Morgunblaðið - 02.11.1953, Page 14

Morgunblaðið - 02.11.1953, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Mánudagur 2. nóv. 1953 ' Sigfús Júnsson framkvæmdarstjóH: BÆTTUR VÉLA- OG HÚSAKOSTIIR AÐ- KALLANDI NAUÐSYN ÞEGAR Morgunblaðið stendur á |»essum tugamótum ævi sinnar, er eðlilegt að'minnast fáum orðum á }jær breytingar í rekstri og fyrir- komulagi blaðsins sem framundan cru og hafa verið í undirbúningi síðustu árin. Ef allt hefði verið með felldu í fjárveitinga- og byggingarmál- um á síðustu árum, hefði sá draum ur getað rætzt að Morgunblaðið væri komið í ný húsakynni á fer- tugsafmæli sínu. Á þann hátt hefði verið hægt að betrumbæta þá þjónustu fyrir almenning, sem blaðið hefur með höndum. — En slíku er ekki að fagna af ástæð- um sem almenningi eru kunnar. Eftir því sem kröfurnar vaxa til stærra og fjölbreyttara blaðs, þarf starfsemin á síauknu og full- komnara húsnæði að halda. Þó að húsnæði ísafoldarprentsm>ðju væri á sínum tíma, fyrir 70 árum, byggt af miklum stórhug og mik- illi fyrirhyggju, þá er húsnæðið þar fyrir löngu orðið allsendis ■ófullnægjandi fyrir starfsemi Maðsins. — Hin tiltölulega öra stækkun þess hefur kallað á og kallar á fleiri og fullkomnari tæki og umfram allt afkastameiri prentvél, eins og kemur fram í greininni um sögu starfseminnar og þróun hennar, sem biftist á öðr um stað hér í biaðinu. En þótt erfiðleikarnir hrúgist upp fyrir starfsemi blaðsins, má segja að vissu leyti sé ekki undan l»eim að kvarta, þar sem þeir sýna, að fyrirtækinu vex fiskur um hrygg, og möguleikarnir vaxa á J>ví, að blaðið geti staðið undir nauðsynlegum framförum. Þegar á þetta er litið, mætti ætla að auðvelt væri að sigr- ast á slíkum erfiðleikum. En svo hefur ekki reynzt við viðburð- anna rás. Er það vissulega sönn- un þess, að það fyrirkomulag sem viðgengizt hefur í fjármálum og framkvæmdum með þjóð vorri, getur tafið eðlilega þróun og framfarir. Að sjálfsögðu hafa forráðamenn blaðsins gert sér það ljóst, að hverju stefndi um nauðsyn á aukn- um vélakosti og bættri aðstöðu til útgáfunnar. Því var í það ráðist árið 1948 að festa kaup á bygg- ingarlóð á þeim stað í bænum, Að- alstræti 6, sem verður að teljast vera hinn álitlegasti og hentug- asti fyrir blaðaútgáfu. Sigfús Jónsson framkvæmdarstjóri Skipulagsnefnd bæjarins ákvað nokkru síðar, eftir að lóðin hafði verið keypt, hvernig byggja skyldi á þessum stað, kom það þá í ljós að óumflýjanlegt var, að sameina þarna tvær lóðir, svo hægt yrði að reisa þama hús, fyr- ir enda Austurstrætis, af þeirri stærð og með þeim svip, sem skipulagsnefnd hafði ákveðið að þar skyldi risa. Það varð svo að ráði milli eig- enda þessarra tveggja lóða, Aðal- strætis 6 og 6b, útgáfufél. og erf- ingja stofnenda Vélsm. Héðins, að sameina lóðirnar, og byggja hið tilvonandi hús í sameiningu og standa sameiginlega straum af byggingarkostnaði. En stærð húss- ins hafði skipulagsnefnd ákveðið. Ekki tókst að hefjast handa um þessa byggingu fyrr en árið 1951, og ekki hefur enn tekizt að afla fjárfestingarleyfis til byggingar- innar að svo miklum hluta, að nokkuð af húsinu verði að svo komnu tekið í notkun. Um líkt leyti og lóðin var keypt, voru lögð drög að því að festa kaup á nýrri blaðaprentvél frá Goss-verksmiðjunni í Chicago. Er prentvél þessi af allra nýjustu gerð. Prentvélar með svipuðum afköstum, eru byggðar í Vestur- heimi fyrir dagblöð á stærð við og sem hafa svipaðan kaupenda- fjölda og Morgunblaðið. Er þetta svonefnd „rotations- vél“ en engin prentvél slíkrar tegundar hefur áður komið hing- að til lands. Á þessi prentvél að geta skilað 15 þúsund fullprent- uðum og fullbrotnum 24 siðu Morgunblöðum á klukkustund. En þegar prentvél þessi, fyrr eða síð- ar. getur tekið til starfa við Morg- unblaðsútgáfuna ásamt