Morgunblaðið - 10.10.1958, Page 24
VEÐRID
Hvass norðan, léttir til.
oTíjíimililaií)
231. tbl. — Föstudagur 10. október 1958
I fáum orðum
Sjá viðtal á bls. 13.
Enginn um borð í Cometþotuna í
Keflavík af ótta við skemmdarverk
KEFLAVIKURFLUGVELLI, 9.
okt. — Af ótta við skemmdar-
verk, fékk enginn íslendingur að
koma um borð í brezku farþega-
þotuna Comet IV er hún hafði
hér viðkomu í dag.
Þotan kom frá London og hafði
verið 2,50 klst. á leiðinni þaðan.
Var hún á leið til New York.
Þetta er í fyrsta skipti sem Comet
IV kemur hér við, en þotan sem
er eign brezka flugfélagsins
B.O.A.C., var í farþegaflugi. Voru
með flugvélinni 40 farþegar. En
jafnframt mun hér hafa verið um
enn frekara tilraunaflug að ræða,
því ýmis konar flugsérfræðingar
voru meðal 17 manna áhafnar
þotunnar.
Er starfsmenn flugmálaþjón-
ustunnar hér hugðust fara um
borð í þotuna til starfa við
hreinsun og önnur almenn af-
greiðslustörf, sem unnin eru um
borð í farþegaflugvélum, var
starfsmönnunum vísað frá og
fengu þeir tilk. um það að enginn
þeirra fengi að fara þar um borð.
Kom í ljós að meðal áhafnar-
innar var leynilögreglumaður frá
Scotland Yard, er átti að hafa
með höndum gæzlu flugvélarinn
ar og koma í veg fyrir að á henni
yrðu unnin skemmdarverk.
Að þessum ráðstöfunum leyni-
lögreglumannsins og flugfélags-
ins var vissulega brosað hér á
flugvellinum, og engu líkara en
að þetta væri í fyrsta skipti sem
B.O.A.C.-flugvél kæmi hingað,
því er ekki þannig farið, vegna
þess að BOAC hefur í mörg ár
haft sérstaka umboðsmenn hér á
flugvellinum.
Flugvallast j órnarstarfsmenn,
sem um daginn voru á vakt þeg-
ar hin ameríska Boeing 707 kom
Áríðandi FuUtrúaráðs-
fundur í Sjálfstœðis-
húsinu í kvöld kl. 8,30
STJÓRN Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík hefir
ákveðið að efna til áríðandi fundar fyrir fulltrúa og trúnaðar-
menn Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8.30.
Þetta er fyrsti fundur Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á þessu
hausti og verða þar tekin til umræðu þau mál, sem nú eru mjög
ofarlega á baugi.
Það er mjög áríðandi, að bæði fulltrúaráðsmeðlimir og trúnað-
armenn flokksins mæti á þessum fundi og eru menn hvattir til að
mæta stundvíslega.
hér við, og einnig sáu í dag Com-
etuna, tjáðu tíðindamanni blaðs-
ins að áberandi meiri hávaði hafi
verið frá amerísku þotunni en
þeirri brezku. — BÞ.
Verið er að endurnýja Ver-
búðarbryggjuna við gömlu
verbúðirnar, en hún mun upp-
haflega hafa verið byggð
1932. I þá daga voru fisk-
flutningabílarnir litlir og eng-
in hætta á að þeir færu nið-
ur úr bryggjugólfinu þó fuil-
hlaðnir væru. En nú á tímum
kemur það iðulega fyrir á
vetrarvertíð að fiskflutninga-
bílarnir stóru vegi alls um 18
tonn, er þeir aka drekkhlaðn-
ir nýjum fiski upp bryggjuna.
— Verður þessi gamla trausta
bryggja nú styrkt verulega
með því að að setja sveran
bita mitt á milli burðarbita
bryggjunnar, en þeir eru með
um það bil 1 m. millibili. —
Gert er ráð fyrir að lokið verði
við endurnýjun bryggjunnar
eftir hálfan mánuð.
