Morgunblaðið - 03.11.1957, Qupperneq 8
8
MOKGVISB f 4ÐIÐ
Sunnudagur 3. nóvember 1957
Það er vnsuiega víðtækt við
fangsefni, sein htr er unnið að,
segir Sveinbjörn Finnsson. Allt
er hér undir einum hatti, allar
tegundir lömunar eru teknar hér
til meðferðar. Það er líka nauð-
synlegt að bæta hér aðstöðuna á
marga lund. Hér vantar heimili
fyrir börn og sjúklinga utan af
landi, sem nú verða að búa hjá
aðstandendum eða vandalausu
Á skóverkstæðinu. — Magnús Magnússon til vinstri og
Steinar Waage viff saumavélina.
Rjúpnaveiðar
Stranglega bannaðar
í H e i ð m ö r k .
Skógræktarfélag Reykjavlkur
Þar fá lamaðir limir mátt og fólkið trú á
lífið og framtíðina
1 föndurstofunni. Kennarinn, Jane Houston stendur hjá hinum ungu nemcndum sínum.
Frá morgunheimsókn i æfingastöð
lamaðra og fatlaðra
ÞRETTÁN ára gömul telpa
■tendur í anddyrinu á æfinga-
■töð Styrktarfélags lamaðra
•g fatlaðra að Sjafnargötu 14.
Hún segist heita Hrafnhildur
Böðvarsdóttir.
— Ég lamaðist í faraldrin-
um í fyrra á hægri fæti og
vinstri hendi. Þegar ég hyrj-
aði að sækja æfingar hingað
á Sjafnargötuna varð að hera
mig inn í húsið og út í bílinn,
sem flutti mig. En nú er ég að
verða frísk-----.
Þessi myndarlega telpa,
sem segir okkur þessa sögu,
kemur nú gangandi við staf
í æfingar sínar. Hún hefur
með hjálp sérfróðra manna
endurheimt krafta sína, unn-
ið hug á hinum skelfilega
sjúkdómi, sem lamaði limi
hennar og ógnaði æsku henn-
ar og framtíð.
Æfingastöff Iamaffra og fatlaffra
Við höfum verið að skoða Æf-
ingarstöð Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra þegar við mættum
Hrafnhildi litlu Böðvarsdóttur.
Betri sönnun en hana var varla
hægt að fá fyrir hinum glæsilega
árangri, sem orðið hefu’’ af starfi
þessarar merku he'ibrigðisstofn-
unar, sem framkvæmdarstjóri og
fO’’sxöðukona stofnunarinnar
höi'ðu boðið Mb.. að skoða sl.
fiirmtudagsmorgun.
Æfingastöðin er stórt þriggja
hæða steinhús með rúmgóðum
kjallara og fallegum trjágarði. í
Sveinbjörn Finnsson
framkvæmdarstjóri.
þessu húsi hefur Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra rekið æfinga
stöð fyrir lamað og fatlað fólk.
Lseknir stöðvarinnar, Haukur
Kristjánsson, er sérfræðingur á
sínu sviði. Forstöðukona hennar
frú Jónína Guðmundsdóttir er
íþróttakennari að mennt. Hefur
hún jafnframt lært sjúkraleik-
fimi í Noregi. Við æfingastöðina
starfa nú 6 stúlkur að sjúkra-
þjálfun og tvær aðstoðarstúlkur.
Loks kennir ein stúlka föndur.
Þessar stúlkur eru íslenzkar,
danskar, norskar, dansk-íslenzk-
ar, þýzkar og bandarískar. Það
má því með sanni segja að nor-
ræn, jafnvel alþjóðleg samvinna,
sé að verki í þessari merkilegu
heilbrigðisstofnun.
Við getum aldrei fullþakkað
hina miklu aðstoð danska Styrkt
arfélagsins við útvegun fólks og
tækja til þessarar stofnunar, seg-
ir Sveinbjörn Finnssön, fram-
kvæmdastjóri æfingastöðvarinn-
ar.
Á fjórða hundraff sjúklingar á
tveimur árum.
Árið ’56 fengu 130 sjúklingar ein-
hverja hjálp hér og 193 það sem
af er þessu ári, segir forstöðukon
an okkur. Sumt af þessu fólki
hefur fengið fullan bata en aðrir
nokkurn. Vanalega koma um 30
sjúklingar til æfinga á dag. Flest-
ir þeirra koma þrisvar í viku. Við
hefjum daglegt starf kl. 9 fyrir
hádegi. Bílstjórinn okkar sækir
fólkið þangað, sem það dvelur út
um allan bæ og til Hafnarfjarðar.
Margt af því þarf að bera inn í
húsið.
Æfingarnar, sem sjúklingarnir
taka þátt í eru mjög misjafnar
og taka mismunandi langan tíma
Jónína Guðmundsdóttir,
forstöffukona.
daglega. En flestir eru í þeim
um það bil eina klst. Stundum
byrja æfingarnar í sundlauginni
í kjallaranum, stundum í leik-
fimisölunum á efri hæðunum.
Allar tegundir lömunar teknar
til meðferffar
Lítill drengur æfir sig á göngubrúnni í aff ganga. Viff enda
göngubrúarinnar er spcgill og kemur mynd hans fram þar.
(Ljósm. Mbl. Ólafur K. Magnússon tók allar myndirnar, sem
fylgja þessari grein).
fólki. Er oft erfiðleikum bundið
að koma þessu fólki fyrir í bæn-
um og stundum er það of stutt á
æfingastöðinni til þess að geta
náð bata, segir forstöðukonan.
,Það er líka nauðsynlegt að að-
stoða sjúklinga við að fá atvinnu
við sitt hæfi eftir að þeir hafa
fengið þá hjálp, sem hægt er að
veita þeim hér.
í fyrra var byggt skóverkstæði
hér við hliðina á stöðinni. Eru
þar smíðaðir skór fyrir alls konar
bæklað fólk. Eru tekin gipsmót
af fótunum og smíðað eftir þeim.
Ennfremur eru smíðuð þarna all*
konar „innlegg" í skó og barna-
skór lagfærðir.
Það er Steinar Waage, sem rek
ur þetta verkstæði en hann hefur
lært slíka skógerð í Þýzkalandi
og Danmörku. Með honum vinn-
ur Magnús Magnússon, skósmið-
ur frá ísafirði. Báðir þessir menn
eru dugandi og vandvirkir iðn-
aðarmenn.
Tekjur af eldspitum og
happdrætti
Lítill brosandi sjúklingur i
sundlauginni.
En hvaðan fæst fé til þess að
halda uppi rekstri þessa mikla
nauðsynjafyrirtækis?
Megin tekjulindir æfingastöðv
arinnar eru símahappdrætti
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra, og eldspýtnasala. Eins og