Morgunblaðið - 03.11.1957, Page 12
12
MORGVl\BlAÐlÐ
Sunnudagur 3. nóvember 1957
mtfrlaftifr
Otg.: H.t. Arvakur. Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjami Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Ola, simi 33045
Auglýsmgar: Arni Garðar Krístinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aigreiðsia: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Asknftargjald kr 30.00 á mánuði mnaniands.
t lausasölu kr 1.50 eintakið.
PÍLAGRIMSGANGAN
TIL MOSKVU
FYRIR réttu ári, hinn 3.
nóvember 1956, voru all-
ir frjálshuga menn milli
vonar og ótta um það, hver verða
mundu örlög Ungverjalands.
Þann dag sendi fréttaritari
brezka blaðsins The Observer
grein frá Búdapest til blaðs síns.
Henni lauk svo: ,
„ — — — vestrænir áhorf-
endur í Búdapest eru langt frá
því að vera eins áhyggjufullir og
Ungverjar. Þeir halda, að Rússar
muni ekki láta til skarar skríða,
muni ekki hertaka borgirnar og
skerða hið nýfengna frelsi þjóð-
arinnar. Þeir halda, að Rússai
muni, þegar þar að kemur, fara
úr Ungverjalandi. En áður en
þeir geri það, kunni að vera, að
þeir óski að sanna Ungverjum
og heiminum, að þeir fari ekki
vegna þess, að Ungverjar neyddu
þá til þess að fara, heldur vegna
þess að þeir hafi ákveðið að
gefa öllum löndum frelsi til að
velja „sína eigin leið til sósíal-
ismans“.
Þessi orð birtust morguninn
eftir í Lundúnablaðinu The
Observer. Áður en prentun þeirra
væri lokið, höfðu Rússar látið til
skarar skríða. Þeir hertóku borg-
irnar og skertu hið nýfengna
írelsi þjóðífrinnar. Einmitt sam-
tímis því, er Englendingar lásu
hinn bjartsýna spádóm í The
Observer, hljómuðu um heims-
byggðina neyðarópin úr ung-
verska útvarpinu:
„Hjálp! — Hjálp! — Hjálp.“
Og síðar:
„Sos! — Sos! — Sos.“
★
Eftir á virðist engum vafa und-
irorpið, að Rússar hafi ætíð
verið staðráðnir í að sleppa ekki
tökum sínum á Ungverjalandi.
Greinin í The Observer er tal-
andi tákn þess, hvernig sumum
velviljuðum mönnum lánast ætíð
fram á síðustu stund að loka aug-
unum fyrir því, sem er að gir-
ast. Sök sér er þó að sjá ekki
óorðna hluti. Það er engum okk-
ar gefið, því að flestir erum við
furðanlega skammsýnir. Hitt er
verra að læra ekki af reynslunni
og halda áfram að trúa á fagrar
hugsjónir, þar sem einungis er
um að ræða fyrirlitlega valda-
baráttu og ömurlega kúgun.
Hið sanna eðli kommúnismans
hefur enn sýnt sig þessa dagana.
Meðferðin á Zhukov og óvissan
um, hvað við hann verði gert,
er þar óbrigðult vitni. Dögum
saman vissi enginn utan þrengstu
valdaklíkunnar hvort hefja ætti
þessa fyrri þjóðhetju til æðstu
tignar eða varpa honum í hin
yztu myrkur. S. 1. sunnudag
hældist Þjóðviljinn um yfir þess-
ari óvissu fréttamanna og sér-
fræðinga í Rússlandsmálum.
Hvað um Zhukov verður er
smáræði miðað við örlög ung-
versku þjóðarinnar. En þótt í
smáu sé, sýnir Zhukov-málið að
hugurinn er enn hinn sami þar
eystra, og gat raunar engum
komið það á óvart.
★
En einmitt þegar svo stendur
og sömu dagana og minnzt er
ársafmælis blóðbaðsins ægilega í
Ungverjalandi, þá er félagsmála-
UTAN UR HEIMI
ctmeinu
L p/óá
unum
ráðherra íslands lagður af stað
í pílagrímsgöngu til Moskvu.
