Morgunblaðið - 02.11.1953, Síða 13

Morgunblaðið - 02.11.1953, Síða 13
Mánudagur 2, nóv. 1953 MGRGUNBLAÐIÐ 13 vel langt fram á nótt. Starfsdag- ur flestra þeirra byrjar því ekki fyrr en upp úr hádeginu. Þá taka þeir að tínast á ritstjórnina. Margir hafa þeir sofið með sím- ann sinn við rúmstokkinn. Ef stórtíðindi gerast. ef Katla gýs, eða Malenkov verður nýrri „hreinsun" að bráð, vill enginn blaðamaður sofa þá fregn af blaði sínu, því oft vérður ein- hver til þess að „slá á þráðinn“ þegar ljósvakinn ber slíkar frétta öldur að landi. I lífi blaðamannsins er enginn dagur eins og gærdagurinn. Ný- ir viðburðir eru stöðugt að ger- ast, nýju fólki skýtur upp og ný viðfangsefni linýja dyra. Þess- vegna verður starf hans fjöl- breytilegt frá degi til dags. — Hversu grár, sem hversdagsleik- inn kann að virðast er þó alltaf eitthvað fréttnæmt að gerast, eitthvað sem þarf að kryfja til mergjar, leita uppi, skilja, skýra, segja frá og draga af ályktanir. Það er ekki hægt að komast hjá að vinna þetta verk. Okkur varðar öll í þessum litla og dá- samlega heimi, þessum sælureit eða táradal, þau ósköp hvert um annað. Og það verður að hjálpa fólkinu til þess að frétta af ná- unga sínum, hvort sem hann býr í Kópavogi eða Kína, norður í Skagafirði eða vestur í Reyk- hólasveit. Ég hitti einu sinni stjórnmála- mann frá Ceylon. Hann var á- kafur í að frétta um kúfisks- tekju á íslandi. Svona erum við. Okkur varðar um allt. Og sann- leikurinn er sá, að þess meira, sem fólkið í heiminum veit hvert um annað, þess betur skilur það hvert annað og þess betri verð- ur veröldin þess óhægra verður með tímanum að æra þjóðirnar og etja þeim hverri gegn ann- arri. En þetta var hálfgerður út- úrdúr ,sem skýrir þó hið mikil- væga hlutverk blaðamannsins. Á MORGUNDLAÐINU UM MIÐJAN DAGINN Lesandi góður, ef þú lítur inn á skrifstofur Morgunblaðsins um miðjan daginn er það fjarri því að vera friðsæll reitur. Þangað er jafnan straumur af fólki. Margir koma til þ'ess að segja blaðamönnunum frá hinu og þessu. Að sjálfsögðu ér það ekki allt jafn fréttnæmt, merkilegt eða áreiðanlegt. En oft verða vinir og velunnarar blaðsins því að miklu liði með ýmsum upplýs- ingum og ábendingum. Samtölin við gestina eru að vísu oft tímafrek og lítið kemst í verk fyrstu stundir vinnutím- ans. En það er vanalega eitthvað, sem síast úr þeim, annaðhvort fréttir eða skoðanir fólksins á því, sem er að gerast og á mönn- um og málefnum. Og án þess- ara tengsla við lesendurna og almenning í landinu getur blað- ið ekki verið. Fjöldi bréfa, sem berast einstökum dálkum blaðs- ins eða ritstjórn þess og blaða- mönnum gefa einnig margvísleg- ar upplýsingar um almennings- álitið, um það hvar skórinn kreppir að á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins, í einstökum lands- hlutum eða bæjarhverfum höfuð borgarinnar. En blaðamennirnir sitja ekki alltaf inni og bíða þess að fólk komi til að tala við þá eða hringi þá upp í hinar sjö símalín- ur blaðsins, sem oftast eru i gangi á þessum tíma dags. Þeir eru oft úti um allar jarðir í samtölum við fólk, á blaðamanna fundum eða á þeim stöðum þar sem atburðirnir eru að gerast. Það ér um miðjan daginn, sem mikill hluti innlendu fréttanna sgfnast. Fréttaskeyti berast frá fréttariturum blaðsins úti um land, aðsendar greinar berast og trúlofunarfréttir og hjúskapartil- kynningar flæða inn í Dagbók- ina í hrotum. Á auglýsingaskrifstofunni speglast ástandið í viðskipta- og félagsmálum í auglýsingunum og tilkynningunum, sem berast henni til birtingar í blaðinu. Menn auglýsa það, sem þeir vilja selja og eftir því, sem þá van- ANNRÍKIÐ NÆR HÁMARKI Langt fram á kvöld er hald- ið áfram að skrifa innendar og erlendar fréttir. Annríki blaða- mannanna fer stöðugt vaxandi. Það verður að bera prófarkirnar og leiðréttingar þeirra saman við lesmálssíðurnar, sem koma full- búnar úr „umbrotinu". Siðast er gengið frá 1. og 16. síðunni. Þar eru flestar nýjustu og mark- verðustu fréttirnar. Að jafnaði er blaðið tilbúið til prentunar um miðnætti, eða laust eftir það. En stundum dregst það töluvert fram yfir þann tíma. Einhver stórtíðindi hafa e. t. v. gerst um kvöldið, það verður að koma fréttinni um þau í blaðið. Áríðandi grein hefur borizt á síðustu stundu og tafið setninguna í prentsmiðj- unni. Þannig geta ýmis atvik leitt til þess að blaðinu seinki. Og þar sem afköstum prentvélarinn- ar eru þröng takmörk sett fá kaupendur blaðið seinna í hend- ur að morgni ef eitthvað ber út af. — Þá hendir það einnig, er stór- tíðindi gerast utan lands eða inn- an, að prentun blaðsins er stöðv- uð eftir að hún er hafin. Þá er einhverjum af minniháttar frétt- um kippt út og stórfréttinni stungið inn í staðinn. En þá kem- ur hún aðeins í þeim hluta a£ „upplagi" blaðsins, sem eftir var að prenta. Annaíími á ritstjórninni. Þorbjöm Guðmundsson (efst til vinstri) í blaðasamtali. Siguriaug Bjarnadóttir (efst ti! hægri) undirbýr évennasíðuna. — „Getið þér tekið af mér trúiofunarfrétt?