Morgunblaðið - 20.12.1958, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.12.1958, Qupperneq 24
dagar til jóla Starfsemi vetrarhjálp- arinnar í algleymingi Fleiri umsóknir og minni söfnun en í fyrra Brezku loftbelgsmennirnir eru nú einhvers staðar yfir Suður- Atlantshafinu á leið sinni vestur um haf. Verður fróðlegt að vita, hvort þetta fífldjarfa ævintýri þeirra tekst. í gærkvöldi seint var þess getið í fréttum, að undangegna tvo sólarhringa hefði ekkert heyrzt frá loftbelgnum, en þessi mynd var tekin af þeim skömmu áður en þeir lögðu upp frá E1 Medano á Kanarí- eyjum. Sjávarútvegsmálaráð- herra synjað um umboB til samninga v/ð útvegsmenn STARFSEMI Vetrarhjálparinnar er í algleymingi þessa dagana, eins og venja er fyrir jólin. Þó margir séu vel staddir á voru landi um þessar mundir, eru þó alltaf einhverjir, sem eiga úr litlu að spila og aldrei er það sárara en einmitt á jólunum að geta ekki gert sér dagamun. Vetrar- hjálpin hefur um langt skeið rækt það hlutverk af alúð, að vera milliliður þeirra, sem eru hjálp- arþurfi og hinna, sem einhverju hafa að miiðla. Að því er forstöðumenn Vetr- arhjálparinnar skýrðu frétta- mönnum frá í gær, hafa umsóknir til Vetrarhjálparinnar verið nokkru meiri að þessu sinni, en í fyrra. Verður að sjálfsögðu reynt að leysa úr þeim umsókn- um eftir því sem tök eru á, en þar er mest komið undir fórnfýsi ÞAÐ liggur við að fólki þyki sem yfirstandandi norðaustan kuldi, hafi staðið vikum saman. Allir FH vann í hrað- keppnismótinu HRAÐKEPPNI HSÍ lauk að Há- logalandi í gærkveldi. Leikar fóru þannig að FH bar sigur úr býtum. FH vann Ármann með 17:3 og KR Agftureldingu með 16:3 og loks KR í úrslitaleiknum með 12:6. Áður hafði KR unnið Þrótt með 11:2. STÓRBLAÐIÐ Politiken skýrir frá því, að á þriðjudaginn var hafi íslendingur brotið rúðu í Privatbankanum í Kaupmanna- höfn. Lögreglan var kvödd á vett vang, en maðurinn var horfinn í manngrúann á götum stórborg- arinnar, er lögreglan kom. Politiken segir þannig frá þessu, að íslendingurinn, sem blaðið veit ekki deili á, hafi komið í afgreiðslu bankans í Vester Vold- götu. Hann ætlaði þar að kaupa danska peninga fyrir íslenzka og kvaðst vilja skipta 10 þús. ísl. krónum. En manninum hafði strax verið sagt ,að búið væri að loka afgreiðslunni og slík pen- híns almenna borgara og enn eru nokkrir dagar til jóla. Gjöfum verður enn um sinn veitt viðtaka og úthlutun stendur yfir fram á Þorláksmessu. Er vart hægt að hugsa sér betur viðeigandi jóla- gjöf, en að láta eitthvað af hendi rakna til þeirra, sem bágt eiga í kulda og skammdegi jólanna. í fyrra úthlutaði Vetrarhjálpin fatnaði og matargjöfum til 756 fjölskyldna og einstaklinga. Verð mæti þess, sem úthlutað var, mun hafa numið um 350 þúsund kr. Fatnaðarúthlutunin hefur farið fram í samvinnu við Mæðrastyrks nefnd, en annars er mæðrastyrks nefndin sér, með sína mannúðar- starfsemi. Bkátarnir söfnuðu fyrir Vetr- arhjálpina nú fyrir jólin eins og þeir hafa gert í meira en tuttugu ár. Að þessu sinni safnaðist nokkru minna en í fyrra. býsnast yfir hinni kuldalegu veðr áttu. En Veðurstofan sagði Mbl. í gærdag, að það væri ekki að sjá að í vændum væri breyting fyrr en eftir helgina, í fyrsta lagi. Hinn kaldi loftstraumur, sem liggur hér yfir landið, er ósvik- inn pólkuldi. Hann nær ekki mjög langt suður fyrir landið. Það er lægð, sem nærri er kyrr- stæð suður í hafi og háþrýsti- svæðið yfir Grænlandi, sem veld ur þessari stöðugu norðaustan átt. Við höfum