Morgunblaðið - 12.05.1959, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.05.1959, Blaðsíða 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagirr 12. maí 1959 Kristján Ó. Kristjánsson fyrrverandi skipstjóri og fornböksali 26. apríl 1873 — 4. maí 1959. ★ KRISTJÁN Ólafur Kristjánsson, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur 26. april 1873 í Trostans- firði í Arnarfirði. Hann lézt að heimili sínu, Kirkjugarðsstig 6, hér í bænum, aðfaranótt 4. maí 1959, og varð því liðlega 86 ára gamall. Faðir hans var Kristján Páll bóndi í Trostansfirði, f. 22. 11. 1840, Jónsson b. seinast í Skápadal, Patreksfirði, f. 26. 10. 1817, Jónssonar b. iLaugardal Arn órssonar. Sá Arnór var aðfluttur, kominn af Brokeyjar-Jóni (f. 1584, d. 1672) Péturssyni b. í Arn- aarfirði Pétursonar. Er þar með ein grein af karlleggnum komin aftur á fornar slóðir. Kona Jóns Arnórssonar var Ragnheiður Sig- urðardóttir Þórðarsonar hrstj. á Sveinseyri, sem var sonarsonur Þórðar ríka í Laugardal, Jóns- sonar, en hann var einn hinna kunnu Sellátrabræðra. Þeir voru nofnfrægir fyrir atorku og hreysti. Móðir Kristjáns Páls var Krist- ín Pálsdóttir Jónssonar og k. h. Guðrúnar Jónsdóttur, ættuð úr Önundarfirði. Móðir Kristjáns var Jóhanna Ólafsdóttir, b. á Hamri á Hjarð- arnesi Jónssonar og k. h. Krist- ínar Þorkelsdóttur Ólafssonar. Var móðurfólk hans ættað af Barðaströnd og þar um slóðir í marga ættliði og dugandi bænda fólk. Sést af því, sem hér hefur verið sagt, að ættin var ómenguð vestfirzk í marga ættliði, þó að ekki verði það lengra rakið hér. Jón Jónsson í Skápadal, afi Kristjáns, var annálaður krafta- maður og svo var um fleiri úr þefrri ætt. Má þar til nefna Ólaf son Jóns, sem kallaður var Ól- aður sterki. Hann var faðir Jóns, sem lengi var stýrimaður á Guli- fossi. Föður sinn missti Kristján þeg- ar hann var á 1. ári, því að Krist- ján Páll dó 15. júní 1873, og hafði hann þá búið í Trostansfirði að eins rúmlega 2 ár. Móðir Krist- jáns bjó áfram til næsta vors, en fluttist þá til tengdaföður síns að Skápadal. En sjaldan er ein báran stök. Jón drukknaði seint i maí 1875 af dönsku skipi sem Frigg hét. Voru á því nokkrir menn úr Rauðasandshreppi, eða ættaðir þaðan, auk Jóns. Þar var nágranni Jóns, Sigurður b. í Botni, sonur séra Gisla Ólafs- sonar í Sauðlauksdal ,og tveir dóttursynir séra Gísla. Nú stóð móðir Kristjáns ein síns liðs með 3 ung börn sín. Bjó hún nokkur ár í Skápadal. En 1879 fluttist til hennar Friðlaug- ur Einarsson og varð hann seinni maður hennar, giftust 1884. Dó Jóhanna ú Patreksfirði 13. maí 1919. Var hún góð kona og mikilhæf. Kristján átti tvö alsystkini, Pál og Gunnhildi Guðrúnu. Páll var b. i Skápadal, síðan í Sperðlahlíð og seinast á Krosseyri í Arnar- firði, kvæntur MáMríði Ólafs- dóttur Björnssonar. Guðrún var ógift. Hún mun hafa látizt um aldamótin en Páll lifði fram yfir 1940. Af hálfsystkinum hans komust tveir bræður til fullorð- insára, Guðmundur og Davíð (d. 1934), smiður á Patreksfirði. Skápadalur mun hafa verið all- góð sauðjörð, en framfleytti ekki miklum bústofni svo að ekki var meira en til hnífs og skeiðar. — Kristján mun snemma hafa haft hug á því að læra eitthvað en ekki var það auðgert. Hefur hann sagt svo frá í blaðaviðtali á sjö- tugsafmælinu að innan við ferm ingu hafi hann ráðið sig til prests ins í Sauðlauksdal, séra Jónasar Björnssonar, gegn þvi að prestur veitti honum kennslu. Minna varð þó úr kennslunni en til stóð og sendi prestur Kristján á sjóinn og varð sjómennskan síðan at- vinna hans. 19 ára var hann orðinn stýri- maður, en til þess þurfti þá ekki sérstakt próf. 1895 fór hann á Stýrimannaskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi tveimur ár- um síðar. 