Alþingi sett í dag
ALÞINGI verður sett í dag. Hefst
setningarathöfnin með guðsþjón-
ustu í Dómkirkjunni kl. 1,30 síðd.
Séra Páll Þorleifsson á Skinna.
stað prédikar.
Síðan verður gengið til salar
Sameinaðs þings og seiur forseti
íslands þar Alþingi.
í sumar hafa salir beggja þing-
deilda verið málaðir. Ennfremur
hliðarherbergi þeirra. Loks hefur
verið gert við ýmislegt smávegis,
skipt um gluggatjöld o. s. frv.
I forystugrein blaðsins i dag er
rætt um verkefni þess Alþingis,
sem nú er að hef ja störf sin.
Annaðhvort er pilturinn snarvitlaus
eða að reyna að vekja á sér athygli
segir Þóra Magnúsdóttir,
hjúkrunarkona á Patreksfirð>
— Ég hef ekki séð Morgun-
blaðið í morgun. Þér vilduð víst
ekki segja mér hvað í því stend-
ur, sagði Þóra Magnúsdóttir
hjúkrunarkona á Fatreksfirði,
þegar fréttamaður blaðsins
hringdi hana upp í gær. — Ég
hef ekki gert annað en svara í
símann í allan dag. Það Þefur
ekki verið nokkur friður fyrir
blaðamönnum frá Bretlandi,
Ameríku og Reykjavík. F.g veit
ekki hvaðan á mig stendur veðr-
ið!
Við lásum fyrir nana ummæli
Victors Smith, brezka sjómanns-
ins, sem skorinn var upp á sjúkra
húsinu á Patreksfirði, og nú er
kominn heim og farinn að segja
brezkum blaðamönnum frá
fallegu hjúkrunarkonunni, sem
hann hafði orðið ástfanginn af.
„Eftir einn eða tvo mánuði von-
ast ég til að hafa sparað svo mikjð
fé saman, að ég gæti greitt far-
gjaldið til íslands. Ég ætla að
biðja Þóru að giftast mér, ef hún
ber enn sömu tilfinningarnar í
brjósti", er haft eftir honum.
— Annað hvort er pilturinn
snarvitlaus, eða hann er að reyna
að láta bera á sér og komast í
blöðin, svaraði Þóra um hæl.
Hann hefur aldrei borið upp neitt
bónorð við mig, enda er ég svo
stirð í ensku, að ég gat mjög
lítið talað við hann meðan hann
dvaldist í sjúkrahúsinu.
— En hvað gerið þér, ef hann
kemur askvaðandi, þegar hann
er búinn að safna sér fyrir far-
inu?
— Ég tek ekki á móti honum.
— Eruð þér kannski trúlofuð?
— Að minnsta kosti ekki op-
inberlega. Og ég er áreiðanlega
ekki trúlofuð neinum Victori
Smith.
— Ég er ákaflega leið yfir
þessu, bættj hún svo við. Pilt-
urinn var hér aðeins í viku. Hann
var ekkj mikið veikur, því þetta
var aðeins botnlangaskurður og
þá komast menn fljótt á ról. Við
hjúkrunarkonurnar tvær reynd
um að vera jafn alúðlegar víð
hann og aðra sjúklinga, en ekk-
ert þar fram yfir. Og eins og ég
sagði áðan, kynntist ég honum
lítið vegna þess hvað ég er fá-
kunnandi í ensku. Mér þætti vænt
um ef þér vilduð koma þessu á
framfæri, svo fólk hætti að óska
mér til hamingju.
