Morgunblaðið - 03.07.1960, Síða 15

Morgunblaðið - 03.07.1960, Síða 15
Sunnudagur 3. júlí 1960 M O R C J!l\ n T AÐ1Ð 15 .vr-s- '■/x'- ■■' • • ■ • /wywwywwvw ■?->■ vw Þeir qlírtidu vift SJÓSTANGAVEIÐI er svo til nýtt fyrirbæri hérlendis. ís- lendingar eru þó þegar farn- ir aó sækja mót erlendis og greindi Mbl. frá heimkomu tveggja á dögunum. Þeir gistu Bandaríkin og Kúbu og létu vel af förinni. — Það er einn af frægustu ljósmyndurum heims, Hy Peskin, sem er frumkvöð- ull heimsmeistarakeppninnar, sögðu þeir Gunnar Svein- björnsson og Valdimar Valdi- marsson, þegar Mbl. innti þá nánari frétta af mótinu. — Og upphaf keppninnar var það, að Perskin heyrði eitt sinn á tal tveggja veiðimanna, sem voru að metast á um það hvor þeirra væri meiri. Joe Louis sagðist vera sá snjallasti, en Ted Williams, frægur veiðimaður, taldi eitt- hvað hæfa hnefaleikaranum betur en veiðiskapur — og lyktaði deilunum með háa- rifrildi. >*>» Á hraðbátum — Peskin fannst hann verða að hjálpa mönnunum til að fá skorið úr um vafaatriðin og hsnn fór á stúfana og undir- bjó fyrsta heimsmeistaramót- ið. Hvorki Williams né Louis urðu heims- meistarar, en það varð Pesk- in. .— Veiðarnar þarna syðra eru verulega frábrugnar þvi, sem hér þekk- ist — svo ekki sé meira sagt. Við veiddum aðalega fimm tegundir, stóra fiska og hrað- synda. Við vorum á lysti- snekkjum, þrír á báti, og kepp- endur voru nær 50. Þetta eru bátar, sem sigla með 30— 42 mílna hraða, en við veiðar er hraðinn ekki meiri en 12— 15 mílur. Við sitjum þá í sér stökum veiði- s t ó 1 u m og stöngina, sem er mjög sterk- leg, getum við líka sett fasta, enda ekki ann- að hægt, þeg- ar átökin verða sem mest. Beitan „syndir“ Sverðfiskur- inn er einn þeirra fiska, sem mikið er veiddur þarna. Við gefum fær- in út um 25 m. og svo er siglt nægilega hratt til að öngull- inn liggi á yfirborðinu. í beitu er notuð lítil sverðfiskateg- und, um 30 gr. að þyngd — og það er sérstök list að beita, því tvær raufar eru sKornar í fiskinn rétt framan við sporð- inn — þannig, að sporðurinn „blaktir", þegar komið er á hæfilega mikla ferð. Er þá sem beitan „syndi“ og von bráðar sjáum við ugga upp úr valnsskorpunni í 100—150 m. fjailægð. Hann nálgast með ótrúlegum hraða. >4» Létu sér nægja 100 pund — En v>3 verðum að gefa sverðfisknum góðan tíma til að gleypa beituna, þvi hann er tannlaus og öngullinn skreppur út úr honum, ef byrjað er að kippa í áður en hann er kominn niður í maga fisksins. En þá hefjast líka átök — og þá verður það að ráðast hvor sterkari er, veiði- maðurinn eða fiskurinn. — Af sverðfiskum eru aðal- lega tvær tegundir, sem veidd ar eru við Flodida og Kúbu. Seglfiskurinn svonefndi og Merilin. Seglfiskurinn dregur nafn sitt af geysimiklum bak- ugga. Hann er eins og kapp- siglari. Stærsti Merlin, sem veiðst hefur þarna, var 688 pund, en við létum okkur nægja tæplega 100 punda fiska — og fannst okkur nógu erfitt að eiga við þá, sögðu þeir félagar. Veiðiveðrið' var gott, hitinn 35—40 stig allan tímann. sverðfiska og barracuda Barrásuda — Dalphin heitir önnur fisk tegund. Sá fiskur er sagður hinn hraðsyndasti í heimi. Hann kemst á 100 mílna hraða Gunnar með veiði dagsins. enda er lygilegt að sjá hann skjótast í vatnsskorpunni. Þetta er eins og tundurskeyti. Tarpin heitir annar, svipaður síld í útliti, en þó margfall stærri. Gunnar veiddi einn 110 punda Tarpin, en þeir stærstu verða 3—400 pund. — Barracuda er skemmti- legur að eíga við. Þetta er reglulegur ránfiskur, mjög hættulegur, og Hemingway lýsir honum vel í „Gamli mað urinn og hafið“. Barracua er yfirleitt í torfum og er miklu skæðari en hákarl. Hann klipp ir bókstaflega allt í sundur. Undarlegt hvað svona lítill fiskur getur gert mikið illt ; af sér. Meðalstærðin er 15— 20 pund. Við fengum nokkra slíka, segja veiðimennirnir. Hefði getað mölbrotið hauskúpuna — Það er tvennt ólíkt að að draga þorsk við ísland og veiða þessa stórfiska suður í Mexico-flóa. Þegar einn var kominn með fisk