Morgunblaðið - 11.12.1958, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.12.1958, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 11. des. 1958 WORGUNBLAÐIÐ 13 Verkaskiptingu sé komið á milli þeirra stofnana, sem annast hagrannsóknir Á vetfvangi stjórnmálanna á ekki að deila um staðreyndir Rœða Ólafs Björnssonar flutt í sameinuðu Alþingi RÆÐU þá, er hér birtist, flutti Ólafur Björnsson, prófessor, í sameinuðu Alþingi er til um- ræSu var þingsályktunartillaga hans um skipulagningu hag- rannsókna, sem áður hefur ver ið getið hér í blaðinu. Herra forseti! ÞÓTT hagrannsóknir í eiginlegri merkingu þess orðs séu enn á frumstigi hér á landi, hefir þó undanfarin ár verið varið tals- verðu fé í þessu skyni, þæði frá hinu opinbera og einkaaðilum. Söfnun hagskýrslna á sér að vísu alllangan aldur hér á landi, en slíkt getur ekki talizt til hag- rannsókna út af fyrir sig, þó slík skýrslusöfnun sé auðvitað undirstaða þeirra. Hagstofa ís- lands getur þannig ekki talizt hagrannsóknastofnun, þótt henni hafi stundum verið falin fram- kvæmd slíkra rannsókna. Þótt hagskýrslusöfnun og hagrann- sóknir séu þannig í rauninni sitt hvað, verður þetta tvennt þó í framkvæmd gjarnan svo sam- tvinnað að vart er unnt að gera tillögur um annað þessarra atr- iða án hliðsjónar af hinu, enda hafa flestar þær stofnanir hér á landi er eitthvað sinna hag- rannsóknum, einnig með höndum söfnun hagskýrslna. Ég hefi ekki gert tilraun til þess að áætla, hve miklu nemi kostnaður við hag- skýrslugerð og hagrannsóknir á vegum opinberra aðila hér á landi og því síður að greina sundur kostnaðinn við þetta tvennt, sem varla munu tök á. En fullyrða má, að kostnaður við þetta tvennt nemi aldrei undir 10 millj. kr. og sennilega meiru. Það getur því engan veginn tal- izt lítilfjörlegt fjárhagslegt atriði að tryggt sé að læim fjármun- um, sem varið er í þessu skyni, sé skynsamlega ráðstafað, þann- ig að sem mests árangurs megi vænta. Til þess að gefið sé nokkurt yfirlit yfir skipan þessarra mál- efna eins og hún er nú, skulu nefndar nokkrar hinar helztu opinberar stofnanir, sem hafa með höndum hagskýrslusöfnun og að einhverju leyti hagrann- sóknir. Er það í fyrsta lagi Hag- stofa íslands, sem er eins og kunnugt er ríkisstofnun. Þá starf- rækja þrír ríkisbankanna, Lands- bankinn, Framkvæmdabankinn og Útvegsbankinn sína hagdeild- ina hver. Tilgangurinn með stofnun hagdeildar Framkvæmda bankans mun hafa verið sá að hún annaðist einkum eiginleg hagrannsóknarstörf, hins vegar munu hagdeildir hinna bankanna að mestu vinna að hagskýrslu- gerð En auk þessa hafa Bún- aðarfélag íslands og Fiskifélag íslands með höndum víðtæka skýrslusöfnun og að einhverju leyti hagrannsóknir hvort í þágu síns atvinnuvegar og mun Iðnað- armálastofnun íslands ætlað sama hlutverk í þágu iðnaðarins. Reykjavíkurbær hefir einnig um alllangt skeið rekið hagstofu svo sem kunnugt er. Milli þeirra stofnana er nú hafa verið nefnd- ar og aðallega hafa með hönd- um hagskýrslugerð, mun í meg- inatriðum hafa tekizt eðlileg verkaskipting, þannig að meiri háttar umbætur verða sennilega ekki gerðar í því efni. Þar sem hagskýrslugerð er hins vegar grundvöllur hagrann sókna, verður ekki hjá því kom- izt, ef skipuleggja á hagrann- sóknir að hafa hliðsjón af fyrir- komulagi hagskýrslugerðar og athuga hverjar breytingar kynnu að vera æskilegar á því sviði, m. a. með tilliti til hagrannsókna er æskilegt þykir að framkvæma. Yrði slíkt eitt af verkefnum nefndar þeirrar er hér er lagt til að skipuð verði. Aðalverkið yrði þó skipulagning sjálfra hag- rannsóknanna og yrði það tví- þætt. í fyrsta lagi að athuga hvernig komið verði á hag- kvæmastri verkaskiptingu með þeim stofnunum, er þegar hafa slíka starfsemi með höndum og í öðru lagi hvernig bezt verði sinnt nýjum verkefnum á þessu sviði, er aðkallandi mega