Morgunblaðið - 23.04.1959, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 23. apríl 1959
MORGVTSBLAÐIÐ
23
FerðaféíagiB áceflar 86
ferðir í sumar
FERÐAFÉLAG íslands hefur nú
sent frá sér áætlun um sumar-
leyfis- og helgarferðir félagsins
á sumri komanda. Eru áætlaðar
ferðir félagsins alls 86 og ferða-
dagar samtals 242 eða 30 dögum
fleir en síðastliðið ár.
Að sjálfsögðu verður í sumar
farið til margra þeirra staða, sem
undanfarin ár hafa verið á áætl-
un félagsins. Þó verða nokkrar
nýjar leiðir farnar, t. d. ferð um
Brúaröræfi á Snæfell og um
hreindýraslóðir og ferð um Fjalla
baksleið syðri. Ferðirnar skipt-
ust þannig í stórum dráttum: 23
ferðir, sem standa yfir frá 2%
degi upp í 13 daga, 36 helgar-
ferðir til Þórsmerkur, Landmanna
lauga og Kerlingafjalla og loks
26 stuttar ferðir um nágrenni og
nærsveitir Reykjavíkur.
í sumar verður haldið upp
venju þeirri, sem upp var tekin
sl. sumar, að efna til helgarferða
til Kerlingarfjalla um h. u. b. sjö
vikna tíma í júlí og ágúst, og mun
fólki gefinn kostur á að dveljast
milli ferða í því sæluhúsi og fleiri
sæluhúsum F. f. eftir nánara sam-
komulagi við skrifstofu félagsins.
Sæluhúsin eru 8 talsins og er
ferðamannahópum sem óska að
fá gistingu í þeim ráðlagt að leita
þar um ieyfis með góðum fyrir-
vara til að fyrirbyggja það að
húsin verði lofuð öðrum, er til
þarf að taka.
Af lengri sumarleyfisferðum,
sem F. f. áætlar að farnar verði
í sumar, eru ferð um Breiða-
fjarðareyjar, Barðaströnd og til
Látrabjargs, Drangaferð og kring-
um Skaga, ferð um Snæfellsnes
og Dalasýslu, 13 daga ferð um
Norður- og Austurland, 8—9 daga
ferð í Hornafjörð, Öræfi og Lóns-
sveit, ferð um Síðu að Lómagnúp,
9 daga Vesturlandsferð, ferð um
Kjalveg og Kerlingafjöll, tvær
ferðir í Herðubreiðarlindir,
Fjallabaksferð nyrðri (Land-
mannaleið og ferð um Fjallabaks-
veg syðri, ferð um Kjalveg og
Kúluheiði og ferð til Veiðivatna.
Ráðgerðar eru tvær ferðir á
hestum, en óákveðið hvenær þær
verða. Annað er 7—8 daga ferð
úr Hreppum norður til Arnarfells
hins mikla, farið á hestum um
öræfin og gist í tjöldum. í hinni
verður lagt upp frá Kirkjubæjar-
klaustri og farið norður Síðu-
heiðar að Lakagígum.
Á áætluninni eru þrjár Hvíta-
sunnuferðir, sem taka IV2 til 2V2
dag. Það eru ferðir á 'Snæfellsnes,
í Þórsmörk og í Landmannalaug-
ar. Um verzlunarmannahelgina,
sem er mesta ferðahelgi sumars-
ins, eru áætlaðar 4 hálfs þriðja
dags ferðir, á Hveravelli og í Kerl
ingafjöll, í Landmannalaugar,
Þórsmörk og Breiðafjarðareyjar.
Framkvæmdastjóri Ferðaféiags
íslands er sem áður Lárus Otte-
sen og skrifstofan í Túngötu 5.
Bygging blindraheim-
ilis vzð Hamrahlíð
Önnur álman komin undir þak
BLINDRAFÉLAGIÐ, sem eins og
nafnið bendir til er félagsskapur
blinds fólks, hefur nú starfað í
nær 20 ár. Voru stofnendur þess
7 blindir menn og þrír sjáandi,
en skipulag félagsins er með þeim
hætti, að blinda fólkið ræður
sjálft öllum málefnum þess, þó
margir sjáandi menn séu ævi-
félagar og árlegir styrktarfélagar.
Stjórnina skipa þrír blindir menn
og tveir sjáandi, og er formaður
Benedikt K. Benónýsson. Er til-
gangur félagsins að vinna að
hvers konar menningar- og hags-
munamálum blindra.
