Morgunblaðið - 01.03.1960, Síða 10
10
MORCmSHI.AÐlÐ
■Þri?H"Harrur 1. ry\a.rz 1960
sT bbidc'é..::
FJÓRUM umferðum er lokið í
undankeppni Reykjavíkurmeist-
aramótsins og er röð 10 efstu
sveitanna þessi:
1. sv. Stefáns J. Guðj. 566 st.
2. — Einars Þorfinnss. 541 —
3. — Vilhj. Aðalsteinss. 532 —
4. — Hjalta Eliassonar 525 —
5. — Agnars Jörgenss. 523 —
6. — Rafns Sigurðssonar 521 —
7. — Zóphaníasar Bened. 502 —
8. — Árna Guðmundiss. 500 —
9. — Svavars Jóhannss. 496 —
10.— Aðalst. Snæbjörnss. 490 —
Fimmta og síðasta umferð fer
fram n. k. þriðjudag og verður
spilað í Skátaheimilinu við
Snorrabraut. Að undankeppninni
lokinni munu 7 efstu sveitirnar
ásamt Reykjavíkurmeisturunum
1959, sveit Sigurhjartar Péturs-
sonar’ keppa til úrslita.
* f ♦ *
Spilið, sem hér fer á eftir, er
gott dæmi um, að ekki á að
gefast upp þótt útlitið sé svart.
Hinn kunni enski spilari Kenn-
eth Konstam sat Suður og Norð-
ur var félagi hans Dodds. Sagn-
ir gengu þannig:
Suður Vestur
pass pass
2 tiglar pass
4 hjörtu pass
5 hjörtu pass
pass dobl
Norður Austur
1 spaði pass
2 hjörtu pass
5 lauf pass
6 hjörtu pass
redobl Allir pass
Jörðin
Hraunsfjörður í Helgafells-
sveit, er laus til ábúðar. Uppl.
hjá Bæring Elíssyni, Stykkis-
hólmi, sími 10 eða í Rvík í
síma 13511.
ð A K 10 5 3
V Á 10 8 4
♦ D 2
* A 5
ADG876 aoa
V D G 9
♦ 9 8 4
* G 8
3 2
N
V A
K 6
G 7 6
i A o n
A 2
V 7 5 3 2
♦ A K 10 5 3
* K D 6
Ekki er hægt að segja annað
en mikil bjartsýni hafi verið í
sögnunum, en hvað um það,
Konstam á að spila 6 hjörtu og
lítur það alls ekki vel út, því
5 tromp vantar og af þessum
5 eru þrjú háspil þ. e. kóngur,
drottning og gosi. — Vestur lét
út spaðagosa, sem drepinn var
í borði með ás. Lágu laufi var
spilað úr borði og drepið með
kóngi heima. Nú var hjarta 2
látinn út og Vestur þorði ekki
annað en láta gosann í og var
hann drepinn með ás í borði.
Lágum spaða var spilað úr borði
og trompaður heima og enn var
lágu hjarta spilað. Vestur áleit
að Konstam ætti hjartakóng og
ætlaði með þessu að narra sig
til að láta níuna í og taka síðan
af sér drottninguna Vestur drap
því með drottningunni, en rak
upp stór augu, þegar félagi hans
drap með kóngi. — Spilið vannst
þannig á skemmtilegan hátt og
fylgir það sögunni, að félagar
A—V við hitt borðið hafi verið
háværir og beðið um skýringar,
þegar kom í ljós að sveit Kon-
stam hefði unnið um 2300 á
spilinu.
Sjötta útgáfa
af Hjálp
í viðlögum
KOMIN er út 6. útg. af bókinni
„Hjálp í viðlögum“ eftir Jón Odd
geir Jónsson fulltrúa. Guð-
mundur Thoroddsen prófessor
skrifaði formála að fyrstu útgáfu
bókarinnar og ritar einnig for-
mála að þessari útgáfu, í tilefni
af því, að liðin eru 20 ár síðan
bókin kom fyrst út og segir þar
m.a.:
„Ég las bókina þá í próförk
og leizt strax vel á hana og spáði
henni góðum viðtökum almenn-
ings. En viðtökurnar hafa þó far-
ið fram úr mínum vonum. Síðan
hefur bókin verið endurprentuð
fimm sinnum og enn er þörf á
nýrri útgáfu, þeirri sjöttu og ein-
takafjöldinn þá orðinn rúmlega
20 þúsund.