700 tjár af 3 bœjum í
Dalasýslu skorið niður
Sferkur grunur um þurramœði hefur
fundizt í einu lungc
S í S svínbeygir verka-
lýðsiorustu kommúnistu
Birni Bjarnasyni og
Benedikt Davíðssyni sparkað
(COSNINGABARÁTTAN til Alþýðusambandsþings hefur
rnjög einkennzt af valdabrölti Framsóknarmanna og undan-
látssemi kommúnista við þá. Er greinilegt að kommúnistar
vilja allt til vinna til að hafa Framsókn góða og tryggja
Hannibal og Lúðvík setu í ráðherrastólunum, svo verka-
lýðurinn fái enn um sinn notið ávaxtanna af stjórnarfor-
ystu Hermanns Jónassonar.
Svo langt hafa kommúnistar gengið í þessari þjónkun
KARACHI 9. okt. — Samkvæmt
herlögunum, se n lýst hefur verið
yfir í Pakistan, liggur daugarefs-
ing við matvælaþjófnaði og
smygli.
Trésmiðir
KOSNING fulltrúa Trésmiða-
félagsins til þings A.S.Í. fer
fram á laugardag kl. 2—10 og
kl. 10—12 og 1—10 á sunnu-
dag. Listi lýðræöissinna er
B-LISTINN
BÚÐARDAL, 9. okt. — Bændum
á fjórum bæjum í Miðdölum og
Haukadal hefur verið tilkynnt
að allt fé þeirra, sem af fjalli
kom í haust og þeir ætluðu sér
að setja á, verði skorið niður.
Er hér um að ræða alls um 700
fjár. —
Sauðfjársjúkdómanefnd til-
kynnti bændunum þetta í sím-
skeyti í gær, en bæir þeir, sem
um er að ræða niðurskurð á,
eru: Harrastaðir og Stóri-Skógur
í Miðdölum og Saursstaðir í
Haukadal.
í fyrra sumar gekk féð frá
bæjum þessum saman í haga
með fé sem skorið var niður í
j fyrra haust, vegna þurramæði.
1 Ekki var mönnum kunnugt um
að sýkin hefði gert vart við sig
nú aftur í haust, en lungu voru
send að Keldnarannsóknarstöð-
inni.
Bændunum á fyrrnefndum
fjórum bæjum hefur nú þegar
verið tilkynnt, að er þeir nú end-
urnýja fjárstofn sinn, skuli þeir
kaupa lömb frá Álftaness- og
Hraunhreppsbændum á Mýrum.
Síðdegis í gær átti Mbl. svo
símtal við Guðmund Gíslason á
Keldum, en hann skýrði svo frá
að sterkur grunur um þurra-
mæðitilfelli, hefði fundizt í einu
lunga sem sent var til rannsókn-
ar úr kind frá Stóra-Skógi, og
verður öllu fé af margnefndum
bæjum slátrað upp úr næstu
helgi 1
sinni við ráðamenn SÍS og Framsóknarflokksins, að þeirra
eigin menn verða miskunnarlaust að víkja til þess að opna
dyrnar fyrir Framsóknarmönnunum. Nægir í þessu sam-
bandi að benda á tvö athyglisverð dæmi, þar sem tveir
amalreyndir kommúnistar hafa verið „hreinsaðir“.
Þessir menn eru Björn Bjarnason, formaður Fulltrúaráðs
yerkalýðsfélaganna í Reykjavík og formaður Iðju um árahil
og Benedikt Davíðsson, fyrrverandi formaður og aðalleið-
togi kommúnista í Trésmiðafélagi Reykjavíkur. Fyrir
nokkrum mánuðum voru báðir þessir menn í kjöri til for-
mennsku í félögum sínum, en nú bregður svo við, að nöfn
þeirra sjást hvergi á framboðslistum þeim, sem kommún-
istar og fylgifiskar þeirra hafa borið fram í báðum þess-
um félögum.
Vert er fyrir almenning að leiða hugann nánar að sam-
spili forystumanna kommúnista og Framsóknar í verka-
lýðssamtökunum.
t