Tíminn - 22.08.1964, Side 17
Porsteinn Guðjónsson:
íslenzk fræSi
09 hinir duuðu
Þegar ég undanskil ummæli
Benedikts frá Hofteigi um nafna
minn bóndann á Úlfsstöðum, en
þeim ummælum ætla ég ekki að
eyða neinum orðum að, þá þykir
mér andsvar hans við athuga-
semd frá mér varðandi höfund
Heimskringlu, um sumt jafn vel
orðuð og ég gat búizt við af hon-
am. En að því er snertir þann
h’iita greinar hans, sem beinist
a* mér, þá verð ég að byrja á
a,5i leiðrétta þann misskilning
hans, að ég hafi ætlað að niðra
honum með því að minnast á að
hann væri gamall bóndi. Mig furð-
ar á þvf að nokkrum skuli geta
dottið sifkt í hug. Það eru að
vísu til einhverjir vesalingar í
Reykjavfk sem þannig hugsa, en
þar sem varla mun þurfa að ætla
slíkum að vera lesandi á neitt
sem máli skiptir, þarf ekflri held
úr að taka neitt tilit til slíkra
þegar skrifað er. Það sem ég átti
við með því að kalla það athyglis-
vert að enginn nema gamall bóndi
hefði orðið til að skrifa í tilefni
af hinum nýju kenningum Peters
Hallbergs, var, að ekki væru aðr-
ir fremur uppistandandi sem
fræðimenn á fslandi en gamlir
bændur.
Það er ennfremur fráleitt að
saka mig um menntahroka. Eg
Aðalfundur F.U.F.
Félg ungra Framsóknarmanna í
Strandasýslu heldur aðalfund sinn
laugardaginn 29. ágúst að Sævangi
og hefst hann kl. 6. e.h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf og kosning fulltrúa á 10.
þing Sambands ungra Framsóknar
manna.
Héraðsmót á Sauð-
árkróki
Héraðsmót B ramsóknarmanna 1
Skagafiarðarsýslu verður haldið á
Sauðárkróki. sunnudaginn 23
ágúst og hefst það kl 20.30
Ræður flytja alþingismennirn
ir, Einar Agústsson, bankastjór og
Ólafur Jóhannesson prófessor
Smárakvanettinn á Akureyri
syngur og Jón Gunnlaugsson gam
anleikari skemrntir Gautar leika.
ASalfundur FUF
Aðalfundur FUF á Snæfellsnesi
og í Hnappadalssýslu verður hald
inn í félagsheimiíinu Ólafsvík 31.
þ. m. kl. 22. Fundarefni: Venjuleg
aðalfundarstörf, kosnir fulltrúar
á sambandsþing SUF.
Héraðsmót í
Sfrandasýslu
Framsóknarmenn 1 Strandasýslu
halda héraðsmót að Sævangi iaug
ardaginn 29 ágúst n.k.
Dagskráin verður fjölbreytt að
vanda og verður nánar sagt frá
henni síðar
FUF í Ólafsvík
FUF í Ólafsvík og Hellissandi
halda sameiginlegan fund i félags
heimilinu Ólafsvík 31. þ m. kl.
22. Fundarefni: Kosnir fulltrúar
á sambandsþing SUF.
býst við að mér sé óhætt að segja,
án þess að hætta á að fara með
neinar ýkjur, að vandfundinn sé
jafngersamlega hrokalaus mað-
ur og ég, nema vera skyldi það,
að ég væri ekki þóttalaus fyrir
hönd íslenzkra bænda, frá Gunn-
ari Hámundarsyni og Snorra
Sturlusyni til Þorsteins Jónssonar
og Bjarna á Brekku, sem ég hygg
alla jafnt bera yott um það, að
íslenzkir bændur séu aðalsætt og
vaxtarbroddur mannkynsins. Verði
ég ódauðlegur, eins og Benedikt
spáir mér, þá verður það fyrir
þennan skilning minn á íslenzkum
bændum og annað sem stendur í
sambandi við hann. Þykir mér
reyndar eklki annað liklegra en
að slfkt verði sannspá, því að
hverjir hafa betur unnið til varan
legrar frægðar en þeir, setn einir
lögðu það á sig að segja sann-
leikann um það sem mestu skipt-
ir. En það er, hvort líf er eftir
dauðann og þá hvernig því lífi er
varið, og er ekki erfitt að sjá,
að einnig fyrir sagnfræði eins og
þá sem Benedikt stundar, muni
það skipta nokkru hvað satt er
í þeim efmrm.
