Morgunblaðið - 01.03.1960, Side 23
Þriðjudagur 1. marz 1960
MORGVTSBLAÐIÐ
23
Bandaríkin sigruðu
í íshokkíkeppninni
ÍSHOKKÍKEPPNINNI á
Olympíuleikunum lauk með
sigri Bandaríkjanna. Kan-
adamenn fengu silfurverð-
laun og Rússar bronzið. Úr-
slitaleikirnir stóðu síðustu
þrjá daga Vetrarleikanna.
Bandaríkjamenn sigruðu alla
keppinauta sína, þar á meðal
Kanadamenn og Rússa, en
litlu munaði að sigurganga
þeirra yrði skyndilega stöðv-
uð, þegar tékkneska liðið
stóð uppi í hárinu á þeim.
Bandarikin — Kanada 2 :1
Á föstudagskvöld var þjóðar-
sorg í Kanada eftir að útvarps-
stöðvar fluttu fregnir af því,
að Bandaríkin hefðu sigrað
Kanada í íshokkíkeppninni. —
Leikurinn var mjög harður, þótt
ekki sé beinlínis hægt að segja
að um slagsmál hafi verið að
ræða. Kanadamennirnir áttu
meira í leiknum en Bandaríkja-
menn, en það sem gaf þeim síð-
arnefndu sigurinn var frábær
250 þúsund
manns
SAMANLAGÐUR fjöldi áhorf-
enda á Olympíuleikunum í
Squaw Valley var nær 250 þús-
und manns, eða nánar tiltekið
240.904. Við lokaathöfnina og
skíðastökkið voru 28000 gestir í
vörn markmanns þeirra, Mc
Cartan. Bandaríkin sigruðu með
2 mörkirm gegn 1. Var nú von-
laust, að Kanadamenn hrepptu
gullverðlaunin.
Bandarikin — Rússland 3 : 2
Kappleikur Bandaríkjamanna
og Rússa á laugardaginn varð
eins konar úrslitaleikur. Var
feikileg aðsókn að honum. Voru
óhorfendasvæðin troðfull og
greiddu menn síðast allt að 2000
kr. fyrir miðann á svörtum
markaði. Leikurinn var mjög
hraður og þó mikið væri í húfi
bar ekki á neinum dólgshætti.
Bandaríkjamenn unnu með 3
mörkum gegn 2. Var leikurinn
allur mjög spennandi. Bandarík-
in höfðu ýmist eitt mark yfir,
eða Rússar jöfnuðu.
Á sunnudaginn háðu Banda-
ríkjamenn kappleik við Tékka,
sem litlu munaði að yrði þeim
dýr. Hafði tékkneska liðið al-
gerlega yfirhöndina í miðlotu
leiksins. Síðasta lota var ákaf-
lega hörð enda var þá um lífið
að tefla. Þá tóku Bandaríkja-
menn Tékka í karphúsið.
Úrslit í Ishokkíkeppni:
1) Bandaríkin, 2) Kanada,
3) Rússland, 4) Tékkóslóvakía,
5) Svíþjóð, 6) Þýzkaland.
Landsliðið í hand-
knatfleik
ÆFING verður kl. 8 í kvöld
(þriðjudag) hjá Benedikt Jakobs
syni í íþróttahúsi Háskólans.
Aríðandi fundur að Grundarstíg
2 kl. 9,15.
Roald Aas frá Noregi og Grishin urðu beztu vinir í harðri
keppni. Hér faðmast þeir eftir 1500 m. skautahlaupið. Þeir
geta sannarlega óskað hvor öðrum til hamingju, því þeir fengu
báðir gullverðlaun — í sömu grein.
Grisjin „rauf
hljóðmúrinn44
RÚSSINN Evgeni Grisjin
setti heimsmet í 500 m
skautahlaupi á aukamóti
sem fram fór í Squaw
Valley á sunnudag. Komst
hann fyrstur manna undir
40 sek., en það takmark hef-
ur verið kallaður „hljóð-
múrinn“. Hljóp hann á 39,6
sek. en gamla heimsmetið,
sem hann jafnaði í Olympíu
keppninni, þrátt fyrir að þá
væri hann nærri dottinn,
var 40,2 sek.
