Morgunblaðið - 10.10.1958, Qupperneq 16
H
Föstudagur 10. okt. 1958
MORCVNBLAÐIÐ
Rinso - sápulöður er mýkru —
gefur beztun árungur
HÚN VERÐUR YNDISLEG 1 VEIZLUNNI
Er sparikjóllinn hennar Svövu ekki fallegur eftir
Rinso-þvottinn? Svo tandurhreinn, ferskur og skær!
Mamma veit, að fötin endast líka betur, ef þau eru
þvegin úr freyðandi Rinso-löðri — með Rinso er
óþarft að nudda þvottinn fast, það slítur fötunum.
Freyðandi Rinso nær hverri ögn af óhreinindum úr gróm-
teknustu fötum, og af því að það er sérstaklega sápuríkt
er engin þörf á að nudda fast. Rinso fer svo vel með þvott-
inn, þvær lýtalaust fötin verða sem ný. Þess vegna geturðu
trúað þessu freyðandi sápulöðri fyrir viðkvæmustu flíkum
— og hlíft höndunum um leið. Notaðu hið sápuríka Rinso
í það sem þarf að þvo sérstaklega vel.
Rinso hið sápuríka er sérstaklega hentugt, þegar þvegið
er í þvoitavéium.
RINSO þvær lýtolausf —
og kosiar yiur minna
Vilbogi Pétursson
Minning
VILBOGI Pétursson Þórsgötu 22
hér í bænum andaðist 2. október
bg verður jarðsunginn í dag.
Starfsdagur hans var orðinn æði
langur því fæddur var hann 13.
september 1869 austur í Flóa.
Um æsku hans er ég eigi fróður,
en ungur að árum fór hann að
starfa að vegavinnu og varð það
hans ævistarf, því yfir 60 ár mun
hann hafa verið starfsmaður
Vegagerðar ríkisins. Árið 1922 er
ég fór nýfermdur drengur í vega-
vinnu var Vilbogi Pétursson þar
fyrir. Síðan láu léiðir okkar sam-
an ög óx vinátta okkar stöðugt
er á leið og þó mest eftir að við
fórum að vinna saman að kirkju-
málum en trúmaður var Vilbogi
og starfaði mikið bæði í Frí-
kirkjunni og siðar í Óháða frí-
kirkjusöfnuðinum. Það vár1 eitt
hans mesta hjartans mál að sá
söfnuður eignaðist kirkju. Þetta
rættist og gat Vilbogi verið við-
staddur fyrstu messu í hinni nýju
kirkju skömmu áður en hann var
burt kallaður úr þessum heimi.
Vilbogi var einn þeirra s.em syndi
trú sína í verkunum svo eigi varð
um villzt. Má þar til nefna að
hann var sérstaklega heiðariegur,
skyldurækinn, stundvís og vinnu-
samur, alltaf jafnléttur í lund og
vinur, sem aldrei brást.
Vilborg var gæfumaður alla
tíð. Hann átti góða konu, Kristínu
Brynjólfsdóttur, og með henni 2
syni, þá Geir, sem er bryti á e. s
Kötlu og Brynjóif bifreiðastjóra,
hinir beztu menn, sem báðir
búa hér í bæ. Fyrir mörgum
árum missti svo Vilbogi konu
sína og eftir það bjó hann með
ráðskonu sem reyndist honum
mjög vel, enda kunni hann að
meta það að verðleikum og var
henni mjög þakklátur fyrir henn-
ar miklu umhyggju og taldi það
mikla gæfu að hafa valið hana
til sín. Vilbogi var og félagslynd-
ur maður, var hann í nokkrum
félögum og var þar til fyrir-
myndar með félagsþroska sínum.
Hann var t. d. kjörinn heiðurs-
félagi í tveimur félögum sama
árið, en þau voru Bræðrafélag
Óháðasafnaðarins og starfsmanna
félag Vegagerðarmanna ríkisins,
en í báðum þessum félögum naut
hann mikillar vináttu.
Síðustu starfsár sín vann Vil-
bogi í áhaldahúsi Vegagerðar
ríkisins og vil ég geta þess hér
hve þakklátur hann var yfir-
mönnum sínum fyrir að fá að
starfa þar meðan kraftar entust
því iðjuleysi var ekki að hans
skapi og kveið hann því, ef hann
yrði óvinnufær og gæti ekki hald
ið starfinu áfram, en vel var fyrir
öllu séð. Hann vanp störf sín af
alúð og samvizkusemi fram á síð-
ustu stund. Frá því að hann yfir-
gaf vinnustað og þar til hann var
dáinn liðu aðeins 4 dagar. Ég
sendi mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til aðstandenda, og bið
Guð að blessa sál hins látna vinar
um alla eilífð.
S. H.
Kópavogur
Gjalddagi brunatrygginga var 1. október.
Viðskiptamenn í Kópavogi eru vinsamlega beðnir
að greiða iðgjöld sín til umboðsmanns okkar í
Kópavogi:
Hr. Helga Ólafsson, Kársnesbrant 12C,
— Bezt að auglýsa / Morgunbladinu —
^ulltrúa- og trúnaðarmannaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Áríðanui t'undur
verður haldinn í fulltrúa- og trúnaðarmannairáði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í Sjálfstæðis-
húsinu í kvöld klukkan 8,30. —
FuIBfrúar oy trúnaðarmenn eru hvattir til að mæta stundvislega
Stjórn Fulltrúaráðsins