Morgunblaðið - 03.11.1957, Side 2
t
MORCVNBL4ÐIÐ
Sunnudagur 3. nóvember 1957
Kosningafundur í bœjar
stjórn Reykjavíkur
Bæjarstjórnarminnihlutinn í
Reykjavik er sem kunnugt er
margklofinn hópur, sem fátt virð
ist eiga sameiginlegt nema áhug-
ann á að bera fram óundirbúnar
tillögur og halda ræður til birt-
íngar í blöðum. Á bæjarstjórnar-
fundinum í fyrradag bar mjög á
þessum áhuga, enda fara kosn-
ingar í hönd. Skal hér sagt nokk-
uð frá fundinum að því leyti,
sem það er ekki þegar gert í Mbl.
Togarakaupin
Guðmundur Vigfússon, helzti
talsmaður kommúnista í bæjar-
stjórn, bar fram till. um að 10 af
15 nýjum togurum, sem ríkis-
stjórnin sagðist ætla að kaupa í
fyrra, en lítið hefur heyrzt af
síðan, skyldi ráðstafað til Reykja
víkur og bæjarútgerðin fá a.m.k.
6 þeirra. Þeir Einar Thoroddsen
og Guðbjartur Ólafsson, kváðust
fagna þessum áhuga Guðmundar
á útgerðarmálum, vona að tillag-
an reyndist á rökum byggð við
nánari athugun og vera sammála
honum um að efla ætti útgerð
frá Reykjavík, enda væru hér
bezt skilyrði fyrir stór fiskiskip
að því er varðar viðlegupláss og
losun.
Þeir spurðu Guðmund síðan
nokkurra spurninga um þessi
nýju skip, og dró þá nokkuð nið-
ur í kappanum. Vissi hann ekk-
ert um stærð þeirra, gerð, bygg-
ingarstað, byggingartíma — hvað
þá um jafnveraldlega hluti og
verð eða hvort ríkisstjórnin hefði
nokkrar ráðagerðir á prjónunum
til að tryggja, að menn fengjust á
íslenzka fiskiflotann.
Má Guðmundur að sjálfsögðu
ekki vera að því að velta fyrir
sér aukaatriðum, meðan Þjóð-
viljapressan bíður! Tillögunni
var vísað til útgerðarráðs og bæj-
arráðs með samhljóða atkvæð-
um.
Bæjarfulltrúi Framsóknar
Bæjarstjórnarfundurinn í fyrra
dag stóð lengi, frá kl. 5 og fram
yfir kl. 11. Langir fundir eru að
vísu ekki sjaldgæfir í bæjar-
stjórn Reykjavíkur, en þessi fund
ur dróst hins vegar ekki á lang-
inn af löngum ræðum Þórðar
Björnssonar, bæjarfulltrúa Fram
sóknarmanna eins og oft vill
verða. Á næstsíðasta bæjar-
stjórnarfundi var aðgangurinn t.
i d. svo harður, að allir aðrir bæj-
| arfulltrúar misstu þolinmæðina
og voru um tíma ekki aðrir í
fundarsalnum en forseti, 2 frétta-
menn og Þórður Björnsson. Tal-
aði Þórður af miklum sannfær-
ingarkrafti og blaðamaður frá
Tímanum skrifaði af jafnmiklum
dugnaði.
Þórður talaði ekki nema 4 sinn
um á fimmtudaginn. Var það
sögulegast í því sambandi, að
hann bað um orðið um sandnáms
tillögu eins af kommúnistunum,
en hvarf síðan út í bæ. Er röðin
kom að honum, var hann hvergi
sjáanlegur, þó að menn væru
gerðir út að leita. Kom hann þó
um síðir og minnti forseti hann á,
að fjórðungur stundar væri lið-
inn, frá því að nafn hans var
kallað upp og honum gefið orðið.
Blaðamaður Tímans var ekki á
fundinum í fyrradag, og kann
það að vera orsök fámælis bæj-
arfulltrúa Framsóknarmanna.
Hefur Tíminn ekkert um fundinn
að segja í gærmorgun, nema að
hann hafi verið sögulegur, rætt
hafi verið um fundarsköp og
sandnám.
Umræður um funðarsköp
Ekki rekur blaðið þó nánar
hver var orsök umræðnanna um
fundarsköp. Stóð þannig á þeim,
að Alfreð Gíslason bað um orðið
og flutti tillögu um hitaveitumál.
Strax á eftir bar Óskar Hall-
grímsson, annar minnihlutafull-
trúi, upp tillögu um lóðamál.