telj- ast. Það fé sem hið opinbera hefir lagt fram til hagrannsókna á ýmsum sviðum hefir líka að minnstu leyti runnið til þessarra stofnanna. Slíkar rannsóknir hafa að mestu verið framkvæmd- ar á vegum nefnda, sem skipaðar hafa verið til athugunar á sér- stökum verkefnum af þessu tagi. Þótt sumar þessara nefnda hafi að vísu safnað ýmsum gagnleg- um upplýsingum fer því að mínu áliti fjarri, er litið er á árangur slíkra nefndastarfa í heild, að hann svari þeim verulega kostn- aði er slíkar rannsóknir hafa haft í för með sér fyrir hið opinbera. Nefndum þessum hafa oft ver- ið falin viðamikil verkefni á sviði efnahagsmála án þess nokk- ur fyrirhyggja væri um það, hvort nokkur grundvöllur væri fyrir því, að þessi verkefni væri hægt að leysa vegna skorts á möguleikum á því að afla þeirra upplýsinga er til slíks væru nauð synlegar. Árangur nefndarstarf- anna hefir því oft, þrátt fyrir það að í mikinn kostnað hefir verið lagt við nefndarstörfin í meginatriðum orðið neikvæður. En auk þeirra hagrannsókna, sem þannig hafa farið fram á veg- um nefnda, er ætlað hefur ver- ið að leysa tiltekin verkefni á þessu sviði, hefir vaxandi áhugi á hagrannsóknum leitt til þess á síðustu árum að myndazt hefir vísir til sérstakra stofnana er ætlazt er til að annast slík störf og hefir slíkt verið gert bæði á vegum hins opinbera og einka- aðila. Mjög hefir þó á það skort að slíkt væri fyrirfram skipulagt svo sem æskilegt er, ef árangur á að svara kostnaði. Ég ætla mér þó að láta nægja að nefna eitt dæmi máli mínu til sönnunar. Þar sem kaupgjaldsmálin eru svo mikilvægur þáttur efnahags- málanna sem raun er á, hefir vaknað áhugi á því, að fram- kvæmdar yrðu rannsóknir á því hve hátt kaupgjald atvinnuveg- irnir þyldu án þess hætta væri á því að slíkt leiddi til verðbólgu. í samræmi við þingsályktun, er samþykkt var á Alþingi 1955 var svo komið á fót samvinnunefnd atvinnurekenda og launþega, sem síðan hefir starfað og unnið mun hafa að rannsóknum á þessu sviði. Á síðasta sumri var svo komið á fót vísi að hagstofnun er 4 launþegasambönd standa að, og ætlað er að vinna að sama verkefni í meginatriðum. Al- þýðusamband íslands varð þó ekki aðili að þessum samtökum, en hefir stofnað til sams konar athugana upp á eigin spýtur. Hér virðast því þegar komnar á legg þrjár stofnanir ,er í rauninni vinna að sama verkefni á sviði hagrannsókna. En með því er þó ekki öll sagan sögð. Samkvæmt ályktun Alþingis snemma árs 1956 var skipuð nefnd til þess að undirbúa fræðslustarfsemi um efnahagsmál og mun ekki vafi á því, að launamálin hafa verið ofarlega í huga þeirra, er að samþykkt þessarar þál.tillögu stóðu, hver sem niðurstaðan verð ur af starfi nefndar þeirrar, er skipuð var samkv. tillögunni. Þá hafa fyrir síðustu þingum legið tvö frumv. um fræðslustarfsemi fyrir launþega, annað um skóla- stofnun en h'itt um fræðslustofn- un í annarri mynd. Hér virðast því, auk þeirra 3 stofnana er þegar eru komnar á fót til þess að sinna þessu verkefni, vera í uppsiglingu 2—3 stofnanir í við- bót sem ætlað er að sinna a.m.k. mjög skyldu verkefni. Ég er sízt að lasta þann áhuga, sem fram hefir komið fyrir því að launamálin yrðu þannig rann- sökuð og rædd á meira málefna- legum grundvelli en því miður hefir verið gert til þessa, en af því sem sagt hefir verið ætti að vera ljóst, að allur undirbúning- ur slíks virðist í meira lagi fólm- kenndur. Ætti það að vera öllum aðilum í hag, að verkefni það sem hér er um að ræða, væri fengið í hendur einni stofnun, sem þeir aðilar er hér eiga hags- Ólafur Björnsson muna að gæta, launþegar, vinnu- veitendur og ríkið, kæmu sér saman um að standa að. Af slíku ætti í senn að mega vænta meiri jákvæðs árangurs og þó með minni tilkostnaði. Hér hefir aðeins verið nefnt sem dæmi undirbúningur hag- rannsókna á þessu tiltekna sviði, en er ekki hætt við