Morgunblaðið - 10.10.1958, Síða 1
24 síður
Ríkisstjórnin lofaði oð kauphœkkun Dags-
brúnarmanna yrði sem fyrst jöfnuð með
nýjum verðhœkkunum
Yfirlýsingunni átti ao halda leyndri
fram yfir Alþýðusamhandskosningar
I GÆRKVÖLDI efndi stjórn
Verkamannafélagsins „Dags-
brún“ til almenns félagsfund-
ar í Iðnó. Var hér um nokkurs
konar framboðsfund að ræða
í sambandi við kjör fulltrúa
félagsins á 26. þing ASÍ, en
kosningar þær fara fram með
allsherjaratkvæðagreiðslu nk.
laugardag og sunnudag. —
Margir félagsmenn tóku til
máls á fundinum og deildu
hart á hina kommúnísku
stjórn félagsins fyrir alvar-
lega vanrækslu í mikilvæg-
um hagsmunamálum Dags-
brúnarmanna og fyrir marg-
vísleg bolabrögð, sem komm-
Únistar beittu innan félagsins
til þess að reyna að halda
völdum, þótt þeir væru raun-
verulega í miklum minni-
hluta í félaginu. Mesta athygli
vakti á fundinum yfirlýsing
sú, sem upplýst var að Her-
mann Jónasson, forsætisráð-
herra, og Lúðvík Jósefsson,
sjávarútvegsmálaráðherra,
hefðu gefið vinnuveitendum
í sambandi við lausn nýaf-
staðinnar kjaradeilu Dags-
brúnarmanna.
Kauphækkun gerð að engu
Meðal þeirra, sem til máls tóku
á fundinum var Jóhann Sigurðs-
son. Las hann upp áðurnefnda
yfirlýsingu ráðherranna, sem
liggur fyrir skjalfest. Hljóðax
yfirlýsingin á þessa leið:
„Sú meginregla skal gilda
við ný verðlagsákvæði eftir
gildistöku hins nýja Dags-
brúnarsamnings, að miðað sé
við hið umsamda kaup við
ákvörðun verðlagningar og
nýjar verðreglur ákveðnar
sem fyrst, hafi kaupbreyting-
in teljandi áhrif á verðlags-
útreikninginn.“
Þessu mjög veigamikla atriði í
sambandi við lausn vinnudeil-
unnar kvað Jóhann Dagsbrúnar-
stjórnina algerlega hafa stungið
undir stól, þegar hún gerði Dags-
brúnarmönnum grein fyrir samn-
ingunum, og væri hér um að ræða
stórvítaverða framkomu gagn-
vart félagsmönnum, því að sýni-
legt væri af yfirlýsingu þessari,
Lœknir páfans brast í
grát við andlát hans
Kardinálar flykkjasf til Róm
RÓM, 9. október. — Píus páfi
lézt í nótt. Hann hafði ekki kom-
izt til meðvitundar siðan um há-
degishil í gær. Nánustu samstarfs
menn hans læknar — alls um 30
manns, voru viðstaddir andlát
páfans. Stöðugt dró af páfa og
þegar að lokum kom var andar-
dráttur hans vart greindur. Það
tók líflæknir hans 5 mínútur að
ganga úr skugga um að páfi væri
andaður og sem hann hafði full-
vissað sig um að hans heilagleiki
var skilinn við brast læknirinn
í grát. Hann var ekki sá eini í
herberginu er grét.
Skömmu síðar var andlát páfa
tilkynnt í Páfagarði og kirkju-
klukkum um gjörvalla Ítalíu var
hringt.
Lík páfa stendur á börum í
Castelgandolfo og söfnuðust þús-
undir manna til þess að ganga
framhjá líkbörum páfans, en
áður hafði Ítalíuforseti farið til
Castelgandolfo og var hann fyrsti
maðurinn til þess að votta hinum
látna kirkjuhöfðingja virðingu
sína. Féll Gronchi á kné við fóta-
gafl líkbaranna og baðst fyrir. Á
eftir honum fylgdu fulltrúar yfir
50 erlendra ríkja, sem allir féllu
á kné við líkbörurnar.
Þjóðarsorg var fyrirskipuð á
Italíu og milljónir manna gengu
til kirkju í dag til þess að biðja
fyrir páfa. Um allan hinn vest-
ræna heim er söknuður, þjóðhöfð
ingjar hafa látið í Ijós hryggð
sína og milljónir kaþólskra voru
harmi lostnar. Eisenhower sagði:
Heimurinn er fátækari. Svipuð
ummæli viðhöfðu margir fremstu
menn vestrænna þjóða.