áður kynnst þessari vindátt og hva þrálát hún er. Ekki er því loku fyrir skotið, að þetta veður sem hér er nú ríkjandi, verði einnig allsráð- andi um jólin, þó Veðurstofan neitaði að spá um jólaveðrið í gærdag. ingaskipti gætu ekki farið fram. Við þessu brást maðurinn. illa. Bankastarfsmen* vísuðu mann- inum þá á dyr og samskiptum hans og bankamannanna lauk á þann veg, að þeir urðu að láta hann út. Um leið og hann var færður út úr afgreiðslusalnum lét hann skammir og svívirðingar dynja á starfsfólki bankans, segir blað- ið. Þegar út kom sparkaði hann svo hrottalega í hurð bankans að rúða brotnaði. Er hann varð þess áskynja lagði hann á flótta og tókst lögreglunni eigi að hafa hendur í hári hins reiða manns, er hún kom á vettvang. EINS og frá var skýrt í blaðinu s.l. þriðjudag, ritaði L.Í.Ú. ríkis- stjórninni bréf á mánudaginn með kröfu um að hún tæki þegar upp samninga við L.Í.Ú. um starfsgrundvöll sjávarútvegsins á næsta ári. Taldi stjórn L.Í.Ú., að ríkisstjórnin gæti ekki skor- azt undan að verða við þessari kröfu. í sambandi við bréf þetta kvaddi sjávarútvegsmálaráð- herra, Lúðvík Jósefsson, for- mann og framkvæmdastjóra L.Í.Ú. þá Sverri Júlíusson og Sig- urð H. Egilsson, ásamt formanni S.H., Elíasi Þorsteinssyni, á fund sinn s.l. miðvikudag. Tjáði ráð- herrann þeim, að hann mundi leita heimildar til að semja um starfsgrundvöll sjávarútvegsins fyrir næstu vetrarvertíð á svip- uðum grundvelli og áður og myndi hann óska þess, að stjórn- málaflokkarnir tilnefndu hver um sig fulltrúa frá sinni hálfu með fullu mboði til að taka þátt í samningunum. í gær tjáði svo sjávarútvegs- málaráðherra framkvæmdastjóra L.Í.Ú. að á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun hefðu ráðherrar Al- þýðuflokksins og Framsóknar- fiokksins synjað honum um um- boð til þessara samninga. S j ávarútvegsmálaráðherr a sneri sér einnig s.l. miðvikudag til Sjálfstæðisflokksins sömu er- inda, en ráðherranum höfðu ekki enn borizt svör þingflokks Sjálf- stæðisflokksins síðari hluta dags í gær. Útvegsmannafélög í nokkrum stærstu verstöðvum landsins hafa þegar snúið sér til forseta sameinaðs Alþingis um, að hann beiti sér fyrir því, að Alþingi fari ekki í jólaleyfi, meðan mál þessi eru óleyst. Eins og áður hefir verið frá skýrt, eru jafnframt lausir samn ingar L.Í.Ú. við flest sjómanna- félögin bæði um fiskverð til skipta og hlutaskipti. Ógerlegt er að taka upp samninga um sjó- mannakjörin, meðan allt er í óvissu með samninga milli L.Í.Ú. og ríkisstjórnarinnar. — þess má geta, að útvegsmönnum hafa enn ekki borizt kröfur sjómannafé- laganna. Lárus Jóhannesson form. Lögmanna- félagsins LöGMANNAFÉLAG ÍSLANDS hélt aðalfund sinn þann 12. des. sl. í aðalstjórn félagsins voru þessir menn kosnir: Lárus Jóhannesson, hrl., for- maður, Egill Sigurgeirsson, hrl., Ágúst Fjeldsted, hrl., Gísli Ein- arsson, hdl. og Þorvaldur Lúð- víksson, hdl. Eftirfarandi samþykkt var gerð á fundinum um landhelgismálið: „Aðalfundur Lögmannafélags ís- lands, haldinn 12. desember 1958, skorar á ríkisstjórn íslands að fylgja fast eftir rétti þjóðarinnar í landhelgismálinu.