Morgunblaðið - 10.10.1958, Blaðsíða 23
Föstudagur 10. okt. 1958
MORGV1SBLAÐ1Ð
23
Þýzka blaðiö „Bild Zeitung", sem er eitt víðlesnasta blað V-
Þýzkalands, birti á mánudaginn forsíðufregn um smyglmálið
íslenzka. Teiknari blaðsins myndskreytti frásögnina með þess-
ari teikningu af Tungufoss-mönnum að varpa spíritusbrúsunum
fyrir borð.
Viðræður halda
áfrani
LONDON, 9. okt. — Upplýst hef-
ur verið í London, að viðræður
Dana og Breta um útfærslu fisk-
veiðitakmarkanna við Færeyjar
verði teknar upp aftur mjög bráð
lega. Samningum var slitið í fyrri
viku, en danskir sérfræðingar
urðu þá eftir í London til þess að
ræða ýmis vandamál við brezka
sérfræðinga.
Watsveina- og veit-
ingaþjónaskólinii
settur
FÖSTUDAGINN 3. okt. sl. var
Matsveina- og veitingaþjónaskól-
inn settur I húsakynnum skólans
í Sjómannaskólahúsinu. Við skóla
setninguna voru mættir auk
kennara, nemenda og skólanefnd-
ar, ýmsir forustumenn í stéttar-
félögum framreiðslumanna og
matreiðslumanna.
Skólastjórinn Tryggvi Þorfinns
son setti skóiann með ræðu, og
gat um starfsemi hans
í vetur og ýmis verkefni er hann
ætti óleyst. Eins og kunnugt
er 'orottskráðust fyrstu nemendur
skólans á sl. vori, og er fjórða
starfsár hans hefst eru nemend-
endur fleiri en nokkru sinni áður.
Að skólanum kemur nú einn
nýr stundarkennari, Þorsteinn
Valdimarsson, er kennir tungu-
mál.
(Frá Matsveina- og veitinga-
þjónaskólanum).
— Páfinn
Frh. af bls. 1
kjörinn. Varð ítalski kardínálinn
Masella fyrir valinu. Hann er
fæddur árið 1902 og hefur verið
kardíngli síðan 1949. Píus páfi
XII. verður borinn í grafhvelf-
ingu Pé'turskirkjunnar samkv.
eigin ósk, en næsti páfi verður
hinn 262. frá Pétri postula.
M jög er nú rætt um hver verði
næsti páfi og þykja sjaldan hafa
komið jafnmargir til greina. Full
víst er talið, að fyrir valinu verði
einhver af hinum 18 ítölsku kar-
dínálum.
Þá hefur verið rætt um það
hvort kardínálunum í járntjalds-
löndunum verði kleift að sækja
fundinn í Róm þar sem páfi verð-
ur kosinn. Fullvíst er, að Minds-
zenty verði ekki í þeim hópi. Ung
verska stjórnin hefur tekið af all-
an vafa um að hún vilji hann úr
landi. Þá er ólíklegt talið, að
júgóslavnesku stjórnarvöldin
leyfi Stepinac kardinála að fara
— og jafnframt er ólíklegt talið,
að pólski kardínálinn Wyszynski
fái fararleyfi.
— Landhelgismálið
Framh af bls. 1
Norðmenn, Færeyinga og aðra
mundu fara að dæmi íslendinge,
ef þeim síðast nefndu heppnað-
ist áform sitt. Mundu brezkir tog-
arar þá verða af 50% hins venju
lega árlega afla síns. Ógerningur
væri að semja við fólk, sem ekki
sýndi minnsta vilja til þess að
ræða málið. Sannleikurinn væri
sá, að íslendingar ætluðu að loka
fiskimiðunum fyrir öðrum þjóð-
um, fyrst hefðu þeir farið í 4 ..ííl-
ur, síðan í 12 og næsta skrefið
væri sennilega allt grunnsævið
— út að 100 faðma dýpi. Bretar
gætu alveg eins krafizt lögsögu
yfir Ermarsundi og Gíbraltar.
Mergurinn málsins væri sá, að
hér væri ekki einungis um fram-
tíðar fiskveiðar að ræða heldur
baráttuna fyrir frelsi á úthöfum,
frelsi sæfara til að fara eigin
ferða.
Annar ræðumaður sagði, að
fleiri væru háðir fiskveiðunum í
Hull einni en á öllu íslandi.
I ályktun þingsins var lögð
áherzla á það, að ef Bretar gæfu
fslendingum eftir gætu afleiðing-
arnar orðið til að auka á spenn-
una í heiminum.
