Morgunblaðið - 10.10.1958, Blaðsíða 2
r
*
MORGVNBLAÐ1B
Föstudagur 10. okt. 1958
Bók effir Hagalín og verk
hans kynnt á vegum AB
GUÐMUNDUR Gíslason Hagalín
er sextugur í dag.
í tilefni af því gengst Airnenna
bókafélagið næstkomancli sunnu-
dag fyrir kynningu á verkum
hans og verður hún haldin í
hátíðasal háskólans og hefst kl.
4,30 e.h. Verður dagskrá þessar
ar bókmenntakynnxngar som hór
segir:
Ávarp flytur dr. Aiexarder
Jóhannesson prófessor og Ar.drés
Björnsson skrifstofustjóri flytur
erindi um. rithöfundinn. Síðan
verður samlestur úr Kristrúnu í
Hamravík, sem þau Valur Gísla-
son, Arndís Björnsdóttir og Ró-
bert Arnfinnsson annast. Þá syng
ur Guðmundur J^nsson nokkur
íslenzk lög við undirleik Frits
Weisshappels. Þorsteinn ö. Step-
hensen les bókarkafla og loks les
rithöfundurinn sjálfur smásögu.
Þá hefur Almenna bókafélagið
í tilefni af afmælinu gefið út
úrval úr smásögum Hagalíns,
þrettán sögur, sem þeir hafa val-
ið í sameiningu Eiríkur Hreinn
Finnbogason og höfundur sjalf-
ur. Er þetta bók mánaðarins hjá
félaginu í október. Þarna eru
saman komnar mestu smásagna-
perlur höfundarins, svo sem Tófu
skinnið, Barómetrið, Þáttur af
Agli á Bergi, Guð og lukkan,
Konan að austan, Elliglöp o. s.
frv. Ennfremur fylgja sögunum
mjög merk og skemmtileg eftir-
málsorð frá höfundi, þar sem
hann gerir ýtarlega grein fyrir
tilefni allra sagnanna í bókinni,
og gefur það beztu innsýn í
vinnubrögð hans, — hvernig smá-
atvik úr hinu daglega lífi, jafn-
vel draumar, verða upphaf að
snjöllustu smásögum og ógleym-
anlegum persónulýsingum. Gunn
ar Gunnarsson hefur mynd-
skreytt bókina( teiknað eina
mynd við hverja sögu og hefur
leyst það verk af hendi með mikl
um ágætum. Atli Már hefur séð
um útlit bókarinnar að öðru leyti,
og er hún hin vandaðasta að öll-
um frágangi.
Tvœr nýjar bœkur Norðra:
Virkir dagar" eftir
Hagalín og ,,Eiðasaga
//
44
í DAG, á sextugsafmæli Guð-
mundar G. Hagalíns, kemur út
hjá Norðra bókin „Virkir dagar“,
sem er saga Sæmundar Sæmunds
sonar skipstjóra, skráð eftir sögu
Sæmundar af Guðmundí G. Haga
lín.
Bók þessi er mikið rit, 600 blað
síður að stærð og frágangur allur
góður, m. a. er bókin mynd-
skreytt af Halldóri Pétux'ssyni.
Hér er um að ræða nýja heild-
arútgáfu á ævisögu Sæmundar
Vill kjarnorku
vopn
Kaupmannahöfn, 9. okt.
YFIRMAHi lt danska flughersins
hefur látið svo um mælt, að
Dönum beri að treysta varnir
sínar með kjarnorknivopnum sem
hægt yrði að nota gegn fjand-
samlegum herbækistöðvum. Sagði
hann í blaðagrein, að ef tii styrj
aldar kæmi mundi óvinurinn
leggja megináherzlu á að eyða
danska flughernum — og væri
Dönum nauðsyn að eiga öflug-
ustu vopn til þess að geta svarað
í sömu mynt.
