Morgunblaðið - 11.05.1958, Side 14
14
MORCUNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 11. maí 1958
Svipmyndir frá Tékkóslóvakíu
Þjóðleikhúsið I Prag.
ÞAÐ eru allmargir íslendingar,
sem ferðazt hafa til Tékkósió-
vakíu, sérstaklega á síðari árum
og þá fyrst og fremst í viðskipta-
erindum, því eins og kunnugt er,
hafa mikil viðskipti farið
fram milli íslands og Tékkósló-
vakíu eftir að síðari heimsstyrj-
öldinni lauk. Hafa þau við-
skipti færzt í aukana jafnt og
þétt síðan, enda eru það margir
vöruflokkar, sem við getum
keypt af Tékkum og hafa vörur
þeirra yfirleitt átt vinsældum að ,
fagna hér á ' landi bæði fyrir'
gæði og eins vegna þess að verðið
er frekar lágt á tékkneskum vör_ 1
um miðað við frá öðrum löndum
og hæfir vel kaupgetu íslenzkra
neytenda. — En Tékkóslóvakia
með allan sinn stórvaxna iðnað |
og viðskipti út um allan heim, er j
einnig mjög skemmtilegt land '■
heim að sækja á öðrum sviðum |
og ef menn viija leggja leið sína j
þangað til lengri eða skemmri j
dvalar, þá mun auðveldlega vera
hægt að eyða tímanum þar á
margvíslegan hátt, því landið hef
ir margt upp á að bjóða. Náttúru-
fegurð er þar víða mikil og í
Suður-Slóvakíu rísa hin þekktu
og þaðan um margar aldir runnið
straumar lista og menningar á
mörgum sviðum, myndlistar,
húsagerðarlistar og ekki sizt tón-
listar. Enda virðist svo, sem hverj
um Tékka sé í blóð borinn tón-
listarhæfileiki og má fullyrða að
hljómsveitir þeirra bjóða ekki
upp á annað en það bezta á
tónlistarsviðinu og þekkjum við
íslendingar mörg af hinum sí-
gildu tónverkum tékkneskra tón-
skálda, en verk þeirra A. Dvorak
og Smetana munu einna þekkt-
ust hér á landi, einníg eftir Z.
Fibich (1850-1900) Janácek
1854—1928) o. fl.
í Prag eru tvær óperur, Ríkis-
óperan og Smetana-leikhúsið,
sem eru, þegar inn er komið
hreinustu furðuverk hvað skraut
og listrænan frágang snertir. Eru
þar að jafnaði flutt tónverk og
óperur eftir alla þekktustu meist-
ara heimsins og er það sérstæður
viðburður að hlusta á vel flutta
óperu þar af menntuðum og
— Re/kjavíkurbréf
Framh. af bls. 13
góðan árangur, stefnan út á við
hefur verið mörkuð og inn á við
hafa ekki komið upp nein þau
ágreiningsatriði, sem hættuleg
geti verið samtökunum. Sterkasti
aðilinn innan Atlantshafsbanda-
lagsins er Bandaríkin, en þrátt
fyrir það hafa minni þjóðirnar,
eins og glöggt kom fram á Par-
ísarfundinum í desember, talið
það rétt sinn og skyldu að láta
röggsamlega til sín taka þar við
hlið Ameríku, áður en endanleg-
ar ákvarðanir eru teknar. Þetta
dregur engan veginn úr því að
styrkur Ameríku hlýtur að vera
„Þyngsti hnefinn", sem banda-
lagsþjóðirnar geta lagt á borðið,
þegar um átök í alþjóðamálu.n
eru að ræða. Þetta kom Ijóst
fram í París og það hefur enn
verið staðfest í Kaupmannalröfn.
Atlantshafsbandalagið stendur
sterkum fótum og sá tvístringur
og kolfningur, sem gert hafði vart
við sig á árinu sem leið, virðist
nú að verulegu leyti vera yfir-
unninn og að nú sé miklu bjart-
ara yfir samtökum hinna vest-
rænu þjóða en þá virtist vera um
tíma.