að sama kunni að gerast á ýmsum öðrum sviðum, þar sem hagrannsókna er talin þörf, ef ekkert verður að- hafst til þess að skipuleggja slíka starfsemi? Ég hafði hugsað mér að starf nefndar þeirrar, er hér um ræð- ir, ef skipuð verður, yrði tví- þætt. í fyrsta lagi að athuga, hvort ekki yrði komið á hag- kvæmari verkaskiptingu meðal þeirra stofnana er nú hafa hag- rannsóknir með höndum, þannig að meiri árangur gæti á þann hátt orðið af því starfi án aukins tilkostnaðar, en í öðru lagi væri eðlilegt að nefndin athugaði með hverju móti verði bezt sinnt nýj- um verkefnum á þessu sviði, sem æskilegt má telja að tekin yrðu til meðferðar. Ég ætla mér ekki hér að flytja neinn áróður fyrir því, að aukin verði fjórframlög, í þessu skyni. Og ég skal ekki draga neina dul á það álit mitt að enda þótt hag- rannsóknum sé skemmra komið áleiðis hér á landi en æskilegt væri, þá eru mistök þau, er átt hafa sér stað í þessu efni í rík- ara mæli fólgin í því, hve lítill árangur hefir orðið af slíkum störfum vegna þess að ráðizt hef- ir verið í verkefni, sem grund- völl hefir vantað fyrir að leyst yrðu, heldur en hinu að ekki hafi nægilegu fé verið varið í þessu skyni. Á hinn bóginn er það nú einu sinni svo, að efnahagsleg velmeg- un bæði innan einstakra atvinnu- greina og þjóðarbúskaparins í heild er ekki einvörðungu háð tæknilegum atriðum heldur líka hinum fjárhagslegu. Það er að vísu svo, að mannleg þekking á sviði tækninnar hefur þróazt ör- ar en samsvarandi þekking á sviði efnahagsmála. Af þessu hef- ir svo leitt það að sá stakkur, sem skipan efnahagsmálanna hefir sniðið hinni tæknilegu þró- un hefir ekki svarað vexti, og er hin geigvænlega kreppa sem reið yfir heiminn á árunum 1929 —39 e. t. v. bezta sönnun. Fram að þeim tíma eða fram til 1930 voru hagfræðivísindi heldur varla tekin alvarléga, sem m. a. átti rót sína að rekja til þess að þá var það útbreidd trúarjátn- ing að öll fjárhagsleg vandamál gætu leystst af sjálfu sér, þannig að enga þýðingu hefði að gera fyrirfram hugsaðar ráðstafanir til úrbóta. En efnahagsöngþveiti kreppuáranna breytti viðhorfum í þessu efni ,og síðan hafa orðið mjög miklar framfarir á þessu sviði vísindanna, þó að þær séu almenningi ekki eins kunnar og samsvarandi framfarir t. d. á sviði læknisfræðinnar. Þessum framförum má það m. a. þakka að miklu betur tókst í flestum löndum að halda verðbólgu í skefjum en á fyrri heimstyrjald- arárunum, og það sem ekki er minna um vert, að kreppa sú hin mikla, sem almennt var spáð með tilliti til fyrri reynslu að skella myndi á eftir styrjöldina er ó- komin enn. Svo að nefnd séu ákveðin dæmi um þá gagnsemi, sem hagrann- sóknir gætu haft í för með sér, þá hygg ég t. d. að ekki sé á- greiningur um það, að kröftum sé illa varið til þess á vettvangi stjórnmálanna að deila um stað- reyndir. En þannig er það oft á tíðum að átökin snúast e. t. v. í ríkara mæli um það, hvað séu staðreyndir, heldur en sjálf stefnumálin. Þannig hefir t. d. allt frá því að íslendingar öðl- uðust sjálfstæði, verið um það deilt, jafnvel árlega, hvort halli væri á fjárlögum eða ekki. — Skömmu eftir 1920 stóð m. a. mikil deila um þetta ó Alþingi, þar sem þáverandi fjármálaráð- herra hélt því fram, að enginn halli væri á fjárlögunum þótt andstæðingar hans teldu að þessi halli næmi 1%—2 millj. kr. sem á þeim tíma var mikið fé. Nokkr- um árum síðar gerði þingmála- fundur á Egilsstöðum samþykkt um það að fjórlög væru halla- laus, og taldi sig með því hafa skorið úr ágreiningi, sem þá var um málið. Marga hv. þingmenn mun og reka minni til þess, að við fyrstu umræður fjárlaganna hér á Al- þingi í haust var ágreiningur um það, hve miklu greiðsluhalli árs- ins 1957 næmi, og skakkaði þar tugum milljóna. Gæti það þá orð- ið til að spara mikla krafta, ef hægt væri að koma á fót ein- hverjum dómstól í slíkum