Morgunblaðið - 09.03.1958, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.03.1958, Qupperneq 1
24 síður Rússnesk blöð birta bréfi Eisenhowers MOSKVU 8. marz. - í dag birtu rússnesk blöS texta bréfsins, sem Eisenhower sendi Bulganin 15. febr. sl. Er þetta bréf eitt hið harðorðasta, sem farið hefur á milli þeirra leiðtoganna. í bréfinu er kúgun Rússa á þjóðum Austur-Evrópu gagnrýnd harðlega, og jafnframt er kvart- að yfir því, að rússneska þjóðin fái ekki aðgang að heimsfréttun- um yfirleitt og verði að hlíta boði og banni valdhafanna um hvað hún hlustar á. 12 milljónir lesa bréfið. Vestrænir erindrekar í Moskvu voru undrandi yfir að bréf Eisett howers skyldi vera birt í heild sinni. Það birtist í morgun í flokksblaðinu „Pravda“ og stjórn arblaðinu ,Izvestia‘. Talið er að 12 milljónir manna lesi þessi blöð. Þar sem rússneskur almenn ingur hefur mjög sjaldan átt þess kost, að sjá erlenda gagnrýni á Rússum, verður þessi birting að teljast nýjung. Enginn vafi er á því, að bréf Eisenhowers verður mikið lesið. Birting þess er talin sýna ljós- lega, að rússnesku valdhafarnir ætli að undirbúa ráðstefnu æðstu Framh. á bls. 23. Forsætisráðherra Möltu kominn til London aftur Fyrir nokkrum dögum var sagt frá því í fréttum, að Petro Piordelli biskup í Prato í ftalíu hefði fengið skilorðsbundinn dóm fyrir ummæli sem hann lét falla um hjón, sem gengið höfðu í borgaralegt hjónaband. Kaþólska kirkjan brást hin versta við þessum dómi og er talið að hann muni hafa víðtækar afleiðingar. í rauninni er hér um að ræða valdabaráttu ríkis og kirkju. Myndin sýnir hina mörgu fréttamenn, sem biðu þess í dómsalnum i Firenze að dómurinn yfir biskupinum yrði kunngerður. Búrgíba gefur Frökkum lokafrest TÚNIS, 8. marz. — Búrgíba for- sætisráðherra i Túnis sagði við bandarískan fréttamann í gær- kvöldi, a^ stjórn hans gæti ekki fallizt á að franskir hermenn, sem einangraðir eru í herbúðum á nokkrum stöðum í Túnis, yrðu Þr jú stórslys ■ár 8. marz. — Fimmtíu manns biðu bana í járnbrautarslysi í út- hverfi Rio de Janeiro í Brazilíu í gærkvöldi. Fjöldi manna særð- ist. •fc Tvær bandarískar herflugvél ar rákust á i lofti í grennd við Okinawa á Kyrrahafi í gærkvöldi og hröpuðu i sjó niður. X ann- arri vélinni voru 46 menn, en ekki er vitað um farþegafjölda í hinni né heldur hvort nokkur hefur komizt lífs af. ■ár Átta manns létu lífið í gær- kvöldi þegar egypzk fai'þega- flugvél sökk í Manzalah-vatnið skammt frá Port Said. Vélin var á leið til Alexandríu frá Aþenu og bað um leyfi til að lenda í Kaíró, þar sem hún yrði fyrir- sjáanlega að nauðlenda. Beiðn- inni var synjað og flaug vélin þá áfram og féll í vatnið vegna dimmrar þoku. Átta manns létu lífið, en 18 særðust. BERLÍN, 8. marz. — Tilkynnt hefur verið, aö verkamannaráðin, sem sett voru á laggirnar í verk smiðjum í Austur-Þýzkalandi eftir ólguna í Póllandi og Ung- verjalandi, verði nú leyst upp. Það var höfuðmálgagn austur- þýzka kommúnistafloklisins, „Neues Deutsehland", sem frá þessu sagöi. Segir blaðið, að fulltrúar austur-þýzka verkamannasam- bandsins í 18 stórum verksmiöj- um hafi komizt að þeirri niður- stöðu, að verkamenn geti bezt tekið þátt í stjórn iðnaöarins með fluttir til flotahafnarinnar Bizerta, þar sem franska stjórn- in hefði lýst yfir því, að hún hyggðist halda flotahöfninni og hafa þar lið. Hann sagði ennfremur að óger- legt væri að tryggja vinsamlega sambúð Frakka og Túnisbúa, fyrr en bundinn hefði verið endi á hernað Frakka í Alsír. Búrgíba sagði, að ríkisstjórnir Bandaríkjanna og Bretlands Blóðbaðið í Alsír ALSÍR 8. marz. — Frakkar hafa tilkynnt, að í febrúar hafi þeir drepið nm 3000 Serlci, en misst 360 sjálfir. Ennfremur hafi þeir tekið til fanga um 12.000 upp- reisnarmenn í sama mánuði, en af þeirra eigin mönnum hafi 700 særzt. Á þeim þremur og hálfu ári, sem barizt hefur verið í Alsír, hafa Frakkar því drepið 59.000 menn og tekið 42.000 til fanga. — Sjálfir hafa þeir misst 5.860 menn, en 11,000 hafa særzt. Af almennum borgurum, bæði múhameðstrúarmönnum og Ev- rópumönnum, hafa 28.600 manns annað hvort verið drepnir, særð- ir eða horfið. þátttöku í verkalýðsfélögunum. Þeir meðlimir verkamannaráð- anna, sem mest hafa látið til sín taka, geta nú gefið kost á sér sem ráðgjafar við framleiðsluna eða til annarra starfa innan verkalýðsfélaganna, segir blaðið. Á Þess má geta að Þjóðviljinn skýrði frá því á fimmtudaginn að riístjóri biaðsins Magnús Kjartansson og