Morgunblaðið - 01.03.1960, Side 1
24 siður
Kínverjar á
bekk stórveldanna
— segir Krúsjeff
JAKARTA, 29. febrúar. — Krús-
Jeff sagði á ufndi með blaða-
mönnum í dag, að hið kommún-
iska Kína mundi eiga aðild að
næsta stórveldafundi, að lokn-
um þeim sem þegar er ákveðinn
i París í maí. Og ekki aðeins
Kína heldur Indland, Indonesía,
Japan og önnur stórveldi Asiu.
■agði Krúsjeff.
Eiturlyf í brakimi
SHANNON, 29. febrúar: — 30 af
þeim 52, sem voru í Alitalia-flug-
vélinni, er fórst í flugtakinu hér
á föstudaginn, eru látnir. I dag
fundust í flaki flugvélarinnar
margir smábögglar með eitur-
lyfjum, sem sennilega hafa verið
í farangri einhvers farþegans.
Haía allir í nágrenninu verið
varaðir við að hirða brak úr flug-
véiinni, því stórhætta getur staf-
að af því, ef eiturlyf lenda í hönd
um fávísra. Brakið úr flugvél-
inni dreifðist yfir stórt svæði og
er enn verið að safna því saman.
Þakkir frú
lormanni Iðjn
EG vil fyrir hönd hinnar
nýkjörnu stjórnar Iðju, fél.
verksmiðjufólks, þakka hið
mikla traust, sem okkur
hefir enn einu sinni verið
sýnt af iðnverkafólki og við
munum leitast við að verða
þessa mikla trausts verðug.
Ennfremur vil ég þakka
þeim mörgu Iðjufélögum
og öðrum eldri og yngri,
sem hjálpuðu okkur við
kosningastörfin.
Guðjón S. Sigurðsson.
Hann heldur heimleiðis úr Ind
onesíuheimsókninni á morgun og
mun koma við í Kalúktta á leið-
inni til Afganistan.
★
í dag ræddi hamn við frétta-
mennn í nær tvær stundir og
svaraði skriflegum spurningum,
sem honum höfðu verið sendar
fyrir fundinn. Mjög heitt var í
veðri, Krúsjeff var í svitabaði og
fór úr jakkanum. Sagði hann
fréttamönnum að fara líka úr
jökkum sínum, sem þeim hafði
verið skipað að vera í við þetta
hátíðlega tækifæri.
Vel lá á Krúsjeff, en hann var
þreytulegur — og eitt sinn stökk
hann upp á nef sér. Sagði hann
þá viðkomandi fréttamanni, að
eitt fífl gæti spurt svo kjánalega,
að 100 vitringar gætu ekki svar-
að. Fréttamaður þessi hafði dreg-
ið einlægan friðarvilja Rússa í
efa.
DUBLIN, 29. febrúar: — Frú
Christine McDonald ól í dag tví-
bura, í annað sinn á hlaupárs-
degi. í dag eignaðist hún pilt og
stúlku eins og 29. febrúar 1956.
McDonald hjónin eiga auk þess
7 ára dreng og 6 ára stúlku.
Fallið varð dýrt
Rússar draga kceru til baka
MYNDIN hér fyrir ofan sýn-
ir það spennandi atvik í 3x5
km skíðagöngu kvenna á
Vetrarolympíuleikunum, þeg
ar rússneska stúlkan Erosh-
ina féll og missti af sér skíð-
ið, en það atvik tafði hana í
eina mínútu og kostaði Itússa
e. t. v. sigurinn.
Til vinstri á myndinni sést
sænska skíðakonan Irmo Jo-
hansson þeysa fram úr keppi-
nautum sínum. Kroshina er
dökkklædda konan á miðri
mynd sem beygis sig niður en
finnski keppandinn Sirri
Rantanen rekst á hana. Á
miðri myndinni framan til
heldur þýzki keppandinn á-
fram.