Orava-kastalinn í Slóvakíu.
og tignarlegu Tatrafjöll, sem
margir heimsækja bæði til sum-
ardvalar og eins til þess að
stunda þar vetraríþróttir. Þar eru
fyrsta flokks gistihús, sem starf-
rækt um allan ársins hring, og
þeir sem þangað hafa komið
róma þar mjög allan viðurgern-
ing, því ekkert mun skorta þar
á til þess að gera gestum dvölina
sem skemmtilegasta. — Annars
er hótel-mennmg á mjög háu
stigi í Tékkóslóvakíu og verður
þess ekki sízt vart í höfuðborg-
inni sjálfri, Prag; þar eru stór
og falleg gistihús, sem standa
öðrum evrópskum gistihúsum
ekki að baki og fæðið er gott
og öll þjónusta með afbrigðum
lipur.
Það sem maður verður fyrst
og fremst var vxð í fari Tékka,
er kurteisi þeirra og hjálpsemi.
Svo virðist, sem allir leggi sitt
bezta fram til þess að verða
manni að liði á hvaða sviði sem
er. Þótt tunga þeirra sé erfið og
gjörólík Vestur-Evrópu málum,
þá þarf hún ekki að valda nein-
um vandræðum — þar sem allur
fjöldinn skilur og talar annað
hvort ensku eða þýzku. Höfuð-
borgin Prag er gömul og forn-
fræg borg og hefir að geyma ótal
minningar og fagrar byggingar,er
minna á miðaldamenningu M.-Ev
rópu og má segja að hún standi í
hjarta álfunnar og hafa þangað
þraut-þjálfuð’im tónlistarmönn-
um. — í Prag eru svo auðvitað
margir skemmti- og dansstaðir
bæði í fornum og nýjum stíl
og einnig fallegir veitingasalir
í sambandi við hótelin og allir
eiga þessir staðir sammerkt í því
að tónlistin hverju nafni sem
nefnist er hrífandi og sú bezta
sem völ er á.
Víðs vegar um Tékkóslóvakíu
eru margar fornar byggingar og
lastalar, sem komið hafa mikið
við sögu Evrópu á öllum tímum
og eru þeir nú minjasöfn um þá,
sem reistu þessi mannvirki og
sem bjuggu þar fyrr á öldum, sem
voru bæði meiri og minni háttar
konungar og þjóðhöfðingjar. Er
öllum þessum byggingum og
ævagömlum höllum haldið við og
kemur fjöldi ferðamanna á þessa
staði og fær að kynnast í stórum
dráttum sögu þeirra og uppruna.
Heilsulindir (Spas) eru á mörg
um stöðum í landinu og hafa
risið þorp eða smáborgir í kring
um- þær með nýtízku gistihúsum
og hafa upp á margt að bjóða
þeim, sem þangað leita, sér til
hvíldar og hressingar. Þekktastir
þessara staða munu vera Carlovy
Vary (áður Karlsbad) Marien-
bad, Luhacovic o. fl.
Eins og áður getur, eru
margar fornar og fagrar bygg-
ingar í Prag og má þá fyrst og
fremst nefna kastalann (Hrad-
cany) þjóðminjasafnið og marg-
ar fallegar kirkjur frá ýmsum
tímum. T. d. St. James kirkjan,
sem byggð er í barok-stíl, er
mjög fögur og tignarleg, og að
innan er hún eitt undravert lista-
verk, sem ekki er hægt að lýsa
með orðum og svo má Segja um
fleiri af þessum skrautlegu bygg-
ingum, eins og t. d. Ríkisóperuna,
sem stendur á bökkum Vltava
(Moldau) og er hún bæði utan
og innan hvert sem augum er
litið ein samfelld heild af list-
rænum frágangi. — Með öllum
þessum gömlu og skrautlegu höll
um, kirkjum og fornum og nýj-
um minnismerkjum er Prag
ein fegursta höfuðborg Evrópu
og munu allir, er þangað ferðast
geyma um hana skemmtilegar
minningar og áhrif bæði um for-
tíð og nútíð þessarar gömlu borg-
ar í hiarta Evrópu.