Árið 1943 keypti félagið húsið
á Grundarstíg 11 undir vinnustof-
ur sínar, sem þá höfðu verið
starfræktar um tveggja ára
skeið. Hefur húsið um áratug ver-
ið notað sem eins konar blindra-
heimili, bæði sem íbúðarhúsnæði
fyrir nokkra blinda og fyrir vinnu
stoíu. Á vinnustofunni eru aðal-
lega unnir burstar, og hefur
starfsemin gengið mjög vel. Hef-
ur vinnustofan alltaf verið rekin
með hagnaði, að einu ári undan-
skildu. En nú eru þrengsli farin
að há mjög starfseminni.
eykur trjávöxt
Nýjung kynnt á frœðslukvöldi
Carðyrkjufélagsins
Blindraheimili í smíðum
Hefur því veriö ráðist í að reisa
nýtt og fullkomið blindraheimili
á lóð íélagsins við Hamrahlíð
Húsið verður tvær álmur og er
ætlunin að byggja það 1 tveimur
áföngum. Minni álman er komin
undir þak, en þegar hún verður
fullbyggð, getur félagið margfald
að starfsemi sína. Óg þegar allt
húsið verður tekið í notkun, ætti
þar að fást ríflegt húsnæði fyrir
allt blint fólk sem þarf að dvelj
ast á blindraheimili, auk þess sem
þar verður nóg húsrými fyrir
vinnustofur og alla aðra starf
semi, sem slíku heimili tilheyrir,
Stærsti tekjuliður félagsins hef
ur á undanförnum árum verið
ágóði af merkjasölu. En félagið
hefur ýmsar aðarar fjáröflunar
leiðir, t. d. sölu minningarspjalda
sem afgreidd eru á Grundarstíg
11 og í lyfjabúðum í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfirði. Einnig
berast því oft gjafir og áheit
Hyggst félagið nú róa af fullum
krafti á þau fjáröflunarmið sem
áður hefur verið á sótt, og leita
nýrra, svo hið nýja blindraheim
ili komist upp sem fyrst. Og eru
væntanlegir hljómleikar einn lið
urinn í tekjuöflun félagsins, eins
og áður er getið.
Á FRÆÐSLUFUNDI, sem Garð-
yrkjufélag fslands hélt á mánu-
dagskvöldið, talaði Einar Sig-
geirsson garðyrkjufræðingur um
grasflatir og ræktun þeirra. —
Minntist hann í erindi sínu á
bandaríska nýjung, sem eykur
ótrúlega trjávöxt og fleira. Er
borin á trén sýra, sem heitir
gabrielasýra, og vaxa þau þá ó-
trúlega mikið á næstu vikum.
+ KVIKMYNDIR +
Tripolibíó:
FOLIES BERGERE
ÞAÐ er ástæða til að vekja at-
hygli á mynd þessari, þar sem
hér er um að ræða óvenjulega
„Lemmy“-framleiðslu: sem sé
saklaus slagsmál og enginn í lífs
háska. Engu að síður er hún með
skemmtilegri „Lemmy“-mynd-
um, full af léttu og þokkafullu
gríni, og ekki má gleyma hinni
hrífandi dansmey, Zizi Jean-
marie, sem leikur aðal kvenhlut-
verkið, því hún ein gerir mynd-
ina vel þess virði að sjá hana,
jafnt með dansi sínum og per-
sónutöfrum. Atburðarásin er að
sjálfsögðu ekki í frásögur fær-
andi: hæfilega lygileg og ómerki-
leg ástarsaga krydduð með álíka
sannfærandi slagsmálum. En
þrátt fyrir þetta get ég ráðlagt
fólki að gera sér ferð í Tripolibíó,
að kynnast hinum ágæta skemmti
stað, Folies Bergere, svo ég
minnist nú ekki aftur á hana
Zizi. Ego.
Reyndi Einar þessa sýru í fyrra á
tré hér á landi, og ennþá hefur
allt farið samkvæmt áætlun hjá
honum.
Á fundinum töluðu einnig
Hannes Arngrímsson og kona
hans um pottaplöntur og ræktun
þeirra.
Var þessi fyrsti fræðslufundur
Garðyrkj uf élagsins mjög vel
sóttur og gerður var góður róm-
ur að erindum flutningsmanna.
Tónleikar
Menntaskólanum
SÍÐASTLIÐINN mánudag voru
haldnir tónleikar á Sal í Mennta-
skólanum. Einleikarar voru þeir
Klaus-Peter Doberitz, cellóleik-
ari, og Ernst-Klaus Schneider,
píanóleikari. Leikin voru verk
eftir Vivaldi, Beethoven, Kilpin-
en, Schubert og Brahms. Leikur
þeirra félaga var mjög lipur og
öruggur. Sérstaklega vakti celló-
sónata Brahms í e-moll hrifningu.
Hér er um viðamikla og risa-
vaxna tónsmíð að ræða, mjög
erfiða viðfangs, svo ég bjóst satt
að segja við, að þeir hefðu reist
sér hurðarás um öxl með því að
ráðast í þetta verk. En flutningur
þeirra var einstaklega öruggur og
með mikilli smekkvísi, enda hafa
xeir greinilega unnið verkið
mjög vel. Hér eru á ferðinni tveir
mjög efnilegir tónlistarmenn og
spá tónleikarnir í Menntaskólan-
um mjög góðu í framtíðinni. Við
eigum áreiðanlega eftir að heyra
meira í þeim.