Bókin hefur verið notuð við
kennslu í hjálp í viðlögum á nám
skeiðum hjá skátum, Slysavarna-
félagi Islands, Rauða krossi Is-
lands og mörgum skólum. Margir
hafa kennt eftir henni, þó enginn
jafn mörgum og höfundur henn-
ar, en nemendur hans skifta nú
þúsundum. En höfundur hefur
ekki látið sér nægja að kenna
eingöngu. Hann hefur líka hald-
ið áfram að nema sjálfur, eins og
allir góðir kennarar, fylgzt með
nýjungum þeim, sem orðið hafa
og látið bókina njóta góðs af. Út-
gáfurnar hafa ekki orðið hreinar
endurprentanir, alltaf hefur
meira eða minna bætzt við og
sumu hefur verið breytt svo
betur mætti fara“.
I bókinni eru nýir kaflar um
lífgun, slagæðablæðingar, burðar
tök, sjúkrabörur og fl. Bókin er
144 bls. að stærð og með 160
myndum.
ársuppgjðri er lokið og vörutalning frá sl. áramótum
liggur fyrir er nauðsynlegt hverju verzlunarfyrirtæki
að endurskoða tryggingarupphæðir sínar m iðað við vörumagnið og núverandi verðlag.
þér komizt að raun um að tryggingum yðar er eitthvað ábótavant
þá hefðum við sérstaka ánægju af að leiðbeina yður
SlMINN ER 17080.
S VII Pf PJ OTTT IffiL V(G <E Q
Brunadeild — Umboð uin ailt lamL
Anita á leið til frumsýningarinnar ásamt Fellini og Cello
Mastroianni, en hann leikur aðalhlutverkið i myndinni.
Hið Ijúfa líf
öðru til hamingju með sigurinn.
ÍUM ÞESSAR mundir er ekki
talað um annað nieira í Róm
en nýjustu kvikmynd Federico
Fellinis, „Hið Ijúfa líf“ (La
dolce vita), og eiga Rómverj-
ar ekki nógu sterk orð til að
1 hrósa henni. Áður fyrr var
Fellini bara í hópi snilling-
anna, en nú skipar hann sama
sæti hjá ítölum og Ingmar
Bergmann hjá Svium.
Það urðu slagsmál út af að-
göngumiðum á frumsýning-
, una, sem þó var aðeins fyrir
, boðsgesti úr röðum stjórn-
málamanna, listamanna og
menntamanna. Hópur manna
beið fyrir utan af forvitni og
í von um að eitthvað skemmti-
legt gerðist.
Kvikmyndin fjallar um
„falsguði vorra tima“, um
„líf án andlegs gildis“ og
„heim, sem tortímist í synd“.
Hinir kaþólsku Rómverjar
hafa mörg undanfarin ár, í
ríkum mæli, blótað syndina.
Og sagt er, að þeir geri allt
sem í þeirra valdi stendur til
þess að heimurinn þekki Róm
ekki aðeins sem hina „eilífu“,
eða hina „heilögu“, heldur
sem hina „syndugu“ borg.
Mesta athygli vekur án efa
Anita Ekberg fyrir leik sinn
í myndinni. Frammistaða
hennar sýnir þó ekki, að hún
búi yfir hingað til duldum
leikgáfum, heldur hitt að þar
hafi hún leikið sjálfa sig. —
vonbrigðum. Segja menn, að,
hún hefur gert allt, sem hún,
hefur getað til að valda hin-
um suðurlenzku íbúum ekki
látið þá skjálfa af hrifningu,
þegar hún dansaði berfætt í
næturklúbb forðum daga, og
inn í hið synduga andrúms-'
loft ítalanna. Hún fékk reynsl
una af því, hvernig hún gat,
Anita Ekberg fellur mjög vel,
Fellini hafi vitað hvað hann
var að gera, þegar hann lét
Anitu hafa hlutverkið.
Þess má að lokum geta, að
innan skamms nánar til-
tekið, þann 4. marz, mun hin'
fagra sænska stjarna mæta
fyrir réttinum í Cocenza
ásamt ítalska markgreifanum,
Antonio Cerinu. Þau eru
ákærð fyrir að hafa slasað 10
manns í kappakstri kvik-
myndaleikara, sem haldinn
var seint á árinu 1959. — Þá
kayrði vagn An'tu Ekbergs
með Carini við stýrið, beint
inn í áhorfendahópinn.
Stúlka oskast
Leikhuskiallannn