Morgunblaðið - 03.11.1957, Side 1
X
24 siður
Listkynning
Mnrgunblaðsins
Nlna Tryggvadóttir
t GÆR hófst sýning á verkum
eftir Nínu Tryggvadóttur listmál-
ara á vegum listkynningar Morg-
unblaðsins. Sýnir hún að þessu
sinnl 7 málverk, aðallega olíu-
málverk.
SI. sumar sýndi hún á vegum
Itstkynningar blaðsins tillögu-
uppdrætti að steindum glerrúð-
um í kirkju Óháða fríkirkjusafn-
aðarins. Var listamannsferill
hennar þá rakinn hér.
Nína Tryggvadóttir er einn af
þekktustu „abstrakt“-málurum
þjóðarinnar. Hún hefur haldið
fjölda sýninga bæði utanlands og
innan. Hafa bæði listasöfn og
einstaklingar keypt myndir
hennar.
Hefur hún undanfarin ár verið
búsett í New York, París og nú
síðast í London. Þar dvelst hún
um þessar mundir.
Te- og tóbakslausir
ABERDEEN, 2. nóv. — 52 íbúar
Foula-eyjar í Shetlandseyjaklas-
anum undan norðurströnd Skot-
lands hafa ekki verið í símasam-
bandi við meginlandið í 28 daga.
í dag bárust fregnir frá þeim
gegnum radíóstöð, að þar væri
vellíðan og allt í lagi að öðru
leyti en því að te- og tóbaksbirgð
ir væru þrotnar. — Reuter.
Zhukov úr œðsta ráði og miðstjórn
Sveik Hokkinn — lét bern sig oflofi — rongfærði
stríðssögunn — gerði lítið úr öðrum
Moskvu, 2. nóv. — Frá Reuter.
ZHUKOV, sem fyrir viku síðan var vikið úr embætti land-
varnaráðherra, hefur nú verið vikið úr æðsta ráðinu og
einnig úr miðstjórn rússneska kommúnistaflokksins. — Til-
kynning um þetta var gefin út í Moskvu í dag. — Zhukov,
sem er 61 árs að aldri, var fyrsti hermaðurinn sem sæti fékk
í æðsta ráðinu. Hann varð fullgildur meðlimur þar í júlí-
mánuði sl. eftir að hafa verið aukameðlimur í 16 mán. í til-
kynningu miðstjórnar flokksins segir að Zhukov verði falin
staða í samræmi við hæfileika hans og reynslu.
Að ganga á milli
bols op; liöfuðs
á einvaldi
PARÍS — Zhukov var settur af
af því að hann vildi ekki vinna
að því að öll völd höfnuðu hjá
einum og sama manninuin, Krús-
jeff, segir blaðið „Franc-Tireur“.
Þetta franska blað, sem er gefið
út af sósíalistum, gefur eftirfar-
andi skýringu á atburðunum í
Kreml:
Gátan um fall Zhukovs á
eina skýringu, þau orð er
Zhukov mælti á stórveldafundin-
um í Genf 1955, en þá sagði
hann:
Búizt er við því, að Zhukov
verði fengin minni háttar her-
foringjastaða. Zhukov hefur ekki
sézt í Moskvu síðan hann kom
úr heimsókninni til Júgóslavíu
s. 1. laugardag. Samt er það ætl-
an manna að hann sé í Moskvu
og sennilega í sinni eigin „villu“.
Gamlar akvarðanir
Það var Tass fréttastofan sem
gaf tilkynninguna út. Segir í
henni að miðstjórn kommúnista-
flokksins hafi seint í október
haldið fund um aukna flokks-
starfsemi í Rauða hernum og í
flotanum. Á þeim fundi voru
drög lögð að þeim ákvörðunum,
sem nú hafa verið gerðar kunn-
gerðar, segir í tilkynningunni.
Búizt er við umfangsmiklum
breytingum í stjórn hersins svo
að öll áhrif Zhukovs verði úti-
lokuð. Flokkurinn vill nú ná al-
geru tangarhaldi á öllum stjórn-
ardeildum hersins. Meðal þeirra
hershöfðingja er vikið verður er
Sokolovsky, herráðsforingi
Rauða hersins í ár, en hann hef-
ur verið einn nánasti vinur
Zhukovs. Rokkossovsky, annar af
aðalmönnum hersins er þegar
kominn á bak við tjöldin. Hann
var náinn samstarfsmaður
Zhukovs, þar til fyrir mánuði, að
hann var sendur til að stjórna
her Rússa við landamæri Sýr-
lands og Tyrklands.
Önnur útlegð
Útlegð Zhukovs frá Moskvu
— borginni sem hann bjargaði
frá falli á stríðsárunum —
verður hans önnur útlegð það-
an. Hinn fyrri var, er Stalin
sendi hann á bak við tjöldin,
vegna þess að hann óttaðist
vinsældir hans og persónu-
leika. Allt bendir til að nú
liggi svipað v orsakir til út-
legðarinnar.
Það var Krúsjeff sem batt endi
á hans fyrri útlegð, strax eftir
dauða Stalins, og litlu síðar tók
hann við embætti Bulganins sem
landvarnarráðherra.
