Morgunblaðið - 02.11.1953, Síða 12

Morgunblaðið - 02.11.1953, Síða 12
12 MORGUTSBLAÐIÐ Mánudagur 2 nóv. 1953 Sigurður Bjarnasosi; FRÁ EINU elzta húsi hinnar ís- lenzku höfuðborgar, flýtur árið út og árið inn stöðugur straum- ur frétta og nýunga af því, sem er að gerast í heiminum og í íslenzku þjóðlífi. Um það renn- ur flaumur tímans, þungur og óstöðvandi. Þetta hús er Austurstræti 8, þar sem Björn Jónsson ritstjóri og ráðherra stýrði ísafold og Vilhjálmur Finsen og Ólafur Björnsson stofnuðu Morgun- blaðið, sem í dag minnist 40 ára starfs síns. Það hefur komið í minn hlut, að ræða við ykkur, lesendur góðir, það starf, sem hugur og hendi vinnur nótt og nýtan dag í þessu húsi, bregða upp skyndi- myndum af því, hvernig Morg- unblaðið verður daglega til, og hvernig þeir, sem við það starfa Teyna að miðla þjóðinni því, ■sem þeir festa hendur á í flug- Jhraða viðburða hinnar 20. ald- ar. — 5 E. t. v. hefði ég ekki átt að Tminnast á hraðann. Hann minn- ir svo átakanlega á hið eilífa kapphlaup, sem blaðamaðurinn heyir við tímann, og sem hann raunalega oft er dæmdur til að tapa. Á hans reikning verður þá einnig að skrifa mörg mis- takanna og víxlsporanna, sem við stígum og hljótum fyrir dóma fhjá þeim, sem yfirvega verk okk ar í ró og næði. MOROUNVERKIN í PRENTSMIÐ J UNNI Á meðan Austurstræti er enn- þá nær autt af fólki og hin morgunsvæfa íslenzka höfuðborg er ekki nema að takmörkuðu leyti komin á fætur halda menn- irnir, sem starfa í prentsmiðju fMorgunblaðsins til starfa sinna 1 neðstu hæð gömlu ísafoldar- Iprentsmiðju. Nokkru fyrir kl. 6 'fið morgni er hleypt rafstraum til íetningarvélanna, sem blaðið er íett í og kl. 8 nákvæmlega hefja J>eir vinnu sína. Það eru sam- "|als 14 menn, sem vinna í prent- íjfrniðjunni. Sjö þeirra eru vél- : fietjarar, fjórir handsetjarar, tveir prentarar og einn aðstoðar- maður. Vélsetjararnir vinna á tveimur vöktum, þrír eða fjórir á hvorri. Hin fyrri þeirra hefst kl. 8 ár- degis og stendur til 5 síðdegis. Þá tekur síðari vaktin við og Stendur til kl. 12 á miðnætti. En oftast stendUr þó vinna þeirra Dokkru lengur eins og síðar mun fið vikið. Það eru vélsetjararnir sem Setja blaðið, taka Við handrit- tmum frá blaðamönnunum og Steypa þau í línur og dálka. í hverjum dálki Morgunblaðsins eru 4—500 orð. Á hverri lesmáls- síðu þess eru því 2000—2500 orð. Að baki setningu hennar liggja þessvegna mörg og æfð handtök vélsetjaranna, sem frá kl. 8 að morgni og fram yfir miðnætti að kvöldi sitja við leturborð vél- anna eins og vélritarar í skrif- Stofu. Það efni blaðsins. sem fyrst er sett dag hvern eru hinar föstu greinar þess. svo sem framhalds- sögurnar „Daglega lífið“ og lengri greinar um innlend og erlend mál. Auglýsingar byria að jafnaði að berast í prentsmiðj- lina upp úr kl. 10 að morgni. Er þeim veitt móttaka á aug- lýsingaskrifstofunni fram til kl. 6 síðd. Mikill hluti þeirra er settur í vélum en töluvert handsett, að Bokkru leyti með aðstoð sér- Stakrar vélar, sem hefur stærra letur en setningarvélarnar. Oft verður að geyma auglýsing ar til næsta dags til þess að hæfi- legt hlutfall sé millí lesmálsins Og þeirra. Hefur blaðið reynt að fara eftir ákveðnum reglum um skiptingu leturflatar milli aug- lýsinga og annars lesmáls, með „leggja af“ sem svo er kall- að. — Er það fólgið í því að taka blað dagsins á und- an úr prentvélinni, levsa upp síður þess og safna blýinu úr þeim saman. Er það síðan brætt upp og notað á nýjtn leik. Sigurður Bjarnason stjórnmálaritstjóri það fyrir augum að mæta óskum og þörfum viðskiptavina sinna, 1 lesendanna, sem vilja fá sem | mest lesefni og auglýsendanna, sem þurfa að auglýsa vqru sína, þjónustu og fleira. Fiá kl. 8 á morgnana vinna handsetjararr.ir að því að VÉI.R/EN VINNUBRÖGÐ Útgáfa nútíma dagblaðs bygg- ist i ríkum mæli á vélavinnu og tækni. Þessvegna hlýtur þeirra véla að verða getið hér, sem not- aðar eru við setningu og prent- un Morgunblaðsins. Ber þá fyrst að geta fjögra setningarvéía. Hef