Skákmótið
1 Hafriarfirði
ÞRIÐJA umferð skákmótsins í
Hafnarfirði var tefld nýlega og
fara úrslit hér á eftir:
Haukur Sveinsson vann Krisí
ján Finnbjörnsson, Bírgxr Sig-
urðsson vann Skúla Thorarensen,
Halldór Jónsson vann Gunnar
Gunnarsson, en Sigurgeir Gísla-
son og Stígur Herlufsen eiga bið-
skák. Biðskákunum úr fyrstu og
annarri umferð er lokið. Sigur-
geir Gíslason vann Hauk Sveins-
son og Stígur Herlufsen vann
Birgi Sigurðsson, en Skúli Thor-
arensen og Gunnar Gunnarsson
gerðu jafntefli.
Eftir 3 umferðir er staðan:
1. Sigurgeir Gíslason 2 vinn. og
biðskák, 2.—3. Birgir Sigurðsson
og Halldór Jónsson 2 vinn. hvor,
4.—5. Skúli Thorarensen og
Gunnar Gunnarsson l'A vinn.
hvor, 6. Stígur Herlufsen 1 vinn
og biðskák, 7. Haukur Sveinsson
1 vinn. og Kristján Finnbjörnsson
engan vinning.
Fjórða umferð verður tefld á
suimudag kl. 2 í G. f. húsxnu.
og fer vel á að þessari útgáfu
er komið á framfæri á merkum
tímamótum í ævi Hagalíns, en
fyrri útgáfa ævisögunnar hefur
lengi verið ófáanleg. í ævisögu
þessari speglast fsland gamla og
nýja tímans, atvinnuþróunin,
menningarsagan og aldarfarið.
Einnig er út komin hjá Norðra
„Eiðasaga" eftir Benedikt Gísla-
son frá Hofteigi. Er þar rakin
saga höfuðbólsins Eiða, þar sem
sátu margir merkir menn og ætt-
feður þjóðarinnar og héldu höf-
uðbólinu í eign sömu ættar fram
á miðja 18. öld.
í ritinu er einnig rakin saga
Eiðaskóla, sem er merkur kafli í
skólasögu hérlendis. — Ritið er
511 síður með nafna- og örnefna
skrá.
Umferð gangandi fólks
og bíla við Lœkjarforg
FYRIR skömmu var í bæjarráði
lögð fram tillaga umferðarnefnd-
ar varðandi breytingar á akstri
við Lækjartorg og einnig gerð
grein fyrir því, á hvern hátt megi
bæta umferðaröryggi gangandi,
einkum þó í sambandi við strætis
vagnana. Nú hafa hraðferðar-
vagnarnir verið fluttir af Lækj-
artorgi á stæði rétt norðan við
bílastöðina Hreyfil. Við athugun
á tillögu umferðarnefndarinnar
verður það strax ljóst, að þær I
eru verulega til bóta. Mikii breyt-
ing verður á, er tillögur þessar |
hafa verið samþykktar af bæjar- 1
stjórn, en bæjarráð mælti ein-
dregið með þeim — að rétt er
að almenningur eigi þess kost
að hafa áður gert sér glögga
Mikill karfi
bersi að
HAFNARFIRÐI — Mikið hefur
borizt hingað af karfa síðustu
daga, og svo mun einnig verða
um og eftir helgina. Togararnir
eru enn á hinum nýju Fylkis-
an að vinna úr karfanum, og er
veiði þar ágæt ennþá. Nokkrir
erfiðleikar hafa hlotizt af því
hversu skipin hafa komið inn
um svipað leyti, þannig að land-
að er úr tveimur togurum í einu,
eins og átti sér stað fyrir nokkru,
og einn eða tveir bíða eftir lönd-
un. Hafa frystihúsin þá vart und-
an að vinna úr karfanum, og er
þá mikil hætta á að hann skemm-
ist. — Núna í vikunni hefur ver-
ið landað úr Júlí og Ágúst.
Bjarni riddari kom í nótt, Júní
kemur nk. sunnudag og Röðull
og Surprise upp úr helginni.
Af reknetjabátunum er það að
segja, að þeir hafa aflað mjög
lítið upp á síðkastið, og munu
sumir þeirra vera að hætta veið-
um, a. m. k. um stundarsakir.
