Morgunblaðið - 03.07.1960, Blaðsíða 22
22
MORGVNMAÐIÐ
Sunnudagur 3. júlí 1960
350 berjast um 72 sœti til Rómar
Úrtökumót Bandaríkjanna er háð um helg-
ina í Palo Atlo í Kaliforníu. 1., 2. o£ 3. maður
í hverri grein verða fulltrúar Bandaríkjanna
á Olympíuleikjunum.
ÞAÐ er um þessa helgi, sem
Bandaríkjamenn velja þá frjáls-
íþróttamenn, sem verða fulltrú-
ar þeirra á Olympíuleikunum í
Róm. I flestum greinum er loka-
keppnin háð um þessa helgi, en
úrtökumótið fer fram á Stanford
veliinum í Paio Alto. — Þessi
heigi verður því örlagarik fyrir
marga og eflaust munu koma
fyrir atvik í hinni geysihörðu
keppni, sem lengi munu verða
í minnum höfð.
Ailt frá því að Oiympíuleik-
arnir voru teknir upp að nýju,
hafa Bandaríkjamenn staðið
mjög framarlega í frjálsíþróttum
og á Olympiuleikjunum í Mel-
hourne 1956 unnu þeir 15 Oiymp
íumeistarastig af 24 mögulegum.
Dick Cochran, kringlukastari
— kröftugt útkast —
Keppnin hörð.
Eitt er víst að í flestum grein-
um verður keppni hörð. Fjöldi
manna mun heyja erfiðari og
harðari keppni á Stanfordmót-
inu til að komast í Olympíulið
Bandaríkjanna en þá er þeir
koma til með að heyja til að
vinna verðiaun á Olympíuleikj-
unum. Þegar keppnin hófst í
gær, var áaetlað að 350 frjáls-
íþróttamenn hafi unnið til rétt-
arins til að taka þátt í mótinu.
Einn valinn, án lágmarksins.
Þegar Stanford mótið hófst í
gær áttu Bandarikin mann í
hverri grein, sem hafði náð lág
markskröfunum nema í 10 km
hlaupinu, en þrátt fyrir það hef-
ur verið ákveðið að senda þátt-
takanda í þeirri grein og er það
Max Truex, en hann náði góðum
árangri í þessu hlaupi á meist-
aramóti Bandaríkjanna í sl. viku.
Sterkari en nokkru sinni fyrr.
Bandaríkjamenn hafa ekki tap
að spretthlaupi á Olympíuleik-
um síðan 1928. Hvorki meira en
minna en 74 hafa náð lágmark-
inu í 200 metrum og 38 í 100 pn.
í grindahlaupunum hafa 41 náð
lágmarkinu og 36 í stangarstökki.
Róðurinn fer að þyngjast fyrir
Bandaríkjamönnum, er komið er
að 800 metra hlaupinu og fer
versnandi eftir því, sem hlaupin
lengjast. Þó hefur útlitið aldrei
verið betra en nú í ár, og menn
eru að vona að hin tvísýna
keppni úrtökumótsins muni kalia
fram hið ótrúlega og ekkert er
líklegra til þess en einmitt Olymp
íuárið.
Ný nöfn. sem verða fræg?
Af nýjum mönnum, sem hafa
komið fram á afreksmannalista
Bandaríkjanna í sumar og lík-
legir eru til að ná þeim heiðri
núna um helgina að verða valdir
fulltrúar Bandarikjanna á Ol-
ympíuleikina og þar með lík-
legir Olympíumeistarar hver í
sinni grein eru meðal fjölmargra
annarra: A1 Hall frá Southington
í Conneciticutfylki. Hann er
sleggjukastari og var fjórði á
Olympíuledkunum í Melbourne
1956. A1 Hall hefur náð undra-
verði leiknj í meðferð sleggjunn-
ar ög er aðferð hans í hringnum
oft líkt við ballettdansara, sem
svífur með hröðum hreyfingum.
Kostur kaststils hans er hve hann
sameinar vel krafta og stíganda
í snúningnum. Hall er 25 ára.
Dick Cochran er kringlukast-
ari.. Hann er 25 ára og nemandi
Al Hall,' sleggjukastari
— eins og balletdansari —
við háskólann í Missouri og hon
um getur hæglega skotið upp í
Olympíuliði Bandaríkjanna 1960.