Rússnesku skíðakonunum
gramdist það ákaflega, að svo illa
Guðjón S. Sigurðsson
Lýðrœðissinnar sigruðu
með yfirburðum í Iðju
Framsóknarmenn réðu úrslitum í
Trésmiðafélaginu
Kommúnistar töpuðu félagi Skipasmiða
U M sl. helgi fór fram stjórnarkjör í Iðju, félagi verk-
smiðjufólks, í Reykjavík og Trésmiðafélags Reykjavíkur.
Lýðræðissinnar sigruðu með miklum yfirburðum í Iðju,
en kommúnistum tókst að ná aftur stjórn Trésmiðafélagsins
með aðeins 9 atkvæða meirihluta.
í báðum félögunum beittu Framsóknarmenn sér af alefli
til stuðnings kommúnistum, og réði það algjörlega úrslitum
í Trésmiðafélaginu.
Virðist Framsóknarflokkurinn stefna að því markvisst
að afhenda kommúnistum yfirráðin í verkalýðshreyfing-
unni um land allt.
Iðja.
Á kjörskrá voru 1659 en at-
kvæði greiddu 1385.
Listi lýðræðissinna hlaut 759
atkvæði og alla menn kjörna, en
listi kommúnista hlaut 569 atkv.
Auðir seðlar voru 54 og ógildir 3.
Við stjórnarkjör 1959 hlaut listi
lýðræðissinna 777 atkv., en listi
kommúnista 438.
Stjórn Iðju skipa nú:
Guðjón S. Sigurðsson, form.,
Ingólfur Jónasson varaform.,
Þorvaldur Ólafsson, ritari,
Ingibjörg Arnórsdóttir, gjaldk.,
Jóna Magnúsd., Steinn I. Jó-
hannsson, Guðmundur Jónsson
meðst j ómendur.
Varamenn í stjórn:
Björn Jónatansson, Búi Þor-
valdsson og Klara Georgsdóttir
Trésmiðafélagið
Listi lýðræðissinna hlaut 249
atkvæði (í fyrra 246) og listi
kommúnista 258 atkv. (221 í
fyrra). Fengu þeir því stjórn fé-
lagsins kjörna og réðu Fram-
sóknarmenn úrslitum sem fyrr
segir. Stjórnina skipa: Jón Sn.
Þorleifsson, Sturla H. Sæmunds-
son, Benedikt Davíðsson, Lórenz
Rafn Kristvinsson og Marvin
Hallmundsson.
Kommúnistar töpuðu félagi
skipasmiða
Aðalfundur félags skipa-
smiða var haldinn sl. sunnu-
dag. Kommúnistar hafa um
árabil farið með völd í félag-
ina og hefur formaður verið
Helgi Arnlaugsson.
Kjörin var ný stjórn í félag-
inu og er hún eingöngu skip-
uð lýðræðissinnum. Þessir
menn eiga sæti i hinni nýju
- stjórn.
Sigurður Þorkelsson, formað-
ur. Aðrir í stjórn: Jón Óskarsson,
Halldór Þórðarson, Einar Einars-
son og Jón fsdal.
skyldi fyrir þeim fara og kærðu
þær sænsku stúlkuna Irmu fyr-
ir að hafa hrint Eroshinu. Varð
þetta þar með mjög alvarlegt
mál, blandið fullkomnu hatri.
En sem betur fer, var hægt að
upplýsa málið. Svo vel vildi til
að kvikmynd hafði verið tekin
af atvikinu. Var kvikmyndin nú
send hið bráðasta til framköllun-
ar í San Francisco. Seint á laug-
ardaginn var kvikmyndin svo
sýnd að viðstöddum stjórnendum
leikanna, dómurum og fulltrúum
Svía og Rússa á leikunum.
Er sýningunni var lokið stóð
upp Viktor Andrejev farastjóri
Rússa. Hann tók upp ákæruskjal-
ið og reif það í tætluf, gekk til
sænska fararstjórans Sigge Berg-
man og hristi hönd hans ástúð-
lega.