Héldu tillögumenn báðir ræður
um þessi framlög sín til bæjar-
málanna. Borgarstjóri svaraði
þeim með nokkrum orðum, en
þá stóð upp Einar Ögmundsson,
kommúnistafulltrúi, og bar upp
tillögu um siglingar Reykjavík-
urtogara á erlenda markaði. Ekki
var bann fyrr setztur niður en
Bárður Daníelsson, Þjóðvarnar-
maður, stóð upp og ræddi um
hitaveitumál, en síðan Sigurður
Guðgeirsson kommúnistafulltrúi
og talaði um lóðamál. Að þessu
loknu benti dr. Sigurður Sigurðs
son á, að hér væri fullmargt haft
í takinu í einu, og urðu allmikl-
ar umræður um starfshætti bæj-
arstjórnar. Voru ræðumenn sam-
mála um, að úrbóta væri þörf.
Ákveðið var að hafa sérstakar
umræður um þessi efni á næsta
fundi bæjarstjórnar.
Lóðomólin rædd í bæjarstjóm
LÓÐAMÁLIN voru til umræðu
i fundi bæjarstjórnar í fyrra-
kvöld. kom fram tillaga um að
athugað yrði, hve margar af þeim
lóðaumsóknum, sem nú liggja
fyrir, væru raunhæfar. Urðu
menn ekki á eitt sáttir um, hvern
ig það yrði bezt gert, vildu sumir
láta skrifa öllum umsækjendum,
en aðrir vildu láta athuga hvort
ekki væri heppilegra að láta end-
urnýja umsóknirnar. Ákveðið var
með samhljóða atkvæðum að fá
umsögn lóðanefndar um málið.
Þá kom til 2. umræðu tillaga
Bárðar Daníelssonar, bæjarfull-
trúa Þjóðvarnarmanna, sem hann
bar upp á fundi bæjarstjórnar
19. sept. sl., óg nokkuð var sagt
frá í Mbl. á sínum tíma. Nokkrar
breytingartillögur komu fram og
voru sumar samþykktar, en til-
lagan síðan afgreidd samhljóða
þannig orðuð:
„Bæjarstjórn felur bæjarráði
að láta rannsaka eftirtalin atriði:
1. Hvaða leiðir séu tiltækileg-
astar til að standa undir kostnaði
við að gera lóðir sem fyrst bygg-
ingarhæfar og fullgera götur og
gangstéttir.
2. Hvort rétt sé að taka gjald
fyrir byggingarréttinn á lóðum,
lem era eftirsóttar undir verzl-
anir, skrifstofu- og verksmiðju-
kús.
3. Hvort ekki megi með lög-
gjöf auðvelda endurskipulagn-
ingu gamla bæjarins. í því sam-
bandi verði sérstaklega athugaðir
eftirfarandi möguleikar:
í fyrsta lagi að skipuleggja heil
svæði í gamla bænum í samráði
við eigendur lóðanna, þannig að
þeir fái lóðir að nýju á hinu
endurskipulagða svæði.
í öðru lagi að taka lóðir eígnar-
námi, skipuleggja að nýju og
selja síðan lóðirnar eða réttinn
til að byggja á þeim, og fá þann-
ig a. m. k. að nokkru greiddan
kostnaðinn við endurskipulagn-
inguna.“
Sáralífill sífdarafli
AKRANESI, 2 .nóv. — M.b. Sig-
urvon er á leiðinni hingað til
Akraness, með örfáar tunnur af
síld. Annar bátur héðan var
einnig úti, en hann lagði ekki
net sín.
Heyrst hefur, að bátarnir suð-
ur frá hafi fengið mjög lítinn
síldarafla í nótt. Mun sá afla-
hæsti hafa verið með 12 tunnur.
Einhverjir bátar lóðuðu þó síld,
en hún dýpkaði fljótlega á sér.
—Oddur.
Démsmólaréðiineytið getur ekbi
bunnuð útgáiu nokkurrar bókar
Ingvar Ásmundsson
Fjöltefli Heim
dallar í dag
INGVAR Ásmundsson skákmeist
ari teflir fjöltefli á vegum Heim-
dallar kl. 2 í dag í Valhöll við
Suðurgötu. Menn eru beðnir að
koma tímanlega og hafa með sér
töfl, ef því verður við komið.
í nefnd þessari eru bæjarstjór-
inn, Jón Kjartansson, og bæjar-
fulltrúarnir Ólafur Ragnars, Þór-
oddur Guðmundsson og Kristján
Sigurðsson.