Hinn 5. nóvember í fyrra lýsti
íslenzka ríkisstjórnin yfir andúð
sinni vegna atferlis Rússa gegn
Ungverjum. Hún gerði það raun-
ar með einstæðum hætti, sem sé
á þann veg að reyna að breiða
dulu yfir níðingsverkið með því
að jafna því við frumhlaup Breta
og Frakka í Súez. Það frum-
hlaup var óafsakanlegt, enda hef-
ur sá, er þar bar höfuðábyrgð-
ina, orðið að draga sig í hlé frá
öllum stjórnmálaafskiptum. En)
jafnvel þá þegar var öllum heil-
skyggnum mönnum ljóst, að at-
burðirnir í Súez voru ósambæri-
legir við þjóðarmorðið í Ung-
verjalandi. Islenzka ríkisstjórn-
in setti þetta þó að jöfnu, til að
halda frið við kommúnista.
Nú er komið í ljós, hver al-
vara stjórninni var í fordæming-
unni á atferlinu gegn Ungverj-
um. Engum getur til hugar kom-
ið, að félagsmálaráðherrann fari
austur til Moskvu, einmitt nú
þegar hinir ársgömlu atburðir
standa ljóslifandi fyrir hugskots-
sjónum manna, nema með sam-
þykki meðstjórnenda sinna.
Þetta verður þvi ljósara þegar
athugað er, að annar af fylgd-
arsveinum hans er einn af helztu
umboðsmönnum Framsóknar-
flokksins innan verkalýðshreyf-
ingarinnar. Er ekki um að vill-
ast, að þarna eru samantekin
ráð a. m. k. tveggja stjórnar-
flokkanna.
★
I sjálfu sér skiptir það okkur
íslendinga litlu máli, hvað aðrar
þjóðir og valdamenn þeirra gera
í þessum efnum. Þótt við fslend-
ingar séum fámennir, þá erum
við nógu margir til þess að geta
einir gætt sóma okkar. Við hefð-
um því hjálparlaust af öðrum átt
að hafa vit á að senda engan ís-
lenzkan ráðherra þessa pílagríms
för. Þó verður fróðlegt að fá frétt
ir af þvi, hversu margir ráðherr-
ar ú öðrum lýðæðislöndum en ís-
landi verða viðstaddir hátíða-
höldin í Moskvu hinn 7. nóvem-
ber. Um það bil, sem Einar
Olgeirsson kom úr fjölskyldu-
heimboðinu fyrir austan járn-
tjald, birtist í Rétti grein eft-
ir hann, er m. a. segir:
„Þótt það samstarf verkalýðs-
flokkanna, sem nú á sér stað um
ríkisstjórn, sé ýmsum annmörk-
um háð, þá ber þess að gæta, að
þetta samstarf gerir það að verk-
um að ísiand er nú eina landið
utan sósíalistiska heimsins, þar
sem hinir ólíku verkalýðsflokk-
ar hafa tekið saman höndum um
ríkisstjórn. Og þó þetta samstarf
hér mætti vera betra og nánara,
þá er sú staðreynd, að það er
til, mikílvægur vísir þess, er
verða má síðar um Evrópu".
Valdhöfunum í Moskvu þykir
betra að veifa röngu tré en engu.
Utan íslands hefur enginn lýð-
ræðissinni í Evrópu viljað ljá
sig til samstarfs við böðla Ung-
verja. Hannibal Valdimarssyni
verður því vafalaust vel fagnað
af valdhöfunum í Kreml. Fögn-
uður þeirra verður í réttu hlut-
falli við skömm íslenzku þjóð-
arinnar.
Sameinuðu þjóðirnar 12
ára. — Dagsins minnzt
um víða veröld
ÞANN 24. október voru 12 ár
liðin frá því að stofnskrá Sam-
einuðu þjóðanna gekk í gildi. Er
sá dagur talinn afmælisdagur al-
þjóðasamtakanna. Er dagurinn
ár hvert hátíðlegur haldinn um
víða veröld, fyrst og fremst með-
al hinna 82 þátttökuþjóða, en
einnig víðar. Á Norðurlöndum
var dagsins minnzt á líkan hátt
og fyrr. Forystumenn héldu ræð
ur, efnt var til fundahalda,
hljómleika, sérstakir útvarps-
þættir samdir o.s.frv. Það eru
fyrst og fremst félög Sameinuðu
þjóðanna, sem gangast fyrir há-
tíðahöldum í tilefni dagsins, en
hans er einnig minnzt í skólum
og sums staðar á vinnustöðum.