“ „Já, ,jálfsagt,“ segir Anna Bjarnason (neðst til vinstri). Sverrir Þórð- irson talar í síma við fréttaritara (neðst til hægri). PRENTVÉLIN FER AF STAÐ En nú eru allar síður tilbúnar og samanburðinum lokið. Þætti vélsetjara, handsetjara og blaða- Starfsfólk ritstjórnarinnar: Sitjandi (talið frá vinstri): Sigurlaug Bjarnadóttir, Árni Óla, Valtýr Stefánsson, Sigurður Bjarnason og Anna Bjarnason. — Standandi (talið frá vinstri): Sverrir Þórð- arson, Þorbjörn Guðmundsson, Matthías Joh'annessen, Þorsteinn Thorarensén og Atli Steinarsson. NÆTURVERKIN Um leið og fyrstu blöðin koma úr prentvélinni hefst nætursal- an. Lítil lúga á afgreiðsluhurð blaðsins út að Austurstræti- er opnuð og kaupendurnir láta ekki standa á sér. Það er alltaf slæð- ingur af fólki á ferli um þessa aðalgötu borgarinnar þó komið sé töluvert fram yfir miðnætti og oft er ös við lúguna. Allir vilja fá blaðið sem fyrst. Ef útkomu þess seinkar eitthvað linnir ekki hring ingum og fyrirspurnum: Hveriær kemur biaðið út, er eitthvað- að hjá ykkur, hversvegna er Mögg- inn svona seint á ferðinni núna? Þannig ganga spurningarnar þangað til blaðið er komið , út. Framh. á bls. 15. Ólafur K. Magnússon, ljósmynd- ari Morgunblaðsins. Hann hefur starfað hjá blaðinu síðan 1947. Nær allar nýjar myndir, sem birtast í afmælisblaðinu eru tekn- ar af honum. manna er lokið. Síðunum er sméygt inn í sjálfa prentvélina og þáttur hennar og prentarans er hafinn. Prentvélin fer a£ stað hægt og rólega meðan paþp- írinn er að jafna sig og brotvél- in, sem brýtur blaðið býr sig undir að skila því í réttum brot- um. Hraðinn eykst og á nokkr- um mínútum er prentunin kohr- inn í fullan gang. 50—60 biöð eru prentuð á hverri mínútu. Blaðið er komið út. Setjararnir og blaðamennirnir rölta heim til sín að loknu löngu og erilsömu dagsverki. umsjón með „umbroti" blaðsins og efnisniðurröðun. Þegar því verki e'r lokið er svípur og efni þess na-sta dag ákveðið. Þegar listi yfir þetta hefur verið sam- inn er hann sendur í prentsmiðj- una. Þar er niðurröðun auglýs- inganna vanalega lokið í síðasta lagi kl. rúmiega 10 um kvöldið. Starfsfólk auglýsinganna ber á- byrgð á því, að prófarkir af þeim séu í lagi. En þá er röðin komin að les- málssíðunum. Hver blaðamaður les oftast próförk áf sínum grein- um. Síðan eru þær leiðréttar og þeim raðað upp í síður. Það verk er kallað ,,umbrot“ og er fram- kvæmt af handsetjurum prent- smiðjunnar undir umsjón eins blaðamanns kvöldvaktarinnar. En vanalega eru 2—3 blaðamenn Morgunblaðsins á vakt hvert kvöld. Á ritstjórn blaðsins vinna nú 10 fastir starfsmenn. En auk þeirra vinna að ritstjórriinni list- dómarar, fréttaritarar, innlendir og erlendir ljósmyndari, loft- skeytamaður og teiknári. Atli tncmarsson skrifar um nýjustu íþróttametin. pappír í ritvélina og rýna í punkt ma, sem þeir hafa skrifað hjá ;ér eftir samtöl og símahring- ngar. Ritvélakliðurinn ágerist >g vinnan sjálf er í fullum gangi. Srlendu fréttirnar frá Reuter óg 'íTB streyma á hvítum papprírs- æmum gegn um hið þráðlausa nóttökutæki, sem loftskeytamað- ir blaðsins vakir yfir. Inni 1 nyrkrastofunni er ljósmyndar- mn önnum kafinn við að fram- calla og útbúa myndirnar, sem eiga að koma í blaðinu daginn eftir. En á hverjum mánuði birt- ast 3—400 myndir í blaðinu. hagar um, hvort sem það er „ráðskona, sem má vera með barni“ eða „herbergi með að- gangi að síma“. LÍÐUR AÐ KVELDI Nú er tekið að líða á daginn. Þá fara vinnubrögðin að fá á sig annan svip. Blaðamenn hætta að taka lífinu með ró, verða stundum stuttir í spuna við þá, sem koma heimsókn, setja HVAÐ Á AÐ KOMA Á MORGUN? Nú er klukkan að verða sjö. Blaðið ér í deiglunni. Hvað ó að koma í því á morgun, af því efni, sem til er? Hvenrig á rúmið að skiptast milli lesmáls og aug- lýsinga? Hvar á þessi og hin greinin að vera? Þessum spurningum verður ritstjórnin að svara í samráði við þann blaðamann, sem hefur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.