—G. F..
grein fyrir breytingunum, því
hefur Mbl. beðið teiknara sinn
að „setja út í kort“ fyrrnefndar
tillögur.
Framkvæmdastjóri umferðar-
nefndar, Valgarð Briem, sagði í
stuttu viðtali við Mbl. í gær, að
tillögurnar miðuðust við það
fyrst og fremst að tryggja öryggi
gangandi fólks, en sannast sagna
hefur umferð gangandi á þess-
um slóðum verið mjög handahófs
kennd, og beinlínis hættuleg. Nú
er þessu skippt í lag, með þvi að
leggja „zebrabeltin“ eins og ojá
má á teikningunni, og uppsc.tn-
ing umferðargrinda hjá Bókabúð
Braga og verður bílum ekki leyfi
legt að aka inn fyrir þær.
Við ahugun á akstursreinum
bílanna, kemur t. d. í ljós að aðal
brautarréttindin verða skýrt
mörkuð. Þá verður bannað að
aka úr Hverfisgötubrekkunni og
inn í Kalkofnsveginn. Þá er fyrir
sjáanlegt, að mjög á að breyta
akstrinum kringum „spennistöð-
ina“. Með þessum breytingum á
akstursfyrirkomulaginu, er líka
að því stefnt, að gera umferðina í
senn greiðari og öruggari. Að
öðru leyti skal ekki um þessar
tillögur rætt, en rétt er að hvetja
allan almenning til þess að kynna
sér þær.
Hegedeus kom-
inn nitui
BÚDAPEST, 9. okt. — Áreið-
anlegar heimildir herma, að
Hegedues, forsætisráðherra
Ungverjalands 1 upphafi upp-
reisnarinnar 1956, sé kominn
úr „útlegð“ í Rússlandi og
hafi fengið starf við efnahags-
málastofnun á afskekktum
stað. Eru mánaðarlaun hans
þar sögð samsvara 80 dollur-
um. Ungverjar neyddu Hege-
dues til þess að láta af emb-
ætti, en Nagy kom í kjölfar
hans. Rakosi og Gerö eru
sagðir í Ungverjalandi.
togarar
18
„innan liiuÚ
MISKUNNARLAUST sörguðu
brezkir landhelgisbrjótar botninn
út af Látrabjargx í gær, er þar
voru samankomnir 18 togarar eða
álíka margir og allir þeir togar-
ar, sem gerðir eru út frá Reykja-
vík. Það segir fátt af aflabrögð-
um, en fullvíst má telja að afl-
inn hafi verið sáratregur. Þar
fór veður versnandi í gærkvöldi
og var þar vaxandi sjór. Hvergi
annarsstaðar var vitað af land-
helgisbrjótum, t. d. var norðaust-
an hvassviðri út af Vestíjörðum
í gær.
Á sama tíma sem Bæjarútgerð
artogarinn Þorkell máni seldi í
V-Þýzkalandi 228 tonna afla eft-
ir 10 daga veiðar hér við land,
S eru brezkir landhelgisbrjótar
með aðeins 50—60 tonna afla„ að
því er fregnir herma.
Ný flugleið?
TOKIO, 9. okt. — Það er haft
fyrir satt, að Rússar hafi tjáð sig
fúsa að ræða við Japani um hugs
anlegt leyfi fyrir japanskar far-
þegaflugvélar til að fljúga yfir
Síberíu til Evrópu. Rússar hafa
ekki viljað heimila neinum út-
lendum flugfélögum að fljúga
þessa léið til fjarlægari Austur-
landa, en slíkt mundi stytta flug-
leiðina frá Evrópu til muna.
Karami neyddist til að
segja af sér
inn. Allir eru ráðherrarnir lítt
þekktir meðal landsmanna.
Strax og fregnirnar bárust út
um borgina flýkktust múhameðs
trúarmenn út á götur og létu
ófriðlega. Herlið var kvatt á vett-
vang og stóðu bandarískir og
líbanskir hermenn vörð á öllum
I mikilvægustu stöðum borgarinh-
BEIRUT, 9. okt. Rashid Karami' ar.
hefur Iátið af forsætisráðherra- !