Síðan 1953 hefur sú skipan tog-
araútgerðarinnar verið hér, eftir
að Siglufjarðarbær hafði fengið
4 millj. kr. lán til togaraútgerð-
arinnar, að Síldarverksmiðjur rík
isins hafa rekið báða togarana á
ábyrgð bæjarsjóðs. Síldarverk-
smiðjurnar eiga hér hraðfrystihús
sem kunnugt er.
SVO erfiðlega hefur togaraút-
gerðin á Akureyri gengið að und
anförnu hjá Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa, að við borð mun
liggja að félagið neyðist til að
leggja togurunum, nema þá að
úr erfiðleikunum greiðist með
skjótum hætti.
Mál þessi bar á góma á fundi
bæjarstjómar Akureyrar fyrir
skömmu, sagði fréttaritari Mbl.
á Akureyri, Jakob Pétursson, í
símtali í gær. Á fundi þessum var
samþykkt að kjósa nefnd manna
til þess að fara til Reykjavíkur
og taka upp viðræður við ríkis-
stjórnina um vandamál togara-
Rússnesk mynda-
sýning
BLAÐAFULLTRÚI rússneska
sendiráðsins hér í Reykjavík og
fréttaritari Tass í Moskva, Guy-
enko, sýndi blaðamönnum í gær
ljósmyndasýningu, sem sendiráð-
ið efnir til í Bogasal Þjóðminja-
safnsins í tilefni af 40 ára afmæli
byltingarinnar í Rússlandi.
Myndasýningu þessari er ætlað
að bregða upp myndum úr dag-
legu lífi fólks þar eystra, í leik
og í starfi. Á miðju gólfi í salnum
hefur verið komið fyrir mynd af
Lenin, en aðrar myndir eru þar
ekki af ráðamönnum, hvorki
föllnum né núverandi. — Sýning-
in verður opin til 14. nóv. n.k.
Blaðinu barst eftirfarandi
fréttatilk. frá dómsmála-
ráðuneytinu í gær:
í DAGBLÖÐUM hafa verið rædd
væntanleg viðbrögð stjórnar-
valda við útgáfu á íslenzkri þýð-
ingu á skáldsögu norska rithöf-
undarins Agnars Mykle „Sangen
om den röde rubin“. — Hefir
orðið vart nokkurs misskilnings
á hlutverki dómsmálaráðuneyt-
isins í sambandi við hugsanlegt
bann við slíkri birtingu bókar-
innar.
Þykir rétt, af þessu tilefni, að
leggja á það áherzlu,
1) að ráðuneytið hefir ekki bann
að og getur ekki bannað út-
gáfu neinnar bókar,
2) að dómstólarnir einir geta
tekið slíka ákvörðun eftir því
sem lög kunna að standa til og
3) að jafnvel dómstólarnir geta
ekki bannað prentun bókar
eina út af fyrir sig, þar sem
fleiri atriði þurfa að koma til
Það hefur hlotið stuðning
margra að eðlilegt væri að rekst-
ur hraðfrystihússins og togaraút-
gerðin væri í höndum sömu aðila.
Bærinn leitaði fyrir sér um kaup
á hraðfrystihúsinu af SR, en það
reyndist vera óframkvæmanlegt.
Því er það nú, sem bæjaryfir-
völdin senda þessa nefnd til
Reykjavíkur, til að athuga þar
möguleikana á því að Síldarverk-
smiðjurnar kaupi togarana. Báð-
ir hafa þeir verið reknir með
halla undanfarin ár. — Stefán.
útgerðarinnar. Útgerðarfél. Ak-
ureyringa gerir út fjóra togara.
í bjargráðanefndinni, er legg-
ur af stað til Reykjavíkur um
þessa helgi eru þeir Steinn Stein
sen bæjarstjóri, Jón G. Sólnes og
Jakob Frímannsson.
Sfúdeniafélag Rvíkur
AÐALFUNDUR Stúdentafélags
Reykjavíkur verður nk. mið-
vikudagskvöld klukkan 9 í Sjálf-
stæðishúsinu.
Sást síðast
1. októher sh
RANN SÓKN ARLÖGREGLAN
hefur nú að mestu lokið rann-
sókn sinni í sambandi við lík
það, sem fannst í fyrradag í húsi
einu hér í bænum og skýrt var
frá í blöðunum í gær.
Hér er um að ræða lík Guð-
mundar Jóakimssonar trésmiðs,
er var ættaður úr Fljótunum.
Hann var 61 árs að aldri. Álitið
er að dauða hans hafi borið að
með snöggum hætti, en þá lík-
ið fannst lá það á gólfinu fram-
an við legubekk.