Árið 1956 tóku tékknesk yfir-
völd upp svonefnt ferðamanna-
gengi til þess að gera sem flest-
um útlendingum auðveldara að
ferðast til landsins og á þessu
gengi greiðir maður sem svarar
% af raunverulegu gengi tékk-
nesku krónunnar, en hún sam-
svarar 1 enskum shilling (ísl.
kr. 2,27). Vegna þessarar ráðstöf-
unar hefir ferðamannastraumur-
inn til Tékkóslóvakíu margfald-
azt upp á síðkastið og enda þótt
verð á flestu sé frekar hátt, þá
verður útkoman samt ferðamann
inum í hag, þar sem hann greiðir
aðeins sem svarar kr. 0,75 fyrir
hverja tékkneska krónu.
Það mætti skrifa óralangt mál
um land þetta og þjóðina, sem
það byggir, en slíkt gæti orðið
efni i heila bók en ekki í tak-
markaða blaðagrein og mun því
hér verða staðar numið að sinni.
Tilgangurinn með grein þessari
er fyrst og fremst sá, að benda
þeim íslendingum, bæði þeim
sem ferðast oft og fara víða og
eins hinum sem sjaldnar „leggja
land undir fót“, á þá möguleika,
sem ferðalag til Tékkóslóvakíu
færir manni og þá sérstaklega
hvað snertir hið lága ferðamanna
gengi, sem gerir öllum fært að
fá sem mest út úr þeim gjald-
eyri, sem veittur er til utan-
ferða. — Oft þegar minnzt er á
ferð til Tékkóslóvakíu, er eins og
einhver beygur geri vart við sig
slóvakíu, mun ekki hafa það á
tilfinningunni að hann sé að fara
í gegnum einhverja torfæru eða
hreinsunareld, heldur þvert á
móti mun hann verða var við
tékkneska gestrisni og alúðlegar
móttökur, hvaðan úr heiminum,
sem hann er og mun allt verða
gert til þess að greiða götu hans
og gera honum dvölina sem
ánægjulegasta.
Til þess að fá sem beztar upp-
lýsingar um hvernig ferðalagi
skuli háttað til Tékkóslóvakíu,
er bezt að snúa sér til Ferða-
skrifstofu Ríkisins, sem getur
gefið fullkomnar leiðbeiningar
um allt er að því lýtur.
Lárus Jónsson.
Sumarstarf kven-
skáta að Úlfljóts-
vatni
KVENSKÁTASKÓLINN að Úlf-
Ijótsvatni mun verða starfræktur
frá 24. júní til 18. ágúst. Sú breyt-
ing verður á, að starfað verður í
flokkum. og verður dvalartími
hvers flokks tvær vikur. Er
þetta aðallega gert vegna þess, að
aðsókn að skólanum hefur verið
það mikil, að ekki hefur verið
hægt að sinna öllum umsóknum,
sem borizt hafa. Með þessu
móti er hægt að gefa fleiri stúlk
um kost á að dvelja þarna í sum-
arleyfum sínum og njóta hollrar
útivistar um leið og þær læra
ýmislegt, sem getur komið þeim
að gagni og veitt þeim ánægju.
Dvalartími skiptist, sem hér
segir:
Frá 24. júní—7 .júlí
— 8. júlí—21. júlí
— 22. júlí—4. ágúst
— 5. ágúst—18. ágúst
Fyrri mánuðurinn verður aðal-
lega fyrir Ijósálfa 8—10 ára, en
seinni mánuðurinn fyrir skáta-
stúlkur 11—13 ára og éldri.
Umsóknir um skólavist, þar
sem tilgreint er nafn, aldur,
heimilisfang, sími. dvalartími og
í hvaða skátafélagi viðkom. er,
sendist til Kvenskáta-skólans að
Úlfljótsvatni Pósthólf 831, R.vík.
Fjallgöngur eru vinsæl íþróttagrein.
hjá sumum, að ætla sér að takast
ferð á hendur „austur fyrir járn-
tjald“ eins og það er kallað. En
óhætt er að fullvissa hvern sem
er um það, að hver sá ferðamað-
ur, sem leggur leið sína til Tékkó