Morgunblaðið - 03.07.1960, Qupperneq 11
SunnudafTtir 9 1960
MORGVISBLAÐIÐ
11
Edward Crankshaw;
Atðkin milli Kína og Rússlands
HIN mikla ráðstefna í Búkarest
reyndist þá vera samkoma ev-
rópksra kommúnistaflokka til
þess að votta samúðarstefnu
Krúsjeffs hollustu sína. Einn
eftir annan hafa allir leiðtogar
austur-evrópsku flokkanná, að
Austur-Þýzkalandi meðtöldu,
lýst yfir fylgi sinu. Samtímis
heflr Krúsjeff ráðizt með stór-
yrðum á alla þá félaga, sem and-
snúnir eru þeirri kenningu hans,
að viðhorf og staðreyndir hafi
breytzt síðan á dögum Lenins
og að styrjöld milli hinna tveggja
flokka sé nú ekki lengur óhjá-
kvæmileg.
Hverjir eru þessir félagar?
Bersýnilega er þar fyrst og
fremst átt við Kínverja.Rússar
í opiniberum stöðum halda því
fram, að ekki sé um nokkurn
minnsta ágreining að ræða milli
Moskvu og Peking: Rússar og
Kínverjar leiðist eins og bræður
fram til sigurs í himnesku sam-
ræmi, óaðskildir og óaðskiljan-
legir í fullkominni eindrægni.
í>ar sem engir tveir einstakling-
ar í allri mannkynssögunni, hvað
þá tvær þjóðir, hafa nokkurn
tíma sameinazt svo algerlega, þá
hljóta slíkar staðhæfingar að
mæta einhverri tortryggni. Og
það er vissulega ekkert svar að
segja, eins og Rússar segja, ef
að þeim er lagt, að margra alda
reynsla sé einskis virði, þar eð
mannkynssagan hófst a ný, í
október 1917, eða nánar tiltekið,
hinn 7. nóvember, eftir nýja
tímatalinu.
Og þar sem Rússar geta ekki
veitt neinar upplýsingar með því
að neita algerlega að viðurkenna
nokkra aðgreiningu eða mismun,
þá hijóta að skapast hugleiðingar
og ályktanir tun málið, sem stund
um kunna að byggjast á illum
upplýsingum, en sem eru a. m. k.
virkar.
í>að er á engan hátt erfitt að
geta sér til, í hverju vandræðin
eru fólgin. En hér tel ég réttast
að taka það fram, innan sviga, að
með því að skrifa um ágreining
milli Moskvu og Feking, þá hef
ég alls enga löngun til að gefa
í skyn, að nokkurt útlit sé fyrir
meiri háttar deilu milli Moskvu
og Peking, í náinni framtíð. Það
er jafnfráleitt og það, að með því
að skrifa um Anglo-Amerískan
ágreining, væri maður að gefa
í skyn yfirvofandi griðrof milli
Washington og London.
Slík deila væri heldur ekki
æskileg.Hugsunin um það, að Sov
étríkin og Kína rykju saman eins
og hundur og köttur, er ekki
þannig, að góðir friðar-vinir, svo
að notað sé sovézkt orðalag,
kærðu sig um að taka hana til
íhúgunar.
í síðustu viku notuðu Sovézk
blöð, eins og þegar hefur verið
frá sagt, 40 ára útgáfuafmæli
einnar af miskunnarlausustu rit-
gerðum Lenins, sem tilefni til
djarflegrar árásar á alla þá fé-
laga, sem höfðu löngun til að
gefa loðin svör, eða voru ósveigj-
anlegir og ótilhliðrunarsamir.
Þessa viku hefir hr. Krúsjeff ver-
ið að leiðétta Lenin og endur-
bæta, en hugmyndir hans um
leiðina til kommúnismans, sem
Mao
lægi i gegnum raðir blóðugra
bardaga, hafa verið látnar sýn-
ast framlágar með tilkomu vetn-
issprengjunnar og hinna lang-
drægu eldflauga.
Ekki svo að skilja að Krúsjeff
segi þetta í svo mörgum orðum:
hugmyndinni um óhjákvmæileg-
ar styrjaldir, segir hann, hefur
orðið að hafna, vegna þess að
styrkur kommúnista er nú svo
mikill, að alheimssigur komm-
únismans verður tryggður, svo
framarlega, sem rétt er á öllum
spilum haldið, án árekstra milli
þjóðanna. Þess vegna verðum við
kommúnistarnir að fara okkur
hægt og varlega.