Hann er þreklega vaxinn, 195.53
sentimetrar á hæð og vegur
102.06 kg. Dick er axlamikill og
armlangur og nær því kröftugu
útkasti. Hann vakti fyrst athygli
er hann var valinn í lið Banda-
ríkjanna fyrir amerísku leikina í
fyrra. Miklar vonir eru tengdar
við Dick Cochran, ekki sizt vegna
hins lága aldurs hans, og því allar
líkur til að hann eigi eftir að
þroskast enn meir og ná betri
árangri.
Charles Jones er mjög liklegur
til að verða keppandi fyrir
Bandarikin í 300 metra hindrun-
arhlaupi á komandi Olympíu-
leikum. Hann er frekar lágur
vexti, 176.5 sm. og vegur 63.5
kg., en kostur hans er frábær
keppnisharka. Hann er bæði hug
rakkur og ákveðinn og finnur
því ekki mikið fyrir hinum
mörgu og misjöfnu erfiðleikum
hindrunarhlaupsins. Charles Jon-
es er 26 ára og er nemandi við
háskólann í Iowa.
Ira Davis frá Philadelphiu er
einn i f mörgum sem örlögin
hafa á valdi sínu í hinni hröðu
keppni Staníordmótsins. Hann
er einn af hinum fáu þrístökkv-
Börnum var leyft að
vaka til að fagna Eyjólfi
EINS og getið hefur verið í frétt
um, leysti sundkappinn Eyjólfur
Jónsson það frábæra afrek s. 1.
miðvikudag, að synda frá Hrísey
til Dalvikur fyrstur manna.
Eyjólfur Jónsson og föruneyti
hans fóru flugleiðis til Akureyr-
ar, en jneð honum var Jcona
hans, Margrét Dagmar Einars-
dóttir og Pétur Eiríksson, sund-
kappí. Þetta er í fyrsta sinn, sem
frú Margfét fer með manni sín-
um í suhdleiðangur, en Pétur
Eiríksson og Eyjólfur Snæbjörns
soþ hafa manna oftast aðstoðað
Eyjólf viiJ sjósundin.
Til Dal líikur fóru þau svo með
áætlunarþíl, en eigandi hans
Háildór f Gunnlaugsson, bauð
þeim fríú far fram og til baka
í tilefni fararinnar.
Pall Erlingsson Dalvíkinga
Er til Dalvikur kom, tók á móti
Eyjólfi Kristinn Jónsson, sem á
netaverkstæðið Netjamenn Dal-
víkur. Kristinn er sannkailaður
Páll Erlingsson Dalvíkinga og
hefur verið frumkvöðull í upp-
byggingu sundiþróttarinnar í Dal
vík og Svarfaðardalshreppi.
Fyrsta yfirbyggða sundlaugin
í Svarfaðardal ca. 6 km. frá
Dalvík reis fyrsta yfirbyggða
sundlaugin á íslandi af grurini
og Svarfdælingar og Dalvíkingar
voru fyrstir til að taka sund upp
sem skyldugrein í skólum. Krist
inn Jónsson var þar aðalhvata-
maðurinn, enda sundkennari þar
fyrstu 30 árin.
Meðan dvalið var á Dalvík bjó
Eyjólfur og föruneyti hans hjá
Árna Arngrímssyni og Báru Elí-
asdóttur konu hans.
Eagt upp í sundið
Kristinn Jónsson hringdi til
Hríseyjar og talaði við Hiimar
Símonarson frá Saltnesi, en hann
hefur ferjuna og varð Hilmar
strax fús til að aðstoða þá við
sundið endurgjaldslaust.
Eyjólfur lagði upp í sundið kl.
rúmlega 9, úr fjörunni sunnan-
vert við bryggjuna og fylgdu
honum árnaðaróskir Hríseyinga,
sem voru samankomnir á bryggj
unni við burtförina.
Þar sem straumur var hagstæð
ur var stefna tekln á Hálshöfða
og mið-ði fyrst vel áfram. Þann-
Framhald á bls. 23
urum Bandaríkjanna. Olympíu-
nefndin gerir sér miklar vonir
um að hann nái því sem til þarf
tii að ve.ða i Olympíuliðinu og
nái góðum árangri á leikjunum.
Ira Davis er aðeins 23 ára og
er því ekki fullharðnaður, sem
íþróttamaður ennþá. Davis hefir
notið mikiivægrar tilsagnar fyrr-
vsrandi heimsmeistarans frá
Brazilíu. Ira er stúdent frá
menntaskóla í Philadelphíu.