Að því er snertir heimildimar
hinar norsku, fyrir því hver sé
höfundur Heimskringlu, þá get
ég verið fáorður. Mér þykir lík-
legt, að Benedikt hafi lesið miklu
meira um það efni en ég, enda
var það ekkert aðalatriði hjá mér.
En þegar sýnt hefur verið fram
á sameiginleg einkenni á máli
Heimskrjnglu, Eglu og Snorra
Eddu, er vitanlega erfiðara en
áður að tortryggja hina áminnztu
heimild, því að óyggjandi mun
það vera að Snorra Edda sé hon-
um með réttu eignuð. Eg var að
benda á, að stílrannsóknirnar á
þessum í'itum séu þau rök, sem
enginn getur gengið fram hjá, sem
nú vill ræða þetta mál, og kynni
þar að vera skýringin á því, hve
fáorðir lærdómsmenn vorir hafa
verið í sambandi við þessi mjög
athyglisverðu rit Peters Hallberg.
Hræðslan við að þurfa að nefna
dr. Helga Pjeturss er það, sem
heldur aftur af þeim að segja
nokkurt orð um þessi efni, sem
alveg sérstök ástæða væri til að
skrifa um, ef allt væri með felldu,
og getur hver sem vill reynt að
gera sér grein fyrir ástæðunum
til slíkrar hræðslu. Það er þessi
hræðsla, sem ég var að reyna að
vekja athygli Benedikts á, og þó
að það tækist ekki, þá sýndi svar-
ið samt, hversu ágæt tilþrif í rit-
list sá maður á til. Það eru orðin
um að vekja upp þá dauðu í Há-
skólanum, sem mér líka svo prýði-
lega, og fannst mér þó óþarfi af
honum að vera að draga úr þeim
með þyí að segja, að það ætti
ekki að gera. Vildi ég heldur að
hann legði fram liðsinni sitt ein-
mitt til þess, og ekki einungis til
þess að vekja upp þá dauðu, held-
ur einnig til að grafa upp þá sem
sagðir voru dauðir, eins og einu
sinni voru horfur á að Háskóli
íslands mundi hafa forgöngu um.
Þorsteinn Guðjónsson.
EINAElÐflt
Askrifiarsimi l-6i 51
Pósthólt II27
Reykjavk.
Ambassador í
Rúmeníu
Hínn 18. þ. m. afhenti dr.
Kristinn Guðmundsson, ambassa-
dor, forseta rúmenska alþýðulýð-
veldisins trúnaðarbréf sitt, sem
ambassador fslands í Rúmeníu.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 19. ágúst 1964.
Hugmyndasam-
keppni iokið
HF-Reykjavík, 19. ágúst.
Fræðsluráð Austur-Húnavatns-
sýslu og fræðslumálastjóm efndu
fyrir nokkru til hugmyndasam-
keppni um byggingu heimavistar
skóla fyrir börn á skólaskyldu-
aldri í sex hreppum A-Húnavatns-
sýslu. Tíu tíllögur bárust og fyrstu
verðlaun, sem nema 75 þúsund
krónum, fékk Björn Ólafs., arki-
tekt er dvelst í Júgóslavíu. í
dag var opnuð sýning á öllum
þeim tillögum, sem bárust, í
húsakynnum Byggingaþjónustu
Arkitektafélagsins að Laugavegi
26, 3. hæð.
Önnur verðlaun, 50 þúsund
krónur, hlaut tillaga eftir Jörund
Pálsson, Þorvald S. Þorvaldsson
og Jón- Haraldsson. Þriðju verð-
laun hlutu þeir Helgi Hjálmars-
son og Vilhjálmur Hjálmarsson.
Dómnefndin hefur ákveðið að
kaupa rétt á tillögum eftir Jes
Einar Þorsteinsson og Kolbrúnu
Ragnarsdóttur. Dómnefndina skip
uðu Jón ísberg, sýslumaður, Ólaf
ur Ingvarsson, skólastjóri og
arkitektamir, Gunnlaugur Páls-
son, Bárður ísleifsson og Ormar
Þór Guðmundsson. Sýningin verð
ur opin að minnsta kostí alla
næstu viku daglega frá klukkan
1—6.
Þáttur úr
ferðasögu
Eins og alkuuurgt er, verður
:)est i.t það á að gira meira veð'ir
1 aí l'vi sem irs>.eiðis fer í sam
skiptum manna og framkomu
hverra við aðra heldur en hinu
er lofsvert mætti þó kalla í fari
manna og mun, því betur ef
skoðað er ofan í skjöl-
inn, vera í yfirgnæíandi meiri-
hluta, þótt í fljótu oragði mætti
kannski álíta það gagnstæða, ef
miðað er við það ejtf, 'um hvora
hliðina meira er ta'að.