þeím tækj um öðrum sem til prentunarinnar þarf, verða aðstæðurnar við út- gáfu Morgunblaðsins stórum bætt- ar og allar aðrar en þær hingað til hafa verið. Prentvél þessi kom hingað til Reykjavíkur árið 1949. Hefur henni verið komið fyrir í geymslu- plássi síðan og að sjálfsögðu reynt, með ærnum kostnaði að búa svo að henni, að hún liggi ekki undir skemmdum. Því miður verður ekki fullreynt, hvort þetta hefur tek- ist, fyrr en vélin verður komin á sinn stað og hún tekin í notkun. I. BRYNJÓLFSSON & KYARAN Stofnað 1923 Heykjavík, — Akureyri liafa jafr&an á bo5sfólum meðal annars: Allskonar matvörur . Nýlenduvörur Ávexti Hreinlætisvörur Pappírsvörur Vefnaðarvörur í I .•!<!» I I ' I t í i. 1) i j, l Mikill aðstöðumunur verður við útgáfu blaðsins og rekstur, ef það tekst að fá prentuninni lokið, með núverandi útbreiðslu, á einum og hálfum til tveimur klukkustund- um, þar sem prentunin tekur nú 7—8 klukkustundir á sólarhring. Komið verður fyrir pappírs- geymslu í kjallara hússins, véla- sal í stofuhæð og ritstjórnarskrif- stofum á fyrsta lofti. Að sjálf- sögðu verður að sjá fyrir því að hægt verði að koma fyrir í húsinu ýmsum þeim tækjum sem nauðsyn leg eru í nýtízku blaðarekstri svo sem prentmyndagerð o. fl. Les- endurnir gera þá kröfu til blað- anna að þau birti myndir í æ rík- ara mæli með Iesmáli sínu, enda hefur Morghnblaðið á síðustu mán uðum birt um 350 myndir á mán- uði hverjum. Að sjálfsögðu er það æskilegt að öll þau tæki sem þarf til útgáfu blaðsins verði undir sama þaki og þeim sé ætlað það húsrými, að starfseminni verði ekki skorinn allt of þröngur stakkur í upphafi. En því er eins varið með prent- myndatækin og prentvélina, að á- höld til prentmyndagerðar hafa legið hér ónotuð í allmörg ár, og hafa ekki getað komið Morgunblað inu að gagni vegna húsnæðisleys- is. Allar framkvæmdir til umbóta hafa því strandað á því einu, að húsnæði hefur vantað. Ókunnugir menn kunna að geta álitið í fljótu bragði, að forráða- menn blaðsins hefðu getað komið htnnj nýjn og ónotuðu prentvél fyrir í öðru húsnæði, en slíkt myndi kosta ærið fé, enda þarf hún sjálf stórt pláss ásamt nauð- synlegum setningarvélum og öðr- um tækjum, sem prentsmíðjunni eru nauðsynleg og yrðu að fylgja prentvélinni. En ekki yrði hlaupið að því að taka vélina nið- ur og flytja hana í ný húsakynni eftir að starfsemi hennar er haf- in, því þá yrði nauðsynlegt að prenta blaðið í annari vél allan tímann meðan á flutningnum stæði. En engin slík vél er fyrir hendi. . Þess vegna verða forráðamenn Morgunblaðsins að gera sér von- ir um að úr þessum húsnæðismál- um blaðsins rætist innan skamms, ella getur svo farið að mikið af því sem áunnizt hefur á undan- förnum áratugum í rekstri blaðs- ins, komi ekki að tilætluðum not- um fyrir framtíðina. Enda þótt Morgunblaðið verði ekki nema lítið dagblað á mæli- kvarða annarra þióða, þótt blað- inu bætist þau áhöld og tæki sem fyrirhuguð eru nú, að komi í notk un, verður að sjálfsögðu haldið hinni sömu stefnu og áður, að sniða Morgunblaðinu stákk eftir vexti þjóðarinnar, og leitazt við að gera blaðinu tæknilega kleift að fullnæg.ja þeim kröfum, sem réttilega verða gerðar til dag- blaðs hér í Reykjavík, og það geti þjónað velferðar- og áhugamálum almennings. Nú sem áður kappkostar verzlunin að hafa á boðstólum sem fjölbreyttast úrval af alls konar vefnaðarvöru fyrir konur, karla og börn Egill Jacobsen Austurstræti 9 — Símar 1116 og 1117 Aga-kolaetdavélLri hefur i 20 dr farið sigurför um landið Vlð getum bráðlega útvegað viðskiptavinum okkar AGA- vélina á ný. Leitið upplýsinga hjá umboðsmönnum AGA- eldavélanna á íslandi. cji iv lac^n uóóon & Co. Hafnarstræti 19. i t i 11) '. i b P i i i \ 'i I Jf 1 f '4 I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.