Morgunblaðið - 20.09.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.09.1959, Blaðsíða 6
6 MOR^VmttAÐlÐ Sunnu'dagur 2Ö. sept. 1959 Þegar Danmörk var á hafshotni * * * * * * 45 millj. ára gamall skjaldböku- * sfeingervingur flytur kvebju fortiðarinnar * * * * * í STEIN AFRÆÐISAFNINU í Kaupmannahöfn er steinn, sem nýlega fannst í gömlum leirlögum á eyjunni Fur í Limafirði. — Já, harla venju- legur steinn er það í augum Dr. Eigil Nielsen — með „kveðju“ fortíðarinnar við fætur sér Skólast j ór askip ti í Stykkishólmi STYKKISHÓLHI, 17. sept: Ólaf ur Haukur skólastj. barna- og mið skólans hér, flutti héðan alfarinn í gær með fjölskyldu sína til Akra ness. — Þar tekur hann við skólastjórastörfum við gagnfræða skólann. Ólafur Haukur hefur stjórnað skóla sínum hér mjög vel og er almennt saknað. Skömmu áður en hann kvaddi Stykkishólm, hélt stúkan Helgafell honum og konu hans kveðjusamsæti. Við embætti skólastjórans tek- ur Sigurður Helgason, sem und- anfarin 8 ár hefur verið kennari við skólann, verið farsæll kenn- ari og mikill áhugamaður um íþróttamál. Nemendur skólans verða milli 180—190 nú í vetur og eru tvær kennarastóður laus- ar við skólann. — Árni. leikmanna, en fræðime nnirn- ir sjá þar annað og merki- legra. Hér er sem sé um að ræða steingerving sæskjald- böku, sem mætt hefur dauða sínum þarna í Limafirðinum fyrir hvorki meira né minna en 45 milljónum ára — að því er sérfræðingarnir fullyrða. — ★ — • Þessi merkilegi fundur, og fleiri dýra- og jurtasteingerving- ar frá svipuðum tíma, sem fund- izt hafa, þykja benda til þess, að fyrir 45 millj. ára eða þar um bil hafi mestöll Danmörk verið „á hafsbotni“. — Um þetta ritaði Erik Pagh í danska blaðið B.T. á dögunum, en hann hafði átt tal við dr. Egil Nielsen í steinafræði- safninu og séð steingerving sæ- skjaldbökunnar, sem fyrr var á minnzt. Hann skrifar m. a. eftir- farandi (lausléga þýtt) eftir sam- tal sitt við dr. Nielsen: ★ Danmörk — ekki til Þá var landið æði lítið — raunverulega var það alls ekki til. Allt það, sem við nú nefnum Sjáland, Fjón, Suður- og Mið- Jótland o. s. frv., var yfirflotið hafi, sem einnig huldi nokkurn hluta Þýzkalands. Vísindamenn ætla, að Skandi- navía hafi þá verið samfelldari heild en nú er og náð lengra suð- ur að vestanverðu — hafi suður- ströndin þar legið um það bil, sem Limafjörðurinn er nú, eða þar sem skjaldbökusteingerving- urinn fannst nýlega. — Það, sem þá var til af Danmörku, var að- eins landið fyrir norðan Lima- fjörð — sem var hluti lands“ Skandinavíu. ,megin- • Eins og við Miðjarðarhaf En loftslagið var gott — milt og þægilegt, sennilega ekki ólíkt því, sem nú er við Miðjarðarhaf- ið. Og því var það, að sæskjald- bökur svömluðu þá á svo norð- lægum slóðum — því að þær munu ekki hafa kært sig meira um kuldann en ættingjar þeirra gera nú, er una sér í hinum hlýju höfum. Skjaldbakan í kjallara safns- ins á Östervold hefur orðið til á landi — og líklegast hefur dauð- inn heimsótt hana, þegar hún skreið upp í fjörusandinn til þess að „verpa“ eggjum sínum, segir dr. Nielsen. — En hvers vegna hún hefur drepizt, er ekki unnt að segja um> Þótt steingerving- urinn sé óvenjulega skýr, segir hann ekki alla söguna. — ★ — • Fundizt hafa steingervingar af fiskum, skordýrum, blöðum og trjástofnum, sem ýmislegt verð- ur ráðið af um líf og aðstæður á þessum tíma. Til dæmis eru menn þess fullvissir, að landið hafi *mestallt verið vaxið þéttum skógi, þó með allstórum, opnum sléttum inni á milli. — Þá hafa vaxið ýmsar tegundir lauftrjáa, sem ekki þekkjast nú. Þá iðaði allt af hvers konar skordýrum, bjöllum og ormum, en „frændur“ þeirra, sem nú lifa, eru vafalaust harla_ ólíkir, því að engin dýra- tegund helzt óbreytt í 45 millj. ára. • Eldgos í Skagerak Þótt dýrum fortíðarinnar hafi