Málstaður
íslands kynntur
SAMBANDI ísl. samvinnufélaga
hefur nú borizt mikill fjöldi
bréfa frá fyrirtækjum um allan
heim í tilefni af dreifibréfi um
landhelgismálið, sem SÍS sendi
þeim. Sýna svarbréfin, að mál-
stað íslendinga hefur verið tek-
ið með mestu vinsemd og skiln-
ingi, og jafnvel í hópi fjölmargra
fyrirtækja í Bretlandi er aðeins
eitt, sem skrifar í fjandsamleg-
um anda um málið.
Bréf Sambandsins hefur sýni-
lega hlotið mikla útbreiðslu, því
langflest stærri fyrirtækja segja
frá því, að þau hafi látið eftirrit
af bréfiriu berast til allra ráða-
manna sinna. Bæði í Noregi og
Þýzkalandi sendu fyrirtæki bréf-
ið til blaða til birtingar, enskt
fyrirtæki sendi það þingmanni
viðkomandi kjördæmis og ame-
rískt fyrirtæki sendi það öldung-
ardeildarþingmanni. Eitt ame-
rískt fyrirtæki sendi afrit af
bréfinu til Eisenhowers og utan-
ríkisráðuneytisins í Washingtcn,
og annað til „ýmissa stjórnar-
deilda“.
Það er augljóst af undirtektum
þessum, að það er mjög gagn-
legt að nota hvers konar við-
skipta- eða persónuleg sambönd
til að dreifa upplýsingum urn
málstað íslands og skýra hann.
Slík bréf eru lesin af mein at-
hygli en greinar í blöðum.
(Fréttatilkynning frá SÍS).
LONDON 9. okt. — ísraelsmenn
fengu í dag einn kafbát frá Bret-
um. Egyptar hafa snúizt ofsa-
lega við þessum kaupum og
telja Breta mestu óvini Araba-
þjóðanna. Amer, varnarmálaráð-
herra Egypta, fór í dag til Prag
til þess að ræða um frekari vopna
kaup hjá Tékkum.
Nýtízku gjulavðrur
teknar fram í dag. — Aðeins örfá
stykki af hverri tegund. —
0. B. 8ilfHJrbúilín
Laugaveg 55
Unglinga
vaniar til blaðburðar í eftirtalin hverti
Miðbœinn Nesveg
Laugav. neðri Miklubraut
Laugav. III Seltiarnarnes (Skjólbr.)
Nýbýlaveg
Kleifarveg
Búsfaðaveg
Hverfisgötu I
Hringbraut
Laugarásveg
Aðalstræti 6 — Sími 22480.
Röskan sendisvein
vantar okkur nú þegar hálfan eða
allan daginn. —
G. Einarsson & Co hf.
Aðalstræti 18 — Sími 24080
Húsnæði
okkutr vantar 2ja til 3ja herhergja
íbúð strax til leigu. — \
Sild & fiskur
Sími14240
2/o herbergja íbúð
Af sérstökum ástæðum er til sölu nýleg 2ja herb.
íbúð í Kleppsholti. Ræktuð og girt lóð/ Góðar
geymslur fylgja. Tvöfalt gler í gluggum.
Mjög hagstætt lán áhvílandi.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Ingólfsstræti 9B, sími 19540. Opið alla dag frá kl. 9—7
" Okkar hjartkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi ÓLAFUB H. MAGNÚSSON Ægisgötu 10, andaðist að heimili sínu 9. þ.m. Börn, tengdabörn og barnabörn.
Maðurinn minn FlBlKUR RÓBERTSSON BENSKE Mímisvegi 6. lézt í Landakotsspítala í gærmorgun þ. 9. október. Sesselja Guðmundsdóttir.
Bróðir okkar VALDEMAR BJARNASON málmsteypumaður, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni laugardaginn 11. október klukkan 10,30 e.h. Aðstandendur.
Bróðir okkar EINAR JÚLlUS DAGBJARTSSON frá Gröf, Rauðasandi, sem lézt föstudaginn 3. október, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjud. 14. okt klukkan 1,30 e.h. Ketilríður Dvgbjartsdótti r, Bjarnveig Dagbjartsdóttir, Ólöf Dagbjartsdóttir, Ingibjörg Dagbjartsdóttir, Ingunn Dagbjartsdóttir, Lúðvík Dagbjartsson, Þorsteinn Dagbjartsson, Halldór Dagbjartsson.
Þökkum auðsýnda hluttekningu við andlát og jarðar- för föður okkar og tengdaföður EINARS BJÖRNSSONAR fyrrverandi verzlunarstjóra. Margrét Einarsdóttir, Björn Einarsson, Jóhanna Z. Henriksdóttir, Sigurður Einarsson, Sigurbjörg Einarsdóttir, Einar Asmundsson, Sæunn Gísladóttir, Kjartan Einarsson, Guðbjörg Einarsdóttir, Hjörtur Hafliðason. «
■ Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför GUIAÍJARGAR SÆMUNDSDOTTUR | Svignaskarði Vandamenn.