Morgunblaðið - 02.11.1953, Side 37

Morgunblaðið - 02.11.1953, Side 37
Mánudagur 2 nóv. 1953 MORGUNBLAÐIfl 37 EVIargs að asl frá sams iriuáBiðnum Samlal við Karl L Jónasson vélseljara, sem setl hefir Morgynhlsið í 13 ár. Mér þykir vænt um uð íinnu áhugi fóiksins u útkomu blaðsins VIÐ fremstu setningarvélina í Prentsmiðju Morgunblaðsins sit- ur dag hvern hógvær og gætinn maður. Það er sá setjarinn, sem lengst allra manna hefur unnið við að setja blaðið. Hann heitir Karl A. Jónasson. I samtals 33 ár hefur hann unnið þessi störf. — Ég byrjaði prentnám í fsa- foldarprentsmiðju 1. október ár- ið 1916, sagði Karl A. Jónasson þegar við tókum tal saman í prentsmiðjunni nýlega. Þá vant- aði þangað prentnema. Ég var þá aðeins 15 ára gamall og ekki hár í loftinu. Varð að setja undir mig kassa til þess að ég næði upp í leturkassana. Leturkassinn er þannig gerður, að í honum eru mörg hólf fyrir stafina, eitt hólf fyrir hvern staf og merki. Þau varð maður að þekkja upp á sína tiu fingur. Voru gömlu setjararnir mjög fljótir að tína stafina upp úr þeim. í þá daga þekktust ekki setningarvélar og vélsetning. Ég á aðeins góðar endurminn- ingar frá þeim árum. Óiafur Björnsson var þá prentsmiðju- stjóri. Minnist ég hans sem sér- staks ljúfmennis og drengskapar- manns. VÉLSETJARI í 33 ÁR — Hvað hefur þú unnið lengi að vélsetningu við Morgunblað- ið? — Það mun hafa verið árið 1920, sem ég byrjaði vélsetningu þar. Þá var blaðið fjórar siður og var sumt af lesmáli þess þá enn handsett. Hafði það þá aðeins að- gang að einni setningarvél og annarri ef á þurfti að halda. Oft var umbrotinu þá ekki lokið fyrr en komið var langt fram á nótt Um jólin var blaðið sextán síður og stundum stærra. Þá kom fyrir að vinnan stóð fram til kl. sex um morguninn. A þessu hefur á síðari árum orðið mikil breyting til batnaðar. Nú á Morgunblaðið sjálft fjórar fullkomnar setningarvélar auk fyrirsagnavélar, og þó blaðið sé að jafnaði sextán síður dag hvern er það vanalega tilbúið til prent- unar um eða úpp úr miðnætti. Svo miklar hafa framfarirnar orðið síðan ég byrjaði að vinna við setningu þess. Það er margs að minnast frá Karl A. Jónasson við setningarvélina. samstarfinu við blaðið á þessum tíma. Og þær endurminningar eru hinar ánægjulegustu, segir Karl A. Jónasson að lokum. Þeir, sem með Karii hafa unn- ið munu áreiðanlega minnast þessa prúða og umgengnisgóða manns með þakkiæti og hiýju á þessum tímamótum í sögu Morg- unblaðsins. Hann hefur alltaf verið hinn sami, ljúfur og lipur i öllu starfi og samvinnu. Slíkir menn eru allsstaðar ómetanlega mikils virði, ekki sízt í prent- smiðju þar sem mikið veltur á góðri samvinnu blaðamannanna og þeirra, sem setja blaðið, brjóta það um og prenta það. Við, sem höfum unnið við blöð í lengri eða skemmri tíma, eigum margs góðs að minnast frá sam- vinnunni Við prentarana, og á ég þá við allar starfsgreinar prent- smiðjunnar. Okkur hættir að vísu stundum við að skella ábyrgðinni á bannsettum prent- villunum á herðar þeirra. En oft er sökin einnig okkar megin, sem skilum misjafnlega góðum hand- ritum og próförkum í hendur þeim. Hvað um það. Prentararnir og biaðamennirnir verða að vinna vel saman. Það hafa þeir einnig gert þann tíma, sem ég þekki til í ísafoldarprentsmiðju og Prent- smiðju Morgunblaðsins. S. Bj. SÁ MAÐUR, sem lengst hefur prentað Morgunblaðið er Guð- björn Guðmundsson prentari. Hann var við prentnám sem