á öngulinn urðu hinir að gera svo vel að draga sín færi inn og bíða, stundum allt að klukkustund, því það tekur langan tíma að þreyta þessar skepnur. Og yfirferðin er svo mikil, að öll færin fara strax í eina flækju, ef þeir seinheppnu flýta sér ekki og forða sínum. — Þessi hraðsyndi Dalphin er furðuskepna. Sporðslögin er óskaplega snögg og hörð. Þegar búið er að innbyrða hann syngur í bátnum eins og trumbu langa stund. Við vor- um jafnvel undrandi yfir því að hann skyldi ekki brjóta þil- farsborðin. Og það var betra fyrir okkur þessa óvönu að hætta okkur ekki of nálægt honum á þilfarinu. Hann hefði getað mölbrotið á okkur haus- kúpuna. >«» Straummótin — En það, sem tvímælalaust vakti mesta athygli okkar í íerðinni, var Golfstraumurinn.Valdimar með einn furðufiskinn Það var furðulegt að sjá straummótin þarna á sund- inu milli Florida og Kúbu. tíiórinn við landið e/ þarna mjög grænleitur ,en Goif- straumurinn er dökk-blár. Straúmhraði hans er 4—8 mílur á klst., en þegar komið er út úr straumnum, upp að landinu, er allt kyrrt, enginn straumur. Það undarlegasta er, að sjálf straummótin eru Óanægja með Vesturferðir ÞÚFUM, 29. júní: Eftir að bíl- ferðir hófust með áætlunarbíl- um frá Heykjavík til ísafjarðar- djúps, nú í vor, hefur áætlun bíl anna verið breytt. Fer bíllinn nú beint til Melgraseyrar, en sleppt er Arngerðareyri, sem við komustað á miðvikudögum og laugardögum, er bíllinn fer til Reykjavíkur. Þetta veldur fólkj í Reykjar- fjarðarhreppi miklum óþægind- um og er óvinsælt. Meðan djúp- báturinn fór til Arngerðareyrar gat fólk oft haft samband við bátinn frá Vatnsfirði og Reykja- nesi. Með þessu fyrirkomulagi, sem nú á ferðum, verður að fara á bíl í veg fyrir áætlunarbílinn, gera honum fyrirsát í Laugadal, sem er alla staði mjög óheppi- legt. Er það von þeirra, sem hér eiga hlut að máli, að þessu verði kippt í lag. Ferðum bílsins og djúpbátsins verði þannig hagað, að Arngerðareyri verði fastur viðkomustaður, er bíllinn ekur suður til Reykjavíkur á miðviku dögum og laugardögum. —PP. ekki nema 5—35 metrar. Öðr- um megin dökk blátt, hinum megin grænt. Og sé maður i þeim græna verður ekki vart straums, en jafnskjótt og kom- ið er yfir skilin er báturinn kominn á fleygiferð. Skemmti legt, en skrítið, segja þeir fé- lagar og fara að tala um Kúbu. En það verðum við að geyma til betri tíma. — h.j.h. Orðsending lil allra landa MOSKVU, 29 júní. — Tass- fréttastofan tilkynnti í kvöld, að rússneska stjórnin hefði sent orðsendingu til allra landa heims vegna loka afvopnunarráðstefn- unnar. Gromyko, utanríkisráð- herra hefur sent Hammarskjöld, framkvæmdastjóra SÞ, bréf, þar sem hann fer þess á leit að af- vopnunartillögur Rússa verði teknar upp á dagskrá Allsherjar- þings SÞ, sem áríðandi viðfangs- efni. í orðsendingunni til allra landa heims segir, að það hafi verið orðið augljóst, að Vestur- veldin vildu ekki bann og eyði- leggingu Kjarnorkuvopna né al- menna afvopnun né afnám er- lendra herstöðva. — Þessvegna voru umræður á afvopnunarráð- stefnunni þýðingarlausar. Skakferðir dagskrárliður ,[ SAMBANDI við allskonar ráð- stefnur, sem fyrirhugaðar eru hér í sumar, hefur í sumum til- fellum verið reynt að hafa það lið í dagskránni að fara á skak út í Faxaflóa. Hafa ýmsir aðilar leitað til Landhelgisgæzlunnar í von um að fá þar farkost. — Við getum ekki tekið slíkt að okkur, sagði Pétur Sigurðsson forstjóri. En því er ekki að neita undir vissum kringumstæðum getur hitzt svo á að hægt sé að hlaupa undir bagga. Væri ekki athugandi fyrir framiakssama menn að kynna sér möguleika skakferðum út á Faxaflóa?, sagði Pétur. Þetta mál bar á góma í gær, en þá var björgunarskipið Sæ- björg hér úti í Faxaflóa með all marga fulltrúa á norræna sam- vinnumannafundinum, sem hér stendur yfir. Þeir höfðu fiskað allvel í góða veðrinu og glatt verið á hjalla. Fæstir höfðu áður dregiá fi.sk úr á því að gangast fyrir slíkum i sjó.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.