Þetta afrek Grisjins er
frábært. Þetta mót var til-
kynnt alþjóðaskautasam-
bandinu á laugardag. En
upp eru komnar efasemdir
um það að tilkynningin hafi
borizt nógu snemma. Samt
telja menn að þetta auka-
mót verði talið framhald
mótsins fyrir leikana og
hlýtur þessi tími þá örugg-
lega staðfestingu.
Hlaup Grisjins var stór-
glæsilegt. ÖIl skilyrði voru
upp á það bezta. 2 .varð
Gratsj Rússl. 40,6, 3. Malys-
jev Rússl. og Elvenæs,
Noregi, 40,9. 5. Eddie
Rudolph, Bandar. 41,0. 6.
Nagakuso Japan og Bjest-
vang Noregi 41,1.
f 1500 m hlaupi sigraði
Boris Stenin á 2,07,7 mín.,
en heimsmetið er 2,06.3. 2.
var Grisjin 2.08.2. 3. Aanæs
Noregi 2.10.6. Þessi grein
▼annst á Olympíuleikjun-
um á 2,10.4.
I
I
— Skautahlaupið
Framh. af. bls. 22.
vinnur þessa keppni, því að það
er greinilegt, að hér getur allt
gerzt.
★ Stærsta stundin
Þjálfari Knuts, sem heitir
Thorbjörn Kaastad var svo
hrærður og gagntekinn af þess-
um viðburði, að gleðitárin runnu
niður kinnar hans. „Nú veit ég
hversvegna það átti fyrir mér að
liggja að ferðast til Ameríku. Það
var til þess að sjá þetta, þetta
var stærsta stundin í lifi mínu.
Ég harma það aðeins, að allir
heima í Noregi fengu ekki að upp
lifa þetta.
Knut Johannesen var sjálfur
e. t. v. rólegastur allra í Squaw
Valley. „Ég fékk loksins aðstæð-
ur, sem mig hefur dreymt um í
mörg ár. I fyrstu hljóp ég með
það í huga að renna skeiðið á 16
mínútum. Við héldum jafnvel
að það væri of greitt og ég myndi
linast á lokasprettinum. En þeg-
ar ég hafði farið helming hlaups-
ins á 7 mín 52 sek. og fann ekki
til þreytu gaf Thorbjörn mér
merki um að fara niður í 15 mín.
50 sek. kerfi og enn hvatti hann
mig til að auka hraðann. Ég
trúði þessu varla sjálfur og ég
reikna ekki með því að vinna
keppnina, því að hinir keppinaut
arnir njóta einnig þessara góðu
skiiyrða.
Urslit í 10 þús. m skautahlaupi:
1. Knut Johannesen, Noregi 15:46,6
2. Viktor Kosisskin, Rússl. 15:49,2
3. Kjeli Backman, Svíþjóð .... 16:14,2
4. Ivar Nilsson, Svíþjóð .... 16:26,0
5. Terence Monaghan, Engl. 16:31,6
6. Torstein Seiersten, Noregi 16:33,4
7. Olle Dahlberg, Svíþjóð .... 16:34,6
8. Juhani Járvinen, Finnlandi 16:35,4
9. Keio Tapiovaara, Finnl____ 16:37,2
10. Ross Zucco, USA .......... 16:37,3
Þess skal að lokum getið að
Hollendingurinn Jan Perman,
sem líklegastur hafði þótt til sig-
urs, ofreyndi sig á byrjuninni og
hálfsprakk. Hann varð þó 12.
með 16 mín. 41 sek.
— Akranes
Framh. af bls. 17.
lítilli þekkingu á hinum ýmsu
málum og verkefnum.
Hinar síhækkandi „vanskila-
skuldir" tala sínu mál hér um,
og það þrátt fyrir, að útsvars-
álögur hafa þrefaldast á sama
tíma.
Það er að sjálfsögðu ósköp auð
velt fyrir bæjarstjóra, að ákveða,
að útsvarsgreiðendur skuli t.d. á
því herrans ári 1960 greiða í út-
svör „litlar“ 11 milljónir króna.
En það er ekki alveg víst, að það
sé jafn þægilegt fyrir alla, sem
gert verður að greiða sinn hluta
af þessum rl milljónum. Eigi svo
einhver erfitt með að greiða sinn
hluta fyrir tilsettan tíma, þá er
bara lögfræðingur á næsta leiti,
enda þótt bæjarstjóri og bæjar-
gjaldkeri ætli alveg að ærast, ef
einh' er skyldi gerast svo djar.oir
að kynna þá sjálfa fyrir lögfræð-
ingi.