eflaust oft liðið vel í hinu milda loftslagi, hefur lífið ekki verið eintómur dans á rósum þá frem- ur en nú. Einnig þá voru til skæð rándýr, sem ekki eirðu neinu kviku, sem þau fengu við ráðið. — En þau, eins og aðrar skepnur þessa tíma, áttu stöðugt yfir höfði sér ógnir náttúrunnar. Fyrir 45 milljónum ára lá suðurströnd Skandinaviu þar, sem Limafjörður er nú. Það sem nú er danskt land sunnan Lima- fjarðar, var ekki til — þar busluðu þá sæskjaldbökur og önn- ur sjávardýr og undu sér vel í hlýjum sjónum. Jörðin gaus alltaf öðru hverju eldi og eimyrju, og hraun og aska lagðist yfir landið. Á eyj- unni Fur, sem fyrr er getið, og þar í kring hafa fundizt öskulög, er bera með sér, að eldgos hafa verið mjög tíð á þessum tíma, og a. m. k. 130 þeirra hafa verið svo öflug, að allt líf í umhverf- inu hlýtur að hafa eyðzt. — Talíð er, að gosin hafi verið einna tíð- ust, þar sem nú er Skagerak, og úr jarðlögunum má lesa, að ekk- ert líf hefur þrifizt á stórum landsvæðum í langan tíma eftir mestu eldgosin. — ★ — • Hvað mannfólkið gerði, þegar öskunni rigndi? Það var hvergi nærri — því að dýrategundin maður var þá ekki til. — Enn skyldi langur tími líða, þar til „Homo sapiens" sæi dagsins ljós. ♦ + ★ ¥ BRIDCE ★¥ ♦ * FRÉTTIR hafa nú borizt af tveim fyrstu umferðunum á Evrópu- meistaramótinu í bridge, er fram fer þessa dagana í borginni Pal- ermo á Sikiley. Að 2 umferðum loknum, hafa 5 lönd unnið báða leikina, en löndin eru: Frakk- land, Finnland, England, Holland og Ítalía. Úrslitin urðu þessi: 1. umferð: Frakkland vann Þýzkaland 75-28 Svíþjóð jafnt við Spán .. 50-45 Ítalía vann Irland....... 85-34 England vann Noreg .... 70-28 Egyptaland v. Austurríki . 64-46 Sviss vann Belgíu........ 68-55 Finnland vann Danmörku . 90-49 Holland vann Líbanon .... 50-44 f skrifar úr. daqlego lifinu J Umferð gangandi fólks. EINS og kunningjar Velvak- anda væntanlega muna, hvatti hann bæjarbúa til þess fyrir nokkrum dögum, að „skipta gang stéttunum á milli sín“, ef svo má að orði komast. Skyldu þeir, sem fara í aðra áttina ganga á öðrum helmingi, en hinir, sem ætla í gagnstæða átt, halda sig á hinum helmingi gangstéttanna. Með þessu móti taldi Velvakandi að umferð gangandi fólks gæti geng ið mun greiðlegar en nú er — og mætti þannig binda endi á þann glundroða, sem oft ríkir á gangstéttunum. Af því að hér er lögboðin vinstri umferð á götum úti — og sí og æ er brýnt fyrir ökummönnum að víkja til vinstri — lagði Velvak- andi til, að gangandi fólk gerði slíkt hið sama — véki til vinstri. í sambandi við þetta hefur J. H. skrifað eftirfarandi: K Hægri eða vinstri. ÆRI Velvakandi! Þú ert gramur vegna þess hve margir gangandi vegfarend- ur víkja til hægri í stað vinstri, og hvetur menn til þess að víkj-i til vinstri. Veiztu, að erlendis hafa athug- anir leitt í ljós, að tveir af hverj- um þrem sem koma inn í sölu- búðir snúa sér til hægri, og er þó ekki um neinar umferðarregl- ur að ræða þar. Mönnum er bara eðlilegt að víkja til hægri. Meira að segja í Bretlandi, hjá hinni vinstri víkjandi þjóð, ganga allir til hægri á gangstéttunum. Þessu hef ég veitt sérstaka athygli, þeg- ar ég hef verið þar á ferð. Nei, það á að breyta hér öllu í hægri umferð. 999 bílar af hverj um 1000 sem framleiddir eru í heiminum munu vera byggðir fyrir hægri umferð. Maður situr eins og blindur kettlingur við vinstra stýri í vinstri umferð og hér á landi verða árlega mörg stórslys af þessum sökum, þegar farið er fram úr án þess að sjáist fram á veginn. Það væri fróðlegt að fá tölur um þetta hjá lög- reglunni. Kostnaffarsamt aff breyta til. EF menn týnast, er ekkert að sjálfsögðu til sparað að leita þeirra. Leit að einum manni mun oft hafa kostað tugþúsundir króna hér á landi, jafnvel meira, en svo treystu löggjafar okkar 1958 sér