Morgunblaðið - 03.11.1957, Síða 23
Sunnudagur 3. nóvember 1957
MORCVNBL4Ð1Ð
23
Slœmt atvinnuástand
norður á
Ekkert atvinnubótafé
SIGLUFIRÐI, 2. nóv. — Atvinnu-
leysið hefur nú knúið á dyr hjá
Siglfirðingum og er það nokkurt
um þessar mundir.
Þess er fyrst að geta að síld-
veiðin brást sem kunnugt er og
hefur því sú vmna sem kringum
saltsíldina er og síldarmjölið ver-
ið hverfandi. Eini vinnumarkað-
urinn er hraðfrystihúsin og nú á
næstunni í tunnuverksmiðjunni.
Mikil og almenn óánægja er og
ríkjandi hér í bænum yfir því, að
af 15 milljón kr. fjárveitingu til
atvinnubóta úti um byggðir lands
ins á þessu ári, skuli ekki hing-
að hafa verið ráðstafað einni ein-
ustu krónu til atvinnuaukningar.
Þó er atvinnuaðstaðan hér þann
ig að eðlilegt hefði verið að
Siglufjarðarbær-sæti í fyrirrúmi
um þessar fjárveitingar.
Eim erfiðara eiga bæjarbúar
með að skiija slíka afstöðu, þegar
nær því á sama tíma, er tveim
Siglufirði
— Neitað um báta
mönnum sem sótt höfðu um aust
ur-þýzka báta, synjað leyfis.
Eina leiðin til atvinnuaukning-
ar hér í þessum bæ virðist vera
að efla útgerðina og fiskiðnað.
Á því eru nú orðnar litlar horf-
ur og því ekki að undra, þó þeir
menn sem hér stunda almenna
verkamannavinnu séu uggandi
um sinn hag á nýbyrjuðum vetri.
í sumar var unnið að endur-
byggingu hafnarbryggjunnar. Nú
skortir fé til áframhaldandi fram
kvæmda. Á fjárlögum 1958, er all
ir útgjaldaliðir virðast hækka,
þá er lækkað framlagið til hafn
argerða.
Mönnum hefur dottið í hug
ein leið til úrbóta í atvinnuleys-
inu hér, en hún er að vinna í vet-
ur við jarðgöngin miklu í hinum
nýja Siglufjarðarvegi fyrir norð
an Stráka, því þá vinnu er hægt
að stunda þótt vetur sé. — Stefán.
Vaxandi óró meðal
tékkneskrar æsku
Óeirðir í mörgum bœjum og flótfatilraunir
TEKKNESK blöð geta stöðugt um óeirðaseggi meðal ungmenna,
skort á hlýðni við málefni kommúnistaflokksins og í einstaka til-
fedum um fangelsanir fólks, sem hafði áformað að steypa ríkis-
Etjórninni af stóli.
„Á ungverskan hátt“
Sagt er að hið síðastnefnda
hafi gerst í Ostrava. Blað komm-
únista þar „Nova Svoboda" seg-
ir að 4 menn hafi verið hand-
teknir og í fórum þeirra hafi
fundizt listi með nöfnum manna
í ríkisstjórninni og kommúnista-
flokknum. Segir blaðið að hinir
handteknu hafi ætlað að með-
höndla þessa menn „á sama hátt
og ungversku fasistarnir léku
suma kommúnista".
Ringulreið
Fleiri blöð hafa í forystugrein-
inn sínum skrifað um þá upp-
lausn og ringulreið sem orðið hafi
vart í bæjum og þorpum og leitt
hafi til ailmargra fangelsana.
12 ára fangelsi
Slóvanska kommúnistablaðið
„Pravda“ segir að 4 ungir menn
hafi verið dæmdir í fangelsi fyr-
ir árás á landamæravörð, en
ungmennin reyndu að flýja til
Ausburríkis. Alþýðudómstóllinn
Sovézki sendiherr-
ann fáorður um
bandarískt lýðræði
NEW YORK, 31. okt. — Banda-
rískir verkamannaleiðtogar eru
andvígir því að skiptast á sendi-
nefndum við verkalýðsfélög í
Ráðstjórnarríkjunum. Sovézki
sendiherrann í Washington,
Georgi Zaroubin, hafði komið
þessari tillögu á framfæri og
stungið upp á, að þetta yrði þátt-
ur í gagnkvæmum menningar-
tengslum, sem stýrt væri af
stjórnum landanna.
George Meany, forseti banda-
rísku verkalýðssamtakanna, lét
þess getið í þessu sambandi, að
verkalýðsfélög í Bandaríkjunum
eru algjörlega óháð stjórninni.
Sagði Meany, að sovézki sendi-
herrann hefði komið upp um,
hversu fáfróður hann væri um
bandarískt lýðræði með því að
skýra Bandaríkjastjórn frá því,
að Ráðstjórnin óskaði eftir að
koma á tengslum milli verkalýðs-
félaga Bandarikjanna og Ráð-
B tjórnarríkj anna.
sem um málið fjallaði, dæmdi
fyrirliða ungmoinanna, hinn 18
ára gamla Willibald Stanzi, í 12
ára fangelsi. Það fylgdi frétt-
inni að þessir fjórir væru allir
í hópi ungs fólks sem dansaði
„rock’n roll“ á næturklúbbum
Bratislava.