Hann er giftur og vinnur sem
bókhaldari.
Margir verða vonsviknlr
Eitt er vist að eftir mótið i
Standford verða margir vonsvikn
ir og niðurbeygðir. — Það hefir
verið *fastur liður við úrtöku-
mótið fyrir hverja Olympíuleika.
En þó sterkir menn falli úr, þarf
það ekki að vera veikleikamerki
fyrir Olympíuliðið í heild, því
hin harða og spennandi keppni,
þrælþjálfaðra manna skilur að-
eins þá beztu eftir. Þannig var
það t. d. fyrir síðustu Olympiu-
leika. Enginn hafði efazt um
það að Dave Sim væri sá sem
myndi koma tvöfaldur sigurveg-
ari frá gpretthlaupunum í Mel-
bourne, en hann komst ekki í
Olympíuliðið. En Bobby Morrow
komst í liðið og hann kom sigur-
vegari frá báðum spretthlaupun-
Max Truex — án lágmarks
Ira Davis, þristökkvari
— með hjálp Silva —
um í Melbourne. í dag virðist Ray
Norton vera arftaki hinna
tveggja kóróna spretthlauparans
Morrow, en þess er að gæta að
allir hinir spretthlaupararnir eru
næstum eins góðir og hann.
Bandaríkjamenn eiga einnig 12
stangarstökkvara, sem stokkið
hafa yfir 4.57 metra. Níu þeirra
munu sitja heima.
Leikirnir í Stanford verða á-
rciðanlega frábærir í sinni röð
og þeir sem halda veginn til Róm
ai hafa sannarlega til þess unn-
ið.
2. deild.
Vesfmanneyingar
Breiöablik 4:1
unnu
Á FÖSTUDAGSKVÖLD unnu
Vestmanneyingar Breiðablik frá
Kópavogi 4:1, í leik þeirra í 2.
deildarkeppninni, sem fram fór
hér á Melavellinum. Leikurinn
stóð 2:1 fyrir Vestmannaeyinga í
hálfleik. Þó hefðu Vestmannaey-
ingar átt að hafa eftir gangi leiks
ins töluvert hærri markatölu.
Vestmannaeyingar höfðu mikla
yfirburði í fyrra hálfleik, en
Breiðabliksmenn sóttu sig mjög
í síðari hálfleik. Sigur Vestmanna
eyinga var þó aldrei í hættu og
síðustu mínútur hálfleiksins
höfðu þeir tekið leikinn algerlega
í sinar hendur.
Knattspyrnulega séð var leik-
urinn langt frá því að vera stór-
brotinn. Knattmeðferð er mjög
ábótavant hjá báðum liðunum,
en þó eru einstaklingar sem hafa
sómasamleg tök á knettinum og
auga fyrir samleik. Heildarsvipur
leiksins var fálmkenndur og ox't
á tíðum mjög frumlegur. Vest-
mannaeyingarnir eru þó líklegri
til að geta meira en þeir sýndu
nú.
Q FALLEG MÖRK
Öll mörkin voru glæsilega
s'koruð. Fyrsta mark leiksins skor
aði Reynir Sigurðsson vinstri
útherji Vestmannaeyja, er 7 mín.
voru af leik. Annað markið skor-
aði Guðmundur Þórarinsson v.
innherji Vestmannaeyinga, sem
var bezti maður vallarins og eft-
irtektarverður skotmaður, sem
hefir gott „sparklag“! — Guð-
mundur skoraði af löngu færi
með hörku skoti. — Þriðja mark
leiksins skoraði miðherji Breiða-
bliks, Grétar Kristjánsson, sem
var bezti maður Kópavogsmanna.
Mjög glæsilegt mark. Fjórða
mark leiksins skoraði hægri
innherji Vestmannaeyinga, sem
skallaði laglega í mark úr horn-
spyrnu. Fimmta mark leiksins
skoraði svo Guðmundur Þórar-
ir.sson af 35 metra færi, með föstu
skoti, sem sneiddi hægri stöng-
ina og inn í mark. — Á.Á.
Í dag
í DAG kl. 16.00 keppa Akurnes-
ingar við Keflavíkinga í 1. deild
arkeppninni og fer leikurinn
fram á Akranesi og einnig keppa
þó sömu aðilar í landsmóti 3. fl.
1 Reykjavík keppa Vestmanna-
eyingar við Sandgerði í 2. deild-
arkeppninni og fer sé leikur fram
á Melavellinum og hefst kl. 14.00.