Gunnar Kjartansson.
Hátíðaliöld
í Kópavogi í dag
KÓPAVOGSKAUPSTAÐUR hef
ur nú í fyrsta sinn hátíðahöld á
sumardaginn fyrsta. Hefjast þau
með skrúðgöngu frá báðum barna
skólunum kl. 12:30. Lúðrasveitir
leika fyrir göngunum. Staðnæmzt
verður við félagsheimilið, og fara
hátíðahöldin fram þar. Skemmt-
unina setur Páll Bjarnason.
Magnús B. Kristinsson syngur
gamanvísur og Gestur Þorgríms-
son skemmtir. Lúðrasveit leikur
sumarlög.
Inniskemmtanir fyrir börn
verða í félagsheimilinu og hefjast
þær kl. 2:30, 4:30 og 6:30. Kvik-
myndasýning verður kl. 9 í félags
heimilinu, og einnig verður dans-
að þar. Veitingar verða seldar í
félagsheimilinu eftir kl. 2. Ágóði
af hátíðahöldunum rennur í sjóð
til byggingar dagheimilis í Kópa-
vogi.
Sigurður Ölason
Hæslarcttarlögmaður
Þorvaldur Lúðvíltsson
HéraðsdómslögniaSur
Málflutningsskrifstofa
Austurstræti 14. Simi 1-55-35
Auglýsingagildi
blaða fer aðallega eftir les-
endafjölda þeirra. Ekkert
hérlent blaf kem þar f
námunda við
Dalai Lama
Framh. af bls. 1.
sagði Dalai Lama m.a. að Kín-
verjar hefðu gengið á gerðan
samning milli Tíbets og Kína frá
1951 með afskiptum af innan-
landsmálum Tíbets, þeir hafi
brennt klaustur, drepið munka
og flutt Tíbetbúa í nauðungar-
vinnu í Kína.
Kínverski leppurinn í Tibet
Panchen Lama sagði á flokks-
þinginu, að Dalai Lama hefði
ekki samið yfirlýsinguna, held-
ur einhver annar aðili. Hann
hefði verið neyddur til að undir-
rita hana.
Móðir okkar
ÓSK BJARNADÓTTIR
frá Svalbarði,
lézt að heimili dóttur sinnar, 21. þ.m.
Börnln
Jarðarför eiginmanns míns og föður okkar
KRISTJÁNS ur. jónssonar
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði laugardaginn
25. apríl kl. 2 e.h.
Fyrir mína hönd og barna okkar
Guðrún Arnþórsdótttr.
Látli sonur okkar verður jarðsunginn föstudaginn 24.
þ.m. Og hefst athöfnin á heimili okkar, Vesturgötu 64,
Akranesi kl. 2 e.h.
Steinunn Guðmundsdóttir,
Guðmundur Guðbjörnsson
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig
á 75 ára afmæli mínu 2. apríl með heimsóknum, gjöfum
og heillaóskum.
Soffía Jónsdóttir, Tjamargötu 40
Hjartanlega þakka ég öllum sem heiðruðu mig með
heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á 80 ára
afmæli mínu 17. þ.m.
Guð blessi ykkur öll.
Danícl Jónsson frá Tannsstöðum
Okkar hjartans þakkir viljum við færa öllum bæði
skyldum og vandalausum, fyrir þær miklu gjafir, sem
okkur hafa borizt' í vetur. Þær veða okkur ógleyman-
legar. Við biðjum góðan Guð að launa ykkur ölium.
Gleðilegt sumar.
Vilborg og Sigurjón, Merkisteini, Eyrabrakka.
Langamma mín
SKGRfÐUR ÓLAFSDÓTTIR
verður jarðsungin laugardaginn 25. þ.m. Athöfnin hefst
kl. 2 e.h. frá heimili okkar. Götu Selvogi.
Vegna ættingja
Haraldur Bragi Ólafsson
Jarðarför eiginmanns míns og föður okkar
SIGURÐAR JÓNASSONAR
fyrrv. bónda frá Leiti Dýrafirði,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 24. þ.m. kL
13,30. Blóm afbeðin.
Jónína Sigurðardóttir og dætur
Fósturmóðir mín
GUÐLAUG GlSLADÖTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 24.
apríl kl. 3 s.d. Blóm afbeðin
Gestur Ölafsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðafrör eigijkonu minnar
ÖNNU INDRIÐADÓTTUR
Friðbjöm Sigurj«,tsson.
Reykholti.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim ættingjum og vln-
um, sem sýnt hafa okkur samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför mannsins míns og föður
VALDIMARS BJARNASONAR
Steinun Pálsdóttir Beck,
Páll Beck Valdimarsson.