ekki til þess að aúka umferðaröryggið stórkostlega með því að breyta í hægri um- ferð, af því að það mundi hafa kostað þjóðina um 5 milljónir króna! Alþingi 1940 var þó ólíkt víðsýnna, því það hafði samþykkt lög um hægri akstur, þó brezka hernámið kæmi í veg fyrir fram- kvæmd þeirra. Á meðan bara er fjasað, en ekki allt gert sem í mannlegu valdi stendur til þess að draga úr slys- um, þá fylgir ekki hugur máli“. Það hefur lengi verið rætt manna í milli, hvort heppilegra sé að hafa hægri eða vinstri um- ferð, og vissulega hefur bréfrit- ari nokkuð til síns máls. Kostn- aðurinn við að breyta til er óneit- anlega mikill, en því má samt ekki gleyma, að stundum getur verið d£rt að spara. — Það eru hins vegar fleiri þjóðir en íslénd ingar, sem búa við vinstri akstur og líkar bærilega. Enginn efi ætti heldur að vera á því, að hægri akstur hefði allt fram yfir vinstri umferð, væri búið að breyta til bæði hér og í öðr- um löndum, þar sem þessi umferð arregla gildir. „Ein lög . . . EN burtséð frá þessu stendur óhaggað það meginatriði máls ins, að einhver alger föst regla verður að gilda um þetta.Og með- an hún er sú, að víkja skuli til vinstri og aka á vinstri vegarhelm ingi, verða þeir, sem komast vilja sæmilega óhultir áfram í akstri, að hafa hana í heiðri.Jafnvel þeir sem trúa því eins örugglega og Eisenhower og Krúsjeff eru sköll óttir, að hægri umferð væri heppi legri, eru að óbreyttum aðstæð- um nauðbeygðir til þess að aka vinstra megin, ef þeir ætla ekki vísvitandi að hætta lífi og lim- um. Á gangstéttunum er málið ekki eins alvarlegt, en umrædd skipan mundi áreiðanlega gera umferðina mun greiðari þar — þegar mest á ríður. 2. umferð: Frakkland vann Spán .... 69-35 Danmörk vann Líbanon .. 47-39 Finnland vann Svíþjóð .. 60-37 Belgía vann Austurríki .. 85-36 England vann Egyptaland . 65-34 ítalía vann Noreg........ 78-35 Svíþjóð vann írland....... 48-42 Holland vann Þýzkaland ... 66-18 ★ ¥ ♦ * Bridgesamband Islands hefur ákveðið að efna til bikarkeppni í svipuðu formi og tíðkast víða erlendis og er þetta keppnisform mjög vinsælt. Keppnin, er sveita- keppni og það lið, sem tapar leik er úr keppninni. Keppnin á að hefjast 1. október nk. og skal henni lokið að undanteknum 2 síðustu umferðunum 1. apríl nk. og þurfa þátttöku-tilkynningar að berast stjórn Bridgesambands Islands fyrir 1. október nk. Þátt- taka er heimil öllum meðlimum í einhverju félagi innan Bridge- sambands íslands. Ekki er reikn- að með, að sveitir þurfi að ferð- ast milli landshluta, þar til 8 sveitir eru eftir, en eftir það mun ferðastyrkur greiddur sé vega- lengdin, sem farin er, yfir 70 km. Væntanlegum keppendum er ráðlagt að leita nánari upplýs- inga um keppni þessa hjá stjórn- um bridgefélaganna, sem öll hafa fengið senda reglugerð um keppni þessa. Stefán Stefánsson frá Akur- eyri, sem vann hæsta vinninginn í happdrætti bridgesambandsins, gaf álitlega fjárhæð til sambands ins og var ákveðið í samráði við Stefán, að verja þeirri fjárhæð til kaupa á veglegum farandbik- ar og verður keppt um þennan bikar í keppni þessari. ★ ¥ ♦ * Bridgefélag Reykjavíkur mun hefja starfsemi sína með ein- menningskeppni, er hefst sunnu- daginn 22. september nk. þátt- töku ber að tilkynna til formanns félagsins, Agnars Jörgensonar, í síma 1-4139. ★ ¥ ♦ * Hin árlega keppni milli Aust- urbæjar og Vesturbæjar fór fram sl. þriðjudag. Keppt var á 12 borðum og sigruðu Austurbæing- ar með 6Í4 vinning gegn 5%. í keppni þessari voru 8 karlasveit- ir frá hvorum bæjarhluta og þar sigruðu Vesturbæingar með 5(4 vinning á móti 2%, en á þeim 4 borðum, þar sem kvenfólkið keppti, sigruðu Austurbæingar, svo segja má, að kvenfólkið hafi átt stærstan þátt í sigri Austur- bæjarins að þessu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.