Morgunblaðið - 10.08.1958, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.08.1958, Blaðsíða 18
18 MORCVNBLAÐIÐ Sunnudagur 10. ágúst 1958 ^J^venfjóÉin oc^ heimiíiS Brezkir baðmullar- kjólar á alþjóða- sýningunni í Briiss- el. Myndirnar sýna það bezta í brezk- um baðmullariðn- aði. — ' Teikningarnar eru eftir Paul Christodoulou. SKAK 1. Ballkjóll úr dökku ein- litu efni. Íburðarríkt sjal (nælt saman með slaufu að framan), úr hvítu efni með hand- saumuðum appelsínu- gulum rósum. 2. Létt sumardragt. Aðal- liturinn er ljósbrúnn með svörtu rósamunstri. 3. Súkkulaðibrún kápa með svörtum röndum. Samlitur kjóll. Kápan opnast að framan, — tölulaus. 4. Síður ballkjóll úr gráu og svart-köflóttu efni. Stór slaufa að framan lyftir upp aðalpilsinu og sýnir hvítt músselín undirpils. 5. Hvítur blúndukjóll — undirlitur appelsínu- gult. Herðasjal hvítt. Tízkumyndir frá Englandi MARGIR skákunnendur sakna Ameríkumannsins S. Reshewsky úr interzonal keppninni í Port- oroz, sem fram fer um þessar mundir. En Reshewsky hefur lýst sig andvígan öllum skákmótum er F. I. D. E. (Alþjóðaskáksam- bandið) hefur á sínum vegum og tekur þar af leiðandi ekki þátt í þeim! Hér kemur stutt en hörð skák, sem Reshewsky vinnur af stór- meistaranum M. Vidmar í Nott- ingham 1936. Hvítt: S. Reshewsky. Svart: Dr. M. Vidmar. Móttekið drottningarbragð. 1. d4, d5; 2. c4, c6; 3. Rf3, Rf6; 4. e3, e6; 5. Bd3, dxc4; 6. Bxc4, c5. Báðir aðilar hafa gefið einn leik, og eru nú komnir í móttekið drottningarbragð. 7. o-o, a6; 8. Rc3, b5; 9. Bb3. Annar mögu- leiki er 9. Bd3. 9. — Bb7; 10. De2, Rc6; Rangur reitur fyrir riddar- ann. Betra er 10. — Rbd7, sem heldur opinni skálínunni h8—hl. Mörgum verður á sú skyssa að leika 10. — c4, og síðan b4, en fá ekki rönd við reist, þegar hvítur sækir fram með e4 og d5. 11. Hdl, Db6; 12. d5!, exd5; Ef 12. — Rxri5 þá 13. Bxd5, exd5; 14. Rxd5 og síðan e4 og Bf4. ABCDEFGH 17. — f6 þá 18. Bf4 og kóngurinn á e8 á hvergi skjól. 18. Hxd5, o-o; 19. Hd7, Bd8; Ekki 19. — Bgð vegna Rxg5. 20. Hcl. Hótar b4. 20. — Bc7; 21. De3, Rb8; 22. He7, Bxf3; 23. Dxf3, h6; Betra var 23. — Rc6. 24. Bf4, Bd6? Tapar strax. 25. Hb7!, Dd8; 26. Hdl, gefið. IRJóh. SKÁKÞRAUT ABCDEFGH ABCDEFGH Hvítur mátar í 3. leik. f síðasta þætti kom fyrir skemmtileg leikþröng. 1. Hh4, Bd4; 2. Hf4! og svartur fær ekki varizt máti. 2. — Be5; 3. Hb4, mát. ABCDEFGH Staðan eftir 12. — e6xd5. 13. e4! Reshewsky notar mögu- leikana til hins ýtrasta. Peðsfórn, sem skapar hraða liðskipan. 13. —dxe4(?) Bezt var 13. — o-o-o; t. d. 13. — d4; 14. e5, Rg8; 15. Rd5, Dd8; 16. Rg5! og hótar Rf6t; 14. Rxe4, Rxe4; 15. Dxe4t, Be7; 15. — Re7 hrekkur skammt vegna 16. Df4, Df6; 17. Dc7, Bc6; 18. Re5! c4; 19. Bg5. 16. Bd5, Hd8; 17. Bg5, Hxd5; Skásti möguieikinn. T. d. Nmarilið „Akranes 2. hefti 1958 BLAÐINU hefur borizt 2. hefti þessa árgangs af tímaritinu „Akranes". Það hefst á annarri grein Sigurðar A. Magnússonar um Sameinuðu þjóðirnar, og nefnist hún „Fullveidi og fram- kvæmdava!d“. Fylgja greininni nokkrar myndir og forsíðumynd er af sendinefnd íslands hja S. þ. Næst er stutt grein um Sem- entsverksmiðjuna á Akranesi. Þá er löng grein eftir dr. Guðbrand Jónson um Sir Thomas More með mynd. Því næst gömul grein eftir Þorstein Gíslason ritstjóra, tekm úr „Sunnanfara" febrúar 1897, og nefnist hún „Endurlit yfir is- lenzkan skáldskap og bókmennt- ir 1896“. Páll Gíslason læknir skrifar um „íþróttirnar og slys- in“. Næst er langt erindi eftir Sig- urjón Jónsson lækni, sem hann flutti á Dalvík árið 1912. Nefnist það ,„,Verðandi“-menn“ og fjall- ar, eins og nafnið bendir til, um þá menn sem stóðu að hinu merka bókmerintatímariti „Verð- andi“. Þá er stutt grein um farþega- skipið „Akraborg“ og uppdráttur af Skipaskaga með skýringum, Ól. B. Björnsson skrifar um Dr. theol. Friðrik Friðriksson: „Ní- ræður nytjamaður“. Næst er þátturinn „Um leiklist" eftir Ólaf Gunnarsson, og skrifar hann um leik- og danssýningar í Reykja- vík. Þá er kvæðið „Rotaryklúbb- ur Akraness 10 ára“ eftir Ragnar Jóhannesson. Því næst er þáttur- inn „Tónlistarmál“. í þessu hefti er ennfremur 61. þátturinn úr sögu Akraness eftir Ól. B. Björnsson, og nefnist hann „Vorhugur og vélaöld gengur í garð“. Er þar fjallað um Laufás að þessu sinni. Loks eru greinar um Leikfélag Akraness og Landhelgismálið, og svo „Annáll Akraness". Auk þess eru ýmsar smærri greinar í heft- inu. Það er 60 lesmálssíður að stærð, prýtt allmörgum myndum. „KIassísk“, tvíhneppt kápa, jafnhentug fyrir svelt og kaup- stað. Stórköflótt úr hvítu og svörtu ullarefni. Meðfylgjandi, srnekkleg og latlaus Persian-lambskinnshúfa. Crayson Model: Smásöluverð 14 !4 gns. « Þessi valmúarauða jerseydragt er sérstaklega klæðileg fyrir ungar stúlkur. Jakkinn er stuttur í mittið og frjáls við pilsið. Stór kragi, sem Iiggur út á herðarnar og gefur fallegum hálsi tækifæri til þess að njóta sín! AKRANESI, 8. ágúst — 13 ára drengur, Pétur Kristjánsson, frá Selfossi, var í sveit í sumar vest- ur í Hítardal. Dag nokkurn var hann á traktornum að ýta hey- görðum. Eitt sinn á miðri leið heim í hlöðu rak hann óvart hægri höndina í öxulinn og brotnaði þumalfingurinn. Pétur litli hefur nú verið í tvær vikur hér í sjúkrahúsinu og er á góð- um batavegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.