Morgunblaðið - 02.11.1953, Síða 17

Morgunblaðið - 02.11.1953, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ 17 r Mánudagur 2 nóv. 1953 Þegar Morgunblaðið hóf göngu sína, var Rcykjavíkurhöfn mjög með sama svip og hún hafði verið frá landnámstíð. Þar voru aðeins nokkrar bátabryggjur, og stein- hryggjan eða „bæjarbryggjan" mest, en í fjörunni á milli þeirra voru þarahrannir, og þar var oft fjöldi útigönguhrossa á beit, og strákar í þönglabardaga. Fremri myndin er tekin af höfninni 1915 og er þá Ingólfsgarður í smíðum. Aftari myndin sýnir hvernig nú er umhorfs á þessum slóðum. Víkin hefur verið fyllt upp og þar sem áður var sjór standa nú mörg stórhýsi. „Bæjarbryggjan“ er komin á kaf fyrir löngu, en við hafnarbakkana liggja gufuskip sem þéttast og þar er mikið athafnalíf, sem ber vott um þá þróun, sem hér hefur átt sér stað. ÁRNI ÓLA: reykjavík og morguimblaðið SAGA Morgunblaðsins er saga Reykjavíkur um 40 ára skeið. Blaðið hefir vaxið með borg- inni og það hefir átt sinn þátt í vexti hennar og viðgangi. Reykjavík var tvímælalaust ^ orðin höfuðborg íslands þegar blaðið hóf göngu sína, enda þótt íbúar hennar væri þá ekki nema um 11.000. Hún hafði verið að- setursstaður innlendrar stjórnar ^um 9 ára skeið, átt sinn eigin borgarstjóra í 5 ár og verið há- skólaborg í tvö ár. Og um sjö ára skeið hafði hún haft síma- samband við umheiminn. Mesta og merkasta fyrirtæki borgarinnar, vatnsveitan, var þá fjögurra ára gömul, og það voru þrjú ár síðan að „grútartýrurn- ar“, steinolíuljóskerin, hurfu af götunum en björt gasljós voiu komin á staðinn. Lækurinn var horfinn fyrir tveimur árum, þetta „landamerkjafljót“ sem frá upp- hafi hafði skift Reykjavík í tvo hluta, Austurbæ og Vesturbæ, eða „fyrir ofan læk“ og „fyrir vestan læk“ eins og daglegt mál var þá. Um leið og lækurinn hvarf, varð Reykjavík að einum bæ, og þótt nokkuð lengi eimdi eftir af nágrannakrit, þá voru landamerkin nú horfin. Og svo var byrjað að vinna að því að tengja bæarhlutana enn betur saman með hafnargerðinni, þessu mikla mannvirki, sem læsti saman Austurbæ, Miðbæ og Vesturbæ. Sá stórhugur, sem réði þess- um framkvæmdum, hafði skapast vegna breyttra atvinnuhátta. Fyrsta lyftistöng bæarins var skútuútgerðin. Svo komu togar- arnir og urðu enn betri lyfti- stöng. Hagnaðurinn af þeirri út- gerð varð svo mikill á fyrstu ár- unum, að engan íslending hafði órað fyrir því áður að hægt væri að raka svo miklum peningum inn í landið. Og Reykjavík naut fyrst og fremst góðs af þessu, því að hér var útgerðin mest. Og þar sem peningar eru afl þeirra hluta, sem gera skal, þá var nú farið að tala í fullri alvöru um að ráðast í stórvirki, sem engum óvitlausum manni hefði komið til hugar fyrir fáum árum, að Islendingar gæti leyst. Þar á meðal var stofnun Eimskipafé- lagsins. Og það félag komst á fót árið eftir. En þrátt fyrir þennan stórhug var Reykjavík á þeim árum ekki annað en útgerðarþorp, þar sem mikil fátækt var ríkjandi. Þeir, sem nú eru um tvítugt, eða það- an af yngri, geta ekki gert sér neina grein fyrir því hvað allur almenningur átti þá við bág kjör að búa. Að vísu hafði atvinna aukizt mjög með aukinni út- gerð, en vegna þess streymdi hingað fátækt fólk í von um betri afkomu en annars staðar og við það skiftist vinnan á fleiri hend- ur. Kaupið var lágt og allur þorri eyrarvinnumanna mun ekki hafa borið úr býtum nema svo sem 500—600 krónur á ári. Krón- an var auðvitað meira virði þá en nú, svo að þetta kaup mundi samsvara 10.