24 ára að aldri, eða ári fyrir tilskilinn lágmarksaldur, og þurfti nokkuð harðfylgi til- Sama vorið réði hann sig á þilskipið Viggu frá Geirseyri, en varð því afhuga að fara til skips og virð- ist þar hafa skilið milli feigs og ófeigs því að í maí um vorið fórst skipið í aftaka veðri með allri áhöfn. Kristján var nú skipstjóri á ýmsum þilskipum fram íi) 1902. | Það ár kvæntist hann eftirlifandi I konu sinni Sigurlaugu Trausta- dóttur, þá yfirsetukonu og barna. kennara.Setti hann nú á stofn mat vöruverzlun (á Lvg. 17), en rak hana stutt, því er fyrstu islenzku togararnir komu sneri hann sér aftur að sjónum sem togaraskip- stjóri; er það sumra kunnugra manna mái, að hann hafi verið fyrsti íslenzki togaraskipstjórim^, en við höfum ekki haft tækifæri til að kanna ritaðar heimildir ef til eru í því sambandi. Kristján var með ýmsa togara og síðast með Skúla fófgeta er hann fórst á tundurlufli við England í byrj- un fyrri heimsstyrjaidar, 27. ág. 1914. 1916 hætti Kristján að mestu sjómennsku, stjórnaði þó síldar- móðurskipinu Fristad, sem Elías Stefánsson sendi á Reykjarfjörð á Ströndum sumarið 1918. Kristján stofnaði nú (1918) fornbókasölu sína í Lækjargötu 10 og rak hana til 1940. Hann hafði snemma unnað bókum og gerst mikill safnari. Átti hann á tímabili eitt af stærstu og vönd uðustu einkasöfnum íslenzkra bóka á landinu. Ást hans á bók- unum og nákvæmni í varðveizlu þeirra var við brugðið og hefur Valtýr Stefánson ritstjóri helg- að þessu rúm í viðtöium sínum við merka bæjarbúa. Að því kom að safnið varð Kristjáni ofviða til eignar og um sjónar. Seldi hann það Harvard háskóla 1930 og sagði svo síðar er menn hörmuðu að slik gersemi færi úr landi, að gott ífeienzkt bókasafn við merka erlenda menntastofnun væri að sinni hyggju ekki lítill þáttur í góðri landkynningu. Fróðir menn munu sammála um að hin þrotlausa og nákvæma söfnun Kristjáns á bókum, blöð- um, fregnmiöu. . og yfirleitt sér- hverju prentuðu íslenzku máli hafi bjargað mörgu verðmæti frá fullri glötun og víst er að hann gat oft miðiað Landsbókasafninu. Nákvæmni hans var viðbrugðið og hugtakið „komplett”, eða að bók væri óskert, tók nokkurri breytingu fyrir hans aðgerðir. Benedikt Þórarinsson og Kristján vor samtímamenn og oft keppi- nautar um eigulega gripi og þeir skipa ekki ósvipaðan sess meðal bókamanna þessa tíma. Fornbókaverzlun Kristjáns Auglýsendur! ■ i JBorjpmbl&MÍ) er helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt dagblað. ☆ Blaðið er nú sent öllum þeim, er áður fengu „ísafold og Vörð“. og er því lesið á flest öllum bæjum dreifbýlisins. ☆ er blað allra landsmanna % %%%%%%%%% % %%%&%%&% gegndi merku hlutverki, ekki að eins fyrir bókasafnara almennt, heldur og fyrir uppvaxandi menntamenn. Auk þess að þar fóru fram kaup og sala á not- uðum skólabókum höfðu skóla- piltar þarna stöðugt fyrir augum sýnishorn af fornri og nýrri bók- menningu þjóðarinnar og þar buð ust mörg tækifæri til að