Svikari
í tilkynningunni, sem gefin
var út í dag, segir að hann
hafi svikið grundvallarlög
Leninstefnunnar með því að
hef ja herinn á kostnað flokks-
ins. Hann hafi óvirt störf
flokksins og forystu, ríkis-
stjórnina og vanvirt yfirráð
þeirra yfir her of flota.
I tilkynningunni segir enn-
fremur að Zhukov hafi látið
herinn dýrka sig. Með aðstoð
smjaðrara og hræsnara hafi
hann verið oflofi borinn í fyr-
írlestrum, í skýrslum, í grein-
um blaða, í kvikmyndum og
bæklingum, og þáttur hans í
styrjöldinni miklu var langt
um of vegsamaður. Til þess
að upphefja hann var saga
stríðsins rangfærð. — Þáttur
þjóðarinnar var gerður minni
og einnig sigrar hersins i
heild. — Þáttar undirmanna
og stjórnmálalegra aðstoðar-
manna, hæfileikar foringj-
anna á sjálfum vígvellinum
og hins mikla hlutverks
kommúnistaflokksins var að
litlu eða að engu getið, segir í
skýrslunni.
— Ef einhver leiðtoganna í
Sovétríkjunum reynir að feta í
fótspor Stalins, og gera sjálfan
sig að einvaldi, mun ég verða sá
fyrsti til þess að ganga milli bols
og höfuðs á þeim paur“.
Dulles
heilsuhraustur
WASHINGTON, 2. nóv. — Lækn
ar við Walter Reed herspítalann
í Washington tilkynntu í dag að
Dulles utanríkisráðherra væri
við ágæta heilsu, og kom tilkynn
ingin eftir að ráðherrann hafði
verið undir sólarhrings rannsókn.
Orsök rannsóknarinnar var, að
fyrir ári síðan var hann skorinn
upp við krabbameini og var nú
verið að athuga hvort sjúkdóm
urinn hefði tekið sig upp.
•— Reuter.
Kússneskir skriðdrekar i Búdapest, eftir að Rússar höfðu náð borginni á sitt vald. ___________
Hinum örlagariku atburðum 4. nóvember 7956 lýst méð
Annað blað bannað í Póllandi
útvarpssendingum og fréttaskeytum frá Búdapest:
„Rússar hefja árásina -
Hjálpið Ungverjalandi"
VARSJÁ, 2. nóv. — Enn eitt
pólskt blað hefur verið bann-
að, og það jafnvel áður en það
Lamaði ibrótta-
maðurinn
AP vangá féll niður úr greln-
inni, um lamaða íþróttamann-
inn, Ágúst Matthíasson, að
Morgunblaðið veitti fúslega
viðtöku fjárgjöfum til hans —
og sömuleiðis, eins og áður —
íþróttasamband fslands á
Grundarstíg 2A. (Sími 14955).
sá dagsins ljós í fyrsta sinn
Það var ritskoðari ríkisins
sem lagðivbann við útgáfu 1.
tölublaðs þess.
Blað þetta var kallað „Evrópa"
og var skrifað af hópi kunnra rit-
höfunda. Ætlunin var að það yrði
sjálfstætt mánaðarblað fyrir
menntamenn.
Fyrsta eintak blaðsins var sent
ritskoðaranum á þriðjudag og á
fimmtudag fengu allir útgefend-
urnir tilkynningu um að útgáfa
blaðsins yrði ekki leyfð.
Stúdentablaðið Po Prostu hlaut
sömu örlög fyrir skömmu af hálfu
sömu ritskoðunar. Það orsakaði
nokkurra daga mótmælaaðgerðir
af hálfu stúdenta. — Reuter.
í DÖGUN hinn 3. nóvember 1956
réðust Rússar til atlögu á Búda-
pest með ofurefli liðs. Fréttir af
þessari árás bárust til Vestur-
Evrópu í ungverskum útvarps-
sendingum og fréttasendingum
frá hinni ungversku fréttastofu,
en hún gat sent skeyti með firrð-
símalínu, sem lá til Vínarborgar.
Þessa alvarlegu atburði má nokk-
uð rekja með útsendingum þess-
um og eru nokkrar þeirra birtar
hér á eftir.
Útsendingar frá Frjálsu
Kossuth-útvarpsstöðinni
KI. 5,19:
Takið eftir, Takið eftir.
Imre Nagy forsætisráðherra
ávarpar ykkur.
— Þetta er Imre Nagy for-
sætisráðherra, sem talar. Snemma
í morgun hófu Rússar árás á
Budapest í þeim tilgangi að
steypa hinni löglegu lýðræðis-
legu ríkisstjórn.
Hermenn okkar eiga í bardög-
um.
Ríkisstjórnin er á sínum'stað.
Þetta er orðsending mín tU
ungversku þjóðarinnar og til ger-
vallrar veraldar.
★
KI. 5,56:
Takið ftir, Takið eftir.
Imre Nagy forsætisráðherra
biður Pal Maleter hermálaráð-.
herra, Istvan Kovacs herráðsfor^
Framh. í bls. 15