Kardínálar búast nú til Rómar-
ferðar eða eru komnir þangað,
til þess að kjósa og verða við
krýningu nýs páfa, en kosningin
má ekki fara fram fyrr en 18
dögum eftir dauða páfa. 15
kardínálar kusu í dag einn úr
sínum hópi til þess að gegna störf
um páfa þar til hinn nýi verður
Framh. á bls. 23.
að kauphækkun sú til Dagsbrún-
armanna, sem kommúnistar
gumuðu af sem miklu afreki,
hefði náðst fram með því einu
móti að lofa vinnuveitendum, að
kauphækkuninni yrði „sem
fyrst“ skilað aftur í hækuðu
verðlagi.
Augljóst væri, að ríkisstjórn-
in og Dagsbrúnarstjórnin hefðu
í sameiningu ætlað að leyna
Dagsbrúnarmenn þessari mikil-
vægu staðreynd fram yfir kosn-
ingarnar til Alþýðusambands-
þings, því að Vinnuveitendasam-
bandinu hefði verið bannað að
birta yfirlýsinguna.
Fátt um svör
Birting yfirlýsingar þessarar
kom sýnilega mjög illa við komm
únistaforkólfana og voru svör
þeirra vafningar einir. Eðvarð
Sigurðsson sem er helzta málpípa
kommúnista í Dagasbrún missti
algjörlega stjórn á skapsmunum
smum í umræðunum um yfir-
lýsinguna, hrópaði allskyns ó-
kvæðisorð og barði í sífellu í
ræðupúltið. Afneitaði hann með
hörðum orðum yfirlýSinugu ráð-
herranna. Aðrir ræðumenn tóku
undir fordæmingu Jóhanns á
félagsstjórninni fyrir að leyna
félagsmenn þessu atriði. —
Hvöttu þeir Dagsbrúnarmenn til
að svara þessu trúnaðarbroti
stjórnarinnar og öðrum misfell-
Um hennar í skyldustörfum sín-
um á þann eina verðuga hátt að
vinna sem ötullegast fyrir B-list-
ann við kosningarnar um næstu
belgi og tryggja á þann hátt, að
með umboð Dagsbrúnar á næsta
Alþýðusambandsþingi færu
menn, sem á stéttarlegum grund
velli og á lýðræðislegan hátt
vildu vinna að hagsmunamálum
verkalýðsins.
Þegar þetta er ritað, var fund-
inum ekki lokið, en nánar verður
sagt frá umræðum á fundinum í
blaðinu á morgun.
Umhverfis Tunglib?
WASHINGTON, 9. október.
— Á laugardagsmorguninn
ætla Bandaríkjamenn að
reyna að skjóta eldflaug með
gervihnetti, sem á að ganga
umhverfis tunglið. Eldflaug-
in fer með 40,000 km. hraða,
en gervihnötturinn er 12 kg.
Ef allt gengur að óskum á
eldflaugin að komast til
tunglsins á 60 stundum. Eld-
flaugin er fjögurra þrepa, veg
ur 50 smálestir og er 30 metr-
ar á lengd. Sjónvarpstæki eru
í gervihnettinum.
«>-
Jens Otto Krag utan-
ríkisráðherra Danmerkur
JENS OTTO KRAG hefur nú
tekið við utanríkisráðherra-
embætti í Danmörku. Hann er
44 ára gamall og hefur farið með
málefni utanríkisverzlunarinnar
í dönsku stjórninni. Hann hefur
um árabil starfað í jafnaðar-
manr.fl. og einnig lengi starfað að
utanríkismálum Dana og var m.a.
um skeið fulltrúi í sendiráði
þeirra í Washington. Vegna veik
indaforfalla H. C. Hansen, hefur
Kampmann fjármálaráðherra
tekið við forsætisráðherraembætt
inu um stundarsakir. Þegar
Hansen verður aftur heill heilsu
mun hann að nýju setjast í for-
sætisráðherrastól, en Krag mun
áfram gegna utanríkisráðherra-
embætti.
