Morgunblaðið - 10.07.1959, Síða 12

Morgunblaðið - 10.07.1959, Síða 12
12 MORCrVBLAÐIÐ Föstudagur 10. júlí 1959 Sigurður Árnason frá Höfnum Minningarorð ÞANN 10. júní andaðist Sigurður Árnason fyrrum bóndi að Höfn- um á Skaga. En þar höfðu for- feður hans búið við auð og vel- sæld. Enda er þeim stað gefin þau gæði, er bezt hafa þótt í landi hér. Víðlent tún, vatn með silungsveiði við túnfótinn, en fýrir landi auðug fiskimið, er hinar gömlu Hafnarbúðir vitna um. Eyjar fyrir landi, er æður- inn i vordögum byggir og gefa bóndanum dún. En fleiri en eyj- arnar eru þó skerin, er selurinn kæpir við, svt selalagnir eru þar viða góðar. Eigi þarf bóndann eldivið að skorta, né við til húsa- gerðar, því þar eru rekafjörur miklar. Eins og armleggur í norðvestur teygir sig Hafnarmúli með Skallarifi og grípur í fang sér hin góðu tré, er hafaldan færir frá Norðuríshafi að landi. Oft er þar og snjólétt á vetrum, því landið er lágt og beitin góð. Er ég leit Hafnir fyrst 1941, bar þar margt vott um fornan höfð- ingsskap. Fjöldi útihúsa með hlöð um um allt tún, reisuleg og sterk- lega viðuð. Á hlaðinu dúnhúsið og tvílyft skemma, svo fletta mætti þar viðnum, stór timbur- bær, portbyggður, 25 metrar á hlið, með fimmtái. herbergjum. Yfir karldyrum hússins útskorin í fullri stærð æðarhjón máluð með réttu litskrúði, en yfir skor- in engilsmynd eins og tákn þess, að guð gaf manninum vald til að drottna yfir dýrum merkurinnar, fiskum sævarins og fuglum lofts- ins. Og mest væri um vert að hann blessaði heimilið. Þar var og ártalið 1868, en það ár reisti hinn mikli búhöldur Árni Sig- urðsson þennan bæ. Árni var tví- kvæntur. Meðal barna hans af fyrra hjónabandi var Árni í Höfðahólum og sira Arnór í Hvammi. í annað sinn kvæntist hann Jónínu Jónsdóttui frá Espi- hóli í Eyjafirði. Var hún vel að sér og auðug, svo hún fékk eigi ofbirtu af dúngulli Hafnarbónd- ans. Þau hjón eignuðust tvö börn, Margréti, ekkjr Páls Vídalins sýslumanns, og Sigurð Hann var fæddur 2. maí, 1880, í Höfrtum, en faðir hans, Ámi, andaðist 1886. Tók þá Jónína móðir hans við búsforráðum með ráðsmanni sér við hlið Var engu minni bú- skapur en áður var. bæði til lands og sjávar. Jónína var óvenju vel menntuð kona til munns og handa og stjórnsemi og reglusemi var henni í blóð borin. Enda veitti ekki af, því að oft var 20—30 manns í heimili. TEn hver hafði sitt ákveðna verk o g hver hlutur var á sínum stað. Vist var hjá henni góð. Henni var einkar umhugað um, að fólk hennar, einkum unglingar, mönn uðust verklega og andlega, hélt hún þvi jafnan neimiliskennara, og var heimili hennar eini skóli margra, og hann góður, vitna um það margir, er voru þar lengri eða skemmri tíma. Börn hennar hlutu hið bezta uppeldi, var Sig- urður sendur í Möðruvallaskóla 1899 og var þar í tvo vetur. Taldi hann það beztu ár ævi sinnar, þó að honum þætti vistin naum. Bar hann á/allt hlýjan hug til þessa skóla, sótti minningarhátíð hans á mimmtíu ára afmæli, og iðkaði Sigurður þó eigi skemmtireisur um dagana. Og að þessi hugur til mennta fór eigi dvinandi með aldrinum má sjá af því, að hann gaí eitt herbergi til stúdenta- garðsins, er ber nafn Hafna í Húnaþingi. Að afloknu námi gerðist Sigurðui ráðsmaður móð- ur sinnar á búinu og stóð svo til 1913, er hún fluttist vestur í Stykkisliólm til Margrétar dóttur sinnar. Hóf þá Sigurður búskap sjálfur. En 1918 fékk hann Hafnir keyptar ásamt hálíum Kaldrana, en hinn helminginn hafði hann eignasí við erfðir. Var þá kom- ið á eina hendi hin miklu nátt- úrugæði Norðvesturskagans. Auk þess hlaut hann í arf jörð í hverri, sýslu Norðlendingafjórðungs. Sigurður hafði gagnsamt bú og nytjaði hlunnindin, gerði girð- ingar miklar um landareignina. Varð hann auðugur að löndum og lausum