—12.000 krónum nú. Þá var hver fimmeyringur „stór peningur“, ekki aðeins að fyrir- ferð, heldur að kaupmætti. Og þá hugsaði almenningur í aur- um. Gengið var búð úr búð til þess að vita hvort ekki væri hægt að fá eldspýtnabúntið ein- um eyri ódýrara heldur en hjá næsta kaupmanni, eða þá kaffi- pundið 2 aurum ódýrara. Þá var mikið lifað á kaffi, því að mjólk fekkst varla. Fæði margra mun þá hafa verið mjólkurlaus hafra- grautur, máske með púðursykri út á, tros, brauð (stundum þurt) og kaffi. Húsakynni voru víða eftir þessu. Yfirleitt var afar þröngbýlt alls staðar hjá öllum stéttum. Hús voru yfirleitt lítil, en seilst til að hafa sem flest herbergi í þeim og ekki voru forstofur þá stærri en svo, að rétt væri hægt að snúa sér við í þeim. í mörgum gömlu húsun- um, sem nú þykja lítil og ósjá- leg, áttu þá heima fleiri menn heldur en nú eru í sumum nýu stórhýsunum. Það var hálfgerður útkjálka- bragur á Reykjavík, þrátt fyrir höfuðborgarsvipinn. Þá voru eng- ar götur malbikaðar og ofaní- burðurinn þannig að illfært var um þær í votviðrum nema menn væri í vaðstígvélum. Það var líka mjög tíður fótabúnaður þá, enda sagði Einar Kvaran að það væri réttnefni á Reykjavíkurbæ að kalla hann „vaðstígavélabæ". Þá var aðeins einn barnaskóli hér, Miðbæarskólinn, og í hann sóttu börn vestan af Grímsstaða- holti og Framnesvegi og austan úr Skuggahverfi, og urðu að ganga hvernig sem veður var. Þá var engin lögreglustöð hér, en Jón Magnússon gegndi bæar- fógetaembættinu og hafði með höndum þau störf, sem nú hefir verið skift milli lögreglustjóra, sakadómara borgardómara, toll- stjóra og skattstjóra. Þá var hæstiréttur enn í Danmörku, og varð að sækja þangað mál til end anlegra úrslita. Þá var hér ein lyfjabúð, fáir læknar og sjúkrahús varla annað en Landakotsspítalinn gamli. Þá urðu allar konur að ala börn sín í heimahúsum og láta sækja ljós- mæður. Þrifnaður var þó að auk- ast. Það kom með vatnsveitunni og holræsunum. Þá fóru að hverfa útikamrarnir sem verið höfðu við hvert hús, og hinar opnu göturennur urðu ekki leng- ur að taka við öllu skolpi, eins og áður var. Vélamenningin hafði ekki hald ið innreið sína hér, að því und- anteknu að nokkrir steinolíu- hreyflar voru í notkun. Einn þeirra var í ísafoldarprentsmiðju og sneri þar „hraðpressunni" sem ísafold hafði fengið 1896. í henni var Morgunblaðið prent- að um 30 ár. — Hér var enginn iðnaður að heitið gæti, því að hér skorti aflgjafa. Marg- ir höfðu viljað ráðast í að reisa raforkustöð í staðinn fyrir gas- stöð. Urðu um það harðar deil- ur, en þeim hafði lyktað þannig, að gasstöðvarmenn báru sigur úr býtum. Sama árið og Morgunblaðið var stofnað. hófst bílaöldin hér á landi, en henni var í öndverðu markaður bás vegna vegaleysis, Hesturinn var því enn helzta sam göngutækið hér á landi fyrir ut- an manninn, því að enn tíðkað- ist það að bera á bakinu. Land- póstferðir voru þá 15 á ári og var ekki vænlegt fyrir dagblað að sæta þeim. Til Hafnarfjarðar fór póstur tvisvar í viku. Ekki var hægt að bjargast við þær ferðir heldur. Þess vegna hafði Morgunblaðið sinn eigin póst í ferðum þar á milli á hverjum degi. Fór hann fótgangandi og bar blaðið- á bakinu. Skemmtiferðir um landið þekktust naumast og það var talið til tíðinda ef einhverjir skruppu austur yfir fjall eða upp í Borgarfjörð að gamni sínu. Sumarfrí þekktust þá varla, enda þótt tinstaka vinnuveitandi gæfi vildustu starfsmönnum sínum máske 3—4 daga frí. En menn fóru mikið út úr bænum um helgar, venjulega ríðandi eða þá á hjóli, því að þá voru hjól not- uð miklu meira hlutfallslega heldur en nú er. Upplyfting á sumrin hjá sumum konum var sú þegar gott var veður, að fara upp í Skólavörðuholt með börn sín og hita þar kaffi í hlóðum, eins og þær væri í reglulegri útilegu. Þetta er ofurlítill svipur af Reykjavík eins og hún var fyrir 40 árum. Hún var þá að rísa á legg. Lífsbaráttan var hörð hjá öllum þorra manna og Morgun- Fremri myndin er tekin austan í Skólavörðuholtinu 1915. Hafnargerðin sótti þangað möl og grjót í hafnargarða og uppfyllingu. Skólavörðuholtið var þá óbyggt, en þangað fóru konur með börn sín á góðviðrisdögum, hituðu sér lcaffi á opnum hlóðum milli steina og þóttust vera komnar upp í sveit. Á miðri myndinni ofarlega sjást smiðjur og bækistöð hafnargerðarinnar, en fjarst er Öskjuhlíð. Aftari myndin sýnir hvernig nú er umhorfs á þessum stað. Á þeim slóðum er byrjað var að grafa upp möl og grjót til hafnarinnar, stendur nú heilsuverndarstöðin. Skólavörðuholtið má heita albyggt og eins mýrarnar fyrir sunnan það, en efst á Öskjuhlíðinni gnæfa vatnsgeymar Hitaveitunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.