Þetta er ekki nýtt. Fyrir fjór-
um árum, í febrúar 1956, á 20.
flokksþinginu, þegar hr. Krúsjeff
boðaði fyrst þessa höfuðbreyt-
ingu á kenningu Lenins, var það
nýtt. En enginn gaf því veru-
legan gaum. í fyrsta lagi vegna
þess, að það var hjúpað klíku-
máli Leninista. í öðru lagi vegna
þess að nokkrum dögum síðar
kom hin fræga leyniræða og for-
dæmingin á Stalín. En raunveru
lega var afneitun sovézka komm
únistaflokksins á kenningunni
um óhjákvæmilega styrjöld mik-
ilvægari, sögulega talað, (svo
aftur sé orðalag frá Moskvu feng
ið að láni), en allt það, sem Krú-
sjeff hafði að segja um Stalín
og okkur var þá þegar að mestu
kunnugt.
Hversvegna álítur Krúsjeff það
þá svo nauðsynlegt, að halda
Frá Öskju.
Tvær sumarleyfis-
ferðir Farfugla
Á NÆSTUNNI hefjast tvær sum
arleyfisferðir, sem farnar verða
á vegum Farfugla. Hin fyrri er
Þórsmerkurferð, dagana 9.—17.
júlí, og verður henni hagað með
líku sniði og undanfarin ár, dval
ið í tjöldum í Sleppugili og farn-
ar gönguferðir um Mörkina. —
Kostnaðarverð er áætlað um 950
kr., og leggur félagið til tjöld,
hitunaráhöld og fæði.
Síðari ferðin tekur 16 daga,
og verður farið norður yfir há-
lendi Islands. Verður lagt af stað
frá Reykjavík laugardaginn 25.
júlí, og ekið þann dag að Veiði-
vötnum, en í höfuðdráttum er
leiðin þannig:
Frá Veiðivötnum, með Þóris-
vatni yfir Þórisós og Köldukvísl
í Jökuldal (Nýjadal). Þaðan
norður Sprengisand í Gæsavötn,
meðfram Vatnajökli, yfir Dyngju
háls og Urðarháls og í Öskju.
Síðan verður farið um Ódáða-
hraun í Herðubreiðarlindir, og
þaðan í Mývatnssveit. Þar sem
óvíst er, hve margir dagar verða
þá eftir er áætlun óráðin þaðan,
en þó verður farið að Dettifossi,
um Hólmatungur og Hljóðakletta
í Ásbyrgi.
Mun félagið leggja til tjöld
fyrir þá sem vilja, en kostnaður
er áætlaður 3200 kr. og er þá
fæði innifalið í verðinu.
Félagsmenn og aðrir, sem hug
hafa á að koma með, eru vin-
samlega beðnir um að hafa sam-
band við skrifstofuna sem allra
fyrst, því takmarka verður mjög
fjölda þátttakenda.
Skrifstofan að Lindargötu 50,
er opin miðviku-, fimmtu- og
föstudagskvöld kl. 8,30—10, sími
15937.
fram hinum nýjiu kenningum,
sem þegar voru ákveðnar og við-
urkenndar á 20. flokksþinginu,
fyrir rúmum fjórum árum? Vafa
laust vegna þess eins, að „nokkr-
ir félagar“ hafa ekki gefið þeim
næglegan gaum. Við vitum að
Kínverjar hafa látið, sem þær
væru ekki til, enda þótt þeir sam
þykktu ályktanir flokksþingsins
á sínum tíma. Við fleiri en eitt
tækifæri hefur Mao Tse-Tung
lýst þeirri sannfæringu sinni yfir
að stríð mili Austurs og Vesturs
væri vissulega óhjákvæmilégt,
áður en kommúnisminn gæti
unnið sigur. Og það hefur komið
fyrir að kínverski leiðtoginn hef
ur sýnt kærulausari afstöðu gagn
vart horfum á kjarnorkustyrjöld,
eoa sovézkir félagar hans geta
sem raunsæsimenn sýnt. Kín-
verjar eru svo fjölmennir og
hæfíleikar Kínverja til að lifa af
landsumbrot og náttúruhamfarir,
hafa svo oft sannað sig á liðnum
tímum ....