eignast bækur. Þess má geta, sem minna er þekkt, að Kristján átti fleiri brernandi áhugamál en bækurn- ar. Hann var sjálfur kempuleg- ur á velli og vel að manni og hann hreifst mjög af atgerfi og vaskleik ungra manna. íþrótta- sýningar og keppni lét hann ekki fram hjá sér fara. Hann gerðist snemma styrktarmeðlimur knatt- spyrnufélagsirts Víkings og fylgd- ist einkum með knattspyrnu af einstæðri kostgæfni. Var hann fastur gestur á íþróttavellinum fram yfir áttrætt, eða meðan heilsa leyfði honum útivist, og gilti einu hvort keppendur voru meistarar eða í yngri flokkum. Kristján var hæglátur og alla jafna ekki margmáll og virtist hinn brennandi áhugi hans fyrir því er greip hann eiginlega í mót- sögn við hið rólega fas. En áhug- inn birtist í óbilandi staðfestu við málefnið, hann var mikill skapfestumaður og kom það fram í fleiru. Kristján fylgdist mikið með þjóðfélagsmálum og hafði ákveðnar skoðanir og hélt fast á sínu máli ef svo bar undir. Konu sinni og einkadóttur unni Kristján mjög og var þeim ást- ríkur heimilisfaðir; hann átti óvenjulega barnslega blíðu. Var hann konu sinni samhentur í frændrækni og heimili þeirra oft athvarf hér í bæ fyrir stóran frændahóp. Seinustu árin var Kristján far- inn að heilsu og þurfti nákvæma unnönnun og aðstoð. Naut hann þar konu og dóttur, sem hjúkr- uðu honum af mikilli nærgætni og ástúð og sýndu þolgæði sem vakti aðdáun allra sem voru því kunnugir. Trausti Ólafsson, Trausti Einarsson. Kveðjuorð. EKKI er það áform mitt að taka ómak af þeim, er ætla má að nti um ævfiferil Kristjáns Kristjáns- sonar bóksala, er lézt hér í bæn- um 4. þ. m., 87 ára að aldri, enda margir, sem bet>-i aðstöðu hafa en ég til þess að segja sögu hans í heild. En um tveggja áratuga skeið hafði ég svo stöðug kynni af honum reyndi hann að svo miklu góðu, og engu öðru en góðu, og þótti maðurinn svo merkilegur og mætur að mér finnst að ég sýndi honum illa verðskuldað vanþakklæti ef ég minntist hans að engu, nú þegar hann er genginn. Mín orð að þessu sinni eru ekki til annars en að þakka. Eins og svo fjarska mangir aðrir ágætir menn var Kristján upprunninn af vesturkjálka landsins, Barðstrendingur, að ég ætla. Um uppvöxt hans er mér ekki kunnugt, en efalaust hefur hann, eins og hans kynslóð og sú næsta, snemma orðið að vinna hörðuin höndum, fljótt séð að annaðhvort var að duga eða drepast. Hann hefur sjálfsagt ungur farið að stunda sjó, en „þar er ætíð rekk órögum þörf að reyna þrek og dug“. Þegar hann hafði aldur til lærði hann siglingafræði og varð skipstjóri, fyrst á skútu, en síðar á togara eftir að þeir komu til sögunnar. Eitthvað heyrði ég um það endur fyrir löngu, að þegar honum barst fregnin um lát síns mikilhæfa kennara, Markúsar Bjarnasonar skólastjóra, hafi hann þegar í stað haft samband við stallbróður sinn Pál Halldórson og hvatt hann til þess að sækja um stöðu þá, er þar með hafði losnað. Honum var annt um að ekki kæmi þar köttur í ból bjarnar, en vissi hæfileika Páls. Framhald þeirrar sögu þarf svo ekki að segja.. En þó Kristján stæði framar- lega i sjómannastéttinni og þar væri helzt hagnaðarvon, þá voru það nú samt bækurnar sem alla tíð höfðu tekið hug hans fastari tökum; þær höfðu beinlínis heill- að hann og i þær lagði hann svo fjármuni sína að ýmsum mun hafa þótt úr hófi fram. Ekki áfellist ég hann fyrir