einn blaðamaður við blaðið væru farnir til A-Þýzkalands í boði hins austur- þýzka blaðs, sem vitnað er til í fregn þessari. hefðu fullan skilning á rétti Tún- isbúa til að krefjast þess af Frökkum, að þeir virði fullveldi og sjálfstæði lands þeirra. Formælandi utanríkisráðuneyt isins í Túnis sagði í morgun, að Búrgíba hefði tjáð meðalgöngu- mönnum Breta og Bandaríkja- manna, að Frakkar yrðu að vera á brott með allan her sinn frá Túnis ekki síðar en 20. marz, en þá eru tvö ár liðin frá að Túnis hlaut sjálfstæði. IMANILA, 8. marz. — Hernaðar- sérfræðingar SEATO, varnar- bandalags ríkjanna í Suðaustur- Asíu, hafa lokið þriggja daga ráð stefnu í Manila, þar sem lögö var síðasta liönd á undirbúning ráð herrafundar bandalagsins í næstu viku. Á síðasta fundinum í morg un var rætt um „hið þýðingar- mikla verk, sem unnið hefði ver- ið með því að byggja upp varn- ir gegn árás kommúnismans í Suöaustur-Asíu. Þegar blaðamenn ræddu við hernaðarsérfræðingana, sögðu þeir, að ekki hefðu verið gerðar neinar ráðstafanir til að byggja SEATO upp á sama hátt og Atlantshafsbandalagið, því slíkt væri ekki nauðsynlegt eins og sakir stæðu.Annars hefði SEATO hliðsjón af NATO og' Bagdad- bandalaginu í starfsháttum sín- um, sögðu sérfræðingarnir. Engar kjarnorkusprengjur I sambandi við notkun kjarn- orkuvopna sögöu þeir, að æfing- ar með þau hefðu þegar verið ákveðnar nokkur ár fram í tím- ann, og mundi að sjálfsögðu verða fylgzt með nýjustu upp- götvunum á þessu sviði. Hins vegar vseri ekki gert ráð fyrir LONDON, . marz. —Mintoff for- sætisráðherra Möltu kemur til Lundúna í dag til viðræðna við brezk stjórnarvöld um framtíð eyjunnar. Meðal umræðuefna verður efnahagsaðstoð Breta við Möltu og tilraunir til að taka upp annars konar iðnað og fram- leiðslu á eyjunni, en hingað til hefur verið. Er vonast til að það geti veitt hafnarverkamönnum og öðrum íhlaupavinnu, þegar lítið er um önnur verkefni. Þetta er fyrsta heimsókn Min- toffs til Lundúna, síðan þingið á Möltu samþykkti tillögu sem hann hafði lagt fram þess efnis, að Malta væri ekki bundin af skuldbindingum við Breta fyrr en öllum hafnarverkamönnum, sem sagt hefði verið upp störf- um, yrði tryggð vinna. Eftir að Lennox-Boyd nýlendumálaráð- herra hafði fullvissað stjórnina neinum kjarnorkusprengingum á vegum SEATO. LONDON, 8. marz. — Sir Hart- ley Shawcross, sem verið hefir einn af áhrifamestu þingmönn- um brezka Verkamannaflokksins síðan hann var kosinn á þing 1945, mun láta af þingmennsku innan skamms. Hefur hann skrif 3ir Hartley Shawi á Möltu um fyrirætlanir Breta, var tillagan lögð til hliðar. Hins vegar gerði hún vandamálið í sambandi við sameiningu Möltu og Bretlands allmiklu flóknari, en á síðasta hausti hafði að mestu verið gengið frá samningum um slíka sameiningu, og hefur brezka stjórnin enn fullan hug á að hrinda hugmyndinni í fram- kvæmd. Dýr farmur gerSur upplækur YOKOSUKA, Japan, 8. marz. — Á þriðjud. tók öryggilögregla bandaríska flotans rúm fimm pund af heróíni um borð í banda- rísku skipi. Var þetta tilkynnt í dag og þess jafnframt getið, að í smásölu hefði andvirði þessara 5 punda verið um 300.000 dollarar eða um 6 milljónir islenzkra króna. Lögreglumennirnir höfðu fengið ábendingar frá bandarísk- um liðforingja og fóru þeir um borð í skipið þegar það kom til Yokosuka frá Hong Kong. Eitur lyfin voru falin í ferðatöskum með fölskum botnum. að kjósendum sínum bréf, þar sem hann segir, að ástæðurnar fyrir þessari ákvörðun séu ekki pólitískar, heldur sé hér um að ræða einkamál hans og fjölskyld unnar. Sir Hartley segir í bréfi sínu, að barnalegt væri að ætla, að hann hefði ekki verið ósamþykk- ur ýmsum tillögum og stefnu- málum Verkmannaflokksins, t. d. ráðagerðum um frekari þjóð- nýtingu iðnaðarins og ýmis atriði i stefnu flokksins varðandi ut- anríkismál, landvarnir og menntamál. Hann sagði, að nán- ari samvinna tveggja helztu flokkanna um síðastnefndu at- riðin væri æskileg. En hann ítrekaði að hann léti ekki af þing mennsku vegna pólitískrar mis- klíðar við flokk sinn. Sir Hartley Shawcross gegndi fyrst embætti saksóknara ríkis- ins, en var verzlunarráðherra þegar Verkamannaflokkurinn fór með völd eftir siðari heims- styrjöld. Hann tók mikilvægan þátt í Núrnberg-réttarhöldunum : • stríðsglæpamönnum nazista. Verkamannaráðin leysf upp Rúðherrafiundur SEATO é næsfiu viku Shawcross lætur af "liitgmennsku « > 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.