“ Enn ágœt síld- og karfaveiði HAFNARFIRÐI. — Bátarnir réru ekki í fyrradag og í gær sökum storms á miðunum og einnig voru froshörkur miklar. Síðast þegar þeir komu með síld hingað á fimmtudag, öfluðu þeir ágætlega, og voru margir með 100 tunnur og allt upp í 140. — Enn virðist vera um mikla síld að ræða út af Eldey, en þrátt fyrir það má nú búast við að bát- arnir fari að hugsa til vertíðarinn ar, og að minnsta kosti sumir þeirra hætti síldveiðunum á næst unni. Fákur er t.d. hættur fyrir nokkru og er nú verið að undir- búa hann fyrir vertíðina, en í ráði er að hann fari í útilegu. Enn er mjög góð veiði hjá togur- unum á karfamiðum við Ný- fundnaland og virðist ekkert lát á veiðinni þar. Hins vegar er rúmlega fjögurra sólarhringa stím á þau mið, og oft hefir það komið fyrir upp á síðkastið að skipin hafa verið rúma 5 sólar- hringa á leiðinni vegna storma á hafinu. Af þessum sökum væri ekki viðlit fyrir togarana að vera á þessum slóðum, ef veiðin væri ekki eins mikil og raun ber vitni. Hver veiðiferð má nefni- lega ekki taka nema um 16 daga, ef karfinn á að vinnast í fyrsti- húsunum. — G.E. VARÐARKAFFIÐ verður ekki í dag. Verffur næst laugardaginn 3. janúar n.k. ( Frá L.Í.Ú.) Hitaveitugeymarnir tóm- ir á þriðja tímanum í gœr Ekki að sjá að draga muni úr kuldanum og hvassviðrinu Reiðum íslendingi kastað á dyr í dönskum banka Mislingar komnir r í Arneshrepp GJÖGRI, Ströndum, 19. des. — Mislingar eru komnir hingað í hreppinn, og er mikill kvíði, því margt fullorðið fólk í hreppnum á eftir að taka veikina. Hafa mis- lingar ekki gengið hér siðan 1942 í dag er hér norðan bylur, en ekki er mikill snjór á jörðu. Þó er mikil ísing á láglendinu.Kind- ur voru teknar á gjöf hér fyrir hálfum mánuði. — Regína. Þingmenn f< frí að sinni „ERU allir aðrir að mynda stjórn?“, varð forseta efri deildar Alþingis að orði er hann leit yfir þunnskipaða bekki deildarinnar klukkan hálftvö í gær. Brátt varð þó fundarfært og voru tekin fyrir bæði málin, sem voru á dag- skrá. Frumvarp um tekjuskatt og eignarskatt var til 2. umr. og sam þykkt samhljóða til 3. umr. Frv. um fræðslu barna var til fyrstu í ekki jóla- umræðu og vísað til 2. umr. og menntamálanefndar samhljóða. Deildarforseti gat þess áður en hann sleit fundi, að enn mundi verða boðað til fundar í deildinni fyrir jól, og mundi hann því ekki bera fram jólaóskir til þm. að sinni en nú væri liðið það nærri jólum, að full ástæða væri til að fara að fresta þingi þess vegna. Eitt mál var á dagskrá neðri deildar, frv. um dýrtíðarráðstaf- anir vegna atvinnuveganna. Var það til 3. umr. og samþykkt sam- hljóða. — ÞAÐ eru erfiðir dagar hjá okkur núna, sagði Helgi Sigurðs- son, hitaveitustjóri, í samtali við Mbl. í gær, og ástandið hefur farið dagversnandi. Það náði há- marki sínu í gær, er allir geym- ar Hitaveitunnar í Öskjuhlíð voru tómir orðnir á þriðja tímanum. Það sem þessu veldur er að sjálfsögðu hvassviðrið og kuld- inn. En vegna þess hefur fjöldi fólks hér í bænum gripið til þess ráðs að láta vatnið streyma inn hjá sér allan sólarhringinn. Sem dæmi um hve mikil brögð eru nú að þessu, má geta þess að í fyrrinótt var næturrennslið um 250 sekl. en það er rúmlega helm- ingur alls þess vatnsmagns sem Hitaveitan hefur nú yfir að ráða, sem eru röskir 400 sekl. í þessum kuldum hefur verið til þess gripið að kynda verka- mannabústaðlna, og einnig Rað- húsahverfið, til þess að létta und- ir með Hitaveitunni,þá er túrbínu stöðin við Elliðaár í gangi og snerpir á vatninu og bætir við, svo segja má að allra ráða er leitað til þess að auka vatns- magnið. Það sem getur bætt úr vand- ræðunum, sem munu fara dag- versnandi ella, er að fólk loki fyrir hús sín um nætur og mun þá verða mikil breyting á til batnaðar, jafnvel í slíku veður- fari sem nú er.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.