þetta, því sjálfum mér hafa þær ævilangt verið sterkasta freistingin. Hon- um söfnuðust þanni’g ógrynni bóka, svo að loks komst hann í fullkomin vandræði um geymslu stað fyrir þær. Og náttúrlega eignaðist hann af sumum bók- unum mörg eintök. Hann lagði sig alla tíð mjög eftir biblio- grafiskum fróðleik, svo að af íslendingum hér heima ætla ég að um eitt skeið hafi hann verið orðinn hverjum manni fróðari í íslenzkri bóksögu, en þótt þar væri þá til samanburður ekki beinlínis smælingi á því sviði, þar sem var Benedikt Þórarins- son, Það voru hrein undur hvað þessi sjómaður hafði getað lært. Upp úr þessu kom svo það, að hann afréð að hverfa úr skip- stjóraflokknum og stofna hér fornbókaverzlun. Þetta gerði hann um 1920, og var í rauninni fyrsti íslenzki fornbókasalinn, því að eldri tilraunir í þá átt (t. d. Jóns Ólafssonar) höfðu runnið út í sandinn. Hann hóf verzlun sína í gömlu timburhúsi í Lækjar- götu, svo gisnu að ekki varð upp hitað í kuldum og var þá heilsu- spillandi þar að vera. Samt var hann þar í allmörg ár, unz þeir vinir mínir, Helgi Magnússon og Kjartan Gunnlaugsson, gerðu það fyrir mín tilmæli að láta hann fá búðarholu í húsi sínu í Hafnar- stræti 19. Eftir að hann var þang- að kominn, fór vel um hann. Þegar hann hafði verið þarna um nokkurra ára skeið, fór hann að finna til vanheilsu, sem eink- um lýsti sér í því, að hann mátti ekki lúta höfði. Sá hann loks, að óumflýjanlegt mundi fyrir sig að hætta störfum, og þá vitanlega að selja verzlunina. En honum var nú ekki alveg sama í hvaða höndum hún lenti. Svo fór nú samt að sá maður gaf sig fram til kaupanna er Kristján vissi að reka mundi hana með sæmd og til nytsemdar. Var það Hafliði Helgason er við henm tók, ákaflega. bókfróður maður. Og reyndin varð sú, að hann rak verzlunina af meira fjöri en Kristján hafði gert, enda var hann yngri maður, og ekki af- þokkuðust vinsældir hennar. En það ætla ég að ekki hafi það ver- ið honum, né heldur eftrmanni hans, Agli Bjarnasyni, ónýtt að eiga þann hauk í horni sem Kristján var með allan sinn bók- fróðleik, enda munu báðir hafa neytt þess. Fyrir menntamenn gegna forn- bókaverzlanir svipuðu hlutverki og bankar fyrir framkvæmda- menn á athafnasviðinu. Það var þannig mikið þjóðnytjastarf, sem Kristján Kristjánsson hóf er hann setti á stofn fornbókaverziun. En því aðeins gat það orðið þjóð- nytjastarf að hann værj, vandan- um vaxinn, og það var hann sann arlega. Ég hefi þegar vikað að bókfræði hans, en þó að hún sé eitt af höfuðskilyrðum til þess að fornbóksali geti gert gagn með starfi sínu, þá eru líka skilyrðin fleiri, sem uppfylla þarf. Ég vil geta tveggja annarra, sem Krist- ján uppfyllti merkilega vel. Hann lét verzlun sína aldrei verða að prangi. Sumir sögðu að hann væri dýrseldur. Þetta var sagt annað livort af skammarlegu skilnings- leysi eða þá gegn betri vitund. Hanh seldi aldrei bók yfir sann- virði og þráfaldlega lægra verði en hann vissi vel að hann gat fyr- ir hana fengið. Prang og okur var tionum andstyggð. Annað var hitt, að honum var ekki sama hverjum hann seldi bókina. Hann kaus helzt um hverja góða bók að hún lenti þar sem hann hugði að hún kæmi að beztu gagni, hafði m. ö. o. svipað sjónarmið sem samvizkusamur bankastjóri þegar hann er að veita lán. Ekki Framh. á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.