Berklaveikir flóttamenn
fá hæli í Danmörku og
Svíþjóð
GENF — Danir, Svíar og Ný-
Sjálendmgar hafa fallizt á að
skjóta skjólshúsi yfir enn fleiri
ungverska flóttamenn, segir í til-
kynningu frá skrifstofu flótta-
mannanefndarinnar. Þ. á. m. eru
allmargir berklaveikir flótta-
menn. Svíar hafa fallizt á að
sjá þegar fyrir 40 berklaveikum
flóttamönnum og fjölskyldum
þeirra, en 28. okt. fóru frá Sví-
þjóð 106 ungir Ungverjar og tvær
fjölskyldur. Danir munu veita
viðtöku 41 berklaveikum flótta-
manni og fjölskyldum þeirra —
alls 125 manns. Og Ný-Sjálend-
ingar munu taka við 300 flótte-
mönnum.
EINAR ASMUNDSSON
hæstarcttarlogmaðui •
Hafsteinn Sigurðsson
hérnðsdómsJögmaður.
Skrifstota Hafnarstræu 5.
Sími 15407.
Magnús Thorlacius
hæstarcttarlögmaður.
Málf lutningsskrif stof a.
Aðalstræti 9. — Sími 11875.
DENTOFIX
heldur gcrvigómnum bctur föslum
DENTOFIX heldur gervigóm-
unum svo fast og vel að þægilegra
verður að borða og tala. Finnst
ekki meira til gervitanna en eigin
tanna. DENTOFIX dregur úr ótt-
anum við að gervigómarnir losni
f'J hreyfist. — Kaupið Deutofix
í dag. — Einkaumboð:
REMEDIA h.f., Reykjavík.
liping
Suðurnesja
heíst á morgun
SKÁKÞING Suðurnesja verður
sett í Ungmennafélagshúsinu í
Keflavík mánudaginn 4. nóv. kl.
8 e. h. Þá verður dregið um röð
og 1. umferð hefst að því loknu
ef tími vinnst til.
Á mótinu er keppt um titilinn
„skákmeistari Suðurnesja 1957“,
en hann veitir rétt til þátttöku
í næstu landsliðskeppni. Keppt
er um Suðurnesjabikarinn í
skák. Núverandi skákmeistari
er Ragnar Karlsson, starfsmaður
a Keflavíkurflugvelli.
Skákfélag Keflavíkur sér um
mótið. í því eru 50—60 félags-
menn, sá yngsti 10 ára. Formað-
ur félagsins er Sigfús Kristjáns-
son, tollvörður á Keflavíkurflug-
velli.
Skólarnir lokaðir til
fimmfudags
Tímarilið Dagskrá
TÍMARITIÐ Dagskrá kom út í
gær, og er það 2. hefti. Er það
efnismikið, birt eru ljóð eftir
þá Guðm. Böðvarsson, Þorgeir
Sveinbjarnarson, Karl ísfeld,
Jón frá Pálmholti og Helga
Kristjánsson. Þar er samtal við
Guðmund Böðvarsson, smásaga
eftir Indriða Þorsteinsson. Þar er
kafli úr leikriti Jóns Dan,
Brönugrasið rauða, og grein eftir
Gunnar Ragnarsson, Markvís
hugsun. Ýmsir smærri þættir um
bókmenntir, hljómlist o. fl.
_______i___________
Ný jólamerki
NÝLEGA eru komin út jólamerki
á vegum Barnauppeldissjóðs
Thorvaldsensfélagsins í Reykja-
vík. Jólamerki þessi verða seld
til ágóða fyrir Barnauppeldis-
sjóðinn, og eru til sölu á Póst-
húsinu, Thorvaldsensbazarnum
og í bókabúðum.
Merki þessi sem eru mjög
smekkleg, hefur Gréta Björns-
son teiknað. Þau eru miðuð við
jólin 1957 og er það ártal prent-
að á þau.
ÞEGAR skólunum var lokað á
mánudaginn var, vegna inflúenzu
faraldursins hér í Reykjavík,
var ákveðið að fyrir næstu helgi
(í gær) skyldi hafa fram farið
athugun á því hvernig heilsufari
kennara í barna- og unglinga-
skólum bæjarins væri háttað.
Voru forföll þeirra kringum 35%
þá er lokað var.
Á sameiginlegum fundi skóla-
stjóra fyrrgreindra skóla hjá
fræðslustjóra í gærmorgun, báru
skólastjórar saman bækur sínar.
Þeir höfðu þá aflað upplýsinga
um það, hver fyrir sinn skóla,
hvernig heilsufari kennaranna
væri háttað. f ljós kom að for-
fallatalan var um 10%. í sum-
um skólum var enn ófært að
hefja kennslu á mánudaginn.