Við gefumst aldrei upp
— sagði Chiang Kai-Shek
TAIPEI, 9. okt. — Þjóðernis-
sinnar hafa í dag haldið uppi
geysimiklum vopna- og vista-
flutningum til Quemoy og ann-
arra smáeyja við meginlands-
ströndina. Bandaríski flotinn
veitir flutningalestunum vernd
sem fyrr — og meðal þjóðernis-
sinna virðist bera á ótta um að
kommúnistar kunni að hefja skot
hríð sína fyrr en þeir sögðu áð-
ur. Chiang Kai-Shek flutti ræðu
í dag þar sem hann sagði, að
smáeyjarnar við meginlandið
yrðu aldrei látnar af hendi við
kommúnista. Ef kommúnistar
ætluðu að taka eyjarnar með
valdi og sýna enn einu sinni
íslendingar taka ekki hagsmuni
annarra til greina — segir John Hare
íhaldsmenn lýsa fullum stuðningi við
sfefnu brezku stjórnarinnar
BLACKPOOL, 9. okt. — Á ársþingi brezka íhaldsflokksins var
stefna brezku stjórnarinnar í deilunni um fiskveiðitakmörkin við
ísland samþykkt einróma. 1 umræðum um málið voru menn mjög
hógværir. Margir sögðust vel skilja. erfiðleika íslendinga, enda
þótt þeir gætu ekki fallizt á einhliða ákvörðun íslenzku stjórn-
arinnar um útfærslu fiskveiðitakmarkanna frá 4 mílum í 12 mílur.
John Hare, landbúnaðar- og
sjávarútvegsmálaráðherra, sagði,
að lausn málsins væri ekki hugs-
anleg nema við samningaborðið.
Sagði hann brezku stjórnina ætíð
reiðubúna til viðræðna og kvaðst
vona, að hægt yrði að kveðja
saman sjóréttarráðstefnu strax
og hinum nauðsynlega „diplomat
iska“ undirbúningi væri lokið.
En því miður virðast íslending
ar ófúsir til viðræðna og taka
ekki hagsmuni annarra til greina.
O—★—O
Ennfremur sagði Hare, að ekki
Iægju fyrir vísindalegar stað-
hæfingar um að gengið hefði
verið á þorskstofninn á íslands-
miðum, og enda þótt slík stað-
hæfing væri fyrirliggjandi, þá
mundi hún ekki réttlæta gerð'ir
Islendinga.
Bretar ætla ekki að beita ís-
lendinga ofríki, en aliar þjóðir
verða að beygja sig undir al-
þjóðalög og rétt.
★
Hare sagði einnig, að Bretar
gerðu það ekki með glöðu geði að
senda togurum sínum herskip til
verndar, en þeir gætu ekkert
annað gert. Lausn verður að
finna — og hver svo sem hún
verður, þá verður hagsmuna
brezka fiskiðnaðarins gætt þar.
Kvaðst hann ekki trúa öðru en
íslendingar, Færeyingar og aðr-
ir hlutaðeigandi gætu komizt að
samkomulagi við Breta, fundið
sanngjarna lausn málsins.
★
Einn af þingmönnum íhalds-
flokksins, Patrick Wall, sagði
Framh. á bls. 23.
hvers konar aðferðir þeir kjósa
helzt, þá mun hinn frjálsi heim-
ur rísa sem einn maður gegn
þeim. Við gefumst aldrei upp,
sagði hann.
Utanríkisráðherra þjóðernis-
sinna flutti og ræðu þar sem
hann áfelldist öfl þau meðal lýð-
ræðisþjóðanna, sem vildu fleygja
Quemoy og hinum smáeyjunum
í fang kommúnista aðeins vegna
þess að þeir stöðvuðu skothríð-
ina. Sagði ráðherrann, að slíkt
væri heigulsháttur, sem enginn
virti. Varaði ráðherrann Samein-
uðu þjóðirnar við að gera ráð-
stafanir, sem gengju á rétt þjóð-
ernissinna og væru ofbeldis-
mönnum til hagsbóta.
Síðari fregnir herma, að tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins hafi látið svo um mælt,
að Bandaríkjastjórn mundi gera
allt, sem í hennar valdi stæði til
þess að reyna að fá kínversku
kommúnistana til þess að fram-
lengja „vopnahléið" á Formósu-
sundi fram yfir næstu helgi. —
Yrði málið borið upp á fundi
sendiherra landanna í Varsjá.
Fréttir i stuttu máli
NÝJU DEHLI 9. okt. — Ársþing
Alþjóðabankans hefur samþykkt
að auka stofnfé bankans. Ekki er
vitað hve mikið, en Bandaríkja-
menn hafa borið fram tillögu um
að féð verði aukið um heiming.
BERLÍN — Frægur pólskur rlt-
höfundur hefur flúið til Vestur-
Berlínar og beðizt þar hælis sem
pólitískur flóttamaður. Hann hef
ur verið ritstjóri bókmenntarits
í Varsjá og hlotið bókmemrta- 1
verðlaun.