ur ein þeirra, sú stærsta, sjö leturgerðir, ein fjórar og tvær með þrjár, og eru Destar þessar leturgerðir tvennskonar, bæði grant letur og feitt. Setninparvélin er margbrotið og merkilegt verkfæri. í henni mótast bráðið blýið í bókstafi, orð og setningar. Fyrr á árum stóð setjarinn við leturkassana, tók hvern einstakan bókstaf úr sínu hólfi og raðaði þeim upp í orð og línur. Þá vann handaflið allt setningar- verkið í þrentsmiðjunni. Nú situr setjarinn við, vélina, stvður á bókstafi leturborðs hennar og línurnar skjótast steyptar og alskapaðar hver af annari út úr þessu furðulega sig- urverki mannlegs hugvits og vélavísinda. einni slíkri vél Prentvélin fer af stað laust eftir miðnætti. Guðbjörn Guðmundsson prentari stendur við hana. tekur það um það bil 2%—3 klst. að setja heila lesmáls síðu í Morgunblaðið. Hingað til höfuð við rætt um, hvernig lesmál blaðsins verður til í höndum vélsetjaranna og í sigurverki setningarvélanna.. En á öllum meiriháttar greinum, fréttum og auglýsingum, eru fyr- irsagnir. Þær eru ýmist settar í stærstu setningarvélinni, sem flestar leturgerðir hefur, eða í sérstakri fyrirsagnavél. Hún hef- ur einar 10 leturgerðir og hver þeirra hefur frá þremur til sex stærðir. Það er hlutverk blaða- mannsins, að ákveða, hversu stór fyrirsögnin á að vera. Ræður eðli og mikilvægi efnisins mestu um hána. Stór frétt eða merki- leg grein hefur oftastnær stóra fyrirsögn að yfirskrift. Má því segja að í fyrirsagnavélinni mót- ist „andlit“ blaðsins, ef svo mætti að orði komast. En þessi vél er samt ekki mikil fyrirferðar. Hún stendur hógvær og yfirlætislaus úti í einu horni prentsmiðjunn- ar. Hún þarf ekki á því að halda að trana sér fram. Verk hennar og handsetjarans, sem stjórnar þenni segir til sín þegar blaðið kemur út og lesendurnir reka augun í fyrirsagnirnar á síðum þess. Það eru hennar sigurlaun. • ■ jsríi'jfSwfisdB „MADDAMAN" í MIBJUM SAL En í miðjum sal prentsmiðj- unnar situr „raaddaman“, sjálf prentvélin, sem leggur smiðs- höggið á störfin þar. Allan dag- inn stendur hún þar þögul og drembileg. Það er rétt eins og hún hugsi meðan setningarvél- arnar tifa og fyrirsagnarvél- in smellir: Bíðið þið bara við, hvaða gagn er að ykkur án mín? Sá hlær bezt, sem síðast hlær. Minn tími kemur eftir mið- nættið. Og hún getur sannarlega verið drjúg með sig, sú gamla. Það er hún ,sem prentar blaðið. Blað- síðunum, sem búið er að sveitast blóðinu við allan daginn er að lokum stungið inn í kvið henn- ar. Þar verða þær svo að dúsa, kolsvartar af prentsvertu ,,valsa“ hennar, meðan tárhreinn pappír- inn strýkst yfir þær klukkutíma eftir klukkutíma, alla liðlanga nóttina. Prentarinn hleypir henni af stað hægt og rólega, lofar henni að jafna sig og gefur henni síðan lausan tauminn. Þá hamast hún eins og hún eigi lífið að leysa. Á hverri klukkustund spýtir hún frá sér 3200 eintökum af full- prentuðu blaði. Á einni nóttu hefur hún ,étið“ á annað tonn af pappír og drjúgan skammt af prentsvertu. Þannig vinnur fólkið og vél- arnar í prentsmiðjunni að sköp- un Morgunblaðsins hvern ein- asta dag, sem það kemur út. DAGSINS ÖNN Á RITSTJÓRNINNI Fram til þessa höfum við að- eins skyggnst um í prentsmiðj- unni á neðstu hæð hússins. Á næstu hæð fyrir ofan er ritstjórn þess, framkvæmdarstjórn, bók- hald, innheimta og auglýsinga- skrifstofa til húsa. Þar verður mestur hluti af enfi þess til. En það rekur aftur rætur sínar út um allt ísland, út um ís- lenzkt þjóðlíf og til fjar- lægra landa, Kreml og Kór- ou, Akraness og Akureyrar, Persíu og Pakistan, Víkur í Mýr- dal og Washington, Hælis í Hreppum og Hóla í Hjaltadal, Lundúna og Skriðuklausturs o. s. frv. Þarna vinna blaðamenn- irnir störf sín, skrifa fréttir og greinar, hitta fjölda fólks, tala í síma út um bæ og út um allt land. En þeir koma að iafnaði ekki eins snemma á vettvang og ann- að starfsfólk. -— Oft hafa þeir unnið fram yfir miðnætti, jafn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.