Með hliðsjón af þessu, svo og því
að heilbrigðisyfirvöld bæjarins
telja veikina enn lítt í rémm,
var ákveðið að fresta þar til á
fimmtudaginn að hefja skóla-
starfið á ný. Þá skulu nemendur
fyrrgreindra skóla mæta til
kennslu samkvæmt stundaskrá.
Á fimmtudaginn var Mennta-
skólanum lokað og kennslu frest-
að þar til kl. 10 á mánudaginn
og sú ákvörðun er óbreytt.
Bæjarkraninn á
Akranesi á hafsboni
AKRANESI, 2. nóv. — Á ellefta
tímanum í morgun vildi það til,
að bæjarkraninn hér á Akranesi
hrapaði í höfnina er hann var
að enda við að draga malarfarm
upp úr hafnarferjunni. Steyptist
kraninn með miklum dynk niður
milli hafnargarðsins og ferjunn-
ar, snerti ferjuna, og beyglaði
hana lítilsháttar. Er kraninn nú
á sjávarbotni og stendur aðeins
bóman upp úr, um einn metra.
Mikla mildi má telja að ekki
hlauzt slys af er kraninn hrap-
aði. Kranastjórinn, sem sat í
kranahúsinu, sá hvað verða vildi,
og tókst honum að stökkva út
úr húsinu og niður á hafnar-
garðinn, áður en kraninn fór í
sjóinn. Sakaði hann ekkert.
Ekki er ennþá vitað um hve
miklar skemmdir hafa orðið á
krananum, en von er á Tungu-
fossi hingað eftir helgina, til þess
að ná honum upp. —Oddur.
Samkomur
k. f. u. M.
Kl. 10 f.h. Sunnudagaskólinn.
Kl. 10,30 f.h. Kársnesdeild.
Kl. 1,30 e.h. YD og VD
Kl. 8,30 e.h. Fórnarsamkoma. —
Scra Þorsteinn Björnsson talar. —
Allir velkomnir.
ZION
Sunnudagaskóli kl. 2 e.h. Alm.
samkoma kl. 8,30 e.h. — Hafnar-
fjörður: Sunnudagaskóli ,.1. 10 f.
h. Samkoma kl. 4 eih. Allir vel-
komnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Almennar nmkomur
Boð-in fagnaðarerindisina
Austurgötu 6, Hafnarfirði, á
sunnudögu.n kl. 2 og 8.
Fíladelfía
Sunnudagaskóli kl. 10,30. Brotn
ing brauðsins kl. 4. Almenn sam-
koma kl. 8,30. Ingolf Kolshus tal-
ar. — Allir velkomnir!
Iljálpræðisherinn
Kl. 11: Helgunarsamkoma. Kl.
14: Sunnudagaskóli. Kl. 20,30:
Hjálpræðissamkoma. Kl. 23: Mið-
nætursamkoma. Aðalæskulýðsfull-
trúi, s-major Arvid Strand stjórnar
og talar. Fleiri foringjar og her-
1 menn taka þátt. — Mánudag kl.
16 Peimilasamband. Kl. 20,30 sam-
koma. Sým verður kvikmynd frá
æskulýðsstarfi I Jíoregi.
Bræðraborgarstíg 34
Sunnudagaskóli kl. 1. Almenn
samkoma kl. 8,30. — Ailir vel-
komnir.
Við þökkum sveitungum okkar í Djúpárhreppi fyrir
vináttif og gott samstarf á liðnum árum. Ennfremur
þökkum við höfðinglega gjöf, sem þeir gáfu okkur við
brottför okkar úr sveilinni.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún og Guðmundur
frá Önnu-Parti.
Jarðarför föður okkar
BJARNA SIGURDSSONAR
skrifstofustjóra, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 4.
nóv. kl. 2 e.h. Þeir, sem hefðu hugsað sér að heiðra minn-
ingu hans með blómum eru fremur beðnir að láta Barna-
spítalasjóð Hringsins njóta þess.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Sigurður Bjarnason,
Eiríkur Bjarnason.
Jarðarför konunnar minnar,
ELfNAR HAFSTEIN,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. þessa mánaðar
klukkan lYz eftir hádegi.
Þórhallur Árnason.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð við andlát og útför
RAGNHEIÐAR LÁRUSDÓTTUR BLÖNDAL
Guðmundur Guðmundsson,
og börn.
Þökkum innilega alla vinsemd við fráfall
FRANCISKU OLSEN
Lena Kampmann Hanna Þorsteinsson
og aðrir vandamenn.
Móðir mín
GUÐRÚN HILMANN ÞORSTEINSSON,
andaðist 2. nóv. að EIli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
María Kerff.
Móðir mín og tengdamóðir
SIGRÚN ODDSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 4. nóv.
klukkan 10,30 f. h.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, vinsamlegast
bent á Slysavarnafélag íslands.
Ólafía Sigurjónsdóttir,
Þórarinn Gunnlaugsson.
Hjartans þakklæti til allra fjær og nær, sem auðsýndu
okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför
mannsins míns
GUÐBJARTAR PÉTURSSONAR.
Kristjana Krist jáns.
Börn og barnabörn.