Víða var dagsins minnzt á sér-
kennilegan hátt. í Brazilíu hélt
t. d. Fjallamannafélagið í Ríó de
Janeiró upp á daginn með því,
að félagarnir klifu eitt af hæstu
fjöllunum, sem rísa við borgina.
Fóru þeir áður ókunna stigu upp
fjallið og reistu fána Sameínuðu
þjóðanna á fjallstoppnum. í sjón-
varpinu var efnt til samkeppni
í spurninga og svara stíl, þar sem
verðlaun voru geysihá, en spurn
ingarnar allar um starfsemi Sam-
einuðu þjóðanna, Sveit flugvéla
flaug í rökkurbyrjun yfir borg-
ina og kastað var úr flugvélun-
um upplýsingaritum um sam-
tökin.
í Bandaríkjunum höfðu 5000
borgarstjórar gefið út fyrirmæli
um, að dagsins skyldi minnzt og
voru skipaðar jafnmargar nefnd
ir til þess að sjá um hátíðahöldin
á hverjum stað. 3,200 útvarps-
stöðvar víðs vegar um Bandarík-
in fluttu einnvers konar efni um
SÞ þennan dag og eins gerði
fjöldi útvarpsstöðva víðs vegar
um Ameríku.
Félag Sam. Þjóðanna í Banda-
ríkjunum gaf út svonefnda
„bókahillu SÞ“, en það er safn
bóka um Sameinuðu þjóðirnar.
Útvarpsstöðvar í Tyrklandi,
Grikklandi og ísrael efndu til sér
stakra útvarpsþátta í tilefni dags
ins og var að lokum flutt bæn
í dagskrárlok fyrir Sameinuðu
þjóðunum og framtíð þerira.
í Chile söfnuðust saman 20.000
börn á einum stað til að hylla
fána Sameinuðu þjóðanna. I
Rangoon (Burma) var efnt til
alþjóðlegrar hátíðar þar er sýnd
ur var dans og leikin hljómlist
frá fjölda þátttökuríkja SÞ. í Eg-
yptalandi var ávarpi Dags Hamm
arskjölds, aðalforstjóra Samein-
uðu þjóðanna útvarpað á ensku
og frönsku, eins og hann hafði
talað það, en síðan útvarpað í
arabískri þýðingu.
Norrænir sérfræðingar
í biónustu SÞ
Sænski hagfræðingurinn K. G.
Brolin, sem er aðstoðarforstjóri
hagdeildar menntamálaráðuneyt-
isins sænska, er staddur í Teher-
an um þessar mundir, þar sem
hann vinnur að því að skipu-
leggja skólahagskýrslur landsins.
Það er UNESCO — Mennta-vís-
inda- og menningarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna, sem gekkst fyr-
ir þvi að Brolin var ráðinn til
þessa starfa.
Norskur efnafræðikennari, K.
A. Risan frá Kristiansand, hefur
verið ráðinn til að fara til Ceylon
til þess að leggja á ráð um efna-
fræði og stærðfræðikennslu í
æðri skólum þar í landi.
Risan er einnig á vegum UNES
CO.
ísrael stefnir Búl^aríu
fvrir Albmðadómstól
ísrael hefir kært Búlgaríu fyr-
ir Alþjóðadómstólnum í Haag og
krafizt skaðabóta fyrir farþega-
flugvél, sem skotin var niður yfir
Búlgaríu. 58 manns, 51 farþegi
og 7 manna áhöfn, fórust er flug
vélin var skotin niður þann 27.
júlí 1955.