aurum. Bar hann stundum eins mikið útsvar og allir hinir samanlagt í Skaga- hrepp. Sigurður gaf sig lítið að málum manna, og sat þó í hrepps nefnd, en vildi eigi vera oddviti. Hann var góðum gáfum gæddur, rökvis og fastheldinn í skoðun- um. Duldi hann eigi meiningu sína fýrir mönnum, og gat oft orðað hana á eftirminnilegan hátt. Öll óþarfa eyðsla og tildur var honum fjarri, en höfðing- lega gat honum farizt, ef hann vildi það við hafa. Sendi hann t. d bónda einum húsavið allan og gaf. Var það þakklæti hans fyrir ferð, er hann fór með hon- um, er, Sigurður taldi sér tor- velda, en varð honum til mikillar gleði. Sigurður var svipmikill og hafði stórbrotna skapsmuni, eins og er einkenni þeirra Hafna- manna. Er því fólki eigi gjarnt að bogna í stormviðrum lífsins, heldur mundi það fyrr brotna. Sigurður eignaðist á yngri ár- um ban með Guðríði Rafns- dóttur, hinni gjörvilegustu konu. Var bar.iið látið heita Árni, og er nú íulltíða búsettur í Reykja- vík. Varð eigi hér af hjónabandi, og var Sigurðui ævilangt afhuga slíkum framkvæmdum. Hafði hann ráðskonur fyrir búi sinu, meðal peirra var Guðrún Stef- ánsdóttir, myndarkona og vel gerð. Var hún 14 ár hjá Sigurði óg mun þá búskapur hans hafa staðið með mestum blóma. Þau eignuðust eina dóttur, Sigríði, er Sigurður unni mjög. Er hún bú sett í Reykjavík. Árið 1942 seldi Sigurður Hafn- ir. Mun hann eigi hafa kennt sig mann .il að búa lengur, auk þess sem erfitt var að fá fólk. Fluttist hann þá til Reykjavíkur í hús Guðrúnar Stefáusdóttur og dvaldi þar til endadægurs. Haustið 1942 kvaddi hann Hafnir og Skaga. MættumSt við þá í haustmyrkrina úti í Skaga- hreppi, riðum heim á bæ einn og drukkum velfarendaminni. Og er við kvöddumst þar á reið- skjótunum sagði hann: „Þakka þér fyrir komu þína í Norður- land, en er ég andast, mun andi minn laita á heimaslóðir míns föðurtúns." Hvarf hann mér síð- an hinn aldni höldur Húnaþings, klökkur, til ljósadýrðar og náð- ugra dagc í Reykjavík, en ég Reykvíkingurinn, reið móti hríð og nepju Norðurskagans. Skammt er nú að sumarsólstöðum, er Sig- urður í Höfnum hefur safnast til feðra sinna. Þá er fegurst í Höfnum. Þar er miðnætursól og lognaldan fögur og líflegt á sjó og landi. Þá eru Hafnir í blóma sínum. Ég veit að Sigurður þráði ávallt þá sjón, og vona ég að honum hafi hér orðið að von sinni. Pétur Þ. Ingjaldsson, . Höskuldsstöðum. Ódýrf Ódýrt BARNASKÓR frá kr. 85.00 FLATBOTNAÐIR kvenskór, frá kr. 90.00 INNISKÓR frá kr. 45.00 TÖFLIIR frá kr. 58.00 og margt annað á mjög lágu verði. Athugið þér getið gert hagkvæm skokaup hjá okkur. BUÐIN Spítalastíg 10. Nýkomið Nýkomið Töflur fyrir kvenfólk með kotrkhælum, Eigum margar gerðir af töflum verðið er sérlega lágt svo sem, kr. 58.00, 90.00, 9*''«, 104.00, 135.00. Skóverzlunin Hector hf. Laugavegi 11. LOKAÐ vegna sumarleyfa 22. júlí — 4. ágúst. Getum ekki tekið á móti meiru verkefni, sem á að afgreiðast fyrir þann tíma. Þ. Jónsson & Co. LOKAO /egna saumarleyfa frá 16. júlí — 7. ágúst. ' O.V. Jóhannsson & Co. Hafnarstræti 19 — Sími 12363, 17563. Ný sending svissneskar kvenblússur GLUGGINN Laugaveg 30. Lokaö vegna sumarleyfa ftrá 13. — 27. júlí. BJÖRGVIN SCHRAM UMBOÐS-OG HEILDVERZLUN I sumarleyfið Blússur í miklu úrvali. VERZLUNIN LAV LAt/GAVEG té Sími 16387. Skrifborð stór (fyrir forstjóra) Borðstofuhúsgögn, Sóffasett. Svefn- sófar Svefnstólar og Garðstólar Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar. Húsgac|naverzlun Reykjavíkur Brautarholti 2 — Sími 11940. AK R AN E S D AN 5 LE I K U R að Hótel Akranesi í kvöld kl. 9. Hljómsveit Age Lorange. Söngvari: Sgurdctr Sigurdórsson. Kl. 10,30 skemmtiatriði: Baldur Georgs sýnir töfrabrögð. LOTT og JOE ANDERS. ,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.