setj- ari í ísafoldarprentsmiðju 28. október árið 1913 þegar fyrstu handritin bárust í hið nýja dag- blað og setti i það fyrstu stafina. Guðbjörn var þá 18 ára gamall. En 11 ára gamali, vorið 1906, hafði hann flutzt hingað til Rej'kjavíkur úr átthögum sínum austur í Grímsnesi. Gerðist hann þá mjólkurpóstur hjá Jóni Jóns- syni útvegsbónda í Melshúsum. — Fyrsta þátttaka mín í blaða- útgáfu var þegar ég byrjaði að bera „Þjóðólf“ út í Vesturbæinn, sagði Guðbjörn Guðmundsson, þegar ég hitti hann að rnáli fyrir nokkrum dögum og rabbaði við hann um ýrnislegt, sem á dagana hefur drifið við störfin í prent- smiðjunni. Það var haustið 1907. Ég var 3—4 klst. að því og fékk ’ 75 aura fyrir, eða 1 eyrir á blað. Síðan bar ég um skeið út „Reykjavíkina“. í desember 1908 réðst ég sem sendisveinn í ísa- foldarprentsmiðju og var eitt starf mitt þar að bera út Isafold. Atvikin hafa hagað þvi svo, að ég hefi starfað við blöð mestan hluta ævinnar. STARFSMAÐUR MBL. I 2» AR — Hve lengi hefur þú starfað við Morgunblaðið, Guðbjörn? — Samtals í tæp 20 ár. Ég vann fyrst að setningu þess í ísafold- arprentsmiðju. En árið 1915 tók ég við prentun þess m. a. og vann við hama til sumarsins 1919. Þá fór ég utan til þess að kaupa vél- ar fyrir prentsmiðjuna Acta. Stjórnaði henni svo til ársins 1936. Frá prentstörfum var ég svo árin 1936—1939. Þá kom ég aftur að Mbl. og byrjaði aftur að prenta það í janúar 1940. VLNNUBRÖGÐIN ÁÐUR FYRR — Hvernig voru vinnubrögðin í prentsmiðjunni fyrstu árin, sem þú vannst þar við Morgunblaðið? — Þau voru mjög frábrugðin því, sem nú tíðkast. Þá var allt handsett í blaðið og í ísafold var þá aðeins ein „hraðpressa“ og tvær minni vélar. I þessari „hraðpressu“, sem prentaði 1200 blöð á klst. var m. a. Mbl. prent- að. En upplag þess var þá aðeins 1300 eintök, að mig minnir. Fyrst í stað var oft unnið við setninguna til kl. 2—3 á nóttunni og stundum lengur. Ég man eftir að lengsti vinnutími hjó mér var 45 klst. í striklotu. Síðar var þessu breytt þannig að blaðið varð að vera fullsett og tilbúið kl. 6 á kvöldin. Var það þá ýmist prentað þá þegar eða kl. 6 á morgnana. Samfal við Guðbjörn Guðmundsson, prentara, sem preniað hefir Morgunblaðið í 20 ár. Guðbjörn Guðmundsson setur prentvélina af stað. ÞEGAR MÓTORI 4N GEKK FYRIR LOFTI — Hvaða orka knúði þessa ,,hraðpressu“ ísaföldar? — Hún var frá gasstöðinni. I því sambandi minnist ég eins sérkennilegs atviks. Það mun hafa verið 1917. Þá var gasið skammtað um tíma, vegna kola- skorts, frá kl. 10 árd. til 4 síðd.. Varð þá að Ijúka prentun blaðs- ins fyrir kl. 4 síðdegis. Þá var gasið tekið af og stöðvaðist þá gasmótorinn hjá okkur í prent- smiðjunni, ef hann var þá enn i gangi, og varð ekki settur í gang aftur fyrr cn kl. 10 árd. næsta dag. En einu sinni á þessu skömmtunartímabili stöðvaðist mctorinn ekki kl. 4 þegar gasið var tekið af. Vakti það mikla undrun mína. En skýringin á þessu var sú, að felling hafði komið í gúmmíbelg þann, sem notaður var til þess að jafna gas- strauminn til mótorsins en við það myndaðist beint samband út í götukerfið. Hélt hann því áfram að soga til sín gasið úr bæjar- kerfinu. Á meðan hann gerði það gat ég haldið áfram að prenta. Gekk þannig um nokkurt skeið smiðjuna þegar ég var að prenta, þótt lokað hefði verið fyrir gasið og það oft fram á nótt, en gæta varð þess að setja fellinguna í belginn þegar þrýstingurinn íór af gasinu kl. 4. Svo bar það við