efn- um, sem allir gætu treyst til að skera úr slíkum deiluatriðum. — Stundum geta slík deilumál að vísu verið þannig vaxin, að ekki sé hægt að úrskurða neina á- kveðna niðurstöðu, sem þá einu réttu, en þá getur líka verið gagnlegt að það komi fram. Frá hagsmunasjónarmiði at- vinnuveganna má og á það benda ,að afkoma t. d. bænda, iðnaðarmanna o. s. frv. er ekki eingöngu undir því komin að notuð sé hin hentugasta tækni, heldur líka skynsamlegri verð- lagning framleiðslunnar. Engin ástæða er til að ætla annað en hagrannsóknir í þágu atvinnu- veganna framkvæmdar á skyn- samlegan hátt gætu ekki komið að gagni í þessu efni á sama hátt og í nágrannalöndum okkar, þar sem miklu fé er varið í þessu skyni, bæði af hálfu hins opin- bera og atvinnuveganna sjálfra. Á Norðurlöndunum hinum er starfandi sérstök rannnsóknaráð á sviði þjóðfélagsvísinda, sem gegna svipuðu hlutverki á því sviði og rannsóknaráð á sviði tæknivísinda. Hér á landi hefir sem kunnugt er fyrir löngu verið hafizt handa um skipulagningu rannsókna á sviði tæknivísinda, og er þó að því leyti minni á- stæða til þess en hvað hagrann- sóknir snertir, að á hinu tækni- lega sviði eru verkefnin meira afmörkuð í eðli sínu, þannig að þar verður minni hætta á að mis- munandi aðilar er slíkar rann- sóknir kunna að hafa með hönd- um grípi hver inn á annars svið. Ég býst ekki við öðru en allir hv. þingmenn séu því sammála að það verk sem hér er um að ræða verði að vinna. Slíkt getur auðvitað verið álitamál, hvort tímabært sé að hefjast handa um það nú þegar, eða því beri að fresta. Ég hefi leitazt við að færa rök að því að dráttur á slíku sé líklegur til að valda tjóni og só- un fjármunanna, en auðvitað verður það hlutverk þeirrar hv. nefndar er mál þetta fær tií með- ferðar og síðar hv. þingamanna i heild að meta gildi þeirra raka. Um það má svo auðvitað deila, sem í þessu sambandi er meira aukaatriði, hvort nefndin eigi að vera skipuð á þann hátt er hér er lagt til. Ég hefi talið eðlilegt að tryggja fyrst og fremst full- trúum þeirra stofnana, sem hafa, eða ætlað er að hafa hagrann- sóknir með höndum, aðild að nefndinni. Um Hagstofu íslands, Landsbankann og Framkvæmda- bankann ætti ekki að þurfa að ræða nánar í því sambandi. Á- stæðan til þess að gert er hér ráð fyrir því, að laga- og við- skiptadeild tilnefni einn nefnd- armanna er sú, að eins og kunn- ugt er, hefir frá stofnun Háskóla íslands verið til þess ætlazt, að hann væri ekki eingöngu emb- ættismannaháskóli, heldur einnig vísindastofnun. Á það því að sjálfsögðu við um viðskiptadeild- ina eins og aðrar deildir Háskól- ans, að starfsmönnum hennar er ætlað að vinna að vísindalegum rannsóknum jafnframt kennslu. Annað mál er svo hitt, að ekki hefir verið unnt að sinna slíkum verkefnum svo sem æskilegt væri, sökum skorts á fé og ann- arri aðstöðu til slíks. En víst er um það að hvergi í okkar ná- grannalöndum mun til sú hag- fræði- eða viðskiptadeild við há- skóla, að ekki sé starfrækt í sambandi við hana hag- rannsóknadeild í einhverri mynd. Þess getur þvi ekki orðið langt að bíða að slík stofnun komist á fót við háskól- ann og bæri því að fella hana inn í það kerfi er ætlazt er til að nefndin hafi forgöngu um að upp yrði byggt. Kirkjukórasam- band minnist afmælis HELLU, 8. des. — Kirkjukóra- samband Rangárvallaprófasts- dæmis minntist þess á laugar- daginn var, að þá voru liðin 10 ár frá stofnun sambandsins. Mik- ið fjölmenni var saínankomið í tilefni afmælisins að Goðalandi í Fljótshlíð á laugardagskvöd- ið. Var þar setið í góðum fagn- aði við ræðuhöld og mikinn al- mennan söng. Fluttu þeir ræð- ur séra Sigurður í Holti og séra Sveinbjörn Högnason, en söng samkomugesta stjórnaði ísak Ei- ríksson á Rauðalæk. Formaður kórasambandsins er frú Hanna Karlsdóttir í Holti. — Hj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.