Það er síðast vitað um ferðir
Guðmundar kringum hinn 1. okt.
s. 1., að hann greiddi húsaleig-
una, en í húsi þessu búa fleiri.
Þar sem hann átti fáa að
hér í bænum var ekkert farið að
undrast um Guðmund. Það var
ekki fyrr en vart varð nályktar
frá herbergi hans, að lögreglan
var kvödd á vettvang.
svo að saknæmt sé, þ.e. birt-
ing eða fyrirhuguð dreifing
bókar með saknæmu inni-,
haldi.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
hefir í samráði við ráðuneytið
skýrt hlutaðeigendum frá því, að
ef til þess kæmi að umrædd bók
yrði gefin út á íslenzku, mundi
verða hlutazt til um að dreifing
bókarinnar yrði stöðvuð til bráða
birgða, unz dómstólunum hefði
gefizt tóm til að skera úr því,
hvort birting hennar varðaði við
lög.
Um lagaheimildir til slíkra
bráðabirgða-aðgerða hefir ekki
verið deilt.
Það er því hverjum manni
heimilt að láta prenta bókina,
enda beri hann í samræmi við á-
kvæði stjornarskrárinnar ábyrgð
á efni hennst- fyrir dómi.
Geta má þess, að aðili sá, sem
nú hefir útgáfurétt að bókinni
hér á landi, snéri sér að fyrra
bragði til ráðuneytisins fyrir
nokkru, með fyrirspurn um
hverra viðbragða væri að vænta
ef til útgáfu bókarinnar kæmi.
Þar sem bókin hefir verið mjög
umdeild, svo sem m.a. ýmsar á-
skoranir til stjórnarvaldanna
sýna, hefir þótt rétt að dómstól-
unum yrði, ef'til kæmi, falið að
skera úr þvi, eins og að framan
segir, hvort birting hennar varð-
aði við lög.
Dómsmálaráðuneytið,
2. nóvember 1957.
Snjókoma og
inflúenza
ÞAÐ var fallegt vetrarverður á
Akureyri í gærdag. Logn var þar
og töluverð snjókoma. Um miðj-
an dag var kominn ökladjúpur
snjór á götunum.
Inflúenzan hefur borizt til
bæjarins og nokkuð tekið á henoi
að þera, en þó er hún enn seím
komið er ekki komin á faraldurs-
stig. Þannig voru forföll nem-
enda í skólum þar í bænum ekki
tiltakanlega mikil í gær.
Smíði að hefjast
í Svartagili
í GÆR hitti tíðindamaður MbL
Markús Jónsson, bónda í Svarta-
gili. Hann kvaðst ekki hafa ver-
ið fyrir austan undanfarið. Hann
væri hér að reyna að viða að sér
timbri og hefði auglýst eftir því
í blöðunum. Hann var þá á hraðri
ferð til þess að skoða skúr inni
við Borgartún.
1 næstu viku hafði ég hugsað
mér að ganga að því með oddi og
egg að koma upp bráðabirgða-
húsinu, sem ég ætla að vera í nú
í vetur. Ég er vongóður um að
það muni ekki taka langan tíma
að koma því upp. Ýmsir góðir
menn munu veita mér aðstoð,
sagði Markús. Hann kvaðst ekki
mundu verða einn í vetur í
Svartagili, því til sín kæmi einn
sona hans, Jón.
í sambandi við rannsóknina á
atburðunum í Svartagili sagði
Markús, að rannsóknardómarinn
myndi í gær hafa farið austur til
þess að taka skýrslu af Þingvalla
sveitarbændum.
Varðandi það atriði, sem fram
er komið, að gasleiðslan í Svarta
gili hafi bilað í októberbyrjun,
sagði Markús, að þar hefði í raun
inni ekki verið um bilun á leiðsl
unni að ræða, heldur hefði losn
að um tengistykki milli lampa og
leiðslu og hefði ekki verið annað
en að skrúfa þetta stykki þétt-
fast að, þá stöðvaðist útstreymi
gassins. Gas þetta er svo lyktar.
sterkt að bili leiðslan þá verður
maður á augabragði var við slík-
an leka, sagði Markús.
Verið að vinna að því
að S.R. kaupi togarana
SIGLUFIRÐI, 2. nóv. — Suður í Reykjavík eru um þessar mundir
þrír fulltrúar Siglufjarðarbæjar, sem eru að athuga möguleika á
því að selja Síldarverksmiðjum ríkisins togarana Hafliða og Elliða,
eign Bæjarútgerðarinnar hér.
Neind iró flkureyri ræðir við ríkis-
stjórn um útgerðareriiðleika
Stöðvun fogaranna þar yfirvotandi