Þó er enn styttra síðan Kína
hefur beinlínis mótmælt álykt-
unum Krúsjeffs um hinn veru-
lega frið-elskandi vilja Ameríku
manna og jafnvel eftir hina
snjöllu málsvörn Krúsjeffs fyrir
„friðsamlega sambúð“ í Búkarest
lýsti kínverski fulltrúinn, Peng
Chen, því yfir, að: svo lengi sem
heimsvaldastefna væri til, myndi
alltaf verða hætta á árásarstyrj-
Krúsjeff
öld“. Þetta var eftir að Krúsjeff
hafði gert deiluna fjarstæðu-
kehnda, með þvi að spyrja hvort
nokkur héldi raunverulega að
Kommúnnstar mundu enn þurfa
að skjálfa af ótta, eftir að hinn
heimsvaldasinnaði andi væri að
mestu úr sögunni.
En samt var framburður Peng
Chens talsvert mildari en flest
það ,sem okkur hefur borizt frá
Kina í seinni tíð. Það bendir jafn
vel til þess, að með sérstökúm
skilyrðum, til að forðast auðmýk
ingu, væru Kínverjar sjálfir fam
ir að tileinka sér hin nýju sjón-
armið Krúsjeffs.
En hverjir eru það auk Kín-
verja, sem þessari nýju rúss-
nesku árás er beint að?Hefir raun
verulega verið virk andstaða
gegn hinni „miklu“ stjórnar-
stefnu hr. Krúsjeffs í Sovétríkj-
unum sjálfum? Það fáum við
brátt að vita. Eftir að hafa bor-
ið hærri hluta í Búkarest, hefur
Krúsjeff sterka aðstöðu í viður-
eign við efasemdarmenn í heima
landi sínu.
(Observer. Öll réttindi áskilin).
Öryggismálastjórar
á fundi í Reykjavík
FUNDI fuiitrúa öryggiseftirlita
á Norðurlöndum lauk hér í
Reykjavík á þriðjudaginn. Tutt-
ugu fulltrúar frá öllum Norður-
iöndunum voru mættir á fund-
inum, líkir fundir eru haldnir
fjórða hvert ár og var petta sá
sjötti í röðinni. Iðnaðarmálaráð-
herra, Bjarni Benediktsson setti
fundinn sl. mánudag með ræðu.
Fundurinn fjallaði eini'.um um
öryggi á vinnustöðum og voru
mc'g erindi flutt um það efni.
Á miðvikúdagsmorgun héidu ör-
yggismálastjórar Norðurlanda
lund með sér, og ræddu auk þess
við fréttamenn. V'oru þeir sam-
mála um gildi slíkra funda, þar
sem kostur gæfist á að kynnast
viðfangsefnum öryggiseftir.lit-
anna í hverju landi fyrir sig. A
hinum Norðurlöndunum nær
starfsemi öryggiseftirlitanna inn
í flestar atvinnugreinar og
skýrðu fulltrúar hinna Norður-
landanna frá ráðstöfunum sem
sem gerðar hafa verið til að auka
öryggi landbúnaðarvéla, einkum
dráttarvéla. Hafa verið gefnir út
leiðbeiningabæklingar um með-
ferð slíkra tækja og t. d. hefur
verið sett löggjöf í Svíiþjóð um
það að hlífðarhús skuli vera á
hverri dráttarvél.
Hefur tekizt góð samvinna
milli vinnuveitenda og starfs-
manna á stórum vinnustöðum
annars vegar og öryggiseftirlits-
ins hins vegar til þess að vinna
að aukinni öryggisþjónustu. Þórð
ur Runólfsson, öryggismálastjóri,
sagði aftur á móti að hér á landi
vantaði enn nokkuð á að slík sam
vinna tækist tækist og yrði til
þess að leysa úr. vandamálum
sem við er að etja á þessu sviði.
Klofning
Evrópu
London, 1. júlí. (Reuter)
I DAG dýpkaði gjáin sem að-
skilur hinar tvær viðskipta-
blokkir Vestur-Evrópu. Með
byrjun síðara misseris ársins
gengu í gildi 10% tollalækk-
anir Evrópumarkaðslandanna
innbyrðis og um leið 20%
tollalækkkanir Fríverzlunar-
landanna innbyrðis.
Tollalækkanir þessar eiga
að auðvelda verzlunarvið-
skiptin innan hvors viðskipta-
svæðis, en þeim mun örðugri
verða viðskiptin yfir landa-
mærin. sem skilja viðskipta
blokkirnar að.