kvöld eitt, að einn af starfsmönnum gas- stöðvarinnar rakst inn í prent- smiðjuna þegar ég var að prenta löngu eftir að skrúfað hafði verið fyrir gasið. Rak hann þá í roga- stanz og spurði: Fyrir hverju gengur eiginlega mótorinn hjá þér? * Notið OXYDOL Léftið sförfin Berið árangurinn saman við öll önnur sápumerki, — eftir það vitið þér það líka: — Hversvegna er helming- ur af notkun Bandaríkjamanna OXYDOL — og svipað hlutfall annars staðar sem OXYDOL fæst? Svarið fáið þér örugglega með því að reyna einn pakka í dag. Reynið OXYDOL! EINK AUMBOÐSMENN: Fæst allsstaðar ^or^jör^ ÉjT1 CCo. h.j^. 10 0£# Í> * & * ** — Fyrir lofti og vatni, svaraði ég, og hélt svo áfram að prenta. MESTA BREYTINGIN ÞEGAR SETNINGARVÉLIN OG RAFMAGNIÐ KOM - — Hvaða breyting finnst þér mest hafa orðið við störfin í prentsmiðjunni frá því í „gamla daga“? — Þegar fyrsta setningarvélint kom árið 1918 eða 1919 og þegar rafmagnið kom til sögunnar við prentun árið 1921. Áður hafði prentsmiðjan fengið rafmagn til ljósa. Það var víst árið 1918 frá mótorrafstöð, sem Natan & Olsen. áttu og ráku, og allmörg hús i miðbænum fengu rafljós frá. Koma hinnar nýju prentvélar, sem Morgunblaðið eignaðist sjálft árið 1943 var stærsta breytingin. við sjálfa prentunina. Meðan blaðið var 4 síður var það ailtaf prentað í einni vél. Eftir að það varð 8 síður, varð að prenta það í tveimur. Væri það 12 siður varð að taka þriðju vél- ina í notkun. Nú er hægt að prenta 16 síður í einu. EILÍF NÆTURVINNA — Hvernig líður sólarhringur- inn hjá ykkur prenturunum? — Oll okkar vinna er nú næt- urvinna. Ég er vanalega kominrt tii vinnu um kl. ellefu að kvöldi. Þá þarf að undirbúa prentunina, ganga frá myndamótum, smyrja vélina og „gera klárt“. Upp úr miðnættinu hefst svo prentunin og stendur í 8—8V2 klst. með því móti að ekkert komi fyrir. Ég er því vanalega kominn heim til mín kl. 9—10 á morgnana. Þá er farið að leggja sig og sofið til kl. 5—6 á daginn. Þetta er frekar erilsamt og óeðlilegt líf, eilíf næt- urvinna. Síðan við urðum tveir við prentun blaðsins hefur þetta þó orðið miklum mun þægilegra. Við vinnum þá sína vikuna hvor. MARGIR KOMA Á NÓTTINNI TIL A» SEGJA FRÉTTIR — En þú hefur fylgzt vel með því, sem er að gerast í bænum þessar vökunætur? — Jú, maður fær fréttirnar oft fljótt af því, sem skeður á nótt- inni, því margir koma við til þess að kaupa blaðið og segja manni fréttirnar um leið. Þá hringir maður í ykkur í ritstjórn- inni. Þið sofið alltaf með sím- ann við rúmstokkinn og eruð fljótir til að svara og koma á vettvang þegar eitthvað er að gerast. ■— Hefðir þú ekki viljað vera blaðamaður, Guðbjörn? — Æi, nei, það held ég ekki. En mér hefur líkað vel við blaða- mennina og kunnað vel við mig í prentarastarfinu. Síðan að upp- lag blaðsins jókst stórkost- lega, eru vinnuskilyrðin að vísu orðin erfið í svo ófullkomnu hús- næði. En mér þykir vænt um að finna áhuga fóiksins fyrir út- komu blaðsins. Hann finnur maður ekki hvað sízt á nóttunni þegar það biður-eftir fyrstu ein- tökum þess úr prentvélinni, jafn- vel lengi nætur, sé það síðbúið. Þar með likur þessu rabbi okk- ar Guðbjörns. Það er sunnudags- kvöld svo að hann fær að sofa heima þessa nótt, ef hann er þá ekki orðinn afvanur þvi að festa blund á þeim tima sólarhringsins. Góða nótt, Guðbjörn minn, og þakka þér góða samvinnu í prentsmiðjunni það sem af er. S. Bj.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.