AUar sanngjarnar aðfinnslur
miða að því að ka’la fram um-
bætur á því sem að má finna og
af þeim sökum fer meira fyrir
þeim, én hólinu, sem oft gæti þó
átt rétt á sér til örvunar í betri
áttina.
Ei'tt af því lakara í þjóðlifi
okkar, sem mikið er uni talað og
oft lýst og því miðu" ekki að til-
efnislausu, eru allveruleg mis-
smíði á skemmtanahaldi fólks,
víðs vegar um land og þeir sem
af eigin sjón og rauo þekkja ekki
til þessa þáttar í samskiptum
manna, gætu jafnvel haldið að
lítið væri um annað skemtntana-
líf en það sem lýst er í áðumefnd
um frásögnum, kannski stundum
ýktum, en oft sönnum. En sem
betur fer, er einnig annað til
og er engu spillt þó sögð séu sönn
dæmi þess.
Eg er rétt núna að
koma úr hópferð, sem
farin var frá Norðurlandi til
Suðurlands, um Kjalveg suður og
Kaldadal heim. Á laugardagskvöld
18. þ.m. komum við á Hveravelli
og voru þar margir bílar og
tjöld, sem verkstjórar af Suður-
nesjum og úr Reykjavík, réðu eink
um yfir og voru þarna í skemmti-
ferð með fconur sínar margir
hverjir. Vel mátti hugsa sér að
þarna yrði hávaðasamt og ekki
sízt þegar enn bættust við fleiri
hópar af ýmsum landshornum, en
svo varð ekki. Vorum við vottar
að því að fólk þetta hópaðist sam-
an á sléttum velli og háði þar
ýmsa útileiki langa stund við
glaum og gleði, þar sem allir virt-
ust skemmta sér í ríkum mæli á
heilbrigðan hátt. Nú var þarna
margt annað fólk úr ýmsum átt-
um, sem áður getur, svo að loks
voru komin yfir 100 tjöld á vell-
ina og fólk í hundraðatali eins og
frá er sagt í blöðum. Þarna voru
engin óþörf ærsl né hávaði allt
kvöldið, en umhverfið skoðað og
ræðzt við í bróðerni þó fáir þekkt-
ust utan hvers hóps. Á tólfta tíma
mátti heita að allir væru setztir að
í tjöldum sínum og skála F.F.Í.
Daginn eftir var haldið til Kerl
ingarfjalla og tjaldað í nánd við
hús FFÍ. Þar var allmargt um
manninn, en þungamiðja þess
mannsafnaðar var skíðanámskeiðs
fólk, sem hélt til að mestu í húsi
FFÍ. Þarna fer fram merkileg og
heilbrigð starfsemi og var þar
vissulega glatt og kátt fólk, sem
lék sína skíðaíþrótt á daginn, dá-
lítið ofan við skálann, af miklum
áhuga og auðsærri hrifningu, en
að loknum kvöldverði, eru haldnar
kvöldvökur, þar sem allir heima-
menn, ásamt gestum stundum,
raða sér upp um kojur og borð
kringum lítinn gólfflöt og
skemmta sér af hjartans lyst, eins
og það er stundum orðað, við
fjölbreytta stutta gamanleiki og
þætti eða meinlausa smáhrekki,
ásamt söng á milli atriða með
gítarundirleik, þar sem allir taka
undir eftir getu og kunnáttu.
Skemmtinefnd, sem skipt er um
menn í, annast framkvæmd vök-
unnar hverju sinni og þótt þama
sé allt er til þarf heimafengið
og frumstætt í fyllsta máta full-
nægir það þeim kröfum, sem þetta
fólk á þessum stað telur réttmætt
að gera og veitir efalaust mörgum
jafngóða eða betri skemmtun en
Framh. á 23. síðu.
Þýzka skautadrottningin Marika
Klllus — heimsrneistarl í para-
keppni — giftist fyrir nokkrum
dögum þýzka milljónamæringn-
um Werner Zahn og fylgdust
þúsundir með athöfninni, sem
fór fram í dómkirkjunni í Frank
furth. Myndin er tekln, þegar
brúðhjónin ganga úr klrkjunni.
(Ljósmynd UPI)
T í M I N N , íaugardaginn 22. ágúst
17