Múhameðsk og
kristin jafnvœgis-
stjórn mynduð
Þórkoiínr Ásplrsson lekur s*tí
í stjórn Gjnldeyriss^óðsins
ÞÓRHALLUR Ásgeirsson ráðu-
neytissjóri, viðskiptamálaráðu-
neytisins, hefur verið kjörinn í
stjórn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins,
til næstu tveggja ára. Kjör stjórn
ar sjóðsins fór fram í fyrradag
á aðalfundi sjóðsins sem nú stend
ur yfir austur í Nýju Delhi í Ind-
landi.
Norðurlöndin hafa mjög nána
samvinnu um kjör fulltrúa í
stjórn Gjaldeyrissjóðsins. Næstu
tvö ár á einnig sæti í stjórn sjóðs-
ins Finninn Eero Asp frá Finn-
landsbanka.
Þórhallur Ásgeirsson hefur
verið ráðuneytisstjóri viðskipta-
málaráðuneytisins frá því í árs-
byrjun 1948. Hann var áður full-
trúi í utanríkisráðuneytinu og
var á styrjaldarárunum sendi-
ráðsritari í V/ashington.
Þórhallur sem er tæplega fer-
tugur að aldri, hefur mjög oft
verið formaður fyrir íslenzkum
samninganefndum vegna utan-
ríkisviðsskipta innan lands og
utan.
Hann hefur vegna hins nýja
starfs á vegum Alþjóða gjald-
eyrissjóðsins fengið 2 ára frí frá
störfum. Stofnunin hefur aðal-
bækistöðvar sínar í Washington
og þangað fer Þórhallur um miðj-
an þennan mánuð með fjölskyldu
sxna.
embætti og Chehab forseti hefir
útnefnt Nazem Akkari til þess
að taka við embættinu. Eftir 16
daga ráðherratíð Karami neydd-
ist hann til þess að láta af völd-
um vegna einbeittrar andstöðu
falanrgista, stuðningsmanna Cha-
moun fyrrum forseta, en það
var einmitt Karami, einn af for-
ingjum múhameðstrúarmanna, er
stóð framarlega í uppreisninni
í sumar gegn Chamoun.
Falangistar hafa efnt til verk-
falla og óeirða síðan Karami tók
við völdum — og sá forsetinn sér
ekki annan kost vænni en að
biðja Karami að láta af embætti
og mynda nýja stjórn, ef vera
mætti að hægt væri að koma á
frekara jafnvægi milli múham-
eðstrúarmanna og kristinna.
Nýi forsætisráðherrann, Akk-
ari, sem er múhameðstrúarmað-
ur, var áður deildarstjóri í for-
sætisráðuneytinu. Þetta nýja ráðu
neyti á að verða skipað tveimuv
óbreyttum borgurum og fjórum
herforingjum og verður þess gætt
að ekki hallist á innan stjórnar-
innar hvað trúarskoðanir snert-
ir. Utanríkisráðherrann er krist-
Salam, einn helzti forvígismað-
ur múhameðstrúarmanna, lét svo
um mælt í kvöld, að nú væri
hann vongóður um að kyrrð
kæmist nú loksins á í landinu.
IBarnamúsik-
skólinn verður
settur í dag
í DAG verður Barnamúsikskól-
inn settur í húsakynnum skólans
á efstu hæð Iðnskólahússins.
Skólinn er fullsetinn og hefja þar
nú nám 150 nýir nemendur og 100
íramhaldsnemendur.
Skólastjóri er Róbert Abraham
Ottósson og kennarar verða fjórir
í vetur. — f hóp kennara bætist
Jón G. Þórarinsson á þessu
hausti. Skólinn skiptist í forskóla
fyrir 5—7 ára börn, barnadeild
fyrir 8—12 ára börn og unglinga-
deild fyrir eldri nemendur en 12
ára. f skólanum er almenn músik-
kennsla og auk þess söngkennsla,
og kennsla í blokkflautuleik,
píanóleik og fiðluleik.