ísrael heldur því fram, að sl.
tvö ár hafi verið gerðar tilraunir
til þess að komast að friðsamlegu
samkomulagi við stjórnarvöldin
í Búlgaríu um greiðslu skaðabóta,
en þær málaleitanir hafi ekki
borið neinn árangúr. Fer ísrael
fram á, að alþjóðadómstóllinn
skeri úr um það, að Búlgaría sé
skaðabótaskyld og einnig er far-
ið fram á, að dómstóllinn meti
tjónið til skaðabóta.
ísrael bendir á, að allmargir
af farþegunum hafi ekki verið
borgarar í fsrael og að ættlönd
þeirra muni gera sérstakar kröf-
ur um skaðabætur á hendur
Búlgörum.
Alþjóðadómstóllinn mun bráð-
lega taka málið fyrir.
Endurskofrin stofnskrár
SÞ frestað
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð
anna, er nú situr í New Yor, hefir
ákveðið að fresta umræðum um
endurskoðun á Stofnskrá samtak
anna sem samin var og samþykkt
í San Francisco. Verður engin
endurskoðun framkvæmd fyrr en
í fyrsta lagi eftir tvö ár, eða á
Allshe-rjarþinginu 1959.
Ályktunin um, að fresta endur-
skoðun á sáttmálanum, var lögð
fram af sérstakri nefnd, sem
skipuð var 1955 til þess að gera
tillögur um breytingar á Stofn-
skránni, ef þær þættu æskilegar.
Nefnd þessi ákvað á fundi sínum
í sumar, að leggja til við Alls-
herjarþingið, að Srofnskráin yrði
höfð óbreytt enn um hrið.
Á Allsherjarþinginu greiddu 54
þjóðir atkvæði með því að fresta
endurskoðun, enginn greiddi mót
atkvæði, en 9 þjóðir sátu hjá, auk
þeirra sem fjarverandi voru.
Veðurfræðinvar undir-
búa undir brvstilofts-
öld farbewaflu^sins
Framkvæmdaráð Alþjóðaveð-
urfræðistofnunarinnar (WMO)
kom nýlega saman til fundar í
Genf til þess að ræða mjög að-
kallandi mál, en það er hvernig
veðurfræðingar eigi að snúast
við auknum kröfum, sem gerð-
ar verða til þeirra þegar þrýsti-
loftsöld farþegaflugsins heldur
innreið sína fyrir alvöru. Það er
ekki svo ýkjalangur tími til
stefnu.
Framkvæmdaráðið samþykkti
að skípa nefnd sérfræðinga til að
taka málið til rækilegrar með-
ferðar og skila skýrslu um niður-
stöður sínar fyrir næsta ársþing
stofnunarinnar, sem haldið verð-
ur að vori (1958). Það þykir vitað
mál, að gerðar verði enn meiri
kröfur til veðurþjónustunnar, en
nú er gert, þegar flugvélar fara
að þeysast gegnum himingeim-
inn með allt að því 1000—1200
km. hraða á klukkustund. Vafa-
laust þarf að taka í notkun nýj-
ar vélar og breyta til um starfs
aðferðir frá því sem nú tíðkast.
Loks samþykkti framkvæmda-
ráð WMO, að setja á stofn sér-
staka deild innan skrifstofu stofn
unarinnar í Genf, sem á að hafa
það hlutverk, að fylgjast með öll
um nýjungum, sem fram kunna
að koma á þessu sviði.
Fréttir frá SÞ í stuttu
máli
— Fulltrúi Spánar var kjörinn
níundi varaforseti á Allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna á dög
unum. Varaforsetar voru áður 8,
er þátttökuríkin voru aðeins 8,
— Austurríki hefir lánað hinni
nýju Alþjóðakjarnorkustofnun 1
milljón dollara á meðan beðið er
eftir tillögum frá þátttökuþjóð-
unum. Kjarnorkustofnunin hefir
aðalaðsetur sitt í Vín.
— Ghana hefir gerzt aðili að
GATT (Tolla- og viðskiptasam-
komulaginu).
— Sudan hefir gerzt aðili að
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
að Alþjóðabankanum.
Þessi bíll var á bilasýnlngu í Earls Court í London nýlega. Er það tveggja manna Pontiac, model
„Club de Mer“. Þetta er reynslubíll, sem ekki er enn framleiddur til sölu.