★ I
Rússar drógu ákæruna til baka, j
því að hún hafði við ekkert að
styðjast. Kvikmyndin sýndi að
rússneska konan Eroshina hafði
fallið án þess að nokkur kæmi j
við hana. Irma frá Svíþjóð var
nokkru fyrir framan hana, en
þegar russneska konan féll. rakst
finska konan Sirri Rantanen á
hana. Var sýnt að hún gat ekki
forðað árekstri.
Sænsku skíðakonunum var því
réttilega dæmdur sigurinn. Sjást
þær hér á neðri myndinni, talið
frá vinstri: Irma Johanson, Sonja
Edström og Britt Strandberg.
Þær eru broshýrar.
25 fórust
Port Louis, Mauritius,
29. febrúar.
UM helgina fórust a.m.k. 25
menn á Mauritius-eyjunni í
Indlandshafi, er geysimikill
hvirfilbylur gekk yfir hana,
sá mesti síðan 1892. Vindhrað-
inn komst yfir 200 km. á klst.
og stóð aðalveðrið í fullar 12
stundir. Um helmingur allra
bygginga í höfuðborginni,
Port Eouis, hrundi eða fauk.
Hvassviðrið reif stórhýsi upp
af gnunni sínum og feykti
þeim yfir 100 metra, þegar
verst lét. Samgöngur eru í
molum og hafnarmannvirki
stórskemmd.
Óttast er, að svo til öll sykur-
uppskera eyjarskeggja hafi eyði-
lagzt. Sykuryrkjan er aðalat-
vinnuvegurinn og höfðu miklir
skaðar þegar hlotizt í öðrum
Framh. á bls. 2.
Laxness
og dr.
Zívagó
ÞAÐ hefur vakið nokkra at-
hygli víða um heim, að ís-
lenzka Nóbelsverðlaunaskáld-
ið, Laxness hefur skrifað for-
mála að indverskri útgáfu af
bók Pasternaks, dr. Zívagó.
Ræddi blaðið Dagens Nyheter
nýlega um þetta í forustu-
grein og hefur ýmislegt út á
formálann að setja. Vænir
blaðið Laxness um að hann
hafi ekki lesið bókina áður en
hann skrifaði formálann.
„Flækingshundar"
Dagens Nyheder hefur það
upp úr frásögn Laxness, að
hann hafi oft hitt fyrir á ferð-
um sínum í Rússlandi á undan
förnum árum, föla, sóðalega
og einmanalega menn sem
gengu með erfiðismunum um
göturnar. Þeir voru ímynd
eymdar og vonleysis. „Þeir
minntu á flækingshunda, sem
eru fyrir löngu búnir að týna
húsbónda sínum og nú áttu
þeir hvergi heima í þessari
veröld“, segir Laxness. „Þetta
voru þeir sem aldrei höfðu
hrifizt af byltingarhugsjónun-
um, þeir sem sakir uppeldis
og eðlis gátu aldrei öðlast eðli
legt líf í þjóðfélagi, sem hafði
tekið róttækum breytingum.“
Saga hinna vesáelu
Laxness gagni'ýnir það síð-
an, að rússneskir rithöfundar
hafa þessar manngerðir að
engu. Hann segir að það sé illa
farið, því hinn aumasti meðal
manna, sé jafn dýrmætur
skáldinu eins og hetjur og dýr
lingar. Síðan segir hann, að
þessir vesölu menn, sem ald-
rei höfðu getað samlagað sig
byltingunni hafi nú fengið
sögu sína skráða og þakkar
Laxness vini sínum Paster-
nak fyrir það.
Eftir að hafa skýrt þann-
ig frá formála Laxness
bætir Dagens Nyheter því
við, að annaðhvort hafi
Laxness aldrei lesið Dokt-
Framh. á bls. 2.