leikurinn varð miklu jafnari en búizt hafði verið við fyrir
fram — og tókst Valsstúlkunum rétt að merja sigur., 8 : 7,
eftir hnífjafnan og skemmtilegan leik. Valsstúlkurnar byrj-
uðu mjög vel og höfðu eftir 10 mín. leik náð 4 : 1. í hálfleik
var staðan 5 : 3 fyrir Val.
í síðari hálfleik náðu Fram-
stúlkurnar sér á strik — og tókst
á skömmum tíma að jafna stöð-
una, 6 : 6: Hin leikreynda Sig-
ríður Sigurðardóttir, skoraði 2
mörk í röð fyrir Val, en Fram
bætti einu marki við áður en yfir
lauk.
Eins og fyrr segir, var leikur-
inn jafn mestallan tímann. Á köfl-
um lék Fram-liðið betri sóknar-
leik og sterkari varnarleik. Vals-
stúlkurnar voru hins vegar skot
harðari — og það gerði gæfu-
muninn.
Mörk Vals skoruðu Sigríður 5,
Sigrún 2 og Vigdís 1. Mörk Fram
skoruðu Guðrún 5 og Geirrún 2.
Dómari í leiknum var Birgir
Björnsson. Valur lék einnig til
úrslita í 2. flokki kvenna og sigr
aði Ármann með miklum yfir-
búrðum, eða 8: 1. — Þess má geta,
að þetta er í fyrsta skipti, sem
Valur verður íslandsmeistari í
meistaraflokki kvenna. N.k. mánu
dag munu Valsstúlkurnar halda
utan í keppnisför til Norðurlanda
Hefst
í dag
Keppnistímabilið í knattspyrnu
hefst á Englandi í dag og fara þá
fram leikir í öllum deildunum
fjórum. Að venju er mikill spenn-
ingur í sambandi við þessa fyrstu
leiki. Ensk.u blöðin hafa að und
anförnu verið með spádóma í
sambandi við úrslit í 1. deild og
(Framhald á 11. slöu)
rÍMINN, laugardaginn 22. ágúst 1964 —