Það er ekki að undra þótt
áhangendur þrífótarins gerist nú
æ háværari í kröfum sínum um
að slitið verði stjórnarsamstarf-
inu og að Daníel bæjarstjóri
verði sendur heim til föðurhús-
anna. Skeleggastir í þessum kröf
um munu ungir Alþýðuflokks-
menn vera. Þeir samþykktu ein-
róma á fundi hjá sér nýlega,
áskorun til bæjarfulltrúa Alþýðu
flokksins, um að Daníel Ágústín-
usyni yrði án tafar sagt upp og
leitað yrði eftir öðrum bæjar-
stjóra. Fyrir þessu mun einnig
vera sterkur hljómgrunnur hjá
eldri Alþflm. bæði innan bæjar-
stjórnar og utan. Þó munu nokkr
ir þeirra vera til, sem ekki vilja
láta Daníel fara strax. Eru það
þeir, sem talið er að blótað hafi
á laun og veitt honum brautar-
gengi.
Fróðlegt verður að fylgjast
með og sjá, hverju fram fer á
næstunni, hvort bæjarfulltrúar
Alþýðufk>kksins gera nú alvöru
úr því að skipta um bæjarstjóra;
eða hvort þeir heykjast á þessum
áformum sínum og láta Daníel
beygja sig til hlýðni! og undir-
gefni!, eins og verið hefur vani
þeirra undanfarin ár.
Akttrnesingur.
Bömum mínum, tengdadætrum og öðrum vinum
sem á ýmsan hátt glöddu mig á sjötugs afmæli mínu
16. febrúar sl. færí ég mínar beztu þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Jóhannesdóttir,
Lágholtsveg 6, Reykjavfc
Kæra þökk þei-m hundruðum velunnara minna, er
tjáðu mér vinsemd sína í skeytum, gjöfum eða öðru
25. febrúar.
Og þökk sé öllum þeim mörgu mönnum, sem stutt hafa
veitingarekstur minn undanfarin 40 ár með viðskiptum
sínum.
Vigfús Guðmundsson
STEINUNN JÓNSDÓTTIR frá Gauksstöðum, andaðist í Landakotsspítala sunnudaginn 28. febrúax. Jarðarförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn og fóstursonnr
Maðurinn minn og faðir JÖN KR. JÓNSSON Bárugötu 31 andaðist í sjúkrahúsi Hvítabandsins 29. febrúar. Guðrún Guðmundsdóttir, Hafsteinn Jónsson
Hjartkær systir mín GUÐRÚN GUÐ JÓNSDÓTTIR verzlunarmær, andaðist á St. Jósefsspítala sunnudaginn 28. f.m. Magnús Guðjónsson.
Dótti-r okkar INGIGERÐUR M VGGÝ andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur þ. 28. febrúar s.l. Jarð- sett verður í Bolungarvík. Fjóla Magnúsdóttir, Benedikt Guðmundsson, Bolungarvík
Móðir mín RAGNHEIÐUR SIGRlÐUR STEINSDÓTTIR lézt í Elli og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 26. þessa máfiaðar. Steinn Júlíus Árnason.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu KRISTÍNAR JÓSAFATSDÓTTUR Blikastöðum. Fyrir hönd aðstandenda. Sigurbjörg M. Hansen, Helga Magnúsdóttir.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem auðsýndu samúð og vináttu við fráfall og jarðarför hjartkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa AXELS GRÍMSSONAR fyrrverandi brunavarðar. Sérstakar þakkir til Brunavarðarfélags Reykjavíkur. Marta S. H. Kolbeinsdóttir. dætur, tengdasynir og barnaböm.
Þökkum hjartanlega öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför SIGURJÓNS PÉTURSSONAR frá Þingeyri. Guð blessi ykkur öll. Vandamenn.
Innilega þakka ég öllum þeim, sem sýndu mér vin- semd og samúð við andlát og útför eiginmanns mins, HINRIKS GUÐMUNDSSONAR oddvita á Flateyri Guðrún Eiríksdóttir
Þökkinn innilega auðsýnda samúð við hið sviplega fráfall sonar okkar og bróður, JÓNS GUNNARS Guðlaug Klemensdóttir, Gunnar Kristjánsson Kristján, Ólafur Rúnar og Guðlaugur.